Tíminn - 27.05.1972, Blaðsíða 1
i
IGNIS
ÞVOTTAVÍLAR
s Suduriands brairt
nýt
86500
Reynum að ræða
við áhrifamenn
- segir framkvæmdastjóri augiýsinga-
fyrirtækisins, sem kynnir landhelgismálið
TK- London.
Sem kunnugt er, hefur
utanrikisráðuneytið samið
við brezka auglýsingafyrir-
tækið Wittaker Hunt Public
Relations Limited, um
kynninguá málstað Islands
i landhelgisdei lunni.
Blaðamaður Tímans náði
tali af eiganda fyrirtækis-
ins, Donald F. Hunt, og
spurði hann, hvers konar
aðferðum hann mundi
beita til þess að afla mál-
stað islands fylgis.
Donald F. Hunt sagði, að beitt
yrði öllum kunnum aðferðum i
sambandi við slika dreifingu, en
mest áherzla yrði lögð á að tala
við þá aðila og þá þingmenn, sem
gætu haft áhrif á almenningsálit-
ið. Fyrirtækið legði sérstaka
áherzlu á slika starfsemi, en
minna á áberandi auglýsingar
eða fréttamennsku i blöðum.
Fyrirtækið hefði einnig með að
gera dreifingu á þeirri kvikmynd,
sem nú er i undirbúningi. Fyrir-
tæki hans legði sig i lima við aö ná
sambandi við alla þá aðila, sem
annað hvort eiga einhverra hags-
muna að gæta i sambandi við
fiskveiðar á Islandsmiðum eða þá
aðila, sem liklegir eru til að geta
haft áhrif á almenningsálit i út-
gerðarbæjunum.
/ leit að heppi-
legu húsnæði
Frá og með deginum í gær var kinverskur sendifulltrúi settur hér á
landi. Eins og Timinn skýrði frá I gær, komu kinverjarnir hingað I
fyrradag, en I gær ræddi formaöur sendinefndarinnar, Lin Hua, við
Pétur Thorsteinsson, ráðuneytisstjóra i Utanríkisráðuneytinu og Pétur
Eggerz, ambassador. Kinverjarnir byrjuðu I gær að leita aö heppilegu
húsnæði fyrir sendiráð stjórnar sinnar og var meðfylgjandi mynd tekin,
er þeir skoðuöu hús i gamla bænum I Reykjavik. Ekki hefur veriö tekin
endanleg ákvörðun um,hvort húsnæði verður keypteða leigt, en Timinn
hefur rökstudda ástæðu til að ætla.að kinverjarnir hafi hug á kaupum.
— Sá aftari á myndinni talar islenzku dável.
(Timamynd Gunnar)
SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR
NTB-Moskvu
Richard Nixon, Bandarikjafor-
seti og Leonid Bresjnef, leiðtogi
kommúnistaflokks Sovétrikja-
nna, undirrituðu i gærkveldi hinn
svokallaöa SALT-sáttmála við
hátiðlega athöfn i Moskvu. Fór
athöfnin fram að loknum kvöld-
verði, sem Bandarikjaforseti hclt
til heiðurs leiðtogum Sovét-
rikjanna.
SALT-samningurinn er hinn
sjötti, sem leiðtogar rikjanna
hafa undirritað siðan Nixon kom-
til Moskvu á mánudaginn. Jafn-
framt er hann hinn mikilvægasti,
ekki aðeins fyrir sambúð
rikjanna tveggja, heldur og fyrir
allan heiminn, með undirritun
hans er stórlega dregið úr hætt-
unni á þvi, að kjarnorkustrið
brjótist út.
SALT er sammstöfun á
„Strategic Arms Limitation
Talks”, sem lauslega þýtt mætti
kalla viðræður um takmörkun
kjarnorkuvopna. Viðræður
þessar hófust hinn 17. nóvember
1969, en það var rúmum tveimur
árum áður, hinn 27. janúar 1967,
að Lyndon Johnson, þáverandi
Bandarikjaforseti, lagði fyrst til
að þessar viðræður yrðu hafnar.
Forsætisráðherra Sovétrikjanna,
Alekseij Kosygin, gaf svo jákvætt
svar stjórnar sinnar 2. marz 1967.
Aðalsamningamenn rikjanna
hafa verið þeir sömu frá upphafi,
Gerard Smith fyrir hönd Banda-
rikjanna og Vladimir Semjonov
fyrir hönd Sovétrikjanna. Þykja
þeir hafa staðið sig með afbrigð-
um vel báðir tveir, og undanfarið
hafa þeir verið að dag og nótt.
Samningarnir, sem undirritað-
ir voru i gærkvöldi, fela i sér, að
takmarkaður er mjög fjöldi
árásar- og varnarvopna, sem
rikin mega ráða yfir og fram-
leiða.
Hér fer á eftir skrá yfir þau
vopn, sem hvort riki um sig má
nú hafa. Eru tölurnar frá alþjóða-
stofnun,sem kannar hernaðar-
mátt kjarnorkuveldanna og eru
hámarkstölur:
(Fremri tölurnar eiga við
Bandarikin, hinar aftari við
Sovétrikin.)
Langdrægar eldflaugar með
einni sprengju:
954 1510
Langdrægar eldflaugar með
mörgum sprengjum (mirv):
100 Engar
Árásareldflaugar , sem skjóta
má frá kjarnorkuknúnum kafbát-
um: 656 350
Árásareldflaugar.sem skotið er
frá diesel-kafbátum:
Engar 90
Stórslasaður maður
Fannst í
rústum
ÞÓ-Reykjavik.
Maður á fertugsaldri
brenndist mjög alvarlega, er
tjald, sem hann svaf i.brann
ofan af honum. Maðurinn
var i tjaldi vestur á Snæfells-
nesi, og var hann fluttur i
þyrlu i sjúkrahús i Reykja-
vik.
Það var um kl. 14 i gær, að
fólk frá Skóganesi i Mikla
holtshreppi á Snæfellsnesi
kom að tjaldinu nánast fyrir
tilviljun. Var þá tjaldið
brunnið, og maðurinn lá þar i
hálfgerðu meðvitundarleysi.
Strax var haft samband við
sjúkrahúsið i Stykkishólmi,
og þaðan var sendur sjúkra-
bill og tveir læknar.
Þegar læknarnir höfðu
skoöað manninn, kom i ljós,
að hann var mjög mikið
brenndur, svo mikið, að ekki
var talið unnt að gera að sár-
um hans i sjúkrahúsinu i
Stykkishólmi. Var þá haft
samband við Varnarliðið, og
þaö beðið að senda þyrlu á
staðinn til að flytja manninn
i sjúkrahús i Reykjavik.
Kom þyrlan fljótlega vestur
og flutti manninn til
Reykjavikur.
Kaupskipa-
flotinn
stöðvaður
OÓ-Reykjavik.
Verkfall stýrimanna á
kaupskipaflotanum hófst á
miðnætti i fyrrinótt. Sátta-
semjari hélt fund með deilu-
aðilum, sem hófst kl. 16 i
fyrradag og stóð yfir fram til
kl. 3,30 um nóttina, en samn-
ingar tókust ekki. Annar
sáttafundur hefur ekki verið
boðaður.
Fá skip voru i Reykjavikur-
höfn i fyrradag, og voru þau
farin úr höfn um miðnætti
þegar verkfallið skall á. Hafa
þvi engin skip stöðvazt ennþá
vegna verkfallsins.
Myndirnar voru teknar af
hafnarbökkunum i Reykjavik
i gær, og eru einu skipin sem
þar sjást erlend.