Tíminn - 27.05.1972, Síða 12
12
TÍMINN
l.augardagur 27. mai 1972.
Ég hefði getað grátið af reiði og
vonbrigðum. En allt kom fyrir
ekki. Mildred Blaney gekk alltaf
fyrir, þar sem börn hennar voru
annars vegar.
8. kapítuli.
Ég sá ekki Maeve i nokkra
daga. Ég hringdi til hennar á
skrifstofuna næsta dag, en fékk
að vita að hún væri þar ekki.
Móðir hennar var sjúk var mér
sagt. Ég sagöi til min og óskaði
þess að hún hringdi mig upp strax
og hún kæmi á skrifstofuna. Ég
vildi alls ekki hringja til Fair-
field. Ef frú Blaney var veik, sem
ég efaðist mjög um, þá var það að
minnsta kosti taugaæsingur og
nægði til þess,að Maeve var aö
stumra yfir henni. Ég var reglu-
lega sár fyrir hönd Maeve, en ég
var ekki lengi i óvissu um það
hvað gengi á á Fairfield. Ég rakst
nefnilega á Jónatan þegar ég
gekk út úr snyrtistofunni minni.
Ilann lézt vera undrandi, en ég
hafði hann grunaðan um að hafa
setið fyrir mér. Hann vissi,að ég
hafði fastan tima á snyrlistofunni
hvern mánudag l'yrir hádegi.
Ég fékk smásting i hjartað þeg-
ar ég sá hann. Hann var berhöfð-
aður i sólskininu, og hið drengja
lega andlit hans bar vott
um öryggisleysi og ótta út af
þvi hvernig ég mundi taka þvi að
hilta hann. Hjarta mitt mun ætið
finna til með Jónatan, þvi einu
sinni þótti mér verulega vænt um
hann.
— Kay. Það var gaman að rek-
ast á þig. . . þú litur ljómandi vel
út. . . . og svo falleg.
bakka þér fyrir, Jónatan.
Sama get ég sagl um þig.
- Fallegur?
— Ég hló, og hið vandræðalega
augnablik var liðið hjá. — Eigum
við heldur að segja frisklegur og
karlmannlegur?
bakka, meira get ég ekki
heimtað. Hann leit á armbands-
úrið sitt. Ilefurðu lima til að fá
þér neðan i glasi með mér?
— Allt i lagi.
Við töluðum svona um hitt og
þetta á leiðinni gegnum umferð-
ina. bað var fyrst þegar við sát-
um með sherry-glösin fyrir fram-
an okkur, að við gálum farið að
tala um Maeve og frú Blaney.
— Mér þótti leiðinlegt að eyði-
leggja samkvæmið þitt i gær-
kveldi ■— en ég var svo áhyggju-
fullur útaf mömmu. Hún var
alveg utan viðsig og ekkert okkar
fékk að hjálpa henni. Eina mann-
eskjan sem hún vildi sjá var
Maeve.
— Já, það var mjög leiðinlegt
og eyðilagði alveg kvöldið fyrir
okkur, sagði ég kuldalega.
Jónatan horfði rannsakandi á
mig. — Vissirðu,að það var
afmælisdagur Iionnies þegar þú
bauðst til veizlunnar, Kay?
— Nei, en ég getekki séö.að það
komi þvi nokkurn skapaðan hlut
við. Mér finnst það næstum
ósæmilegt að binda Maeve þannig
við hið liðna. Hún er enn nógu ung
til þess að eiga sina framtið. Hún
þarf að gleyma fortiðinni en ekki
grafa sig inn i hana.
Hann varð dálitið vandræða-
legur, en eigi að siður reyndi hann
að verja móður sina. — Ég held
þú skiljir ekki vel — það hefur svo
mikla þýðingu fyrir mömmu að
Maeve minnist þessa dags. Henni
finnst það hreint virðingarleysi ef
hún gerir þaðekki. Ég held,að það
sé ákaflega erfitt fyrir þig að
skilja tilfinningar hennar.
— Ét held, aö ég skilji hana
mjög vel, Jónatan. Hún vill að
þessir minningar-dagar séu i
heiðri hafðir — þeir eru margir,
endurtaka sig, ekki satt? — til
þess að binda Maeve fastar við
fjölskylduhringinn — og sjálfa
sig.
Hann roðnaði. — Ég get ekki
leyft. að þú talir þannig um
mömmu.
Ég tók veskið mitt og hanzk-
ana. — Það er vandalaust að losa
þig við það. Ég verð að segja það,
sem mér finnst rétt, Jónatan.
Vertu sæll og takk fyrir drykkinn.
Hann greip i handlegginn á
mér. — Kay, ekki fara frá mér á
þennan hátt, við skulum ekki fara
að þræta. Ég viðurkenni, að i aug-
um framandi er mamma kannski
eigingjörn i framkomu við okkur.
Þú getur ekki liðið hana, eða er
ekki svo?
Nei, það var ekki ástæðan. Ef
ég hefði elskað Jónatan, hefði ég
reynt að kyngja frú Blaney. En ég
elskaði hann ekki nógu heitt —
ekki eins og ég var farin að elska
Chris. Ég þráði Chris alveg
óskaplega á þessari stundu, og ég
slóð á gólfinu aflvana og skjálf-
andi. Jónatan misskildi þetta og
snerti hönd mina.
— Kay, gætum við ekki reynt
aftur — við gætum samið — við
þurfum ekki að búa á Fairfield,
og ég skal ekki heimta,að þú farir
með mér i hvert sinn, sem ég
heimsæki mömmu. Kay. . . . ?
Ég hristi höfuðið. — Það mundi
ekki ganga, kæri, ég veit að það
mundi aldrei ganga.
— Meinarðu — að mamma sé
ekki einasta ástæðan?
— Hún er yfirleitt ekki nokkur
ástæða. Mér þykir vænt um þig,
en ekki nógu mikið til þess að gift-
ast þér.
— Ætlarðu þá að giftast ein-
hverjum öðrum?
— Nei, ég mun e ngum giftast.
Það birti augljóslega yfir hon-
um. — Það er þá einhver von fyrir
mig?
— Það er vonlaust, Jónatan.
Gleymdu mér með öllu.
— Þú getur ekki bannað mér að
vona. . . Hann lýsti þvi vonglaður
yfir, að hann mundi fljótlega
hringja mig upp.
Þegar ég kom heim i ibúðina
mina eftir að ég hitti Jónatan,
fann ég, að, aldrei á minni ævi
ég verið jafn ein og yfirgefin, sem
nú. Þrá min eftir Chris var svo
sterk,að ég kastaði mér ofan á
rúmið, algjörlega á valdi minna
örvingluðu hugsana. Ég var þó
nokkra stund að átta mig á þvi.að
siminn hringdi aftur og aftur. Til
þess að byrja með var það ætlun
min að svara ekki, en þegar þess-
ar stöðugu hringingar voru farn-
ar að fara i taugarnar á mér, lyfti
ég hendinni og tók simann. Að
heyra rödd Drake Mervers var
kannski það bezta, sem ég gat
hugsað mér á þessu augnabliki.
— Halló, Kay? Hvernig hefur
uppáhalds-stúlkan min það? Ég
var einmitt að koma með flugvél
frá Ameriku rétt i þessu.
— Halló, Drake. Ég átti ekki
von á þér fyrr en um jól.
— Jæja, svo þú hefur þá saknað
min ofurlitið? Ég hef saknað þin,
Kay. Þess vegna setti ég upp öll
segl til þess að komast til þin eins
fljótt og mögulegt væri. Ég ætla
að sjá leikinn þinn i kvöld, og svo
verður að fara i skástu leppana
þina, þvi þú ert boðin út i stórum
stil á eftir.
— Meinarðu i kvöld, Drake?
spurði ég.
— Auðvitað.
— Allt i lagi. . . . Drake var
einmitt rétti maðurinn fyrir mig
eins og mér var innanbrjósts nú.
1115.
Lárétt
1) Blómið.- 6) Hamingjusöm,-
8) Gruna,- 10) Dauði.- 12)
Lita,-13) Guð,-14) Hærra.-16)
Efni,- 17) Siða til,- 19)
Málmi,-
Lóörétt 2) Reykja.-3) Úthaf.-
4) Vond.- 5) Frampartur,- 7)
Bikar.-9) Umferð.- 11) Púka.-
15) Fálm,- 16) Mál - 18) Lita,-
X
Ráðning á gátu nr. 1114
Lárétt
1) Partý,- 6) Par.- 8) Ýki,- 10)
Úrg,- 12) Kú,- 13) EE,- 14)
Urr,- 16) Ofn,- 17) Yls,- 19)
Skass.-
Hann var betur til þess fallinn en
nokkur annar, að draga mig útúr
þessari sjálfsmeðaumkvunar-
kennd, sem ég hafði grafið mig i.
Ég áliLað hann hafi verið orð-
inn eitthvað skemmdur af eftir
læti og konum, en hann var
glæsilegur ungum maður, áhuga-
verður og skemmtilegur. Að
minnsta kosti var hann einmitt
það læknisráðið, sem ég þurfti
með — enginn gat verið dapur ná-
lægt honum — og eg var mikið
með honum næstu vikurnar, svo
mikið, að slúðurdálkar blaðanna
voru farnir að nefna okkur
saman. Kvikmynda-timaritin
skrifuðu stöðugt um okkur — eins
og: „Munu brúðkaupsklukkurnar
hringja bráðlega fyrir Drake og
Kay?”
Mig langaði til þess að neita
þessum dylgjum, en fékk það ekki
fyrir Max. Hann sagði að þetta
væri ágæt auglýsing, og ég þorði
ekkert að gera.
Þetta var hlýtt og indælt haust.
Þegar ég hafði fri ók Drake mér
jafnan á einhvern veitingastað
utan borgarinnar. Hann var mjög
hrifinn af þessum gömlu veit-
ingastöðum, og þekkti óendan-
lega marga. Við áttum að leika
saman i kvikmynd með vorinu.
Það var mjög stórt verk og við
Drake áttum að leika aðalhlut-
verkin Max var harðánægður
með þetta, en hinsvegar varð
hann fyrir vonbrigðum með mig.
Ég hafði fengi itrekuð tilboð frá
sjónvarpinu, en jafnan neitað. Ég
treysti mér ekki til að vinna við
hliðina á Chris.
Að sjálfsögðu frétti ég af honum
við og við. Maeve nefndi hann
stundum, og það, sem henni hraut
um hann, geymdi ég sem dýr-
gripi. En ég treysti mér ekki til að
Lóðrétt
2) Api,- 3) Ra.- 4) Trú,- 5) Lýk-
ur,- 7) Ageng.- 9) Kúr,- 11)
Ref,- 15) Ryk,- 16) Oss,- 18)
La,-
iiyyiiii.
■
LAUGARDAGUR
27.maí
7,00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir
kynnir.
15.00 Fréttir.
15.15 Stanz.Jón Gauti Jónssonr
og Arni ólafur Lárusson
stjórna þætti um umferðar-
mál og kynna létt lög.
15.55 Þættir úr lífi barns
< K i nd cr s z e ne n ) eftir
Schumann. Ingrid Ha“bler
leikur á pianó.
16.15 Veðurfregnir A nótum
æskunnar.
17.00 Fréttir. Ljóð um ástina
og hafiö eftir Chausson.
RCA-Victor sinfóniuhljóm-
sveitin leikur, Pierre
Monteux stj.
17.30 úr Ferðabók Þorvalds
Thoroddsens. Kristján
Árnason les. (4)
18.00 F"réttir á ensku.
18.10 Söngvar i léttum dúr.
Otis Redding syngur.
18.30 Tilkynningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.30 „Ileimsókn til
Bakkabræöra”, leikþáttur
cftir Sigurð ó. Pálsson.
19.55 Hljómplöturabb.
20.40 Smásaga vikunnar:
„Fariseamir” eftir Guð-
bcrg Bergsson. Erlingur
Gislason les kafla úr •
„Ástum samlyndra hjóna”
21.10 Sitthvað i hjali og
hljómum. Þáttur um
tónskáldið Victor Herbert i
umsjá Knúts R.
Magnússonar.
21.45 Ljóð eftir JarosÞ Seifert
og Miroslav Holub. Þorgeir
Þorgeirsson les eigin
þýðingar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur27. maí.
17-00 Slim John Ensku-
kennsla i sjónvarpi. 26. þátt-
ur.
17.30 Brezka knattspyrnan
Landsleikur milli Wales-
búa og Englendinga.
19.00 Hlé
20.00 Fréttir
20.20 Veður og auglýsingar
20.25 Hve glöð er vor æska
Brezkur gamanmyndaflokk-
ur. Sundgarpurinn.Þýðandi
Jón Thor Haraldsson.
20.50 Nýjasta tækni og visindi
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.15 Vitið þér enn?
Spurningaþáttur i umsjá
Barða Friðrikssonar.
Keppendur Ólafur Haukur
Árnason, fyrrverandi skóla-
stjóri, og Guðrún Pálina
Helgadóttir, skólastjóri.
21.50 Timi hefndarinnar
(Behold a Pale Horse) Banda-
risk biómynd frá árinu 1964,
byggð á skáldsögu eftir
Emeric Pressburger. Leik-
stjóri Fred Zinnemann. Að-
alhlutverk Gregory Peck,
Anthony Quinn, Omar
Shariff og Marietto
Engelotti. Þýðandi Óskar
Ingimarsson. Myndin gerist
á Spáni tveimur áratugum
eftir lok borgarastyrjaldar-
innar. Skæruliðaforinginn
Manuel héfur allan þann
tima verið i útlegð eða farið
huldu höfði hundeltur af
Vinolas lögregluforingja.
Nú fréttir hann af aldraðri
móður sinni, að hún liggi
fyrir dauðanum, og ákveður
að halda til fundar við hana,
þrátt fyrir hættuna, sem þvi
er samfara.
23.45 Dagskrárlok