Tíminn - 31.05.1972, Qupperneq 1
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÍMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
☆"☆☆
Fleiri
loka á
laugar-
dögum
Bæði húsið
og verkin
forvitnileg
Myndlistarhúsið
á Miklatúni opnað á
sunnudag
Klp—Reykjavík.
Þessa dagana er unnið af
kappi við að leggja siðustu
hönd á smiðar á tveim sölum i
Myndlistarhúsinu á Miklatdni,
sem sumir listamenn vilja þö
licldur kalla Klambratún, þvi
það hljómi betur en hitt. Auk
þess er verið að ganga frá og
snyrta allt ikringum húsið, og
er fjöldi manns i vinnu við
þetta.
Þegar við litum inn i þetta
furðulega hús i gær var annar
myndlistasalurinn að verða
tilbúinn, en það er sá, sem
kendur er við Kjarval. Þangað
inn voru komin listaverk og
farið að undirbúa að koma
þeim fyrir. í hinum salnum,
sem er stærri, voru smiðirnir
að ljúka við sitt verk.
Jafnóðum og sópað var upp
eftir þá komu listamennirnir,
sem þarna voru margir, inn
með verkin, — en þau voru i
stöflum fram i anddyri og út
við alla veggi.
Þessi verk voru eftir
islenzka listamenn, svo og
listamenn frá öðrum Norður-
löndum, en á sunnudaginn
verður þarna opnuð Norræn
málverka- og höggmynda-
sy'ning i sambandi við Lista-
hátfðina. Þessi verk, sem biðu
■
Um leið og smiðirnir hopa koma málverkin og höggmyndirnar inn i nýju salina i Myndlistarhúsinu á
Mikiatúni, sem verður tekið i notkun n.k. sunnudag. (Tfmamynd G.E.)
eftir þvi að verða sett á sinn
stað, voru ærið misjöfn, svo
ekki sé meira sagt — eða allt
frá stórum og þungum högg-
myndum og niður i varla lófa-
stór málverk.
Fram i anddyri var arkitekt
hússins, Hannes Daviðsson, að
ræðaviðsina menn, þegar við
náðum ihann. Ilann sagði, að
þctta væri allt á siðasta
snúningi, en það hefðist að
ljúka við þessa sali og inn-
ganginn ásamt salernum og
gestamóttiiku fyrir sunnu-
daginn. Allt húsið ætti svo að
vcrða tilbúið siðar i sumar, og
stæðist það örugglega, ef allt
gengi cins og það hefði gert
undanfarna daga.
Hannes fór mcð okkur á
hraðferð um liúsið, og sýndi
okkur það, sem hann taldi
markvert. Og það er ekkert
smáræði, enda er húsið allt hið
forvitnilegasta og um leið hið
furðulegasta, eins og sjálfsagt
sjálf verkin, sem þarna vcrða
sýnd á komandi árum.
Kauphækkanir um mánaðamótin:
VERKAMENN FÁ NÚ
ALMENNT UM 120
KRÓNUR Á TÍMANN
Hassmálið:
Stúlkunni
sleppt úr
gæzlu
Oó-Reykjavík.
Saksóknari rikisins hcfur farið
þess á leit við dönsku lögregluna,
að tveir íslendingar, sem dvelja i
Kaupmannahöfn, eftir þvi sem
bezt er vitað, verði yfirheyrðir
vegna hasssmyglsins til tslands.
Eru þeir grunaðir um aö útvega
fikniefni i Danmörku, sem síðan
er smyglað hingað til lands.
Heldur er rólegt yfir rannsókn
hassmálsins hér. Fimm manns
hafa setið i gæzluvaröhaldi i
Reykjavik og Kópavogi i allt að
tvær vikur, en i gær var
stúlkúnni, sem handtekinn var i
Kópavogi, vegna grunsemda um
hasssölu, sleppt, en karl-
mennirnir sitja inni enn.
OÓ—Reykjavik.
Veruleg kauphækkun
verður hjá launþegum á
morgun, 1. júni. Kaup-
greiðsluvisitalan
hækkar um rúm 7 stig og
jafnframt hækka laun
almennt um 4% sam-
kvæmt siðustu kjara-
samningum. Almennt
munu þvi laun hækka
um 11 til 12% á morgun.
Samkvæmt upplýsingum
Verkamannasambandsins hækka
laun verkafólks um 11,2%, og
jafnvel meira hjá einstaka launa-
flokkum. Almennustu taxtarnir
hækka sem hér segir: Fiskvinna,
þeir, sem hafa unnið við slik störf
i tvö ár eða lengur, en undir þann
taxta heyrir einnig bygginga-
vinna og vinna aðstoðarmanna i
fagvinnu. Kaupið i þessum flokki
verður nú kr. 119,70, en var kr.
107,60. 1 hafnarvinnu fá menn nú
kr. 122,80, en var kr. 110,40.
Stjórnendur þungavinnuvéla fá
enn meiri prósentuhækkun, þ.e.
þeir, sem búnir eru að starfa i
fimm ár eða lengur, fá að auki við
aðrar hækkanir 4%. Þeir voru
með kr. 122,90, en fara upp i kr.
142,10.
A skrifstofu Bandalags starfs-
manna rikis og bæja fékk blaðið
þau svör, að laun opinberra
starfsmanna hækki samkvæmt
samningum og að viðbættri visi-
tölu, en að hinu leytinu væri ekki
hægt að segja nákvæmlega um
prósentuhækkun, vegna þess hve
hún væri einstaklingsbundin, og
fer mikið eftir þvi( hvar hver og
einn er staddur i launakerfinu og
hvernig flutzt hefur á milli flokka.
Flestir opinberir starfsmenn
munu vera i 12.til 20.1aunaflokki.
Samkvæmt launatöflu rikis-
starfsmanna, sem gerð er I
launadeild fjármálaráðuneytis-
ins, verða laun i 12,flokki eftir sex
ár kr. 26,770, en i 20. flokki kr.
39.874,00.
Fjölmennasti flokkur þeirra
launþega, sem taka laun sam-
kvæmt Iðjutaxta, sem er 1. flokk-
ur hækkar úr kr. 17.749,00 á mán-
uði, i kr. 19,732,00.
Ennfremur kemur inn hjá Iðju-
fólki aldurshækkun eftir 9 mán-
uði. Verður sú aldurshækkun i 1.
flokki kr. 20,522,00. 2. flokkur,
fyrstu 9 mánuðirnir, sem voru kr.
17,749.00 verður kr. 20,522,00en
eftir 9 mánaða starf, sem var
18,442,00, verður nú kr. 21,343,00.
3. flokkur, sem var fyrstu 9 mán-
uði kr. 18,326,00 verður kr.
21,310,00 og eftir 9 mánuði kr.
19,133,00, verður kr. 22,163.00
Klæðskerar fengu eftir 9 mánaða
starf kr. 22,235,00 en verður kr.
24,71^00.
Hér eru tekin nokkur dæmi um
kauphækkanirna^ en samningar
einstakra launþegasamtaka og
launaflokkar innan þeirra eru svo
margvisleg, að ekki er hægt að
skýra frá öllum launahækkunum,
sem nú verða, en yfirleitt geta
allir launþegar reiknað með að fá
sem svarar rúmlega 11% kaup-
hækkun um mánaðamótin.
SJ — Reykjavik
Rakarastofur i
Reykjavik verða
lokaðar á laugardögum
frá 1. júni til ágústloka.
Á fundi i fisksala-
félaginu var einnig
samþykkt að hafa fisk-
búðir lokaðar í sumar
frá 15. júní. Nokkrar
bókabúðir hafa þegar
lokað á laugardögum og
i ráði er, að fleiri
verzlanir i Reykjavik,
e i n k u m m a t v ö r u -
verzlanir hafi lokað á
laugardögum. Opnunar-
timi verzlana og
þjónustufyrirtækja i
borginni er þvi mjög á
reiki um þessar mundir
og er það til óþæginda
fyrir fólk að vita ekki,
hvaða fyrirtæki eru opin
og hver ekki og hvenær.
Sumar verzlanir eru
lokaðar á laugardögum
og aðrar ekki, sumar
eru lokaðar á mánu-
dagsmorgnum og aðrar
ekki, nokkrar eru opnar
til 7 á föstudags-
kvöldum, en margar
aðeins til 6.
Magnús L. Sveinsson skrif-
stofustjóri Verzlunamannafélags
Reykjavikur sagðist vona,að lin-
urnar færu að skirast i þessum
málum. Óvissan væri miklu verri
en þó verzlanir væru lokaðar ein-
hverja ákveðna daga eða dags-
hluta, ef samræmi væri i þeim
venjum.
í Árnessýslu rikir meira sam-
ræmi um verzlunartima. Kaup-
félagsverzlanir þar og flestar
aðrar verzlanir eru opnar kl. 1-
5.30 á mánudögum, 9-5.30 þriðju-
daga til föstudaga og 9-12. á
laugardögum. 1. okt. verður sú
breyting á, að lokað verður á
laugardögum, en opið á mánu-
dagsmorgnum.
A Akureyri og við Eyjafjörð eru
verzlanir yfirleitt opnar kl. 9-6
fimm daga vikunnar en 9-12 á
laugardögum. Sumar þessara
verzlana voru um skeið lokaðar á
mánudagsmorgnum, en það
mæltist illa fyrir og var breytt til
fyrri verzlunarmáta á ný.
Verzlanir i kaupstöðum og
bæjum á Austurlandi eru flestar
opnar kl. 9-6 fjóra daga vikunnar,
kl. 10-7á föstudögum og lokaðar á
laugardögum. 15. júni til 15.
september i sumar verða
verzlanirnar þó opnar á laugar-
dagsmorgnum.