Tíminn - 31.05.1972, Qupperneq 10

Tíminn - 31.05.1972, Qupperneq 10
10 TÍMINN Miðvikudagur 31. mai. 1972. Nýtt frá Stanley Gibbons „Collect Channel Islands Stamps”, heitir nýútkominn bæklingur á vegum Stanley Gibbons i London og kostar aðeins 25 ný penný. Þetta ei* bæklingur i hand- hægu broti, sem ekki aðeins skráir öll frimerki, sem Jersey og Guernsey hafa gefið út, heldur og stimpla og póstsögu eyjanna. Allar myndir af frímerkjum og stimplum eru i lit og eykur það ekki svo litið á gildi bæklings- ins. Þá er einnig grein helguð „Boite Mobile” færanlegu boxunum, sem notuö eru á ferjunum yfir Ermasund, og einnig eru skráðir skipspóst- stimplar notaðir i landi á póst þann,er berst að með skipum. Þessar eyjar eru báðar ný- lega farnar að gefa út fri- merki, og eiga sér ekki ólika forsögu og Færeyjar, sem allir biöa i ofvæni eftir að hefji fri- merkjaútgáfu. Þarna eru skráðar út- gáfurnar frá striðsárunum, þegar Þjóðverjar réðu lögum og lofum á eyjunum, yfir- prentanir þeirra og sjálfstæðu útgáfurnar. Taldar eru upp upplýsingar um: teiknara, prentun, plötu og cylender númer, arkarstærð, hve mörg UMFERÐARLOGIN 0G ÁFENGIÐ Hver var það sem skilgreindi velferðarriki þannig, að það væri samfélag, þar sem þegnarnir væru komnir á það menningarstig að keyra fullir? 1 umferðarlögunum stendur skrifaö: Enginn má neyta áfengis við akstur vélknúins ökutækis, (t.d. bifreiðar, bifhjóls) eða aka eöa reyna að aka þvi, ef hann vegna áfengisneyzlu, verður eigi talinn geta stjórnað þvi örugglega. Ef vinanda-magn i blóði manns er 0,50 (yoo (af þúsund») til 1,20 0/00 eða hann er undir áhrifum áfengis, þótt vinandamagn i blóði hans sé minna, telst hann ekki geta stjórnað ökutæki örugglega. Ef vinandamagn i blóði öku- manns nemur 1,20 0/00 eða meira telst hann 'ohæfur til að stjórna vélknúnu ökutæki. Ekki leysir það undan sök, þótt maður haldi að vinanda- magn i blóði hans sé minna. Enginn má heldur stjórna eða reyna að stjórna hestvagni eða reiðhjóli (en þessum farartækjum fer nú sennilega að fjölga, ef menn hlýða honum Jóhannesi Nordal), ef hann er með svo miklum áfengisáhrifum, að hann geti ekki með fullu öryggi stjórnað þessum tækjum. Sömuleiðis, er bannað að fela manni, sem er i þvi ástandi, sem að framan er getið, stjórn framangreindra tækja. Ef ökumaður hefur neytt áfengis við akstur eða fyrir hann svo að vinandamagn i blóði, hækkar eftir að akstri lauk, skal lita svo á, að hið aukna vinandamagn hafi verið i blóði hans við aksturinn. En ekki nóg með þetta. Hafi maður neytt áfengis á opin- berum veitingastað og veitingamaður eða þjónar hans vita, eða hafa einhverja ástæðu til að ætla, að hann muni fara á bilnum sinum heim (eða hvert sem hann nú ætlar), ber þeim að gera það< sém unnt er til að híndra það, þar á meöal að gera lögregl- unni viðvart. Þá er og bannað að selja eða afhenda öku- manni eldsneyti eða annað, sem þarf til aksturs, ef hann er meö áhrifum áfengis. Ef ástæða er til að ætla, að maður hafi brotið framan greindar reglur, getur lög- reglan fært hann til læknis og rannsóknar, þ.á.m. blóð- og þvagrannsóknar og er honum þá skylt að hlita þeirri meðferð, sem læknirinn telur nauðsynlega vegna rannsóknarinnar. Og þa fer málið að vandast. Maðurinn, sem timdi ekki að kaupa sér leigubilfar, getur nú átt yfir höfði sér þunga refsingu auk ökuréttinda- sviptingar en um hana verður rætt i næsta þætti. B.Þ.G. merki voru seld, hvenær þau voru innkölluö o.s. frv. Verð hefir verið endurskoð- að, og verðskráð eru einstök merki, samstæður, fyrsta dags bréf og gjafapakkar. Þá er sérstök skrá yfir póst- stimpla notaða á hinum eyjun- um Aldernéy, Sark og Herm. Skrá yfir frimerkjabækur úr sjálfsölum og merki fyrir van- borguð bréf. Það eru gullvæg tækifæri, sem gefast til þess að hefja ný söfnunarsvið, þegar svona lönd koma fram á sjónarsvið- ið, með frimerkjaútgáfu. En hver er sá, sem ætlar sér að ná langt i söfnun þess konar svæða, þarf að ná sér einnig i forsöguna, ef við tökum Fær- eyjar sem dæmi, þá eru þegar útgefnar þar yfirprentanir og svo vitanlega öll póstsagan, með mismunandi stimplum frá mismunandi timabilum. Allt þetta sama á við um Ermasundseyjarnar, nema hvað hver er að verða siðast- ur, að þvi er varðar að hefja söfnun svona svæða. Þessi frimerkja- og póst- söguskrá er þvi kærkomin fyr- ir hvern þann, sem vill hefja söfnun nýs svæðis, sem tryggt er að verður eitt hinna „heiðarlegu” frimerkjalanda. Sigurður H. Þorsteinsson Hraðfrystihús Grindavlkur. „FRIÐA ÞARI IN ÞAR SEA/ V/Ð/Ð ELST /r — segir Þórarinn Olafsson skipsi Grindavik i viðtali við Timann Sjómenn i Grindavik voru sem óðast að búa báta sina til humar- veiða eða á fiskitroll á dögunum, enda vetrarvertið lokið fyrir nokkru. Grindavik er stöðugí vaxandi útg.staður. í vetur voru gerðir út þaðan einir 60 bátar, en auk heimabáta landa þar að jafnaði margir aðkomubátar. A nýliðinni vertið lönduðu að staðaldri 70-100 bátar afla sinum i Grindavik. Margir sjómenn telja, að vertiðin hafi verið ein sú erfiðasta til sjó- sóknar, sem komið hefur um ára- bil. Stöðugar ógæftir framan af og mun minni fiskgengd á miðin fyrir SuJjvesturlandi. En þó að afli Grindavikurbáta hafi orðið nokkru minni nú, en undanfarnar vertiðir, er þó ekki hægt að segja, að vertiðin hafi brugðizt. Sam- kvæmt upplýsingum fengnum á Hafnarvigtinni i Grindavik, var heildaraflinn 15. mai, samtals 28.530 lestir og var það jafnframt mesti afli, sem borizt hafði á land i einni verstöð á vertiðinni. Af þessu aflamagni fóru um 20 þús. lestir til vinnslu i Grindavik. Fimm aflahæstu bátarnir voru allir með yfir 900 lestir hver, en 20 bátar aðrir höfðu milli 500 og 900 lestir hver bátur. Aflakóngur Grindvikinga að þessu sinni varð Þórarinn Ólafs- son, skipstjóri á Albert. Þórarinn er löngu landskunnur aflamaður, og það var þvi ekki úr vegi, að hitta hann að máli i vertiðar- lokin: „Þórarinn, var þessi vertíð að einhverju leyti frábrugðin undan- fðrnum vertiðum að þinu áliti?” „Ja, tiðarfarið var stirðara framan af og fiskurinn minni. Við vorum á útilegu með linu i janúar og fram i miðjan febrúar. Þá þurftum við að sækja langt. Við vorum út af Látrabjargi, sunnan við Vikur ál og fyrir norð- an Vikurál út af Vestfjörðunum.” „Er þetta ekki nokkuð langsótt frá Grindavik?” j „Það má segja það. Þetta er auðvitað ekki hægt, nema vera á útilegu og beita um borð, isa fiskinn og gera að honum.” „Og þetta er ekki hægt nema á þessum stærri skipum?” „Nei, það þurfa að vera stór skip. Það útheimtir góð skip að vera á útilegu og auðvitað fyrsta flokks mannskap, sem kann vel til verka, sérstaklega til beit- ingarinnar. Þá er alveg „lúxus” að vera á útilegu, miklu betra en stunda landróðra. Ég vil meina það.” „Og fiskurinn ef til vill betri?” „Já, hann er það. Til dæmis fiskurinn, sem fæst þarna fyrir vestan, það er meiri parturinn af honum góður þorskur.” „Hvar lönduðuð þið þessum fiski?” „Við fórum með aflann til Grindavikur?” „Þetta er ekki i fyrsta skipti, sem þú ert aflakóngur i Grinda- Þórarinn Ólafsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.