Tíminn - 30.06.1972, Síða 5
Föstudagur 30. júni 1972
TÍMINN
5
Tveggja daga kynn-
ingardagskrá fyrir
erlenda blaðamenn
Rikisstjórnin hefur ákveöið að
bjóða erlendum blaðamönnum
upp á kynningardagskrá hér á
landium landhelgismálið dagana
17. og 18. júli. Hefur boðsbréf
verið sent ásamt dagskrá til alls
144 erlendra aðila. Þar er um að
ræöa 90 stórblöð og timarit, 38
sjónvarps — og útvarpsstöðvar og
16 alþjóðlegar fréttastofur. Vitað
er að fjöldi erlendra blaðamanna
verður hér á landi i sambandi við
heimsmeistaraeinvigið i skák, og
er þessi timi valinn með tilliti til
þess, að þeir eriendur blaða-
menn, sem eru hér i þeim tilgangi
að fylgjast með einviginu, geti
einnig kynnt sér landheigismálið.
Dagskrá þessarar kynningar er i
stórum dráttum á þá leið, að
mánudaginn 17. júli mun Hannes
Jónsson blaðafulltrúi rikis-
stjórnarinnar ávarpa þá, sem
taka þátt i kynningardagskránni
og Helgi Agústsson fulltrúi i
utanrikisráðuneytinu mun dreifa
upplýsingaritum. Þá verður kvik-
myndasýning, en blaðamanna
fundur með Lúðvik Jósefssyni
sjávarútvegsráðherra fylgir i
kjölfarið.
Að loknum fundinum með Lúð-
vik verður stigið um borð i flug-
vél, og flogið til Vestmannaeyja.
Bærinn verður skoðaður og há-
degisverður snæddur á Hótel
Berg, og þar mun Sigurgeir
Kristjánsson forseti bæjar-
stjórnar Vestmannaeyja flytja
ávarp. Að hádegisverði loknum
verður farið i skoðunarferð um
frystihús og aðrar fiskvinnslu-
stöðvar. Næst á dagskránni er
sigling umhverfis Heimaey með
varðskipi, og mun Pétur Sigurðs-
son forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar ávarpa gesti og skýra
frá landhelgisgæzlu og björg-
unarstörfum á hafinu umhverfis
Island. Undir kvöldið verður
flogið til Reykjavikur, og i leið-
inni verður Surtsey skoðuð úr
lofti.
Daginn eftir, þriðjudaginn 18.
júli, hefst kynningardagskráin
með blaðamannafundi með
Einari Agústssyni utanrikisráð-
herra. Að fundinum loknum
verður kvikmyndasýning ogþar á
eftir stutt skoðunarferð um
Reykjavik, þar sem sérstaklega
verður farið um höfnina og á aðra
þá staði þar sem fiskvinnsla fer
fram.
Um hádegið veröur farið til
Þingvalla. Staðurinn veröur
skoðaður, og snæddur hádegis-
verður i boði Ólafs Jóhannes-
sonar forsætisráðherra, sem
flytur ávarp undir borðum. Frá
Þingvöllum verður farið að
Soginu, og þaðan til Hveragerðis.
Stofna rafvirkjarnir
eigið verktakafyrirtæki?
- Þeir hafa a.m.k. gert einróma ályktun
um það, ef verkfallið dregst á langinn
EB—Reykjavík
— Aö sjálfssögöu munum viö
ekki hvika frá jafn sjálfssögöum
og eöliiegum kröfum og viö
höfum sett fram, sögöu rafvirkj
iarnir sem fréttamaöur Tímans
hitti aö máli á förnum vegi i góöa
veörinu i fyrradag, en sem
kunnugt er hafa rafvirkjar á Stór-
Reykjavikursvæöinu veriö i verk-
falli frá 17. júni.
Þeir Hilmar Sæmundsson,
Asgeir Eyjólfsson og Eiríkur
Þorleifsson, rafvirkjarnir, sem
við hittum, sögöu að verkfallið
kæmi harðast niður á Aburöar-
verksmiðjunni svo og bygginga-
framkvæmdunum i Breiðholti.
Þeir sögðu, að ekki hefði verið
mikið um verkfallsbrot. — Nem-
ar hafa fyrst og fremst gert verk
fallsbrot, þegar meistararnir
hafa knúið þá til að vinna, en þeir
veröa að gera sér grein fyrir þvi,
að viö erum einnig að berjast
fyrir þeirra kröfum.
Ákvæðisvinnan er mesta
deiluefnið
Rafvirkjarnir hafa kröfur sinar
Sögulegur aðalfundur
Byggingasamvinnu-
félags verkamanna
- reikningar samþykktir með 65 atkvæðum gegn 55
ÓV—Reykjavik
Aðalfundur Byggingasam-
vinnufélags verkamanna, sem
haldinn var i Tjarnarbúð i fyrra-
kvöld, reyndist all sögulegur, svo
ekki sé meira sagt. Má nefna sem
dæmi, að reikningar félagsins
voru samþykktir með 65 atkvæð-
um gegn 55 og mun ekki áður hafa
gerzt, að reikningar hafi verið
samþykktir með svo mörgum
mótatkvæðum.
Byggingasamvinnufélag
verkamanna er um það bil 20 ára
gamalt og hefur ekki staðið i hús-
byggingum um all langt skeið.
Sama stjórnin hefur verið við
völd allt frá upphafi og þykjast
félagsmenn, sem eru hátt á þriðja
hundrað, eiga inni nokkur grein-
argóð svör, sem reyndust heldur
loðin á aðalfundinum. Meðal ann-
ars kröfðu fundarmenn stjórnina
að svara um lager félagsins, á
þeirri forsendu, að félag, sem
byggt hefur 520 ibúðir, hljóti að
eiga einhvern lager, timbur og
fleira þess háttar, en svörin urðu
heldun óljós.
Einnig var spurt um reikninga
varðandi viðgerðarkostnað á hin-
um ýmsu flokkum, en félags-
mönnum þykja viðgerðir hafa
veriðheldur litlar á undanförnum
20 árum og i nokkrum tilfellum
hefur verið látið nægja að mála
glugga tvisvar eða þrisvar og lag-
færa þakrennu einu sinni. Samt
sem áður borga húseigendur 1600
krónur á mánuði i viðgerðar-
kostnað. Svör við þessu fengust
ekki.
Eins og áður segir, þá he -
Byggingasamvinnufélag verka-
manna ekki byggt um skeið og
gerðu félagsmenn sér vonir um,
að með þvi lækkaði skrifstofu-
kostnaður töluvert en raunin hef-
ur verið önnur: Skrifstofu-
kostnaður hefur aukizt til mikilla
muna að undanförnu og hefur
jafnvel verið bætt við starfsfólki á
skrifstofuna i húseign félagsins,
Stórholti 16. Þá lýsti stjórnin þvi
yfir á fundinum, að halli væri
stöðugt á húseigninni, þrátt fyrir
þá staðreynd, að þar eru til húsa
margar verzlanir og fyrirtæki.
Ekki fengust svör við þeirri
spurningu, hve mikið hver leigu-
taki borgi i húsaleigu þar.
Þegar kom að stjórnarkjöri á
aðalfundinum, höfðu nokkrir
félagsmenn stillt upp niu-manna
lista, sem átti að fella stjórnina.
En þá brá svo við, að hátalara-
kerfi hússins fór úr sambandi og
þvi heyrðu fundarmenn ekki þeg-
ar fundarstjóri sagði, að fyrst
ekki væru tillögur um nýja stjórn,
væri sú gamla sjálfkjörin. Fór þá
allt i háaloft, einsog einn fundar-
manna orðaði það, en mótmæli
ekki tekin til greina á þeim for-
sendum, að enginn hefði verið
með nýjar tillögur, þegar eftir
þeim var óskað.
Fráfarandi formaður er Vigfús
Tómasson en nýr er Jóhann
Þórðarson, lögfræðingur og er
hann skipaður af Félagsmádaráði
Geysimikil ólga og reiði rikir nú
innan félagsins og hefur meðal-
annars verið leitað til félags-
málaráðherra, Hannibals Val-
dimarssonar, um lausn á málun-
um en félagsmenn telja ýmislegt
of skýrt til að taka það gott og
gilt.
A þessum sögulega aðalfundi
voru hátt á annað hundrað
manns, en yfirleitt hafa ekki ver-
ið nema 20-30 manns á fundum
félagsins og þykir margt benda
til, að mikil smölun hafi átt sér
stað, bæð af hálfu stjórnar og
„stjórnarandstöðu”.
i 9 liðum. Þeir vilja að samið
verði um fullkomna hollustuhætti
og aðbúð á vinnustað. Þá kemur
mesta deiluatriðið, en það er sú
krafa þeirra, að öll vinna við ný-
lagningar og meiriháttarbreyt-
ingar á lögnum, verði eingöngu
unnin og gerð upp samkvæmt
ákvæðisverðskrá. Ennfremur
krefjast rafvirkjarnir eftir-
farandi: Tekin verði upp hvet-
jandi launakerfi, við þau störf
sem ekki verða unnin i ákvæðis-
vinnu. Orlofsdögum fjölgi eftir
starfsaldri og orlofsfé aukist i
samræmi við það. Settar verði
sr.mræmdar reglur um greiðslu
til rafvirkja fyrir not eigin farar-
tækja i þágu vinnuveitenda eða
verkkaupa. Þegar vinnustaður er
innan 50 km. fjarlægðar frá lög-
sagnarumdæmi þvi, sem verk-
stæði rafverktaka er staðsett i,
skal rafvirki eiga rétt til heim-
ferðar við dagvinnulok, sér að
kostnaðarlausu. Þeir rafvirkjar,
sem brautskráðir eru frá fram-
haldsdeild Tækniskólans, fái 25%
álag á þaö kaup, sem þeir ella
mundu fá. Verkfærapeningar
hækki úr 3,75% i 4,25% og kaup
rafvirkjanema hækki — sam-
kvæmt sérkröfum þeirra.
Stofna þeir eigin verk-
takafyrirtæki?
— Ef verkfallið dregst á langinn
er hugsanlegt að við auglýsum
taxta og vinnum eftir honum, það
hefur komið til tals, sögðu raf-
virkjarnir.
— Þá er ennfremur vert að
geta þess, héldu þeir áfram, — að
á fjölmennum fundi hjá okkur
fyrir nokkru var samþykkt ein-
róma ályktun um stofnun sam-
vinnufélags rafvirkja, ef verk-
fallið dregst á langinn. Yrði það
rekið á likum grundvelli og sam-
vinnufélög rafvirkja i Danmörku,
þ.e. rafvirkjarnir yröu sjálfir
verktakar. Þaö verður að gera
eitthvað, ef á að halda okkur frá
vinnu mánuöum saman.
Rafvirkjarnir sögðu m.a. að
lokum, að mjög mikil samstaða
rikti hjá rafvirkjunum á verk-
fallssvæðinu, þeir stæðu einhuga
að baki sinnar stjórnar um að
hvika ekki frá þeim kröfum, sem
fram hefði verið settar.
Geta sleppt
öðrum kröfum
Vinnuveitendur rafvirkja telja,
samkvæmt fréttatilkynningu um
sjónarmið þeirra, kröfu raf-
virkjanna um ákvæðisverðskrána
svo miklu mikilvægari, aö raf-
virkjarnir geti sleppt öllum
hinum kröfunum. Vinnuveit-
endurnir segja, aö sú skoðun sé
útbreidd meðal almennings ,,að
ákvæöisvinnutaxtar iðnaðar-
manna séu óréttlátir, og telja
rafverktakar þvi að þvinganir
verði til þess að húsbyggjendur
verði enn tregari en áður að láta
vinna samkvæmt taxtanum og
þvi litlar likur á aö slikt samn-
ingsákvæði héldi og myndi þvi
með þessu draga úr notkun taxt-
ans” eins og segir i fréttatilkynn-
ingunni.
Rafvirkjarnir þrir, Hilmar Sæmundsson, Eirikur Þorleifsson og
Asgeir Eyjólfsson, sem við hittum á máli á Arnarhóli I fyrradag i
sólskininu. (Timamynd — Róbert)
Auglýsingastofa Timans er i
Bankastræti 7 simár 19523 — 18300.
Dame Margot forkunnar
vel tekið í Þjóðleikhúsinu
- Spasskí meðal áhorfenda
ÖV—Reykjavik
Dame Margot Fonteyn og
meðdönsurum hennar var
forkunnar vel tekið á sýningunum
tveim, á þriðjudagskvöldið og i
fyrrakvöld. Fagnaðarlæti voru
gifurleg og undir lokin á miðviku-
dagskvöld risu áhorfendur úr
sætum og klöppuðu stanzlaust i
nær 10 minútur.
Meðal gesta á siðari sýningunni
voru forseti Islands, dr. Kristján
Eldjárn og forsetafrú, Þjóðleik-
hússtjóri Guðlaugur Rósinkranz
og frú, ráðherrar fyrrverandi og
núverandi og að ógleymdum
heimsmeistaranum i skák, Boris
Spasski, sem var i fylgd þeirra
Gellers og Vilhjalms Þ.
Gislasonar, fyrrv. útvarpsstjóra.
Virtust þeir skemmta sér hið
bezta, þar sem þeir sátu i ráð-
herrastúkunni og Geller hætti
mæira að segja að sjúga á
sér fingurinn þegar þjóðsöngvar
íslands og Bandaríkjanna voru
leiknir áður en sýningin hófst.en
sjálf uppfærslan (production-in)
er bandarísk.
1 hléinu gekk Spasski út fyrir,
andaði að sér fersku loftinu og
naut kvöldsólarinnar. Blaðaljós-
myndari kom þar að og smellti
nokkrum myndum af ljós-
myndaranum og mátti þá heyra
nokkrar konur um og yfir fertugt
segja: — Veslings maðurinn fær
ekki einu sinni frið i leikhús^inu!
Siðan gekk Spasski inn — og
konurnar fast á hæla hans með
aðdáun i augum.
Að sýningu lokinni var dálitið
hóf haldið i Þjóðleikhúsinu og var
Spasski þar að sjálfsögðu. Fór
vel á með honum og Dame
Margot og voru þau að sjálfsögðu
mynduð i bak og fyrir — en LIFE
telur sig hafa einkarétt á að
birta þær myndir og verður þvi
ekki úr, að Tfminn geti birt þær,
allavega ekki eins og er.
Um þessar mundir er verið aö
reyna að fá Dame Margot til að
koma aftur til landsins i haust, en
iviðtalivið fréttamann Timans á
mánudaginn sagði hún, að sér
þætti óliklegt, að af þvi gæti orðið.