Tíminn - 13.07.1972, Side 7
Fimmtudagur. 13. juli. 1!(72
TÍMINN
7
Fékk stól að g.jöf
Margrét Danadrottning var
viðstödd opnun sýningar nú
fyrir skömmu, sem reyndar er
vist varla í frásögur færandi,
þvi liklega eru þær ófáar
sýningarnar, sem hún þarf að
skoða. Á þessari sýningu voru
m.a. sýndir fjölmargir nýtizku-
legir stólar. Eftir opnunina var
drottningunni gefinn stóll, og
það er ekki ofsagt að segja að
hann sé frumlegur. Teiknarinn,
Jörgen Gammelgaard sagði, að
stóllinn ætti að minna menn á
hreyfla flugvélar. Hér er
drottningin aö skoða stólinn, og
eftir að hafa prófað hann, lýsti
hún þvi yfir, að hann væri mjög
þægilegur.
Ætti ekki að þurfa einn
að halda veizlur
Margvislegar skyldur eru
lagðar á herðar Edvvards Heath
forsætisráðherra Breta. Ein
skyldan er að þurfa að halda
ótölulegar veizlur á heimili sinu
að Downing stræti 10. Nýlega
vakti Leslie Huckfield þing-
maður, einn úr stjórnarand-
stöðunni máls á þvi á þingi, að
ekki væri réttmætt að ætla
Heath öll þessi veizluhöld, þar
sem hann er piparsveinn og það
er alltaf mun erfiðara fyrir
karlmann, sem ekki hefur konu
sér við hlið að halda veizlur,
heldur en fyrir hjón. Huekfield
er sjálfur piparsveinn og skilur
þvi aðstöðu Heaths betur en
flestir aðrir. Hann sagðist álita,
að rikið ætti að sjá Heath fyrir
eins konar opinberri húsmóður,
sem gæti staðið við hlið hans og
tekið á móti gestum og undir-
búið veizlur með honum. Einnig
bauðst Huckfield til þess að taka
á sig eitthvað af veizlunum, ef
Heath óskaði eftir þvi.
Heltekin
spilafýsn
Sophia Loren þjáist af
óstjórnlegri spilafýsn. Þetta
gengur svo langt, að hún er að
gera út af við alla mótleikara
sina i kvikmyndum, þvi hún
neyðir þá til þess að spila við sig
poker milli þess að leikatriði eru
tekin upp. Sophia er mjög góður
spilamaður, og fer oftast með
sigur af hólmi. Hér sjáið þið
hana sitja yfir spilum i hléi frá
kvikmyndatöku myndarinnar
Maðurinn frá la Mancha. Sá
sem sat á móti henni við spila-
borðið i þetta skipti var James
Coco. Þvi miður fyrir mót
leikara Sophiu er alls ekki hægt
að lesa úr svip hennar, hvernig
spilin eru á hendinni. Hún er
eins og harðsviraðasti spila-
maður á meðan hún heldur á
spilunum, en svo getur andlitið
aftur orðið sætt og bljúgt, þegar
hún byrjar á nýjan leik aö leika i
kvikmyndinni. Margir hafa
veitt Sophiu Loren eftirtekt i
spilavitum heimsborganna, og
þá stendur maður hennar Carlo
Ponti venjulega fyrir aftan
hana. Hann er þögull og alvar-
legur á svip, að minnsta kosti i
þau skipti, sem hún tapar stór-
upphæðum, og það hefur hún oft
gert.
**»
■;
' - ■ v -
• '■■*
Gaf geimfaranum
ranga einkunn
Dr. Kenneth Jacobs hefur
skrifað til skólayfirvalda i
Georgia Tech., þar sem hann
lýsir yfir, að árið 1951 hafi hann
gefið einum af verkfræði-
stúdentum sinum einkunnina D
(A er hæsta einkunn, og siðan B
og C) en nú geti hann ekki rétt-
lætt þessa einkunnagjöf lengur
fyrir sjálfum sér, þvi i ljós hafi
komið, að maðurinn, sem þessa
einkunn fékk hefur greinilega
átt miklu hærri einkunn skilið.
Hann fer þvi fram á, að verk-
fræðideildin leiðrétti þetta D og
breyti þvi i A. Og hver skyldi
svo stúdentinn vera, sem fékk
aðeins D fyrir 21 ári? Það er
enginn annaren John W. Young,
stjórnandi Apollo 16 geim-
ferðarinnar. Þess má geta að
hann útskrifaðist með láði,
þegar hann útskrifaðist frá
Georgia Tech, enda þótt hann
hefði fengið þetta D hjá dr.
Jacobs.
— Hvað á ég oft að segja þér, að
ýta ekki svona fast á dyrabjöll-
una?
— Elsku ungfrú Svensson. Má ég
ekki segja Jóna við þig? — Jú, ef
þú endilega vilt, annars heiti ég
Rósa.
DENNI ,,Jæja, sonur sæll. Reyndu nú að
brjóta niður vörnina hjá mér.”
DÆAAALAUSI ,,Áttu við svona pabbi?”