Tíminn - 13.07.1972, Side 9
Fimmtudagur. l.t. júli. 1!)72
TÍMINN
9
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þór-
arlnn Þórarinsson (ábm.). Jón Helgason, Tómas Karlsson.
Andrés Kristjánsson (ritstjóri Sunnudagsblaðs Tfmans).
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif-;
stofur i Edduhúsinu viö Lindargötu, símar 18300-18:i0(L
Skrifstofur i Kankastræti 7 —afgreiðslusími 12323 — auglýs-;
ingasimi 19523. Aðrar skrifstofurtsimi 18300. Askriftargjald:
225 krónur á mánuði innan lands, i iausasölu 15 krónur ein
takið. Blaðaprent b.f.
Víðtæk samstaða
Á blaðamannafundinum i fyrradag, er Ólaf-
ur Jóhannesson, forsætisráðherra, kynnti
efnahagsráðstafanir og bráðabirgðalög rikis-
stjórnarinnar, sagði hann m.a., að um aðgerðir
rikisstjórnarinnar hefði náðst viðtæk samstaða
allra hagsmunaaðila. Viðbrögð stéttasamtak-
anna, sem samráð voru höfð við áður en til að-
gerðanna kom, voru jákvæð. ólafur kvaðst
vona, að allir landsmenn skilji nauðsyn þess-
ara ráðstafana og fagni þeim, hvaða álit sem
menn kynnu annars að hafa á þeim, sem yrðu
nú að taka að sér framkvæmd þeirra, og mis-
munandi séu skoðanir manna á þeim flokkum,
sem að þeim standa. Jákvæðar ályktanir ASÍ
og Stéttarsambands bænda voru samþykktar
samhljóða og Vinnuveitendasamband íslands
fagnaði aðgerðum til að sporna gegn verð-
þenslunni þótt það mótmælti ákvæðum bráða-
birgðalaganna um réttindi verðlagsnefndar-
manna. Vinnumálasamband samvinnu —
félaganna lýsti einnig jákvæðri afstöðu.
En hér er aðeins um timabundnar ráðstafan-
ir að ræða, sem er ætlað að veita svigrúm til að
finna og fá samstöðu um leiðir til varanlegri
lausnar efnahagsvandans.
ör vöxtur tekna og eftirspurnar hefur ein-
kennt þróun efnahagsmála undanfarin misseri
og á siðustu mánuðum hefur gætt mikils þrýst-
ings á allt verðlag og framleiðslukostnað. Hér
fléttast margt saman. ört vaxandi eftirspurn
heima fyrir i kjölfar mikilla grunnkaups-
hækkana i árslok 1971, gengishækkanir helztu
viðskiptalanda okkar i Evrópu, skattabreyt-
ingar og fl. öll þessi atriði hniga til verð-
hækkunar, sem svo magnast i núgildandi visi-
tölukerfi.
Meginviðfangsefnið i efnahagsmálum á
næstu mánuðum verður að hemja þrýsting
eftirspurnar á verðlag og framleiðslukostnað,
tryggja afkomu atvinnuveganna og greiðslu-
stöðu landsins gagnvart útlöndum. Þjóðin hef-
ur búið við mikið góðæri siðustu tvö til þrjú ár.
Kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna jók-
st um meira en 16% á árinu 1971 og útlit er fyrir
svipaða aukningu i ár. Vöxtur þjóðartekna var
12-13% á árinu 1971, en er áætlaður 6-7% á
þessu ári.
Þótt slikur vöxtur þjóðartekna sé að visu
mikill, er ljóst, að útgjaldafyrirætlanir þjóðar-
innar i heild stefna fram úr þessari aukningu.
Eigi að koma i veg fyrir vaxandi verðbólgu og
greiðsluhalla við útlönd er veldur á endanum
greiðsluhalla hjá almenningi er nauðsynlegt að
snúast nú þegar við vandanum.
ASÍ og vinnuveitendur hafa nú hafið viðræð-
ur i þeirri nefnd, sem komið var á fót i samn-
ingunum i desember. Þar mun verða fjallað
um ýmis atriði vinnumála en fyrst og fremst
grundvöll og útreikninga á kaupgreiðsluvisi-
tölu. Þar verður freistað að ná samkomulagi
um breytingar til bóta. Þá mún rikisstjórnin
setja niður nefnd sérfræðinga til að gera úttekt
á efnahagsstöðunni, leita leiða til lausnar
vandans og leggja þá valkosti, sem fyrir hendi
eru fyrir rikisstjórnina. — TK
Ritstjórnargrein úr The Economist:
Útlagar frá Sovétríkjunum
láta meira til sín heyra
Mörgum rithöfundum vísaö úr landi að undanförnu
Ycseniii-Volpiii
SOVÉTMENN eru farnir að
leyfa sumum þeim óánægðu.
sem ekki eru af Gyftinga-
ættum, að flytjast af landi
brott eins og Gyðingunum.
sem vilja l'lytja búíerlum til
israel. Þetta nýja vifthorf
virðist hafa verið reynt i
fyrsta sinni árið 19(>(>. þegar
sovézk yfirvöld s.tigu það
óvænta skref að ieyfa rit-
höfundinum Valeri Tarsis að
hverfa úr landi. en hann var
einhver berorðasti gagnrýn-
andi sovézkra stjórnvalda.
Vegabréf Tarsis gilti að visu
ekki nema þrjá mániiði, en
hvorki honum sjálfum né
sovézkum yfirvöldum mun
hafa l'logið i hug. að hann sneri
aftur til heimalandsins. sem
hann hafði opinbé.rlega kennt
við fasisma. llann var ekki
búinn að vera nema þrjá daga
i London, þegar hann var
sviftur borgararétti i Sovét-
rikjunum, lýstur svikari og
vanheill á geðsmilnum i
þokkabót Tarsis bað um b;eli
sem pólitiskur flóttamaður og
settist siðan um kyrrt við
Genfarvatn. Þegar litið er um
öxl virðist þetta hafa verið
gert i tilraunaskyni.
SKÖMMU eftir brottlör
Valeri Tarsis sagði hinn
snjalli, sovézki sl;erð-
fræðingur, heimsþekingur og
skáld Alexander Yesenin-
Volpin við vestrænan blaða-
mann, að hann hefði verið
sendur á geðveikrahæli. þegar
hann bað um vegabréf og
brottfararleyfi.
Nú er þetta breytt. Margir
þeirra, sem eru óánægðir með
stjórnarkerfið i Sovétrikjun-
um, hafa gripið tækifærið
vegna aukins útflutnings
Gyðinga frá Rússlandi. beðið
um brottfararleyfi og fengið
það. Menn þessir eru þó flestir
i litlum tengslum við Gyðinga,
en fáeinir þeirra eru kvæntir
konum af Gyðingaættum.
Nokkrir þessara manna
hal'a setzt að i israel, en aðrir
hafa farið til Vestur-Kvrópu
eða Bandarikjanna. Tvo
siðustu mánuðina virðist Róm
vera orðin miðstöð þessa nýju
brottflutnings frá Rússlandi.
Meðal þeirra sem nýfluttir eru
frá Sovétrikjunum, má nefna
Yuri Shtein kvikmyndatöku-
mann. llann er einn af þeim,
sem stolnuðu til samtaka til
verndar mannréttindum i
Sovétrikjunum árið 1968.
YURI GLAZOV málamaður
og rithöfundur er einnig fyrir
skömmu fluttur frá Rússlandi.
Ilann var rekinn frá starfi
fyrirfjórum árum þegar hann
undirritaði nokkrar andmæla-
skrár gegn misbeitingu laga
og réttar i Sovétrilsjunum.
Enn má nefna listmálarann
Yuri Titov, sem er afar heit-
trúaður maður.
Hinn 9. júni siðast liðinn
bættist merkilegur og óvæntur
maður i þeirra hóp. Það var
enginn annar en Alexander
Yesenin-Volpin, sem hafði að
lokum verið látinn laus af geð-
veikrahælinu, sem hann hafði
verið vistaður á, þegar hann
bað um brottflutningsleyfi á
sinni tið.
Volpin kom fram i troðfullu
veitingahúsi i Róm, meðal
fagnandi vina og samherja, og
þar flutti hann nokkur
byltingarljóð, sem hann hafði
ort i fangelsi i Rússlandi árið
1949. Hann helgaði sig áfram-
haldandi baráttu fyrir
auknum mannréttindum i
Sovétrikjunum og hið sama
gerðu hinir áköfu vinir hans
sem viðstaddir voru.
SVO er að sjá sem þarna sé
verið að koma á fót erlendri
útvarðastöð lyrir lýðræðisbar-
áttu i Sovétrikjunum, en ekki
er ljóst, bverju þetta sætir.
St.jórn Sovétrikjanna kann að
hafa larið að dæmi keisaranna
og Lenins, sem leyfði
skoðanaandstæðingum sinum
að flytjast á burt Irá Rúss-
landi.
Fjarri fer þó, að þessari
stefnu sé fylgt i afstöðunni til
allra menntamanna, sem snú-
ast gegn stjórnarvöldunum og
eru reiðubúnir að biðja um
brottfararleyfi. Enn siður ber
að gera ráð fyrir, að meiri-
hluti stjórnarandstæðinga i
Sovétrikjunum sé reiðubúinn
að flytjast úr landi.
Þeir, sem fluttir eru burt
eða vilja flytja burt, munu
ylirleitt álita, að viðvarandi
niðurbæling og ofsóknir hafi
gert þá áhrifalausa heima
fyrir. Áhugi þeirra og eld-
móður hefir þó ekki dvinað, og
þeir vilja heldur ekki draga
sig i hlé og hverfa i gleymsku
eins og Tarsis gerði.
UNDANGENGNAR vikur
hafa þessir menn til dæmis
hafið harðvituga baráttu
vegna rithiifundarins
Vladimir Maximov. Hann er
fertugur að aldri og höfundur
hinnar merkilegu skáldsögu
..Sköpunardagarnir sjö”. Hún
var birt i riti rússneskra út-
flytjenda i Þýzkalandi og
kemur á næstunni út i mörg-
um þýðingum i Evrópu,
Bandarikjunum og Asiu.
Maximov er heilsuveill, en
þrátt fyrir hótanir um
hefndarráðstafanir hafa vinir
hans i Róm fengið fjölmarga
italska rithöfunda til að hefja
baráttu fyrir rétti hans. Meðal
binna itölsku höfunda má
nefna Ignazio Silone, Elena
Uroce og Giancarlo Vigorelli.
Rétt lyrir miðjan júni komu
nokkur af málverkum Yuri
Titovs til italiu Irá Rússlandi.
Flest þeirra höl'ðu orðið fyrir
varanlegum skemmdum af
brennisleinssýru. Rómar-
hópurinn birti þá yfirlýsingu,
þar sem hann andmælti
þessum skemmdum sem
„pólitiskri villimennsku”. Þá
eru uppi áætlanir um útgáfu
bókar, eða jafnvel timarits,
sem flytji almenningi i vest-
rænum rikjum fréttir af bar-
áttunni fyrir mannréttindum
innan Sovétrikjanna.
HVER áhril' hefir svo brott-
flutningur sumra helztu for-
ustumanna hinna óánægðu frá
Rússlandi á vini og þeirra og
samherja, sem heima sitja?'
Ljóst er, að sovézk yfirvöld
hlakka til þeirrar stundar,
þegar fréttiraf Volpin og sam-
herjum hans takaaðhljóðnaog
strjálast og slævandi áhrifa af
brottför þeirra fer að gæta hjá
fækkandi fylgjendum sam-
taka óánægðra i Moskvu og
Leningrad.
En Volpin elur engan slikan
ótta i brjósti. Hann sagði
meðal annars i Róm um
daginn:
,,Vakning almenningsálits-
ins i Rússlandi verður ek''i
stöðvuð. Tveir munu rir á
fætur heima i stað hvers eins,
sem fer úr landi. Vinum okkar
er ljóst, að við áttum ekki
annars kost en að fara en við
höldum baráttunni áfram utan
Sovétrikjanna af engu minni
krafti en heima, áður en við
fórum.”