Tíminn - 27.07.1972, Síða 1
167. tölublað — FiitliTiíudagur 27. júli 1972 — 56.árgangur
A/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
Mannfjö!gunin
meiri en fæð-
ingarstofnan-
irnar anna
örtröð og annriki — með
þeim orðum verður bezt lýst
ástandinu á fæðingar-
stofnunum i Reykjavik. Hver
þumlungur húsrýmis er nýttur
eins og frekast er kostur, og
hrekkur þó ekki til. Sam-
félagið hefur orðið of seint
fyrir aö veita þeim nauðsyn-
lega þjónustu, sem nú
gegna skyldum sinum við lifið
og ættstofninn.
1 fæðingardeild Land-
spitalans hefur orðið að visa
mörgum tugum kvenna frá á
þessu ári.ogerþósifellt reynt
að rýma til eins fljótt og
vogandi er talið.
—Við sendum konur mun
fyrr heim en við vildum, sagði
Gunnlaugur Snædal læknir við
Timann i gær. Það er ill nauð-
syn, og við eigum ekki önnur
úrræöi, þvi að það er hreinasta
örtröð hjá okkur.
—Nú eru mjög fjölmennir
Drepið í hvert skot,
hrekkur þó ekki til
árgangar ungs fólks i landinu,
sagði Gunnlaugur ennfremur.
Þetta er fólk fætt i kringum
1950, og það er nú sem óöast
að ganga i hjónaband. Þessu
hefur fvlgt mikil fjölgun fæð-
inga, eins og við verðum svo
sannarlega vör við i fæðingar-
deild Landspitalans og
reyndar öllum fæðingarstofn-
unum.
Af þessum sökum má búast
við mikilli ös næstu árin.
Hin nýja álma fæð-
ingardeildarinnar
—Það hefur verið unnið
mjög rösklega að byggingu
nýju álmunnar hérna við fæð-
ingardeildina. sagði Gunn-
laugur. Þó að það valdi ónæði,
hvernig hamarshöggin
glymja, þá er fólgið i þvi fyrir-
heit um, að úr rætist innan
tiðar. Smiðin hófst fyrir hálfu
öðru ári, og við gerum okkur
vonir um, aö þetta viðbótar-
húsnæði komist i gagnið seinni
hluta næsta vetrar og eitthvað
af þvi megi fara að nýta fyrr.
Þangað til er ekki annars
kostur en þrauka við það, sem
nú er völ á, og reyna að
bjarga sér eins og bezt
gengur.
Sjálfstæð ljósmæðra-
stétt úr sögunni.
Það er engin nýlunda að tiu
eða þaðan af fleiri nýfædd
börn séu á göngunum i fæð-
ingardeildinni — einfaldlega
af þvi, að allt húsrými annað
er fullt.
—Áður voru i bænum
margar ljósmæður, sem tóku
heim til sin konur, sem
komnar voru að barnsburði,
sagði Helga M. Nielsdóttir
ljósmóðir, er við vikum að
þessu við hana. Nú er þessi
ljósmæðrastétt svo að segja úr
sögunni, svo að ekki getur hún
létt á fæðingarstofnunum. Og
ljósmæðurnar i fæðingar-
stofnunum verða iðulega að
vaka nótt með degi, þvi að
ekki verður hlaupizt undan
merkjum, þegar barn er að
fæðast.
Það er alkunna, hve konur
eru ötular við fjársöfnun,
þegar þær taka eitthvað aö
sér. 1 framhaldi af þvi, sem
hér hefur verið sagt, er ekki úr
vegi að minnast þess, að konur
söfnuðu stórfé, sjö eða átta
milljónum króna, i nýju
fæðingardeildarálmuna, sem i
smiðum er. En Helga sagði
okkur, að þeim peningum
hefði átt að verja til búnaðar
innan veggja, þegar rikið
hefði komiðsjálfu húsinuupp.
JH
Guörún lna tvarsdóttir Ijós-
mæðranemi hlynnir að nýjum
þjóðfélagsþcgni.
Aldrei fyrr hefur sézt þvílík
tjaldborg í Jökulfjörðum
Grunnavikurhreppur er eyði-
byggð eins og Sléttuhreppur. Þar
hefur engin sál búsetu. Eigi að
siður var fjölmenn samkoma
haldin i Jökulfjörðum um slðustu
helgi, og er talið.að hana hafi sótt
cigi færri en fjögur hundruð
manns, margt af þessu fólki mjög
langt að komiö.
Þessi samkoma var haldin á
Flæðareyri, skammt frá Höfða,
við mynni Leirufjarðar. Þar er
gamalt ungmennafélagshús, sem
tekið var að hrörna, en hefur nú
verið dubbað upp af brottfluttum
Grunnvikingum, sem mikla
tryggð binda viö átthaga sina,
ekki siður en þeir, sem eiga rætur
sinar noröan Djúpsins — i Sléttu-
hreppi.
Þangað var fólki stefnt til átt-
hagamóts, sem stóð á laugardag
og sunnudag, og dvöldust þó sum-
ir þar raunar eitthvað lengur.
Seytján bátar
hundrað tjöld
Það var Grunnvikingafélagið,
sem gekkst fyrir mótinu, og fóru
sumir mótsgestanna með Djúp-
bátnum Fagranesi frá tsafirði inn
á Flæðareyri á laugardaginn, en
aðrir komu á bifreiðum sinum að
Bæjum á Snæfjallaströnd og létu
flytja sig þaðan á bátum norður i
Jökulfirði.
Alls er talið, að seytján bátar
hafi verið á legunni við Flæðar-
eyri, þegar flest var, en hundraö
tjöld i landi. Hefur áreiðanlega
aldrei fyrr sézt slik tjaldborg i
Jökulfjöröum, og myndi þetta
hafa pótt næsta fjölsótt sveita-
samkoma, þótt verið hefði á staö,
þar sem leiöir eru greiðari.
Veður var hið bezta þessa
daga, fagurt að horfa yfir til Kvi-
arnúps og Lónanúps og yndisleg
kvöldværðin i Leirufirði.
Landhelgis-
kvikmyndin
fullgerð
Lokiö er gerö kvikmyndar
þeirrar.sem tekinvar til þess
aö kynna málstaö tslendinga i
landhelgismálinu. Eiður
Guðnason stjórnaði töku
myndarinnar. t gær var
frummyndin send til Lundúna,
þar sem gerð veröa 35 eintök
af henni og sett á hana enskt
tal.
Kvikmyndin er ætluð til
sýninga i sjónvarpi Þegar
hafa borizt pantanir frá 35
sjónvarpsstöðvum viða um
heim.sem sýna munu myndina
um þaö bil, sem reglugerðin
um stækkum fiskveiðiland-
helginnar gengur i gildi.
Stórhátíð á Gimli
í tilefni iandnámsafmælis austan hafs og vestan
Grunnvíkingar á F’agranesinu á leiö á gamiar slóöir við Leirufjörð.
— Ljósmynd: G. Ágústsson.
SB—Reykjavik
Undirbúningur er hafinn í Vest-
urhcimi að stórhátiðahöldum á
Gimli árið 1975, er minnzt verður
aldarafmælis islcnzks landnáms
vestan hafs. Mikil bókaútgáfa er
fyrirhuguð i þvi sambandi, m.a.
verður Landnámsbók gefin út,
svo og forn, islenzk lög og saga is-
lenzka lýðveldisins.
Borin hefur verið fram tillaga
um að gefin verði út frimerki i
Kanada til að minnast landnáms-
ins og aö koma upp minnismerkj-
um á sögustöðum landnámsins.
Sigtr; ggnr Jónasson hefur ver-
ið nefndur .aðir Nýja Islands, en
hann kom til Quebec fyrir réttum
100 árum og hóf þegar að vinna að
búferlaflutningi íslendinga þang-
að. Sigtryggur átti mikið skjala-
safn, en mestur hluti þess mun
hafa eyðilagzt. Þó er eitthvað til
og verður þvi komið á öruggan
stað. Ráðgert er að reisa Sig-
tryggi minnisvarða i tilefni land-
námsafmælisins.
Á fundi, sem haldinn var fyrir
nokkru i Winnipeg, var ákveðið,
að fulltrúar Vestur-lslendinga,
sem færu til Islands i tilefni 1100
ára landnáms þar, færðu íslandi
að gjöf vandaða útgáfu af öllum
þeim bókum, sem gefnar verða út
vestanhafs vegna afmælisins Þá
var einnig rætt um að V-ls-
lendingar færðu heimalandinu
gjöf af varanlegu verðmæti, en
engin ákvörðun var tekin.
Af kvikmyndinni, sem National
film Board i Kanada ætlar að láta
gera um landnám tslendinga, er
það að frétta, að gagnasöfnun
gengur mjög vel og sýnir fólk
mikinn áhuga.