Tíminn - 27.07.1972, Blaðsíða 3

Tíminn - 27.07.1972, Blaðsíða 3
Fimmtudagur. 27. júli 1972 TÍMÍNN 3 Friðrik Ólafsson skrifar um sjöundu skákina Spassky Friðrik Fischer ljós að Spasski hafði kosið að leika — 41. h4, sem að dómi flestra er bezti leikurinn i stöðunni. Það er þó haft eftir Geller, aðstoðar- manni heimsmeistarans, að leikurinn sé ekki sá bezti og Fischer hefði átt vinning i skákinni eftir þennan biðleik. Fischer kom þó ekki auga á vinningsleiðina, hvað sem öðru liður, og má vel vera, að biðleikur Spasskis hafi komið honum á óvart. Aðrir leikir, sem helzt koma til greina i biðstöðinni eru 41. Hd5 og 41. Rd6 jafnvel 41. hxg4. 41. — f6 Fischer mætti nokkuð seint til leiks i biðskákinni og lék þessum leik svo að segja um leið og hann sá biðleikinn. 42. He6 Hc2 + 43. Kgl Biðstaðan Sv.: Fischer: ABCDEFGH A H P H 6 B Hv.: Spassky: t þessari stöðu fór skákin i bið eftir 40. leik svarts og Spassky hugsaði sig um i 45 minútur, áður en hann innsigl- aði biðleikinn. Þegar tekið var til við biðskákina i gær kom i Rétti staðurinn fyrir hvita kónginn. Eftir 43. Kg3 sem i fljótu bragði virðist eðlilegasti leikurinn, lendir hvitur i erfið- leikum. T.d. 43. Kg3, Hf8 44. Hd5, Hc3+ 45. Kh2, Hf3. Eða 45. Kf2, g3+ o.s.frv. 43. — Kf5 Argentinski' stórmeistarinn hélt þvi fram, að Fischer hefði skapað sér góða möguleika til vinnings með skiptamuns- fórninni 43. —, Hxe8, 44. Hxe8, Rd2. Hótunin er 45. —, Rf3 + ásamt 46, —, Kf5 það skal viðurkennt, að Najdorf virðist hafa mikið til sins máls. 44. Rg7 + Kxf4 Þetta ferðalag svarta kóngsins aftur fyrir viglinu hvitu mannanna gerir jafntefli óumflýjanlegt. Ennþá mátti snúa til baka og freista gæf- unnar með áðurgreindri skiptamunsfórn. 45. Hd4+ Kg3 46. Rf5+ Kf3 47. Hbe4 Lykillleikurinn. Nú verður Fischer að þráskáka til að bjarga eigin skinni. 47. — Hcl + 48. Kh2 Hc2+ 49. Kgl Jafnlgfli. ABCDEFGH ABQDÍHJB Lokastaðan. Það fór sem margan grunaði: skákin endaði með jafntefli ET—Reykjavik. Sjöundu einvigisskákinni var framhaldið í gær. Eins og fram kom i Timanum var biðstaðan flókin og þvi erfitt að átta sig á úrslitum skákarinnar. Flestir spáðu þó jafntefli — og þeir reyndustsannspáir, þvi að þannig lyktaði 7. skákinni. Skákstaðan skýrðist ekki að ráði, þótt leikjunum fjölgaði og lokastaðan var sannast sagna tvi- ræð. Engu að siður bauð Fischer upp á jafntefli, þvi að hann þrá- skákaði. (Skv. reglum skákkúnst- arinnar þýðir það jafntefii ef það er gert þrisvar.) Spasski þáði jafntefli — átti reyndar ekki ann- arra kosta völ. Eftir jafnteflið leiðir Fischer með einum vinningi, 4:3. S.ein- vigisskákin verður svo tefld I dag og hefur áskorandinn hvitt. Systir Fischers í heimsókn Fischer á-reyndar eina systur og sú er nú komin til landsins ásamt fjölskyldu sinni. Hún heitir nú Mrs. Targ og eru miklir kær- leikar með þeim systkinum, enda öðrum ekki til að dreifa. Mrs. Targ kom hingað til lands i gær- morgun ásamt manni sinum og þremur börnum. Þau búa á Loft- EINVI^I ALDARINNAR REYKJAVÍK 1972 ■Nt 007 leiðahótelinu og ætla að dveljast hér nokkurn tima. Systurinni hefur samt ekki tek- izt að venja Fischer af óstundvis- inni. Áskorandinn mætti tæpu kortéri of seint til leiks i gær; slikt telst þó varla fréttnæmt lengur. Það var áberandi, hve Spasski lék hratt og örugglega i gær. E.t.v. hefur hann fylgt fyrir fram gerðri áætlun — a.m.k. komu leikir hans Fischer oft i vanda og notaði hann þá drjúgan umhugs- unartima. Robert Fischer — James Bond Ymsir líkja þeim saman Jamcs „ofurmenni” Bond og Robert Fischer, en telja þann siðarnefnda enn meiri snilling! Hér birtist umslag með myndum af Fischer og Spasskí (sem eflaust snýst Bond einnig snúning) og undir einkunnartala kvennagullsins James Bond: 007. Myndirnar teiknaði Halldór Pétursson. Þráskák— jafntefli 47. leikur Spasskis: He4 var mjög sterkur og hugsaði Fischer sig um nokkra stund, áður enhann lék: Hcl +, og bauð þar meðupp á jafntefli. Spasski lék: Kh2, en Fischer svaraöi: Hc2+, og sýndi, að hann ætlaði sér að knýja fram jafntefli meö þráskák. Til mála- mynda lék heimsmeistarinn: Kgl, en siðan sömdu þeir tvi- menningarnir um jafntefli. Flestir voru sammála Fischer um það, að enginn möguleiki væri fyrir hann á vinningi i lokastöð- unni. Þó andmæltu ’nokkrir, þ.á.m. argentinski stórmeistar- inn Najdorf. Hann fullyrti, að Fischer ætti unnið tafl i lokastöð- unni. Kvikmyndaþrætan Enn situr við það sama i myndatökuvandamálinu: Engar vélar voru á lofti i gær. Chester Fox er á förum til New York. Hann er allt annað en bjartsýnn þessa dagana. ,,Ég hef enga trú á þvi, að myndataka hefjist nokkurn tima. Hefur þú trú á þvi, að Fischer leyfi mynda- töku?” Spurningunni var beint til min og ég hristi bara höfuðið. ,,Ég býst við að ná samkomulagi við ABC, ,,en slikt tryggir ekki, að myndataka hefjist. Það er undir Fischer komið,” sagði Fox að lokum. Skv. áreiðanlegum heimildum verður endanlega skorið úr þvi i dag á fundi i New York, hvort myndir verða teknar i keppnis- salnum eður ei. Láxá i Ásum. 1 Laxá i Asum eru aðeins 2 stangir, en þó hefur verið landað um 850 löxum þar. Ekki má veiða meira en 20 laxa á stöng dag hvern og stundum verða menn að hætta veiðiskap, þótt veiðidegi sé ekki lokið. í júlibyrjun var meðalþyngd veiddra laxa ná- lægt 10 pundum, en fer heldur minnkandi, enda veiðist meira af smálaxi þegar liður á veiði- timann. Ain er fisksæl af nátt- úrunnar hálfu og aldrei hefur verið sett i hana klak. Fundur á Loftleiða- hóteli. Nú er um að gera að drifa sig á Hótel Loftleiðir, Krystal- sal, og hlýða á Carter fram- kvæmdastjóra Alþjóðlegu lax- veiðistofnunarinnar, en hann mun flytja erindi um stjórnun og nýtingu á veiðiám og sýna kvikmynd og skuggamyndir af laxveiðum i Kanada kl. 20:30 i kvöld, 27. júli. Viðidalsá. Nú hafa veiðzt um 515 laxar i Viðidalsá, og er það heldur meira en i fyrra 6 stangir eru i ánni. Nokkrir stórir laxar hafa veiðzt i vikunni. Þann 22. þ.m. var landað einum 22 punda við Harðeyrarstreng og þann 24. öðrum 22 1/2 punda á sama stað og þann 25. var landað einum 22 punda hjá Galtanes- fljóti. Veður hefur verið vætu- samt i Viðidal, sem viðar á landinu undanfarið, að sögn Gunnlaugar Hannesdóttur i veiðihúsinu þar. Aug lýsingarfrömuðir komnir hingað. Þá má loks geta þess, að hingað til lands eru komnir 2 auglýsinga- frömuðir frá fyrirtækinu MANAGEMENT THREE Ltd (Auglýsti m.a. The Betles i USA á sinum tima.) Hafa þeir i hyggju að bjóða Fischer upp á kynningu á skáklistinni og honum sjálfum um gervöll Bandarikin. Sú kynni.ng yrði með ýmsu móti, ef til kæmi. T.d. fyrirlestrar í há- skólum, skákkennsla af hljóm- plötum o.s.frv. Ekkert endanlegt samkomulag hafði náðst milli auglýsendanna og umboðsmanna Fischers i gærkvöldi. Heimildin til afnáms fasteignaskatts af íbúðum aldraðra Eins og skýrt er frá i for- ustúgrein Timans i dag eru i hinum nýju skattalögum heimiidir til að lækka skatta og útsvör fólks fra álagningar- skölum. Við álagninguna t.d. i Reykjavik hcfur þessum heimildum ekki verið beitt , að öðru leyti en þvi, að ekki var lagt útsvar á lifeyri al- mannatrygginga. En hins vegar er hverjum skattþegni hcimilt að sækja nú um lækkanir og er hér með skorað á þá, scm telja sig hafa fengið óbærilega há gjöld, svo sem ýmsir cllilifeyrisþegar gera, að sækja um slikar lækkanir. Sérstaklcga vill Timinn benda ellilifcyrisþegum á þessa staðreynd: i 5. grcin hinna nýju tekju- stofnalaga segir: „Ileimilt cr sveitarstjórn að lækka eða fella niður fast- eignaskatt, sem efnalitlum elli- og örorkuþegum er gert að greiða. Sama gildir um slika lifeyrisþega, sem ekki liafa verulcgat tekjur umfram elli- og örorkulifeyri” Þá kom íhalds- hugurinn fram Við afgreiðsiu fjárhags- áætlunar Reykjavikurborgar lögðu fulltniar minnihluta- flokkanna til, að þessi heimild yrði notuð almennt við álagn- ingu fastcignaskatta, þannig að hinir efnalitlu lifeyris- þegar þyrftu ekki að sækja formlcga um þessa lækkun eftir að álagning hefur farið fram. Kom það til af þvi, að það yrði óþarfa umstang fyrir þctta fólk, auk þess sem vitað er að mörgu þessu fólki er afar sárt að senda beiðnir til sveitarstjórnar um lækkun gjalda. Þessu hafnaði meirihiuti Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vik. Hann vildi ekki nota þessa hcimild almennt við álagningu fasteignagjalda á það gamla fólk , scm minnsta gjaldþolið hefur. Það er af þeirri ástæðu, scm þctla fólk þarf nú að stiga þau crfiðu spor að leggja inn umsóknir til borgarráðs Rcykjavikur um afnám fasteignaskatts skv. hcimild þessarar laga- grciningar. Nú reynir á þá aftur Það rcynir þvi nú, cr þessar bciðnir koma til borgarráðs Reykjavikur, i annað skiptið á meirihluta Sjálfstæðis- flokksins, hver hugur hans er raunverulcga til þessa fólks. Hann hcfur það i valdi sinu við afgrciðslu heiðnanna, hvort fasteignaskattarnir verða fclldir niður eður ei. En heiðarlegast væri það fyrir meirihluta Sjálfstæðis- flokksins i borgarstjórn Reykjavikur að fallast nú á lillögu minnihlutaflokkanna sem almcnna reglu, þannig að þessari áiagningu yrði aflétt af öllum þeim efnalitlu lif- cyrisþegum, sem lagagreinin tckur til, þannig að viðkom- andi þyrfti ekki að sækja sér- staklega um þessa lækkun, en fengi hana orðalaust. íhaldið yrði að meira, ef þaö gerði þetta. þótt þaö þurfi vissulega að kosta játningu á þvi. að Sjálfstæöisflokkurinn kemur mcð siðustu skipunum, hvað snertir samúð og skilning i raun { garð þessa fólks. Umræddri tillögu minni- hlutaflokkanna i borgarstjórn var hafnaö, vegna þess að álagningu á ibúðir þessa fólks átti að kenna rikisstjórninni. Nú reynir því aftur á það, hvort ihaldið metur meira áróöursherferðina gegn stjórninni eða hag þessara lif- eyrisþega. —-TK

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.