Tíminn - 27.07.1972, Síða 6
6
TÍMINN
Fimmtudagur. 27. júli 1972 .
Þannig litur stærra póstkortið úr, sem Skáksambandið gefur út i f járöflunarskyni.
Skáksambandið gefur út „einvígiskort” í fjáröflunarskyni
Skáksamband tslands hefur
gefið út i fjáröflunarskyni, tvær
gerðir póstkorta, i tilefni „einvig-
is aldarinnar”. Er annað teikning
eftir Gisla Sigurðsson, ritstjóra
og kostar það kr. 20.00, en hitt er
stærra, er með ljósmyndum af
þeim Spassky og Fischer, ásamt 2
myndum frá Iteykjavik, eldgosi,
gufugosi, þjóðgarðinum Skafta-
felli ásamt öræfajökli og Gull-
fossi. Kostar það kr. 50.00. Eru
kortin á 4 tungumálum, rúss-
nesku, ensku,dönsku og þýzku.
Er hér um að ræða sérstakt
tækifæri til að eignast fallegan
minjagrip frá þessum einstæða
atburði og einnig er þetta góð
landkynning.
Hafa þegar nokkur fyrirtæki
sýnt áhuga á þvi að styrkja Skák-
sambandið á þann hátt, að kaupa
nokkurt magn korta með skák-
frimerkinu og láta stimpla þau á
keppnisstað. Láta siðan sér-
prenta texta aftan á kortin með
nafni fyrirtækisins, og nota fyrir
jólakort.
Dreifingu kortanna i verzlanir
annast Litbrá h.f.
Iðnaðarráðuneytið um raf-
orkumál Norðurlands vestra
Út af blaðaskrifum, sem fram
hafa farið að undanförnu um raf-
orkumál Norðurlands vestra vill
iðnaðarráðuneytið taka fram eft-
irfarandi:
Iðnaðarráðuneytið kostaði at-
hugun þá á tengingu Skeiðfoss-
svæðisins við Skagafjörð og við-
bótarvirkjun Skeiöfoss, sem vikið
hefur verið að i blaðaskrifum, og
ber það siður en svo vott um að
ráðuneytið hafi fyrir sitt leyti
viljað loka neinum þeim leiðum
til öflunar raforku fyrir Norður-
land vestra, sem hagkvæmar
kynnu að reynast. Að lokinni
þeirri athugun, sem framkvæmd
var af Rafveitu Siglufjarðar, en
kostuð af ráðuneytinu, svo sem að
framan er að vikið, fól ráðuneytið
Orkustofnun að gera itarlegan
samanburð á tengingu Skaga-
fjarðar og Skeiðfosssvæðis og ný-
virkjun Skeiðfoss annars vegar
og linulögn Akureyri
—Skagafjörðurhins vegar. Níður-
staðgn af þeim athugunum var á
þá leið, að linulögn frá Akureyri
væri hagkvæmari lausn fyrir
Norðurland vestra svo fremi að
sú orka, sem Norðurland vestra
fær um linu þessa kostaði 70
aura/kWh eða minna, þar sem
hún kemur inn á linuna.
Forráðamönnum Rafveitu
Siglufjarðar er kunnugt um þessa
niðurstöðu.
Tiltæk orka á Norðurlandi
eystra frá þeirri nývirkjun, sem
nú er unnið að i Laxá er talin
munu endast i a.m.k. 2 ár enn,
enda þótt Norðurland vestra fái
hlut i henni. Rafmagnsveitur
rikisins hafa þegar með samningi
við Laxárvirkjun tryggt sér nægj-
anlega orku fyrir Norðurland
vestra á þessu timabili, eða til og
með 1974, við verði, sem er undir
áðurnefndum 70 aur/kWh.
Eftir 1974 þarf að afla Norður-
landi eystra aukinnar raforku og
Norðurland vestra þarf meiri
orku nú þegar. Aðurnefndur sam-
anburður sýnir að svo fremi að
þessi viðbótarorka fyrir Norður-
land eystra kosti 70 aur/kWh eða
minna er hagkvæmt að leysa
orkuöflunarmál Norðurlands alls
i einu lagi.
Áðurnefnt verð 70 aurar á
kWh, er um það bil tvöfalt verð
orkunnar frá Sigöldu, skv. áætl-
unum Landsvirkjunar. Sundur-
greining Norðurlands i tvö orku-
öflunarsvæði táknaði þvi, að
menn teldu.að orkuöflun fyrir
Norðurland ætti i framtiðinni að
verða a.n.k. tvöfalt dýrari en á
Suðurlandi. Að öðrum kosti sýnir
áðurnefnd athugun að það er
heppilegra að afla raforku fyrir
Noröurland eystra og vestra i
einu lagi.
Að dómi ráðuneytisins er það
algjör fjarstæða að ætla Noröur-
landi að búa við tvöfalt dýrari
raforkuöflun i framtiðinni en Suð-
urlandi. 1 samræmi viö það álit
tók rikistjórnin hinn 21. septem-
ber s.l. ákvörðun um samteng-
ingu Norðurlands og Súðurlands.
Með þeirri ráðstöfun er tryggt,að
Norðurland fái hlutdeild i hinni
ódýru orku frá Sigöldu.
Lina sú, sem nú er i byggingu
milli Akureyrar og Skagafjarðar.
gegnir þannig tviþættu hlutverki.
1. leysir raforkuþörf Norðurlands
Nefnd sú, er skipuð var af
menntamálaráðherra Dan-
merkur til að skipta hinum
islenzku handritum i Arnasafni
og Konunglega bókasafninu i
Kaupmannahöfn, hefur haldið
fund á Slettestrand i Han-héraði
dágana 19. - 21. júli 1972.
Nefndin fjallaði um grund-
vallaratriði varðandi hina fyrir-
huguðu skiptingu, og fól fundar-
stjórn að láta danska mennta
málaráðuneytinu i té danska þýð-
ingu af álitsgerð frá þremur
islenzkum lögfræðingum.
Skiptanefndin var sammála um
að beina þvi til mennt-málaráöu-
neyta íslands og Danmerkur, að
hún fái frjálsan aðgang að öllum
skjölum varðandi málið, enda
fari hún með þau sem trúnaðar-
mál.
Herragarðurinn, sérverzlun i
herravörum, opnaði i vikunni i
verzlunarhúsinu Aðalstræti 9.
Eigandi verzlunarinnar er
Garðar Siggeirsson, sem lengi
hefur starfað hjá P&Ó. Staöall hf.
teiknaði innréttinguna og Sveinn
vestra næstu tvö árin skv. samn-
ingum, sem þegar hafa verið
gerðir og
2. tryggir Norðurlandi vestra
hlutdeild i framtiðarlausn á raf-
orkuöflun fyrir Norðurland i heild
með tengingu við Suðurland.
Ráðuneytið hefur þegar gert
ráðstafanir til að framkvæmdir
við linulögn milli Norður- og Suð-
urlands geti hafizt næsta sumar,
þannig að Norðlendingar eigi kost
á ódýrri raforku frá Sigöldu árið
1975.
Samtimis þessu er unnið að
athugunum á virkjunarmöguleik-
um við Dettifoss, i Skjálfanda-
fljóti og við Jökulsá eystri i
Skagafirði, þvi að loknum þeim
samtengingum, sem að framan
eru taldar, gerbreytist öll mark-
aðsaðstaða fyrir hugsanlegar
virkjanir á þessum stöðum.
Samþykkt var að beina því til
réttra aðila, að öllum handrita-
númerum og táknum verði fram-
vegis haldið óbreyttum, þó að
handritin skipti um geymslustað.
Ennfremur var samþykkt að
beina þeim tilmælum til mennta-
málaráðuneytis Danmerkur, að
hraðað verði ljósmyndun og við-
gerð handrita.
Eftir tillögu frá fundarboðanda
var samþykkt að hafa framvegis
á nefndarfundum fullkomið jafn-
ræði með fulltriumbeggja landa,
þennig að þeir skiptust á um
fundarstjórn, og bæði tungumál
séu jafn-rétthá.
Jónas Kristjánsson
Ole Widding
Magnús Már Lárusson Chr.
Westergard-Nielsen
Jón Jóhannesson, sá um smiðarn-
ar.
Herragarðurinn mun, auk
mikils úrvals fatnaðar i venju-
legum stærðum, kappkosta að
þjóna þeim, sem þurfa
sérstærðir.
Fyrsti fundur
handritanefndarinnar
Herragarðurinn
LIN PlflO ÆTLAÐI
AÐ MYRÐfl MA0
- sonurinn einnig í samsærinu
SB—Reykjavik
I laugardagsblaði The Guardi-
an segir að Lin Piao, fyrrum álit-
inn eftirmaður Maós, hafi haft á
prjónunum áætlanir um að myrða
formanninn. The Guardian, sem
er mjög virt blað, hefur þetta eftir
fréttamanni sinum i Yenan, sem
aftur hafði þáð úr opinberum
upplýsingaskýrslum flokksfor-
ustunnar i Kina.
Þegar fréttir fóru að berast af
dauða Lin Piaos, var sagt að hann
hefði ætlað að flýja til Sovétrikj-
anna, eftir að dóttir hans heföi
komið upp um samsærið.
Stjórnin i Peking segir nú, að
Piao hafi verið kominn svo langt
út af flokkslinunni, að hann hafi
ákveðið að láta myrða Mao,
meðan hann var i Shanghai. t
einni skýrslunni segir, aö sonur
Lin Piaos hafi verið einn sam-
særismanna.
426 teknir ölvaðir
við akstur í Reykjavík
- og 69 í Kópavogi, tvöfalt fleiri en í fyrra
Klp-Reykjavik
Um síðustu helgi voru teknir 15
ökunicnn, grunaðir um ölvun við
akstur, hcr i Ileykjavik. Þar með
er tala þcirra, sein teknir hafa
veriö frá áramótum, komin i 426.
Sturla Þórðarson, fulltrúi
lögreglustjóra, sagði i viðtali við
blaðið I gær, að þetta væri mun
minna en á sama tima i fyrra. Þá
hefði verið búið að taka 481, en
allt árið 1971 hefðu 835 ökumenn
verið teknir ölvaðir við akstur i
Reykjavik. Sturla gat þess einnig,
að af þessum 426, sem hafa verið
teknir i ár, hefði 31 verið tekinn af
reykviskum lögregluþjónum utan
lögsagnarumdæmis Reykjavikur.
Við höfðum samband við
nokkrar lögreglustöðvar úti á
landi, og spurðum, hvort einhver
aukning hefði orðið á töku ölvaðra
manna við akstur, það sem af er
þessu ári.
1 Kópavogi fengum við þær
upplýsingar, að búið væri að taka
69 ökumenn, það sem af væri af
þessu ári, og væri það næstum
helmingi fleiri en á sama tima i
fyrra, en þá voru teknir 35 menn.
1 Keflavik voru tölur ekki við
höndina, en sá, sem við töluðum
við, sagðist halda, að heldur hefði
oröið aukning frekar en hitt.
Sömu sögu var að segja frá Vest-
mannaey j um og Akureyri. A
Akureyri var búið að taka 55 öku-
menn, en á sama tima i fyrra 47.
Á Isafirði var einnig búið að
taka 11 á móti 7 i fyrra, en þar
náðu þeir lika 3 mönnum sömu
nóttina, og er það óvenjumikið á
þeim slóðum.
Lögreglan i Hafnarfirði sagði,
að þetta væri svipað og i fyrra.
Aftur á móti sagði lögreglan á
Akranesi okkur, að þar hefðu
færri verið teknir, það sem af
væri þessu ári, miðað við i fyrra.
Það sama gat lögreglan á
Húsavik sagt, —~ 6 nú, en voru 14 i
fyrra, og frá Selfossi fengum við
einnig svipaða skýrslu.
Lögregluþjónarnir, sem við
töluðum við, voru almennt
sammála um, að sjálfsagt hefði
þeim ekki fækkað, sem væru
ölvaðir við akstur, þó svo að
skýrslum fjölgaði eða fækkaði á
hinum og þessum stöðum.
Eftirlitið væri misjafnt. Sumir
staðir hefðu hreinlega ekki menn
til að fylgjast nægilega vel með
þessu, og að það væri oft hrein,
tilviljun, hvort bifreið með
ölvuðum ökumanni væri stöðvuð
eða ekki.
STALDRAÐ A DJUPUVIK
TIL AÐ KAUPfl HÁKARL
Strandamenn eru frá fornu fari
l'rægir hákarlamenn. Jakob
Thorarensen hafði gamla
sveitunga sina i huga, er hann orti
hiö alkunna kvæði sitt, og þaðan
er hákarlaskipið Ófeigur komið i
byggðasafnið á Reykjum i Hrúta-
firði. Og enn stunda Strandamenn
nokkuð hákarlaveiðar.
Lýður Hallbertsson Djúpuvik,
þar sem nú eru sex heimili,
stundaöi hákarlaveiðar við
þriðja mann i vetur eða vor, og
fengu þeir félagar tuttugu og sex
hákarla alls., suma að visu fremur
smáa.
— Það eru engin vandræði að
selja hákarlinn, þegar búið er að
veiða hann og verka, sagði
Hallbert Guðbrandsson
útibústjóri við blaðið i gær. Nú er
vegurinn norður um með bezta
móti og ekki svo fáir, sem leggja
leið sina norður i Trékyllisvik.
Margt af þessu fólki falast eftir
hákarli hér i Djúpuvik, og þó
hákarlinn sé ekki enn genginn til
þurrðar, þarf ekki að kviða þvi,
að mikið verði óselt, þegar
haustar.
Óþarft mun að bæta þvi við, að
þeir á Djúpuvik kunna vel til
hákarlsverkunar. — J.H.
Garðar Siggeirsson, eigandi Herragarðsins, innan við afgreiðsluborðið
i hinni nýju verzlun sinni.