Tíminn - 27.07.1972, Page 7
Fimmtudagur. 27. júlí 1972
TÍMINN
7
Fegurðardrottning
Hivierunnar
\i
Það er venja að velja fegurðar-
drottningar árlega á Rivier-
unni, enda ætti að vera úr miklu
að velja þar, þangað koma svo
margar og fallegar stúlkur, að
þvi er sagt er. Hér sjáið þið
drottningu þessa árs. Hún er
tvitug aldri og 'heitir Anne
Marie Stéfani og er hágreiðslu-
dama. Hún er frá Lotringen.
Vill ekki afmælis-
gjöfina
Þegar Pablo Picasso varð
niræður sendi borgarstjórinn i
Malaga á Spáni honum afmælis-
gjöf. Það var málverk af
nokkrum sofandi dúfum, sem
faðir hins heimsþekktrra
málara, hafði eitt sinn málað.
Picasso hefur þó alls ekki viljað
taka við afmælisgjöfinni.
•
Borgarstjórinn i Mougins i
Frakklandi, næsta bæ við
villuna, sem Picasso býr i i
útlegð sinni frá Spáni, hefur
gert itrekaðar tilraunir til þess
að fá Picasso til þess að sækja
málverkið, sem var sent i
ábyrgðarpósti til Mougins. En
allar tilraunir hafa verið
árangurslausar, og má nú
búast við/ að málverkið verði
sent aftur til Spánar áður en
langt liður. £
Búa i Ilvita húsinu
Tricia dóttir Nixons forseta og
maður hennar Edward Cox ætla
að búa i Hvita húsinu i
Washington næstu mánuði. Þau
hafa nú verið gift i eitt ár, og
fyrir nokkru fluttu þau allar
eigur sinar úr ibúðinni, sem þau
hafa búið i i Cambridge, Mass.
og yfir i Hvita húsið.Cox hefur
lokið lögfræðinámi við
Harvardskólann, og i haust
ætlar hann að taka próf til þess
að mega flytja mál i New York-
riki. Hann er enn sem komið er
liðsforingi i heimavarnarliðinu,
en mun ekki þurfa að fara að
gegna virkilegri herskyldu fyrr
en i febrúar næsta ár. Þau Cox-
hjónin hyggjast nú aðstoða
föður frúarinnar, Nixon
forseta,við kosningabaráttuna,
sem framundan er.
Hertogahjónin af Windsor
i kvikmynd
Aður en langt liður, gefst okk-
ur ef til vill tækifæri til þess að
sjá sjónvarpskvikmynd um her-
togahjónin af Windsor. Hertog-
inn var ekki sérlega hrifinn af
hugmyndinni, að kvikmynda
ætti lif hans, en sættist þó á að
heimila það, eftir að kvik-
myndastjórinn, David Victor
hafði lofað honum að sleppa
iillu, sem gæti talizt viðkvæmnis
mál, og gæti komið illa við til
dæmis ættingja herlogans i
Englandi. Sá sem fer með hlut-
verk hertogans er Uichard
Chamberlain, og Faye Duna-
way fer með hlutverk hertoga-
frúarinnar. Margir búasl við að
efni myndarinnar eigi eftir að
vekja mikla óánægju, þrátt fyr-
ir það, að stjórnandinn hafi lof-
að að l'ara að öllu með gát, i gerð
myndarinnar. Hér sjáið þið svo
Chamberlain og Dunaway i
hlutverkum hertogahjónanna.
Vel fagnað i
Sovétrikjunum
Bandarfski pianóleikarinn
Van Cliburn er nýkominn úr
hljómleikaför til Sovétrfkjanna.
Þar hélt hann átta hljómleika,
og var alls staðar mjög vel
fagnað. Á siðustu hljóm-
leikunum, sem voru i tónlistar-
höllinni i Moskvu var húsið yfir-
fullt og áheyrendur fögnuðu
pianóleikaranum með enn meiri
hrifningu, en almennt gerist á
hljómleikum i Sovétrikjunum,
og að hljómleikunum loknum
var sviðið alþakið blómum.
Áður en hljómleikarnir hófust
hafði orðið að setja lögregluvörð
við höllina, og stöðugt streymdi
að fólk, sem ekki hafði getað
náð sér i aðgöngumiða, og
spuröi það hina, sem inn fóru: —
Félagi, þú hefur liklega ekki
aukamiða? Fjórtán árum áður
hafði Cliburn unnið
Tchaikovsky-verðlaunin á
sama stað, fyrsti og eini
Bandarikjamaðurinn, sem þau
verðlaun hefur hlotið. Að
hljómleikunum loknum sagði
Van Cliburn á rússnesku —
Þakka ykkur kærlega fyrir. Ég
er, og mun verða sannur vinur
ykkar allra.
Segirðu satt. Getið þið séð sama
sjónvarpið hér og við sjáum
heima. Þetta er þó aldeilis
nýtízkulegur bóndabáer.
DENNI
DÆAAALAUSI