Tíminn - 27.07.1972, Blaðsíða 20
Nýtt mann-
virki leysir
gömlu brúna
af hólmi
JH—Reykjavík
Gamla brúin á Norðurá hjá
Haugum i Stafholtstungum er ein
af þeim, sem gerðar voru, áðui en
menn höfðu hugboð um, hversu
breið ökutækin yrðu, þegar fram
liðu stundir. Þaö hefur þurft
mikla lagni til þess að koma veru-
lega breiðum langferðabil yfir
hana, svo að á hvorugu sæi,
bilnum né brúnni, og jafnvel taka
af þeim spegla.
Útlendingum hefur þótt merki-
legt að fara i bilum yfir slikar
brýr, þar sem ekki má skeika
sentimetra, ef vel á að farnast.
Nú fækkar þessum mjóu brúm
óðum, og innan skamms veröur
hætt aö aka gömlu brúna hjá
Haugum, þviað ný og voldug brú,
mikið mannvirki, er þar i smiðum
og leysir þá eldri senn af hólmi.
Tvær bifreiðir á
sama númeri
JK—Egilsstöðum.
Sú nýjung i skráningu bifreiða
hefur vakið nokkra athygli hér
um slóðir, að hér hafa verið á
feröinni undanfarið tvær bifreiðir
með númerinu U-788, og aörar
tvær með númerinu U-755. Væri
gaman aö vita hvenær Bifreiða-
eftirlitið tók þessa nýjung upp.
(iamall og nýtt — mjólt og breitt.
(Timamynd: GE.)
Veðurblíða
á Héraði
JK—Egilsstöðum.
Einmuna veöurblfða er nú á
Egilsstööum, sólskin og hiti.
Iiitinn er yfir 20 stig i forsælu.
Úrkomusamt var hér framan af
júliinánuði og rigndi eitthvað á
hverjum degi, cn nú seinni hluta
mánaðarins hefur þurrkurinn
loksins komið, og hefur hey-
skapur gengið vel síðustu dagana.
Gras var viða orðið úr sér
sprottið, en geysileg grassprefta
hefur veriö i sumar, þar sem það
hefur verið rnjög' hlýtt og
úrkomusamt.
Vegirnir hér eru með versta
móti, ósléttir og harðir, og
kvartar ferðafólk sáran undan
þeim. örsjaldan virðist hafa
verið heflað, og spyrja menn nú
hver annan, hvort óvenjusnjó-
léttur vetur og þurrir vegir i vor,
létti ekkert undir með vega-
gerðinni að halda vegunum i
sæmilega ökuhæfu standi. En
undanfarin ár hafa farið miklir
fjármunir i smjómokstur og
viðgerðir á vegum, en hvorugu
verið til að dreifa það af er þessu
ári.
Norskir sjómenn andvígir EBE-aðild
l>()—Rcykjavík.
„Við crum liingað komnir til að
kyima okkur afstöðu islands til
EBE, það er að scgja, að fá bctri
vilncskju um liina miklu andstöðu
islendinga gegn KBE," sögðu
Norömcnnirnir Kagnar Kalhcim
og Mat/. Sandmann, þcgar við
hittuin þá að ináli i gær.
Þeir Sandmann og Kaiheim
standa báðir íramarlega i
hreyfingu þeirri, sem berst gegn
aðild Noregs i Efnahagsbandalag
Evrópu. Hreyfing sú, sem berst
gegn aðild Noregs að EBE telur
Þeir standa i broddi hreyfingar þeirrar, sem berst gegn aðild Noregs
IM Uíl vinstri) og Kalheim- Timamynci
nú 150 þús. skráða meðlimi og
fjölgar þeim sifellt, þrátt fyrir
ákafan áróður stórfyrirtækja og
sterkari arms norska verka-
mannaflokksins.
Sandmann og Kalheim koma
báðir frá Verkamannaflokknum,
en mjög margir af áköfustu
andstæðingum EBE eru einmitt
úr Verkamannaflokknum. Sem
kunnugt er, þá er Verkamanna-
flokkurinn mjög klofinn i EBE-
deilunni, og eru þeir, sem ráða
mestu þar, miklir EBE vinir og
beita öllum ráðum til þess að fá
fólk til aö styðja aðild Noregs að
EBE. Meðal annars eru öll blöð
Verkamannaflokksins látin birta
lofgreinar um EBE upp á hvern
einasta dag, en þrátt fyrir það
fjölgar andstæöingum EBE
stöðugt. — Þá reyna stjórnendur
norskra stórfyrirtækja að fá laun-
þega sina til að skilja það, að það
sé nauðsynlegt fyrir fyrirtækin aö
Noregur gangi i EBE. Hafa fyrir-
tækin dreift allskonar upp-
lýsingabæklingum og haldið fundi
með launþegum, þar sem þvi
hefur verið lýst yfir, að ef
Noregur gangi ekki i EBE, þá séu
dagar fyrirtækisins taldir. Þetta
hefur aðeins orðið til þess, að
auka mótspyrnu fólksins, að þvi
er virðist. Sem dæmi um það má
nefna stærsta fyrirtæki Noregs
Norsk Hydro A/S. Þar fór fram
leynileg atkvæðagreiðsla um
aðild Noregs að EBE, og útkoman
varð sú, að 73,5% starfsmann-
anna sögðu nei, 21% var með
aðild og 6,5 voru óákveðin.
Kosningar, sem þessar, hafa farið
fram hjá mörgum fyrirtækjum i
Noregi, og útkoman hefur að
meðaltali verið sú, að 75% hafa
verið á móti aðild 23% með aðild.
Þá hefur andstaðan gegn EBE
aukizt mjög i Stórþinginu, en til
þess að Stórþingið geti samþykkt
aðild Noregs að EBE, þarf 3/4
hluta atkvæða, þannig að það
nægir, að 38 þingmenn greiði
atkvæði á móti til að fella aðildar-
inngöngu. í júni 1970 voru 17 þing-
menn á móti EBE-aöild, i júni
1971 var talan komin upp i 37 og
nú i júnimánöui s.l. var talan
komin upp i 44,-
Þann 25. september n.k. fara
fram kosningar i Noregi, þar sem
kjósendur eiga að greiða atkvæði
um, hvort þeir séu með eöa móti
EBE-aðild. Þessar kosningar eru
aðeins ráðgefandi fyrir Stór-
þingið, og ef kosningarnar fara
þannig, að t.d. 55% greiða
atkvæði með aðild, þá er hætt við
þvi, að reynt verði að fá þá þing-
enn. sem eru nú á móti EBE-
aðild t.d. innan Verkamanna-
flokksins, aö breyta aftur um
skoðun. Þessvegna er nauðsyn-
legt fyrir EBE-andstæðinga að fá
það mikinn meirihluta i kosning-
unum að slikt geti ekki komið
fyrir, og vonast þeir Kalheim og
Sandman til að mikill meirihluti
fólks greiði atkvæði á móti aðild.
Þeir félagar sögðu, að mikils
óréttlætis hefði gætt innan rikis-
stjórnarinnar um úthlutan
styrkja til umræðna um aðildina
aö EBE. 1 allt hefur rikið veitt 12
milljónir n.kr. til þessara
umræðna, þar af hafa
andstæðingar EBE aðeins fengið
rúma 1. milljón, en áhangendur
EBE tæpar 11 milljónir. Þó að
svona hafi farið, þá hafa
andstæðingar EBE ekki veriö
alveg peningalausir, þvi að sam-
tökin hafa fengið mikinn styrk frá
öllum æskulýðsfélagssamtökum
Noregs, 10 aö tölu. 011 æskulýös-
samtökin eru á móti EBE-aðild.
Frá sjómanna — og útvegssam-
tökunum hafa borizt stórar
upphæðir og siðast en ekki sizt
hafa borizt mjög stórar upphæðir
frá bændasamtökunum. Þannig
hefur tekizt að safna fé til að
halda uppi sifeldri upplýsinga-
starfsemi gegn EBE aðild, og eru
F'ramhald á 5. siðu
STÁLGRINDAHÚS
Pantanir á stálgrindahúsum, sem afgreiðast eiga
fyrir haustið, þurfa að berast sem fyrst
Húsin fást með klœðningu í ýmsum litum
eftir vali kaupanda
Húsbreiddir staðlaðar, 7,5-10-15 metra
SÍMI 24260
HÉÐINN =