Tíminn - 04.08.1972, Blaðsíða 6

Tíminn - 04.08.1972, Blaðsíða 6
6 TÍMINN Föstudagur 4. ágúst 1972 Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Aðalskoðun bifreiða i lögsagnarum- dæmi Reykjavikur i ágúst 1972. Þriðjudaginn 1. ágúst R-14551 til R-14700 Miðvikudaginn 2. ágúst R-14701 til R-14850 Fimmtudaginn 3. ágúst R-14851 til R-15000 Föstudaginn 4. ágúst R-15001 til R-15150 Þriðjudaginn 8. ágúst R-15151 til R-15300 Miðvikudaginn 9. ágúst R-15301 til R-15450 Fimmtudaginn 10. ágúst R-15451 til R-15600 Föstudaginn 11. ágúst R-15601 til R-15750 Mánudaginn 14. ágúst R-15751 til R-15900 Þriðjudaginn 15. ágúst R-15901 til R-16050 Miðvikudaginn 16. ágúst R-16051 til R-16200 Fim mtudaginn 17. ágúst R-16201 til R-16350 Föstudaginn 18. ágúst R-16351 tii R-16500 Mánudaginn 21. ágúst R-16501 til R-16650 Þriðjudaginn 22. ágúst R-16651 til R-16800 Miðvikudaginn 23. ágúst R-16801 til R-16950 Fimmludaginn 24. ágúst R-16951 til R-17100 Föstudaginn 25. ágúst R-17101 til R-17250 Mánudaginn 28. ágúst R-17251 til R-17400 Þriðjudaginn 29. ágúst R-17401 til R-17550 Miðvikudaginn 30. ágúst R-17551 til R-17700 Fimmtudaginn 31. ágúst R-17701 til R-17850 Bifreiöaeigendum ber aö koma meö bifreiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borgartúni 7, og veröur skoöun fram- kvæmd þar alla virka daga kl. 8.45 til 16.30. Aðalskoðun verður ekki framkvæmd á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu fylgja bifreiðunum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bif- reiöanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skil- riki fyrir þvi, að bifreiðaskattur og vátryggingargjald ökumanna fyrir árið 1972 séu greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Þeir bifreiðaeigendur, sem hafa viðtæki i bifreiðum sin- um, skulu sýna kvittun fyrir greiðslu afnotagjalda rikisút- varpsins fyrir árið 1972. Ennfremur ber að framvisa vottorði frá viðurkenndu viðgerðarverkstæði um að ljós bifreiðarinnar hafi verið stillt. Athygli skal vakin á þvi, að skráningarnúmer skulu vera vel læsileg. _ Vanræki einhver að koma Tíifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima, verður hann látinn sæta sektum samkvæmt um- ferðarlögum og bifreiðin tekin úr umferð, hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn i Iteykjavik 1. ágúst 1972. AÐVÖRUN til eigenda ökumælaskildra bifreiða Lögreglustjóranum i Reykjavik hefur verið afhent skrá yfir ökumælaskyldar bifreiðir, sem eiga ógreiddan bifreiða- skatt fyrir 2. ársfjórðung 1972. Verða þær bifreiðir, sem i vanskilum eru, stöðvaðar án frekari aðvörunar og númer þeirra tekin til geymslu, unz full skil eru gerð. Tollstjórinn i Reykjavik, 27. júii 1972. 40.000 bílar um Framhald af bls. 8. Laugarvatni. Skemmtanahaldið byrjar á föstudaginn kl. 4, með smá skemmtiatriðum. Um kvöld- ið verður dansað á pöllum, og það eru Mánar og hljómsveit Þor- steins Guðmundssonar, sem leika fyrir dansi. A laugardaginn byrjar diskótek kl. 1 eftir hádegi. Klukkan þrjú verður knattspyrnuleikur milli 1. deildar liðs Keflvikinga og 2. deildar liðs Selfyssinga, i leikhléi verður keppt i 100 og 200 m hlaupi kvenna og karla. Eftir leikinn verður keppt i 400 metra hlaupi kvenna,3000 metra hl. karla. Þaö atriði, sem á sennilega eft- ir að vekja mesta eftirtekt á Laugarvatnsskemmtuninni, fer fram kl. 17 á laugardaginn. Þá verður tefld skák með lifandi mönnum, og eru það stórmeistar- arnir Friðrik Ólafsson og Bent Larsen, sem leiða saman hesta sina. Taflmennirnir verða allir úr Skarphéðni, Guðmundur Arn- laugsson verður skákdómari og einnig mun hann skýra skákina. Á laugardagskvöldið verður skemmtidagskrá, þar koma m.a. fram Jörundur, Litið eitt, Gisli og Gordon, og á eftir verður dansað. Sömu hljómsveitir leika fyrir dansi og kvöldið áður. Skemmtidagskrá byrjar kl. 14 á sunnudaginn. Ræða veröur flutt, Karl Einarsson skemmtir, Guðrún A. Simonar syngur, Ómar Ragnarsson skemmtir, Gisli og Gordon syngja. A eftir verður sýnt fallhlifastökk. — A sunnu- Starfsstúlka óskast Starfsstúlku vantar að geðdeild Barna- spitala Hringsins, Dalbraut 12. Upplýsing- ar hjá yfirhjúkrunarkonunni simi 84611. Skrifstofa rlkisspltalanna IGNIS Rafmagns-vatnshitarar. fyrir sumarbústaði - mjólkurhús - bíl- skúra- kaffistofur - iðnaðar- og heim* ilisnotkun o. fl. RAFIDJAN VESTURGÖTU 11 SÍM119294 RAFTORG V/AUSTURVÖLL SÍMI 26660 helgina dagskvöldið kemur Karl Einars- son fram aftur, sömuleiðis Gisli og Gordon, djassballettskóli Báru sýnir Tam-tam. Að lokum verður dansað og flugeldasýning verður. Mótið á Laugarvatni er bind- indismót, og á staðnum verður ströng löggæzla, t.d. verða ein- hverjir lögregluþjónarnir óein- kennisklæddir. Ef veörið verður gott á Laugar- vatni um helgina er jafnvel búist við, að 10-15 þúsund manns muni sækja hátið Skarphéðins. 300 manns i Kerlingarfjöll „Það er þegar farið aö fjölga mikið hér á staðnum,” sagði Valdimar Ornólfsson I Skiða- skólanum i Kerlingarfjöllum. Valdimar sagði, að reiknað væri með, að a.m.k. 300 manns yrðu i Kerlingarfjöllum um verzlnarmannahelgina. Um helg- ina verður mikið skiðamót i Kerl ingarfjöllum. Þátttakendur verða úr öllum landsfjórðungum og að auki nokkrir erlendir keppendur t.d. verða tvær af beztu skiöakon- um Frakka meðal keppenda. Fært er á öllum bilum inn i Kerlingarfjöll um þessar mundir. Reikna með 40.000 bilum á þjóðvegum Ráðstafanir Umferðarráðs verða viðtækari i ár en nokkru sinni fyrr. Þegar fréttamaður Timans ra^ddi við Pétur Svein- bjarnarson, framkvæmdastjóra ráðsins, var hann i óða önn að undirbúa helgina miklu. — 1 fyrsta lagi, sagði Pétur, — þá verður rekin upplýsingamið- stöð hér i nýju lögreglustöðinni, og er sú upplýsingamiðstöð rekin á vegum Umferðaráðs og lögregl- unnar i heild. Sú starfsemi hefst klukkan 16 á föstudaginn og verð- ur siðan opið til miðnættis alla daga þar til á mánudagskvöld, þá lýkur henni á miðnætti. Þetta verður i svipuðu formi og undan- farin ár en starfsemin hefur auk- izt með hverju ári, fólk lærir einn ig betur að notfæra sér þessa þjónustu. Við söfnum upplýsingum utan af landi frá löggæzlumönnum, bif reiðaeftirlitsmönnum og vega- þjónustumönnum FIB, svo og1 starfsmönnum vegamála. Þessar upplýsingar eru um umferð, ástand vega, veðurfar, fjölda’ fólks á hinum ýmsu samkomum, umferðaróhöpp og slys og annað, sem við teljum máli skipta. Siðan vinnum við úr þessum upplýsingum og dreifum þeim með tvennum hætti: 1 gegnum út- varp, i stuttum innskotum, alls um 30 talsins, og siðan er öllum heimilt að hringja til okkar eftir klukkan 4 á föstudaginn, i sima 25200. Álagið á þeim vettvangi hefur vaxið gifurlega á undan- förnum árum — fólk hringir og spyr um óliklegustu hluti. Þetta er sem sé okkar aðalstarf hér þessa umferðarmestu helgi ársins, en segja má, að það sé tvennt, sem fæst með starfrækslu svona miðstöðvar. 1 fyrsta lagi fáum við all glögga heildaryfirsýn yfir þessa miklu umferðarhelgi og þannig getur löggæzlan hagað sinum aðgerð- um með tilliti til þess, sem er að ske hverju sinni. Og i öðru lagi getum við með þessu veitt lands- mönnum talsverða þjónustu. Annar þáttur, sem snertir Um- ferðarráð þessa helgi, er öryggis- beltahappdrættið. Hámark þess verður um þessa helgi og við höf um hugsað okkur að dreifa 10.000 miðum núna um allt land. Veðrið segir svo að sjálfsögðu ákaflega mikið til um fjölda fólks á vegum úti. Akaflega margir af þessu svokallaða Stór-Reykja- vikursvæði fara i styttri ferðir, en ég held mér sé óhætt að fullyrða, að lágmarksfjöldi bifreiða, sem fara út á þjóðvegina i lengri eða skemmri tima yfir helgina, sé um 40.000. Ef við reiknum svo með, að lágmarksfjöldi farþega sé 3, þá er dæmið einfalt, 120.000 manns fara út á þjóðvegina um þessa verzlunarmannahelgi. Slysahætta er náttúrlega tals- verð, en alvarlegt slys hefur ekki orðið sl. 5 verzlunarmannahelgar og þvi vonum við að sjálfsögðu hið bezta.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.