Tíminn - 04.08.1972, Side 17

Tíminn - 04.08.1972, Side 17
Föstudagur 4. ágúst 1972 TÍMINN 17 Hneyksli í handknattleik: Landsliðsnefndin leikur trúðinn í skrípaleik ársins! - segist ekki vera búin að velja landsliðið í handknattleik, sem tekur þátt í OL-leikunum i Múnchen, endanlega. Heldur áfram tauga* stríðinu hjá handknattleiksmönnunum okkar. Einhver mesti skripaleikur, sent háftur hefur veriö i iþrótta- ntálum islands, er nú leikinn hjá handknattleiksforustunni á is- landi. Hann byrjaði fyrir 8 mán- uðum og á eftir að ná hántarki eftir einn ntánuð, sem virðist vera meðgöngutimabilið. Lands- liðsnefndin i handknattleik, hóf skripaleikinn fyrir keppnistima- bilið i handknattleik i fyrra, þeg- ar hún kont þvi til leiðar að ts- landsmótinu i handknattleik yrði flýtt um tvo mánuði, svo að þeir gætu haft landsliðsmennina i handknattleik, einir út af fyrir sig, sent lengst, áöur en undan- keppnin fyrir OL-leikana hæfist á Spáni. Landsliðið hóf svo æfingar af fullum krafti um áramót og var æft af kappi fyrir undankeppnina á Spáni, þar sem islenzka lands- liðið vann frækilegasta sigur i sögu handknattieiksins (eins og landsliðsnefndin sjálf sagöi), þegar landsliðið gerði jafntefli gegn Finnum og Norðmönnum, sigruðu Austurrikismenn, Belgiu- ntenn og Pólverja. Eftir heim- komuna frá Spáni, valdi svo landsliðsnefndin 19 manna „grúppu” til aö æfa fyrir OL-leikana I Miinchen. Æft var þrisvar i viku og voru æfing arnar mjög vel sóttar og áhug inn var mikill hjá handknattleiks- mönnunum. Það eina sem skyggði á æfingarnar, var sú vit- und, að leikmennirnir væru að æfa af kappi um sumarið, þess vitandi að þrir leikmenn kæmust ekki með til Munchen. Var lands liðsnefndin með þessu, (að velja lú.leikmenn) búin að setja mikið taugastrið i landsliðshópinn og það taugastrið náði hámarki 18. og 19. ágúst, þegar tveir lands- leikir við Bandarikjamenn voru ieiknir i þeim tilgangi að velja 1(1 leikmenn úr 19 manna liópn um. Það þarf ekki að ræða um landsleikina nánar, þvi að flestir vita hvað skeði i þeim, landsliðsmennirnir náðu aldrei að sýna sitt rétta andlit, þvi að þeir vissu að liver vitleysa og mistök hjá þeim var skráð niður og OL- liðið valið eftir þvi hvernig þeir stæðu sig i leikjunum, sem urðu að taugastriði. Eftir leikina var svo valið 16 manna OL-lið, en þrem leikmönn- um, sem höfðu lagt hart að sér og æft af fullum krafti um sumarið, var sparkað og þeim gefið i skyn, að það þyrfti ekki meira á þeim að halda. En svo kemur rúsinan i pylsuendanum, á fyrstu æfing- unni, sem leikmennirnir útvöldu mættu á, sagði landsliðsnefndin við þá, að hún væri ekki endan- lega búin að velja OL-liðið og það gætu orðið breýlingar á liðinu. Nú er spurningin: LÝSTI LANDS- LIDSNEFNDIN ÞESSU YFIR TIL AÐ LEIKMENNIRNIR 16 FÆRU EKKI AÐ SLA SLÖKU VIÐ ÆFINGAR, FRAM AÐ OL- LEIKUNUM? VAR ÞETTA GERT TIL AÐ HRÆÐA LEIK- MENNINA? Með þessari yfirlýs- ingu um að ekki væri búið að velja OL-liðið endanlega gaf landsliðs- nefndin mönnunum þremur, sem settir voru út úr landsliðshópnum veikar vonir um að þeir kæmust aftur inn i landsliðshópinn, og leikmönnunum 16 sem voru i hópnum, lýsti landsliðsnefndin þeim á hendur enn einu tauga- ,»s* Nú er stóra spurningin: Hvaða leikaöferð verður notuö, til aö brjótast í gegnum vörnina hjá a-þýzku landsliðsrisunum og hvernig fer íslen/.ka landsliðið að stöðva þá á OL-Ieikunum. Hér á myndinni, sést einn a-þý/ki „risinn” Werner Sengcr, lyfta sér upp og þruma knettinum i netið hjá Dönum. striðinu, og þeir skildu, að það væri enn ekki öruggt að þeir væru fastir i OL-liðinu. Á þessu sést hvaða skripaleik landsliðsnefnd- in, hefur verið að leika að undan- förnu. En snúum okkur þá að öðrum hliðum málsins. í s.l. viku lék landsliðið (OL-liðið) fjóra lands- leiki á fimm dögum i keppnis- ferðalagi, sem það fór til Noregs og V-Þýzkalands. Fyrir þessa keppnisferð, sagði landsliðsþjálf arinn, að liðið væri ekki enn bvri- að að æfa leikaðferðir, þvi að liðið hafi æft þrek og úthald um sum- arið og ekkert komið við bolta að ráði fyrir landsleikina gegn Bandarikjamönnum. Enda sást það greinilega i leikjunum gegn Bandarikjamönnum, og það átti 3. deildar keppnin: Þróttur Nes.hefur verið óstöðvandi og unnið leiki með miklum mun eftir að koma betur i ljós i keppn- isferðinni, þar sem landsliðið gerði eitt jafntefli og tapaði þremur leikjum og einum leikn- um með tiu marka mun. Úrslit leiksins kom eins og þruma úr heiðskiru lofti, enda ekki nema von, að tapa 20:10 fyrir Vestur- Þýzkalandi, sem er ekki með eins sterkt lið og svo oft áður, lofar ekki góðu. Hvernig fara þá leik- irnir gegn Austur-Þjóðverjum og Tékkum, sem hafa frábærum lið- um á að skipa, þegar við mætum þeim á OL-leikunum, og þar að auki mætum við A-Þjóðverjum, án þess að fá að sjá lið þeirra leika. Eftir keppnisferðina, er ekkert að undra, þótt menn, spyrji: Hvað hefur landsliðsnefndin, látið handknattleiksmennina okkar vera að gera siðustu 8 mánuði? Er islenzka landsliðið ekki enn farið aö æfa leikaðferðir, eða á alltaf að stóla á Geir Hallsteins- son, i landsleikjum? Við höfum betri aðstæður til að láta landslið okkar leika og æfa saman, en nokkurt annað land i heiminum, en það er greinilegt að landsliðs- þjálfarinn hefir ekki hugmynd um það, þvi að hann sagði i viðtali fyrir stuttu, að Norðmenn hefðu betri aðstööu til að þjálfa lands- iiðið sitt, en við hér á tslandi. Það getur meira en verið að það sé erfiðara aö kalla islenzku lands- liðsmennina okkar saman hér á Stór-Reykjavikursvæöinu, en leikmenn Norska landsliðsins, sem eru á við og dreif um Noreg! Eftir allt þetta brambolt og skripaleik, sem landsliðsnefndin hefur verið að leika i 8 mánuði, væri skynsamlegast fyrir nefnd- ina að segja starfi sinu lausu hið snarasta, heldur en að vera alltaf sömu trúðarnir i skripaleiknum. S.O.S. Nú er nokkurn veginn vitað, hvaða lið i riðlunum fjórum í 3. deild, komi til meö aö leika i fjögra liöa keppninni um 2. deild- arsætið. Eitt lið er nú þegar búið að vinna serétt til að leika I fjögra liða úrslitunum, það er KS frá Siglufirði, en liðið er búið að vinna Norðurlandsriðilinn (c-rið- ill). Aður en lengra er haldið, skulum við lita á stöðuna i riðlun- um og kanna möguleika liöanna i þeim: A-riöill Suð-Vesturland: Viöir 9 6 2 1 32:9 14 Fylkir 8 4 2 2 19:9 10 Reynir 7 4 12 18:6 9 Stjarnan 7 3 1 3 13:11 7 Njarðvik 8 3 1 4 15:17 7 Hrönn 7 2 0 5 11:26 4 Grindavik 8 1 1 6 6:36 3 Eins og sést á stigatöflunni, þá koma þrjú lið til greina með að vinna riðilinn, það eru Viðir frá Garði, Fylkir úr Árbæjarhverfi og Reynir frá Sandgerði. Það má búast við að baráttan verði milli Viðis og Reynis, þó er ekki hægt að útiloka möguleika Fylkis, sem á enn stóra möguleika til að blanda sér i toppbaráttuna i riðl- inum. B-riöill Vesturland: Vikingur 5 3 11 14:5 7 UMSB 5 2 2 1 15:9 6 Bolvikingar 5 1 3 2 6:9 5 Strandamenn 5 0 2 3 6:21 2 t b-riðlinum stendur baráttan milli Vikinga frá Ólafsvik og UMS Borgarfjarðar. Aðeins tveir leikir eru eftir i riðlinum og ráða þeir úrslitum, UMSB á eftir að leika gegn Bolvikingum og Vik- ingur gegn Strandamönnum. Eins og sést á stigatöflunni, eru möguleikar Vikings meiri, það má segja aö Viking dugi aðeins jafntefli á heimavelli, þegar Vik- ingsliðið mætir Strandamönnum, ef leikurinn endar með jafntefli, sem er óliklegt, þá verður UMSB að vinna Bolvikinga með þó nokkrum mun, þar sem marka- talan ræður úrslitum i riðlunum. C-riðill Norðurland: KS 6 4 0 2 14:5 8 UMSS 6 3 1 2 15:13 7 Magni 6 2 2 2 8:15 6 Leiftur 6 1 1 4 12:15 3 Siglfirðingar eru búnir að bera sigur úr býtum i riðlinum og eru þar með búnir að tryggja sér rétt til að leika i fjögra liða úrslitun um um 2. deilaarsætið. D-riðill Austurland: Þróttur 7 7 0 0 46:5 14 KSH 6 4 0 2 9:8 8 Leiknir 7 3 1 3 25:18 7 Austri 6 2 2 2 13:15 6 Spyrnir 6 114 13:30 3 Huginn 6 0 0 6 4:34 0 Það má segja að það sé orðið nokkuð öruggt, að Þróttur frá Neskaupstað, sé búinn að vinna riðilinn. Liðið hefur verið óstöðv- andi i sumar og unnið leiki sina með miklum yfirburðum. Með liðinu leika leikmenn, sem eru ekki af verri endanum, þaö eru þeir Birgir Einarsson (áður Val og núverandi tslandsmeistari með Keflavik) og markakóngur- inn i liðinu Björn Árnason, sem var miðvörður hjá KR og þekktur fyrir annað en að skora mörk, hér i Reykjavik. Þróttarliðið er eitt af fjórum liðum i deildunum þremur sem hafa ekki enn tapað leik i ts- landsmótinu. Hin liðin eru Fram úr 1. deild og 2. deildarliðin Akur- eyri og FH.EinuliðiAusturlands- riðlinum, hefur ekki vegnað eins vel og Þrótti, það er Huginn frá Seyðisfirði, en liðið er eina liðið i deildunum þremur sem ekki hef- ur unnið leik, né gert jafntefli og er liðið þvi með ekkert stig. Eftir að hafa litið á stöðurnar i riðlunum fjórum, þá er hægt að gera sér i hugarlund, hvaða lið vinni i riðlunum og leiki þar meö i fjögra liða úrslitunum. Við hjá Timanum ætlum okkur að taka það bessaleyfi, að spá þvi hvaða lið leika i fjögra liða úrslitunum. Það eru Viðir, Vikingur, KS og Þróttur. Ef við litum lengra fram á veginn og förum að hugsa um hvaða lið af þessum fjórum eigi mestu möguleikana að hljóta 2. deildarsætið, þá dettur manni fyrst i hug Þróttur frá Neskaup stað, en lið Þróttar féll niður úr 2. deild i fyrra og hefur mikinn hug á að vinna sætið sitt aftur i 2. deild. Fróðir menn segja að liðið sé mikið sterkara nú i ár heldur en það var i fyrra. 1 s O S Nýjustu fréttir: Einn leikur fór fram i 3. deild á miðvikudags- kvöldið, þá mættust Viðir og Reynir i a-riðlinum, úrslit uröú þau að Viðir sigraði 4:2. Frá Náttúruverndarráði um rusl á víðavangi Náttúruverndarnefndir eru hvattar til að vinna að því, að framfylgt sé þeim ákvæðum 13. greinar náttúruverndarlaganna, sem kveða svo á að: ,,Á víðavangi er bannað að fleygja frá sér eða skilja eftir rusl, sem er til hættu eða óprýði, svo og að bera rusl eða sorp í sjó, í f jörur eða á sjávarbakka, í ár eða á árbakka, í læki eða á lækjarbakka. Skylt skal að ganga frá áningarstað og tjaldstæði, er menn hafa tekið sér úti í náttúrunni, þannig aðekkert sé þar eftir skilið, sem lýti umhverfið. Bannaðeraðsafna rusli í hauga á almannafæri eða við alfaraleiðir. Skylt er að ganga svo frá sorp- haugum, að hvorki fjúki úr þeim né fljóti. Hreinsa má rusl á kostnað þess, sem sannur er að broti á fyrirmæli þessu." Náttúruverndarráð

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.