Tíminn - 11.08.1972, Page 20
Hver
hefur
séð
Gaston?
góðkunnur Frakki týndur
Rannsóknarlögreglan lýsti i
gærkveldi eftir frönskum manni,
Henri Dominique de Sainte-Maríe
yfirleitt kallaður Gaston, sem fór
að heiman aðfaranótt miðviku-
dags og var ekki kominn fram i
gærkveldi.
Fransmaðurinn hefur verið hér
með annan fótinn um nokkurra
ára skeið, búið hér nú um eins árs
skeið. Núverandi heimili hans er
að Garöastræti 9, Reykjavik.
Henri Dominique ætti annars
aö vera góðkunnur íslendingum,
hann hefur viöa skemmt með
gitarleik og hefur meöal annars
komið fram i sjónvarpinu. Auk
þess lék hann á gitar i hljómsveit
bjóöleikhússins yið uppfærsluna
á Zorba. Hann á marga kunningja
hér.
Stöðugt fleiri
nota beltin
- og Bobby hefur þau
ætíð spennt
KJ—Reykjavik
Það er ekki ofsögum sagt, að
fólk er i mjög auknum mæli farið
að nota öryggisbelti i bilum, enda
fjölgar stöðugt þeim bilum, sem
eru meö belti. Ekki er gott að
segja um, hvort Bobby Fischer
hefur hrifizt af þessari „öryggis-
beltaöldu’’ hér, en svo mikið er
vist, að hinn 29 ára gamli áskor-
andi hefur öryggisbeltið á.vallt
spennt, þegar hann ekur hér um
— og gildir þá einu, hvort hann er
aðeins á leiðinni frá Loftleiða-
hótelinu og Laugardalshöllinni,
eða i lengri ökuferðum.
Annars er það áberandi i öku-
ferðum úti á landi, hve mikiil
fjöldi notar öryggisbelti, en svo
virðistsem fólk áliti þaö ekki eins
nauðsynlegt i innanbæjarakstri.
öryggisbelti eru þó engu siður
nauðsynleg i innanbæjarakstri,
og áreiðanlegt er, að margir
slyppu við höfuðhögg i árekstrum
innanbæjar, væru öryggisbeltin
ávallt notuð.
Sjómælinga-
stofnunin
fær bát
að láni
ÞM-Reykjavik.
Sjómælingastofnunin islenzka
hefur fengið bát til notkunar við
sjómælingar. Bátinn fékk
stofnunin að láni frá Banda-
rikjunum, til fimm ára endur-
gjaldslaust. Framlengja má
samningum ef óskað er, þegar
þessi fimm ár eru liöin. Samninga
undirritaöi fyrir hönd fslands
Páll Asgeir Tryggvason, for-
maöur Islenzku varnarmála-
nefndarinar, og fyrir hönd
Bandarikjanna undirritaði
samninginn kafteinn McDonald,
formaður bandarisku varnar-
málanefndarinnar.
Einnig voru boöin aö láni stað-
setningartæki að verðmæti um 4
milljónir króna, og koma þau til
landsins næsta sumar. Tæki þessi
geta gefiö upp hnattstöðu bátsins
þannig að aðeins muni þremur
metrum. Bátur þessi var á sinum
tima smiðaður fyrir haf-
ransóknastofnun bandariska
flotans sem mælingabátur á stóru
mælingaskipi, en þaö var þá eins
konar móöurskip fyrir einn eða
fleiri báta sömu tegundar, sem
mældu upp viö ströndina meðan
skipið sjálft vann aö mælingum
dýpra. Báturinn er smiðaður úr
tré, og er byrðingur allur tvö-
faldur. Stýrishús er úr áli. Aöal-
vélar eru tvær G. M. C. disel-
vélar, 165 hestöfl, ganghraði 10
sjómilur þegar báturinn er full-
lestaður. Lengd bátsins er 16 m,
en breidd 4,5 m og djúprista 1,3
m.
Sjómælingar Islands vænta
þess, að meö tilkomu þessa far-
kosts muni þeim ganga betur en
hingaö til að mæla með ströndum
fram, firði og flóa, og afla þeirra
upplýsinga, sem nauðsynlegar
eru til þess að geta haldið áfram
og flýtt útgáfu sjókorta i stórum
mælikvarða, sem þvi miður eru
ennþá alltof fá. Þess má geta, að
Sjómælingar hafa engan bát átt
undanfarin 10 ár, en leigt báta og
skip stuttan tima i einu. Verð-
mæti báts þessa, sem Sjó-
mælingar Islands hafa nú fengiö,
er með öllum tækjabúnaöi 15-20
milljónir króna. Ahöfn veröur 5-6
manns.
Hér er Jinks Jenkins I félagsskap vinar sins Louis heitins Armstrong.
Louis áritaði myndina sérstakiega handa Jenkins á sinum tima og er
hún honum mjög kær.
„íslenzk blóm eru falleg"
sagði Nei skákmeistari, en varð að fara heim með fjóra blómvendi
Timamynd Gunnar.
heldur heföi förin verið ákveðin
fyrir löngu.
Nei er Eistlendingur og eigin-
kona hans frá Litháen, Krógius er
Rússi, eins og Spasski og Larissa
kona hans, en Geller er Gyðingur.
Nei og frúrnar úr sendiráðinu
viö Túngötu voru heldur hnipin,
er þau uröu frá aö hverfa i gær-
dag, en skákmaöurinn brá þó á
glens og sagði, aö sennilega hefði
kona sin og samferöakonur henn-
ar villzt i Kaupmannahöfn.
Loftbrú komið á
til skozku eyjanna
- annars versnar ástandið
NTB—London
Brezka stjórnin kom i gær á
loftbrú til aö flytja um nauðsynj-
ar til Orkneyja og Shetlandseyja,
en eyjarnar hafa orðiö sérstak-
lega illa úti vegna vcrkfalls hafn-
arverkainanna. Það eru -Herku-
les-flugvélar brezka hersins, sem
á næstunni munu flytja nauðsynj-
arnar til eyjanna. Sykur er þar
alveg genginu til þurrðar.
Talsmaður brezku stjórnarinn-
ar lýsti þvi yfir i gær, að þessi
ákvörðun fæli ekki i sér að stjórn-
in heföi gripiö til ráðstafana
þeirra, sem neyðarástand felur I
sér. Sagði hann, aö þetta væri ein-
göngu af mannúðarástæðum.
Jafnframt þessu versnar
ástandiö stöðugt á eyjunum við
vesturströnd Skotlands, eftir aö
hafnarverkamenn i Glasgow neit-
uöu i gær aö lesta lifsnauösynjar
þangað. A fundi lögöu verka-
mennirnir til við stjórnina, aö hún
léti hermenn sem fyrst fara aö
vinna viö skipin.
Þá syrti enn i álinn i gær, þegar
verkfallsverðir voru settir við
einstakar hafnir á vesturströnd
Skotlands, sem enn voru opnar.
Fjöldi skipa hefur undanfarna
daga safnazt I þessar hafnir i von
Nei skákmeistari og sovézkar sendiráðsfrúr á Keflavfkurflugvelli i gærdag.
SJ—Reykjavik
Larissa, eiginkona heimsmeist-
arans i skák, og konur aðstoöar-
manna hans, Gellers, Krogiusar
og Neis, voru væntanlegar til
landsins i nótt. Upphaflega áttu
þær aö koma hingaö frá Kaup-
mannahöfn meö Loftleiðavél kl.
16.30 i gær, en þær misstu af henni
vegna seinkunar flugvélarinnar
frá Moskvu. Eistlendingurinn Nei
fór út á Keflavlkurflugvöll i gær
með fjóra biómvendi að taka á
móti frúnum, en varð frá að
hverfa, sem og fréttamenn, ljós-
myndarar, starfsmenn sovézka
sendiráösins i Reykjavik og eig-
inkonur þeirra.
Larissa er verkfræðingur að
mennt. Þau hjónin og sonur
þeirra búa i Moskvu. Larissa
sagði blaðamönnum á Kastrup-
flugvelli i dag, að hún væri sann-
færð um,að eiginmaður sinn ynni
sigur i einviginu viö Fischer, og
hún væri ekki á leið til Reykjavik-
ur til aö vera honum til stuðnings,
Föstudagur 11. ágúst 1972
-
Trinidadsöngvari á Loftleiðum: ,
„ER ISLENZKT KVENFOLK
ÞAÐ FEGURSTA í HEIMI?”
SB—Reykjavik
Jinks Jenkins hcitir Trinidad-
maður, sem nú og næsta mánuð-
iun skcmmtir á Loftleiðuin. Hann
kemur hingað frá Sviþjóö, þar
sem hann hcfur verið I 18 mánuði,
að visu annað slagið skroppið til
Danmerkur og Noregs.
Blaðamenn fengu að vera við-
staddir æfingu hjá Jenkins á Loft-
leiðum, og urðu þeir ekki fyrir
vonbrigðum.
Auk þess aö syngja hugljúf lög,
bæði gömul og ný, skemmti
maðurinn með sinum eigin per-
sónuleika. Hann kvaðst hafa
heyrt úti i heimi, að Island væri
dásamlegt land og kvenfólkið þar
með þvi fegursta i heimi.
Enn kvaðst Jenkins hafa séö
litiö af þessu, þvi aö hann hefði
ekki komið út fyrir hóteldyrnar,
en hann vildi fá að skoða sem
allra mest af landinu. Jenkins
hefur skemmt fólki um viða
veröld, enda kom hann fyrst fram
opinberlega aðeins þriggja ára,
aö visu á barnaheimili, en hefur
þó haldið áfram siðan, og ekki
verið i félagsskap með ómerkara
fólki en Louis heitnum Arm-
strong, Duke Ellington og
Mahaliu Jackson, ásamt ótal
fleiri.
Jenkins vildi taka fram, að
hann safnaði hvorki frimerkjum
né mynt og ekki heldur
peningum, aðeins vinum, og þá
hefur hann eignazt marga á
ferðum sinum.
Aðspurður um það, hvort hann
hefði heyrt nokkuð um viðtökur
islenzkra áheyrenda, fitjaði hann
litillega upp á nefið, en sagði
svo, að allir væru mannlegir, og
það sem hann helzt vildi, væri að
kynnast sem flestum mann-
gerðum. 1 ráði er, aö Jenkins
komi fram i islenzka sjón-
varpinu.
Sérstaklega vildi Jenkins láta
þess getið, að Arni Schewing, sá
sem leikur á bassa i hljómsveit-
inni á Loftleiðum, væri einn mesti
tónlistarmaður, sem hann hefði
kynnzt, og hefði hann ámálgað
það við hann,að hann kæmi með
sér i hljómleikaferðir siðar á
þessu ári. Ekkert væri þó .enn
ákveðið.