Tíminn - 22.08.1972, Page 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 22. ágúst 1972
Hl
Electrolux
Frystikista
310 Itr.
Electrolux Frystikista TC114
310 lítra, kr. 28.405. Frystigeta
21,5 kg á dag. Sjálfvirkur hita-
stillir (Termostat). Öryggisljós.
Ein karfa. Útbúnaður til að fjar-
lægja vatn úr frystihólfinu. Seg-
ullæsing. Fjöður, sem heldur
lokinu uppi.
Vörumarkaðurinn hf.
AHMULA 1A SIMI asi12. REVKUAVIK.
&
SKIPAUTGCRB RIKISINS
M/S HEKLA
fer frá Reykjavík
föstudaginn 25. þ.m.
austur um land i
hringferð. Vörumót-
taka i dag og á
morgun og fimmtu-
dag til Austfjarða-
hafna.
M/S BALDUR
fer til Snæfellsness-
og Breiðafjarðar-
hafna þriðjudaginn
29. águst Vörumót-
taka daglega.
ER KÖTTURINN
RÉTTLAUS
Greinarkorn með þessari yfir-
skrift eftii: mig undirritaðan
birtist i dálkum „Velvakanda”
Morgunblaðsins 11. þ.m. Af
einhverjum, mer óskiljanlegum,
ástæðum, hefur „Velvakandi”
ekki talið sér fært, að birta grein-
ina óstytta. En þar eð ég tel, að
greinin nái ekki tilgangi sinum
eftir slika breytingu, hef ég mælzt
til þess, að Timinn birti hana
óstytta, og fer hún hér á eftir:
Dag nokkurn á siðastliðnum
vetri átti ég leið um Bröttugötu
hér i Reykjavik. Veit ég þá eigi'
fyrri til en alllöng spýta kemur á
flugferð út úr hliðargötu og
hafnar rétt við fætur mér. Sam-
timis kemur köttur hlaupandi og
skýzt inn i nálægt hús. Var
spýtunni sýnilega ætlað að hæfa
köttinn, þvi að á sama andartaki
komu tveir stálpaðir strákar
þjótandi út úr sömu hliðargötu og
voru sýnilega gramir vegna þess
eins, að kastfimi þeirra skyldi
bregðast.
Mér gramdist mjög framferði
strákanna og talaði til þeirra á
viðeigandi hátt, að mér fannst
sjálfum. „Ég á köttinn”, hrópaði
annar þeirra sigri hrósandi, og
gaf mér þar með til kynna, að
þetta væri mál, sem honum
einum kæmi við. Siöan hlupu þeir
báðir inn i húsið, sem kötturinn
hafði leitað skjóls i, og hafa trú-
lega átt þar góða foreldra, sem
létu sig þennan gráa leik litlu
skipta.
Algengt er, þegar krakkar taka
að verða leið á brúðum og gervi-
dýrum, heimta þau lifandi dýr, og
er það þá venjulega kettlingur,
sem þau vilja fá. Eldra fólkið er
sveigjanlegt i það endalausa,
þegar yngri kynslóðin á i hlut, og
ekkert þykir sjálfsagðara en að
láta að vilja barnanna i þessum
efnum. Svo er litið á, að það hafi
mjög svo þroskandi áhrif á börn-
in að umgangast lifandi dýr. En
þegar þessi börn hafa fengið ósk
sina uppfyllta, sem venjulega
gengur greiðlega, er oftast litill
munur á þeim handtökum, sem
hið lifandi dýr kettlingurinn) fær
og þeim, sem brúðan og gervi-
bangsinn áttu áður að venjast.
Börn gera litinn greinarmun á
þvi, hvort um lifandi dýr eða
venjuleg leikföng er að ræða.
Arbæjarhverfi
Sölubörn, 10-13 ára óskast til að selja happdrættismiöa
BRÆÐRAFÉLAGS ARBÆJARSAFNAÐAR. Miðar af-
hendast næstu kvöld milli kl. 6-7 að Vorsabæ 11, Glæsibæ 7
og Glæsibæ 16. HA SÖLULAUN.
Stjórnin
Landsins ^rdðnr
- yðar hróðnr
BtNAÐARBANKI
" ISLANDS
Ílogfrædi
j SKRIFSTOFA j
j Vilhjálmur Ámason, hrl. j
Lækjargötu 12.
I (Iönaðarbankahúsinu, 3. h.) {
^ Simar 24635 7 16307. I
VELJUM ÍSLENZKT
heildsala - smása/a
HELLESENS
RAFHLÖÐUR
jQ/ux£éctAvc/a/i, A/
RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAVÍK • SIMI 18395
Veslings dýrin eiga ekki annarra
kosta völ en að umbera kvalara
sina, krakkana. Svo kemur að
þvi samkvæmt lögmáli
náttúrunnar, að kettlingurinn
verður að fullvöxnum ketti. Þá
fer áhugi krakkanna fyrir honum
að dofna og að lokum verða þau
leið á honum og vilja fá nýtt leik-
fang. Og þá er að losa sig við
„kattarskömmina” á sem fyrir-
hafnarminnstan hátt. Dæmi eru
til þess, að sá vandi er leystur
þannig, að farið er með köttinn á
ókunnan stað og honum sleppt
þar. Þrautaferill sá, sem dýriðá i
vændum, skiptir eigendurna
engu máli. Æviferill hins ógæfu-
sama dýrs endar svo jafnvel
þannig, aö það lendir i „klóm”
samvizkulausra stráka og hlýtur
þar með kvalafullan dauðdaga.
Vitað er, að eitt sinn fóru slikir
óknytta strákar með kött upp i
Skólavörðuholt, báru I hann tjöru
og kveiktu siðan i honum. Við
verðum af fletta mörgum blöðum
Mannskynssögunnar til þess að
finna dæmi um sams konar
drápsaðferð. — Stundum hefur
verið á það bent, að kettir séu
óalandi sakir sins grimma eðlis.
Vitanlega neitar enginn þvi, að
grimmd er kettinum i blóð
borin.-., eins og öðrum rándýrum.
Sjálfum hefur mér oft gramizt að
sjá ketti hremma bráð sina, mús
eða fugl, sem ekki uggði að sér.
En þegar ég fer svo að bera
saman lifnaðarhætti katta og
manna, þá sýnist mér kötturinn
aðeins vera meinlitiö peð á tafl-
borði grimmdarinnar. Þar situr
maðurinn tvimælalaust i önd-
vegi. Engin munu þess dæmi, að
kötturinn hafi útrýmt nokkurri
dýrategund, en hins vegar hefur
maðurinn útrýmt mörgum, og er
á góðri leið með að útrýma
fleirum. Maðurinn er i sannleika
böðull lifsins og er þar I sérflokki.
Hann drepur i mjög mörgum til-
fellum einungis sér til gamans,
og úr slóð hans hefur liklega
runnið meira blóð á liönum árum
og öldum, en úr slóðum allra
samtima dýrategunda heimsins
samanlagt. Staðreyndir eru ekki
ávallt þægilegar.
Þegar á allar hliðar málsins er
litið, virðist sem i sjálfri höfuð-
borg landsins, undir handarjaðri
Dýraverndunarfélags íslands,
eigi sér stað meiri dýraniðsla en
þekkist annars staðar á landinu.
Munu margir biða þess með vax-
andi óþreyju, að forráðamenn
þess félags losi svefninn og gerizt
þeir málsvarar dýranna,
sem vonir stóðu til i fyrstu að
þeir yrðu.
Hér dugir ekkert annað en rót-
tækar aðgerðir til úrbóta, eins og
öllum máljóst vera, sem málið
kynna sér.
Eyþór Erlendsson
íslenzkir
1 júni i sumar var farin bænda-
för til Noregs og Danmörku á
vegum Búnaðarfélags tslands.
Þátttakendur voru 109 og farar-
stjóri Agnar Guðnason.
Fyrir forgöngu innflutnings-
deildar Sambands islenzkra sam-
bændur
vinnufélaga voru þátttakendurnir
gestir fóðurfyrirtækisins Fyens
Andels Foderstofforretning i
Svendborg (FAF) og er með-
fylgjandi mynd tekin uppi á hin-
um háu kornturnum fyrirtækisins
við höfnina i Svendborg. Að lokn-
hjá FAF
um ýmsum sýningarferðum hélt
FAF gestunum hóf um kvöldið.
FAF selur langstærsta hluta
þess fóðurs, sem flutt er til
tslands og þvi einkar skemmti-
legt fyrir islenzka bændur að
kynnast fyrirtækinu betur.
Veðurathugunarmaður
vígður prestur
Vopnfirðinga
A sunnudaginn fór fram prests-
vigsla i Dómkirkjunni i Reykja-
vik hún hófst klukkan ellefu.
Biskup Islands vigði Hauk
Agústsson cand. theol. til Hofs-
prestakalls i Vopnafirði.
Haukur hefur dvalizt við veður-
athuganir á Hveravöllum undan-
farið ár, ásamt konu sinni Hildu
Torfadóttur.
Séra Sigurður Pálsson vigslu-
biskup lýsti vigslu, en vigsluvott-
ar voru séra Jakob Einarsson,
séra Jón Guðnason, séra Oddur
Thorarensen og séra Þórir Step-
hensen.
Nýju prestshjónin i Vopnafirði.
UR OGSKARTGRIPIR
JÓNSSON
SKÓLAVÖRÐUSí IC 8
BANKASTRÆTI6
18588-18600