Tíminn - 22.08.1972, Síða 5
Þriðjudagur 22. ágúst 1972
TIMINN
5
Jafntefli í 16.
skákinni eftir
60 leiki
- Dauf skák fyrir troðfullu húsi
v ET—Reykjavik
16. einvígisskákinni, sem tefld
var á sunnudaginn, lauk með
jafntefli að luknum 60 leikjum.
Skákin var f daufara lagi og
staðan yfirleitt jafnteflisleg.
Spasski hafði nokkru betur á
timabili, en tókst ekki að notfæra
sér þá stöðuyfirburði til vinnings.
Yfir 2000 áhorfendur fylgdust
með skákinni og er það metað-
sókn að einvigisskák. Keppnis
salurinn var þéttsetinn og að
minum dómi hefðu vart fleiri
gestir komist inn i Höllina, slik
var þröngin þar innan dyra.
Að lokinni 16. skákinni hefur
Fischer 9 1/2 vinning — Spasski 6
1/2. Áskorandann skortir þvi
aðeins 3 vinninga til að krækja sér
i heimsmeistaratign og má segja,
að sifellt syrti meira og meira i
álinn fyrir núverandi heims-
meistara. — 17. einvigisskákin
verður tefld I dag kl. 5 og hefur
Spasski hvitt.
FISCHERS—AFRIGÐIÐ
— METAÐSÓKN
Spasski mætir timanlega til
leiks með kaffibrúsana i rauðri
tösku. Larissa, kona hans,
skartar lika rauðu, svo að þau
hjónakornin halda sannarlega.
uppi merki ættlandsins.
Fischer er seinn eins og venjul. en
leikur nú hinum dæmigerða
upphafsleik sinum e4. Spasski
svarar e5 og upp kemur kunnug-
leg staða i augum byrjenda i
skák, nefnilega spánski leikurinn.
Askorandinn kórónar svo
byrjunina i 4. leik, er hann drepur
BxRc6 og beinir skákinni þar með
i sitt eigið afbrigði, Fischers--
afbrigðið. (Eitt af eftirlætis-
afbrigðum kappans, svo sem
nafngiftin ber með sér).
Það er óvenju margt fólk i
Höllinni, hvert sæti skipað i
salnum og fjölmargir standa upp
á endann. Ég vík mér að þeim
skáksambandsmönnum og spyr
um tölu áhorfenda. 2200, nei 2300
miðar seldir (og það kl. 6)
Metaðsókn! I leiðinni frétti ég
það, að Schmid yfirdómara hafi
bærizt bref frá Fred Cramer, þar
sem þess var krafizt, að teflt yrði
i bakherberginu. Ég spyr
Guðmund Arnlaugsson aðst.
dómara um málið. Hann segir
bréfið nánast út i hött og þvi hafi
ekki verið svarað.
FOX ÞÖGULL —
SKÁKIN LEIÐINLEG
Ég hitti Chester Fox að máli i
anddyrinu. Hann verst allra
frétta, en visar til
lögfr. sins. Ég spyr hvernig
þessi tröllháa stefnufjárhæð, 1.75
millj. dollara, sé fundin. Fox
segir þetta bæði bein útgjöld, og
tekjur, sem hann hafi orðið af
vegna þess að ekki var kvik-
myndað. Hann itrekar, að hann sé
reiðubúinn að hefja kvikmyndun,
gefi Fischer grænt ljós. Hafsteinn
Baldvinsson, hrl., lögfræðingur
Fox vill ekkert um málið segja að
svo komnu. Hann segir, að til
greina komi að kyrrsetja verð-
launaupphæð Fischers hér á landi
og verði þá að reka kyrr-
setningarmálið fyrir islenzkum
dómstólum. Hins vegar verði
sjálft skaðabótamálið tekið fyrir i
Bandaríkjunum. Lögfræðingur
Fischers Sveinn Snorrason, hrl.,
er lika þögull um málavöxtu.
Skákin hefur þokast áfram i
millitiðinni. Hún er leiðinleg að
flestra dómi og einhver vor-
kennir öllum áhorfenda-
skaranum. Skoðanir um stöðuna
eru skiptar, eins og svo oft áður.
Sumir telja hana sigla hraðbyri i
átt til jafnteflis, aðrir sjá mögu-
leika fyrir sinn hvorn keppand-
ann.
FJÖRKIPPUR —
DAUTT JAFNTEFLI
Allt i einu lifnar yfir skákinni.
Fischer gefur andstæðingnum
peð, en við það tekur Spasski
mikinn fjörkipp. 20. leikur hans
Be5 er sterkur og aðrir slikir
fylgja á eftir. 1 25. leik er svo
komið, að Spasski hefur mögu-
leika á hrókauppskiptum og
stendur þá eftir einu peði rikari i
endatafli. Hann velur þó ekki
þann kostinn, heldur leikur hrók
sinum undan. Fischer er ekki
seinn á sér og hremmir eitt peða
andstæðingsins. Upp kemur
„dauð jafnteflisstaða” að flestra
hyggju.
Ég spyr Frank Brady um
stöðuna. „Hún er vissulega jafn-
teflisleg, þótt Spasski hafi
smásæja möguleika sem stendur
(eftir 28. leik)” Spasski nær að
visu peðinu aftur og eftir 33 leik
standa tvimenningarnir uppi með
kóng og hrók hvor, Spasski tvö en
Fischer eitt peð. Danski skák-
meistarinn Enevoldsen svarar
mér nú á þessa leið: „Samkvæmt
skákbókunum er þetta jafntefli,
en hver veit?”
Eftir þetta likist skákin meira
hraðskák en venjulegri keppnis-
skák. Kapparnir tefla hratt og að
þvi er virðist án nokkurs
takmarks. „Ætli Spasski finnist
bara ekki svona gaman að hafa
einu sinni betri stöðu i lokin?”
heyrist einhver spyrja. „Hann
ætlar áð þrautreyna alla mögu-
leika” segir annar og ég tek undir
staðhæfinguna. Þeir félagar eru
iðnir og komast upp i 60. leiki,
áður en yfir lýkur og þeir semja
um jafntefli.
Bifreiðin á hvoldi i Gljúfurholtsá eftir áreksturinn. t baksýn sérst i Kotstrandarkirkju.
(Ljósm. Páil Þorlakss.)
Bíllinn lenti á hvolfi
Klp—Reykjavik
Lögreglan á Selfossi varð að
hafa afskipti af fjórum bilveltum
um helgina. Tvær bifreiðir ultu
við Skiðaskálann og ein á Þing-
völlum á móts við Kárastaði. Þá
varð árekstur við Gljúfurholtsá
með þeim afleiðingum aö önnur
bifreiðin fór út af veginum og
lenti á hvolfi út i ánni.
Orsök slyssins við Gljúfurholts-
á, var að bifreið var ekið fram úr
annarri rétt við brúna. Skall sú,
sem ætlaði framúr utani hina með
í ánni
þeim afleiðingum aö hún fór út af
veginum og hafnaði á hvolfi i
ánni. Þrennt var i bifreiðinni og
urðu litil meiðsli á fólki. Sömu
sögu er að segja af hinum bilvelt-
unum þrem.
Balthazar, Bylgja og Kolskeggur, ásamt eigendunum.
Ljósmynd: tsak Jónsson.
Balthazar
A sunnidaginn var haldin góð-
hestakeppni i Hveragerði. Hlaut
þar fyrstu verðlaun skjóttur hest-
ur, eign Mána Antonssonar i
Hveragerði, Balthazar að nafni
fékk fyrstu verðlaun
og heitinn i höfuð fyrri eiganda, leirljós hryssa blesótt, Bylgja,
listmálarans spænska. önnur eign Sigurbjargar Jóhannesdótt-
verðlaun fékk Kolskeggur eign ur á Kröggúlfsstöðum, einnar af
Péturs Þórðarsonar i Hveragerði, dætrunum sjö frá Merkigili i
brúnn hestur, og þriðju verðlaun Skagafirði.
Frímerki á bréf til heimsbyggðarinnar
Ný kvenfata-
verzlun
ÞM-Reykjavik
Opnuð hefur verið ný verzlun að
Bergstaðarstræti 3. Verzlunin
hefur eingöngu kvenfatnað á boð-
stólnum, og eru það lang mest
stóru númerin, allt upp i 56, og
stærra, sem áherzla verður lögð
á. Einnig mun verða hægt að
velja efni og snið, og verða þá föt-
in sérstaklega saumuð. Nú geta
þvi konur, sem áður urðu að láta
sérsauma á sig öll föt, loksins
fengið tilbúna kjóla og kápur.
Nafn verzlunarinnar er Mel-
korka, og eigendur eru Ölafur
Magnússon, Sigrún Sveinsdóttir
og Sigriður Hannesdóttir, sem
jafnframt er verzlunarstjóri.
Fatnaðurinn, sem verzlunin sel-
ur, er allur frá Englandi.
SKÁKSAMBANDIÐ
EKKIí MÁLAFERLUM
Sú frétt hefur siazt út, að S1 sé
aðili að máli þvi, sem Fox hefur
hafið gegn Fischer i New York. 1
fréttatilkynningu, sem gefin var
út á sunnudag, mótmælir stjórn
S1 þessari staðhæfingu og segist
aldrei hafa áformað að sækja
neinn til saka. Harmar stjórnin
þessa frétt, sem er algerlega úr
lausu lofti gripin.
Nokkur hávaði var i keppnis-
salnum i Laugardalshöllinni á
sunnudaginn, enda fjöldi fólks
þar samankominn. Fred Cramer
sagði i viðtali við Timann i gær,
að Fischer væri óánægður með
aðstæður i salnum og krefðist
breytinga til batnaðar, ella færi
hann fram á, að teflt yrði að tjald-
baki. Cramer haföi samt ekki
sent Schmid yfirdómara enn eitt
kvörtunarbréfið, er siðast
fréttist.
Dómstóll, sem staðsettur er i
Haag og kallaður er alþjóðadóm-
stóll, hefur kveðið upp bráða-
birgðaúrskurð, um deilu Breta og
Þjóðverja annars vegar og Is-
lendinga hins vegar, hvort Is-
lendingar hefðu rétt til að færa
fiskveiðilögsögu sina úr 12 milum
i 50 milur. Og auðvitað var úr-
skurðurinn Islandi óhagstæður.
En þessi úrskurður er upp kveð-
inn af alþjóðadómstóli eftir lög-
um, sem ekki eru til.
Og auk þess þarf þessi dómstóll
ekki að láta heyra i sér nema að
viss riki (helzt sterk) eigi hags-
muna að gæta annars vegar og
hins vegar smáriki, sem á bók-
staflega lifsafkomu sina undir
rúmri fiskveiðilögsögu.
Það er ofur einfalt mál, að slá
ryki i augu alheimsins, að nú sé
kveðinn upp réttlátur dómur eftir
þeim lögum, sem aldrei hafa ver-
ið samin og þvi siður hlotið stað-
festingu. Nú er það að sjálfsögðu
fjarri islenzku þjóðinni að láta
kúga sig i sinu stærsta lifshags-
munamáli. „Heyra má ég erki
biskups boðskap, en ráðinn er ég
að hafa hann að engu”.
Þvi mega íslendingar gera sér
fulla grein fyrir, að eftir þessum
úrskurði Haagdómstólsins verður
tekið, jafnt af rikum þjóðum og
snauðum, enda þótt hann hafi
ekki lögsögu i málinu. Og einmitt
þess vegna riður Islendingum á
þvi að frimerkja svo bréf sitt,
sem þeir senda út um heims-
byggðina með boðskapinn um 50
milna fiskveiðilögsögu, að það
verði frekar tekið eftir hinu is-
lenzka frimerki en úrskurði
Haagdómstólsins.
Nú hefur verið svo og á að vera
svo, að islenzka þjóðin hefurgefiö
sveltandi og vannærðum þjóðum
mat. Þaö er göfugt hlutverk að
rétta þeim hjálparhönd, sem þess
þurfa og höllum fæti standa, enda
hafa Islendingar oft sýnt gjaf-
mildi sina i svo rikum mæli, að
eftir þvi hefur verið tekið á al-
þjóðavettvangi.
Nú er það tillaga min, að is-
lenzka þjóðin gefi sveltandi og
vannærðum þjóðum allan þann
fisk, sem veiðist á fyrsta sólar-
hring eftir útfærslu fískvéfði
markanna á milli 12 og 50 milna
markanna, og mætti gjarnan svo
vera 1. september ár hvert, þar til
alþjóðalög hafa verið sett um
fiskveiðilögsögu.
Það verður erfitt fyrir þjóðir
heims að kveða upp harða dóma
yfir einni smæstu þjóð heimsins
sem er að bjarga tilveru sinni
með stækkun fiskveiðilögsögu
gegn bezt iðnvæddu þjóðum
Evrópu og samfara sinni björgun
metta þeír lífea sveltandi þjóðir.
Ég held, að þetta islenzka tri-
merki yrði minnisstæðara þeim
vannærðu þjóðum og ýmsum öðr-
um, sem við órétt og yfirtroðslu
eiga að búa, en bráðabirgðaúr-
skurður, sem upp er kveðinn i
Haag af dómstóli, sem enga lög-
sögu hefur i þvi máli, sem hann
kveður upp úrskurðinn um.
Kristján Finnbogason.