Tíminn - 22.08.1972, Qupperneq 6
6
Þriftjudagur 22. ágúst 1972
ISTASAMTAKANNA
ÓV—Reykjavik
Ættfræðiáhugi islendinga sofnar
aldrei. Ekki fyrr höfðu blöðin
skýrt frá stofnun Kommúnista-
samtakanna, marxistanna-
leninistanna, en hringingum
rigndi yfir ritstjórnir og voru
Róleg helgi um
land allt
- en þrefaldur árekstur
á Akureyri
í fyrrinótt varð margfaldur
árekstur á Akureyri, á mótum
Gránufélagsgötu og Brekkugötu.
ökumaður nokkur rakst aftan á
kyrrstæðan bil á Gránufélagsgötu
og henti honum á þann þriðja,
sem einnig var kyrrstæður.
Fyrsti og annar billinn
skemmdust töluvert en öku-
maöurinn óheppni slapp
ómeiddur.
Annars var helgin róleg um
land allt, hvergi skeði neitt
stórvægilegt, viðast hvar „þetta
venjulega nudd”, eins og einhver
lögreglumaðurinn orðaði það og
engin stórvægileg kiaftshöee
spurningarnar allar á einn veg:
Hverjir eru forsprakkarnir.
Fréttamaður blaðsins hafði i
gær samband við einn félaga
samtakanna, Sigurð Jón ólafs-
son, kvikmyndagerðarmann og
fékk hjá honum þær upplýsingar,
að i miðstjórn KSML væru þrir
menn: Gunnar Andrésson, tækni-
skólanemi, sem jafnframt er for-
maður, Hjálmlýr Heiðdal, aug-
lýsingateiknari og Einar Andrés-
son, nemi i Menntaskólanum við
Hamrahlið.
Meðal annarra framámanna i
KSML má nefna Kristján Guð-
laugsson, sem leggur stund á
sögunám i Gautaborg en hefur i
sumar ritstýrt blaði samtakanna,
StéttabaráUuniii. Kristján var
einn ,,11-menninganna” svo-
kölluðu. Hann er úr Reykjavik.
Aðrir framámenn eru Rós-
mundur Guðnason, sögustúdent i
Gautaborg, einnig úr Reykjavik,
Sigurður Skúlason, leikari og
áðurnefndur Sigurður Jón Ólafs-
son.
Allir þessir menn eru tiltölu-
lega ungir, um og ofan við tvitugt
Eins og kom fram i frétt blað-
sins um helgina^þá stefna KSML
nú að þvi að stofna kommúnista-
flokk á Islandi.
5000 manns vinna
að slökkvistarfi:
VEGFARENDUR OG YFIRVÖLD
BERJAST Á EGILSSTÖÐUM
JK—Egilsstöðum
Nýlega voru sett upp umferðar-
merki hér á Egilsstöðum og ekki
vanþörf á. Meðal annars var einni
götulokað og sjást verksumerkin
á meðfylgjandi mynd. Veg-
farendur létu sig ekki muna um
að keyra niður timburverkið, sem
lokaði götunni, hvaö eftir annað.
Nú er þar komið þessari orrustu á
milli vegfarenda og yfirvalda, að
flutt hefur verið á staðinn stór-
grýti, sem væntanlega verður
fastara fyrir en timbrið. Biður
það nú þess, að verða lagt yfir
götuna.
Ekki eru það þó unglingarnir,
sem leggja slikt hatur á timbur-
verkiö heldur annar hvor
vegfarandi, ungir og gamlir. Á
meðan mórallinn i umferðinni er
slikur, að menn þusast áfram
beint af augum, er varla von á
góðu — eða hvað?
FRAMÁMENN KOMMÚN
ALLT FRÁ MORKNUDUM KARTOFLUM
IJARNKYLFUR
Og svo brezki flotinn í felum handan við
sjóndeildarhringinn
Eldarnir
hafa aukizt
NTB—Moskvu
Hið mikla lið, sem barizt hefur
við eidana i mógröfunum utan við
Moskvu, sér nú loks fram á aðstoð
Það er ekki bcinlinis beðið fyrir
íslcmlingum I brezkum blöðum
Framhald
af bls. 1.
menn í óðaönn að moka heyi upp
úr hlöðutóftinni, stórskemmdu af
vatni og glóð í sumu af þvi.
Ég náði tali af Jóhanni, og
sagði hann, að fólk á Þrándar-
stöðum hefði verið i óðaönn að
aka heyi i hlöðu á sunnudaginn.
Laust fyrir miðnætti sat Jóhann i
eldhúsi að loknum ströngum
vinnudegi og drakk kaffi. Kona
hans brá sér upp á loftið, þar sem
fjögur börn voru lögzt til svefns,
hið yngsta sjö eða átta ára. Varð
hún þess vör, aö eldur var
kominn upp og hljóp niður. En svo
skjótt magnaðist eldurinn, að hún
komst ekki upp aftur, og með
naumindum varð börnunum
bjargað út um glugga.
Engir gripir voru i húsum,
nema fáeinir hestar, og tókst að
koma þeim út á siðustu stundu.
Að ööru leyti bjargaöist ekki
neitt, nema litið eitt af
húsmunum á neðri hæð.
Slökkviliðið á Egilsstöðum kom
fljótt á vettvang, en ekki var
viðlit að slökkva eldinn, og ein-
beitti það sér að þvi að verja
heyið og vélar, sem voru skammt
frá. Eigi aö siður brann hlöðu-
þakið. Vildi það til, að logn var og
gott veöur, þvi aö öðrum kosti,
hefði enn verr farið.
Eins og nú standa sakir eru alls
engin hús á jörðinni, en mér
heyrðist á Stefáni Jóhannsyni, að
hann ætlaði að brjótast i að
byggja á ný, ef þess yrði nokkur
kostur. — JH.
Á víðavangi aFÆ“d
ábyrgð hlýtur aðfylgja starfs-
heitinu. Hvaðan hagfræðing-
um kemur sú þörf aö ráöast
sérstaklega gegn landbúnað-
inum með visvitandi blekk-
ingatali er mér ekki ijóst. En
þess væri óskandi, aó hag-
fræðistörf hans I framtiðinni
yrðu reist á staðgóðri þekk-
ingu, viðsýni og sannleiksást
en ekki svipuðum grunni og
útvarpserindi hans á mánu-
daginn.” TK
um þessar mundir. Þvert á móti
slendur kaldur gustur af blaða-
mönnunum og bryddir viða á hót-
unum. Orjúglega er látið yfir þvl,
að brezkir togaraskipstjórar hafi
fengið leynileg fyrirmæli um það,
hvernig þeir cigi að bregðast við,
ef islenzkir varðbátar birtast á
iniðunum innan fimmtiu mflna
markanna eftir 1. september. Svo
virðist einnig sem brezkir út-
gerðarmenn leggi nú kapp á að
senda sem allra flcsta togara á
tslandsmið.
öllum brezkum togaraskip-
stjórum hefur verið skipað:
1. Aðhalda áfram veiðum innan
hinna nýju fiskveiðimarka, en
forðast veiðar innan tólf sjómflna
marka.
2. Hafa að engu fyrirmæli
Islendinga um að hætta veiðum
og fara burt af miðunum.
3. Gæta stillingar og forðast
ertingar.
Geri tslendingar sig liklega til
þess að taka veiðiskip, eiga þau
sigla fram og aftur sitt á hvað,
svo að árekstur veröi, ef tslend-
ingar hætta sér of nærri. Reyni
tslendingar samt sem áður að
komast um borð, skulu skips-
hafnir búast til varnar. „Það
verður enginn leikur til fyrir þá
að komastum borð hjá okkur”, er
haft eftir Dick Taylor, formanni
togara skipstjórafélagsins i Hull.
„Takist þeim það samt, munu
önnur skip okkar flykkjast að”.
Nefnd eru þau vopn, sem brezku
sjómennirnir eiga að hafa tiltæk
til varnar, allt frá skemmdum
Utafakstur
við Lögberg
Bill með R-númeri fór út af
veginum við Lögberg rétt fyrir
klukkan 18 i gær. Mun bilstjórinn
hafa misst stjórn á bilnum en I
gærkveldi var ekki vitað nánar
um tildrög þessa óhapps.
Maðurinn slapp litið meiddur,
mögulega litillega brotinn, en
billinn er stórskemmdur.
kartöflum i barefli úr járni.
Gefið er i skyn að borðstokkar
togaranna verði viggirtir.
„En jafnvel þótt þeim heppnist
að ná skipum okkar, er ekki þar
með sagt, að þeir geti komið
þeim til islenzkrar hafnar”, segir
Austin Laing, formaður samtaka
brezkra útgerðarmanna.
Nokkur ótti er látinn i ljós um
það, að tslendingar kunni að fara
um borð i skipin undir þvi yfir-
skyni, að þeir séu að kynna sér
möskvastærð á botnvörpum
þeirra, en strandgæzluskip um
heim allan hafa heimild til sliks.
Þannig geti vopnaðir menn
komizt á skipsfjöl undir fölsku
yfirskini. I öðru lagi verði það
áhættusamt að leita afdreps i
JEPPINN UR
Klp—Reykjavik.
Það bar við fyrir nokkru. að
fimm fullorðnir menn og tvö börn
urðu að dúsa I um 12 klukku-
stundir i jeppa út i miðri Krossá
við Þórsmörk. Þetta gerðist f
siðustu viku,.
Fólkið var á leið inn i Þórsmörk
og var komið út i miðja á, þegar
jeppinn og kerran, sem var aftan
i, flutu upp. Rak bifreiðina með
öllu saman eina 60 til 70 metra
niður ána, þar til hún loks
islenzkum fjörðum i vondum
vetrarveðrum.
t The Guardian segir, að brezki
flotinn muni halda sig utan sjón-
máls fyrst i stað, og brezkir
togaramenn muni ekki leita lið-
sinnis herskipa, nema tslend-
ingar gerist áleitnir. A það er þó
minnt, að öllu verði að fara með
gætni. Orsökin er þessi: „Hinum
konunglega sjóher er illa við að
flækjast inn i átök vegna hinna
mikilvæga herstöðva Atlants-
hafsbandalagsins á tslandi. Hann
fellst á, að brezkir fiskimenn
skuli njóta verndar, ef islenzkir
fallbyssubátar leggja hald á skip
þeirra, en fyrst um sinn verður
sennilega að treysta á nærveru
venjulegra eftirlitsskipa.”
stöðvaðist á stórum steini. Þarna
varð fólkið að vera i eina 12 tima,
og var aðbúnaðurinn allt annað
en glæsilegur þvi jeppinn var
hálfur af vatni. Það var hópur
ferðamanna, sem kom að fólkinu
eftir að það hafði dvalið við
þessar erfiðu aðstæður alla
nóttina, og tókst að bjarga þvi i
land. Var það flutt á sjúkrahús i
Reykjavik en fékk allt að fara
heim skömmu siðar, nema annar
karlmannanna, Gunnar Marinós-
veðurguðanna við að slökkva eld-
ana. Fram til þessa hefur sumar-
ið verið með eindæmum heitt og
þurrt, en nú er spáð rigningu.
íbúar Moskvu fengu enn i gær
að finna fyrir hamförum þessum,
er þykkur reykjarmökkur lagðist
yfir borgina. Eldarnir blossuðu
upp af endurnýjuðum krafti um
helgina og yfirvöld lýstu yfir
neyðarástandi i borginni
Jaroslav, um 250 km norður af
Moskvu.
Um 5000 manns vinna nú að
slökkvistarfinu á eldasvæðinu
rétt við Jaroslavborg, en þar búa
um 500 þúsund manns. Ekki hafa
borizt fréttir af manntjóni við
slökkvistarfið, en vizt þykir, að
einhverjir hafi þó farizt.
son, fangavörður, sem enn
liggur á sjúkrahúsinu. Hann mun
þó vera á góðum batavegi.
Skömmu eftir að fólkinu var
bjargað i land, var hafist handa
við að ná jeppanum. Tókst það
eftir mikið basl, og var komið
með jeppann til Reykjavikur um
helgina. Er hann allur illa farinn,
allt fullt af sandi og aur, þar sem
það gat smogið inn og þarfnast
hann mikillar viðgerðar.
Jeppinn, sem lenti I Krossá I siðustu viku er Illa farinn eftir dvölina f ánni.
(Tfmamynd Gunnar)
KR0SSA K0MINN I BÆINN