Tíminn - 22.08.1972, Page 20
Guíífossil^
( lagt í vetur
Stjórn Eimskipafélags
lslands h.f. hefur ákveðið, að
farþegaskip félagsins, m.s.
GULLFÓSS, veröi ekki i
förum i vetur, og verður
skipinu lagt á timabilinu frá
miðjum október til
maimánaðar 1973.
Ráðgert er, að Gullfoss
hefji aftur reglubundnar
ferðir um 15. mai 1973 og
sigli þá eins og undanfarin ár
milli Reykjavikur og Kaup-
mannahafnar, með viðkomu
i Skotlandi. Þó verður sú
breyting gerð á ferðum
skipsins, að það mun fara
þrjár ferðir i mánuði i stað
tveggja áður og veröa ferðir
skipsins eingöngu miðaðar
við farþegaflutninga og
bifreiðir farþega.
Vegna vöruflutninga
munu hin nýju skip
Eimskipafélagsins, trafoss
og Múlafoss, halda uppi
vikulegum ferðum milli
Reykjavikur og Kaup-
mannahafnar.
Frímerki
á bréf til
heimsbyggð-
arinnar
- hugmynd Selfyssings
Frimerki á bréf lil heims-
byggðarinnar, kailar Kristján
Finnbogason, verkstjóri á
Selfossi, grein, sem hann sendi
Timanum til birtingar i gær. i
þessari grein sinni leggur hann
það til, að tslendingar gefi
vannærðum þjóðum allan þann
afla, sem þeir draga úr sjó 1.
septembermánaðar, þegar reglu
gerðin um nýju fiskveiðitak-
mörkin tekur gildi.
Ætlar hann, að slik ákvörðun
yrði þung á metunum, málstaö
fslendinga til framdráttar, og
hinum óbilgjarna úrskurði
Haagdómstólsins verðugt svar.
Grein er á 5. siðu.
i
c
Þriðjudagur 22. ágúst 1972
J
' . *
t i *
4’ M I
Margir vilja hjálpa
ÁTVR um krækiber
- kaupverðið 60 krónur kílóið
Klp—Iteykjavík.
Eins og menn eflaust muna hóf
Afengisvcr/.lun rfkisins að fram-
leiða krækiberjalikjör i fyrra með
góðum árangri- svo góðum, að öil
framleiðslan scldist upp á tveim
dögum, á miili 201)0 og 3000 hálf-
flöskur.
Nú ætlar Afengisverzlunin að
fara aftur af stað með þessa
framleiðslu, og biður nú aðeins
eftir að fá hráefnið, islenzk
krækiber.
,,Við ætlum að byrja að kaupa á
föstudaginn kemur” — sagði
Baldur Stefánsson, verkstjóri hjá
Afengisverzluninni, er við töluð-
um við hann i gær. — ,,Við borg-
um i ár 60 krónur fyrir kilóið af
vel hreinsuðum og góðum berj-
um, og tökum minnst 30 kiló i
einu. Það er ógjörningur fyrir
okkur að vera að taka minna i
einu, þvi aö það yrði allt of mikið
stúss.
f fyrra fengum við öll ber i
Þórð á
gegnum einn mann,
Sæbóli, um 800 kiló.
Úr þvi magni fengum við svo á
milli 2000 og 3000 hálfflöskur. Nú
ætlum við að kaupa af öllum, sem
koma með minnst 30 kg, og verö-
ur tekiö á móti berjunum á öllum
útsölustöðum Afengisverzlunar-
innar úti á landi, en hér i Reykja-
vik verður tekið á móti i verk-
smiðjunni að Draghálsi 2 i'
Arbæjarhverfi.”
Baldur sagði okkur, að þegar
væri fjöldi manns búinn að
hringja til verksmiðjunnar og
bjóöa ber. Væriaðheyra á fólki, að
mikill áhugi væri á þessu, sér-
staklega úti á landi. Væri á þvi að
heyra, að mikið væri um kræki-
ber á sumstaðar, eins og t.d. i
Þingeyjarsýslu, og væri að vænta
þaðan nokkuð mikils af berjum.
Fólk hefði talað um að slá sér
saman við tinsluna, þvi þá væri
það enga stund að ná saman 30
kilóum, sem gæfi af sér 1800 krón-
ur.
Altmann
er Barbie
NTB—La Paz
Klaus Altmann, kaupsýslu-
maður i Bóliviu, hefur viður-
kennt að hann sé i rauninni fyrr-
verandi Gestapoforinginn Klaus
Barbie frá Lyon i Frakklandi.
Barbie var dæmdur til dauða
fjarrverandi af frönskum dómstól
fyrir nokkrum árum. Talsmenn
rikisstjórnar Bóliviu, segja að
ekki verði komið til móts við þær
kröfur Frakka, að framselja
Barbie, hins vegar geti farið svo
að hann verði leiddur fyrir rétt i
Bóliviu.
Olíuskip
sprakk
NTB—Höfðaborg
Oliuskipið Texanita frá Liberiu
sprakk i gær i lætlur og sökk, eftir
að hafa rekizt á japanska oiiu-
skipið Oswego Guardian, við
Agulhas-höfða, sunnan við Af-
riku. Þétt þoka olli árekstrinum.
Tvö lik hafa fundfzt, en fjölda
manna er saknað.
Texanita var 43.339 brúttólestir
að stærð, en japanska skipið er
48.000 lestir. Sprengingin var svo
öflug, að rúður húsa í þorpi
nokkru 32 km fjær, brotnuðu.
Mikil oliubrák hefur myndazt á
svæðinu og mun eitthvað af oli -
unni vera úr japanska skipinu.
Fjöldi skipa og flugvéla með tæki
3r nú á leið til slysstaðarins.
BRETAR ÁNÆGÐIR MEÐ
FLUG VÉLARLEIÐAN G U RIN N
- hafa fundið meira af vélinni en leit út fyrir í fyrstu
Þeir töluðu við trillu-
karla og fiskifræðinga
K.I—Reykjavik
— Brezku blaðamennirnir
sannfa'rðust fyrst þegar þeir
töluðu við trillukarlana á Suður-
eyri og viðar, sem sögðu þeim að i
staðínn fyrír þrjú hund'ruð kilóin
sem landað var i viðurvist blaða-
mannanna, hefði aflinn áður fyrr
verið eitt og hálft tonn og það
væri togurunum að kenna, hve
aflinn væri orðinn rýr, sagöi Helgi
Agústsson fulltrúi i utanrikis-
ráðuneytinu i viðtali við Timann i
dag.
Helgi ferðaðist um landið meö
blaðamönnunum, sem hingað
komu i boði utanr'kisráðu-
neytisins. Fóru þeir viða i
verstöövar, og töluðu við trillu-
karla, bátasjómenn, fólk i fisk-
vinnslustöðvum, og aðra sem
starfa að sjávarútvegi. Þeir sáu
bátana koma með litinn alfa að
landi og með smáfisk, og allt bar
þetta að sama brunni: Það er
verið að eyða fiskimiðunum i
kring um landið. Eftir að hafa
talað við fólkið i fiskinum, héldu
þeir á fund visindamannanna.
Nú er aðeins eftir að sjá, hvort
blaðamennirnir fá inni i blöðum
sinum með greinar sem eru hlið-
hollar málsstað Islands, en einn
blaðamannanna sagði i þvi
sambandi: ,,Ef ég fæ ekki greinar
minar birtar i blaðinu, þá er ég
farinn þaðan á stundinni”.
Og svo skulum við biða og sjá til
hvað skeður. Reyndar er ein
smáfrétt þegar komin á prent frá
einum úr hópnum. Er sú grein i
Sunday Telegraph frá þvi á
sunnudaginn, og inntak fréttar-
innar er að Sovétmenn muni
senda njósnaskip, til að fylgjast
með hvað skeður á hafinu um-
hverfis tsland 1. sept. og muni
Sovétmenn reyna allt, sem þeir
geta til að ala á óvild tslendinga
og annarra Vestur-Evrópurikja i
sambandi við landhelgismálið.
Þessi fréttagrein er áreiðanlega
ekki runnin undan rifjum utan-
rikisráðuneytisins, heldur ein-
hverra annarra, en heimilda ekki
getið.
KJ—Reykjavfk
i dag cr væntanlcgur úr siöustu
fcrð sinni undir lloísjökul, brezki
leiðangurinn. sem verið hefur hér
á landi að undanförnu i þvi skyni
að bjarga þvi sem eftir var af
brezkri flugvél, er fórst sunnan
Hofsjökuls i desember 1941. Leið-
angursmönnum leizt ckki meira
en svo á flakið i upphafi, en eftir
blaðaskrif og umtal hafa margir
gefið sig fram og bent á eða skilað
lllutum úr vétinni.
Kunnugir menn úr Gnúpverja-
hreppi voru fengnir til leiðsagnar
að flakinu sumarið eftir að flug-
vélin fórst, og höfðu Bretarnir
sem þá fóru að flakinu, ýmislegt
með sér úr þvi að þvi er haft er
eftir leiðsögumönnunum. Þá er
það einnig haft eftir leiðsögu-
mönnunum, að Bretarnir hafi
kveikt i einhverjum hlutum vél-
arinnar, og kann þar að vera
komin skýringin á ásigkomulagi
flaksins.
Þegar rannsóknarmenn voru
við virkjunarathuganir upp með
Þjórsá fyrir nokkrum árum, fóru
þeir að flakinu, og höfðu á brott
með sér mótor flugvélarinnar,
ásamt stórum hluta af framenda
hennar. Segir sagan að mótorin
hafi siðan verið notaður sem kjöl-
festa á vörubil til Reykjavikur.
Samkvæmt ábendingum rann-
sóknamannanna er nú bæði mót-
orinn og framhlutinn kominn i
hendur Bretanna, sem hýrnuðu
allir, þegar þeir fréttu um þetta
tvennt.
Þá hafa aðrir sem komið höfðu
að flakinu bent Bretunum á eitt
og annað — og jafnvel skilað hlut-
um, sem þeir höfðu haft á brott
með sér úr þvi.
Þvi mun hafa verið haldið
fram, að rannsóknamenn við
Þjórsá, hefðu kveikt i flakinu, en
það er ekki á rökum byggt.
Við gröft i bakka Þjórsár, og
leit á svæðinu i kring um flakið,
ha.fa brezku leiðangursmennirnir
fundið eitt og annað sem tilheyrði
vélinni, svo niðurstaðan af leið-
angrinum hingað verður eftir allt
mjög góð, og hafa Bretarnir mun
meira á brott með sér af flugvél-
inni, en i upphafi leit út fyrir.
Róma Bretarnir hjálpsemi ts-
lendinga við þennan leiðangur og
eiga liklega margir íslendingar
eftir að heimsækja safnið, þar
sem flugvélin verður til sýnis,
þegar búið verður að setja hana
saman og smiða i hana það, sem á
vantar.
r
3 STROKUFANGANNA GRIPNIR
- fjöldi fólks felur sig af ótta við hefnd fanganna
SB—Reykjavik—NTB
Lögreglan i Svíþjóð handtók
i gærniorgun þrjá af föngun-
um 15, sem struku úr fangcls-
inu i Kumla á föstudagsmorg-
uninn . Króatarnir tveir, sem
sátu i lifstíðarfangelsi fyrir
morðið á júgóslavneska am-
bassadornum i fyrra.náðust
fyrstir. Þeir voru taldir hinir
hættulegustu. Þriðju fanginn,
Svii náðist siðar um daginn.
Króatarnir, Milo Barecik, 22
ára og Andjelko Rrajokovic,
24 ára, náðust eftir að lögregl-
an lét til skarar skriða i sam-
bandi við árás á vaktmann i
Svartá, um 30 km vestan við
Kumla. Mikið lögreglulið var
sent á staðinn og ekki tók
nema tvær klst, að ná Króöt-
unum. Þeir voru óvopnaðir og
veittu enga mótspyrnu.
Skömmu eftir handtöku
Króatanna sáust fjórir aðrir
strokufanganna i bifreið á öðr-
um stað og þangað var aftur
sent mikið lögreglulið en það
gafst fljótlegd upp, þvi óttast
var að fangarnir væru
vopnaðir.
Talið er að tveir fangar séu
enn á svæðinu við Svartá og
var þeirra leitað i allan gær-
dag. Sviinn, var handtekinn i
gærdag, en ekki fylgdi frétt-
inni, hvar. Talið er að- hann
hafi einnig verið viðriðinn
árásina á næturvörðinn, sem
skýrði frá þvi, að sjö manns
hefðu ráðizt á sig og bundið
sig. Hann gat losað sig og náð i
lögregluna.
Fólk faldi sig
Þessa daga, sem fangarnir
hafa leikið lausum hala, hefur
fjöldi Svia farið i felur af ótta
við hefnd þeirra. Einn fanginn
Johann Reinfurt, er alræmdur
bankaræningi og þegar hann
var dæmdur, sór hann að
drepa alla þá lögreglumenn,
sem þátt áttu i handtöku hans.
Júgóslavnesk fjölskylda lét
sig „hverfa” eftir að Milo
Barecik hafði hringt um helg-
ina og hótað að myrða heimil-
isföðurinn. Astæðan var sú að
dóttir hans hafði gifzt þriöja
manninum, sem var viðriðinn
morð ambassadorsins. Sá
fékk aðeins 8 mánaða fangelsi.