Tíminn - 23.08.1972, Blaðsíða 15
MiAvikudagur 23. ágúst 1972
TÍMINN
15
Brimar
Framhald af
bls. 9.
enda var þóriin ekki jafn brýn,
vegna breyttra trúarbragða. Þeir
hófu ekki aftur að sækja til fisk-
veiða i norðurhöfum fyrr en á
siðustu öld.
Brimar varð aldrei aðskilin frá
þýzka rikinu eins og Hamborg
Hún var um skeið undir Danm.
eins og frægt er. Brimarar urðu
þvi alltaf að byggja á þjóðlegum
grunni og var saga þeirra alltaf
tengd sögu þýzku rikjanna i
vestanverðu Þýzkalandi. Borgin
var aðallega viðskiptaborg, eftir
að fiskiveiðum við tsland lauk, þó
að fiskiveiðar væru þaðan stund-
aðar i Norðursjó. Árið 1541 er það
sannanlegt, að útflutningur borg-
arinnar er timbur. Einnig var
þaðan flutt út mikið af vini og
fleiri afurðum. Innflutningur var
einnig margvislegur. En eftir að
aukin verzlun varð við landa-
fundina miklu, urðu Brimar
snemma þátttakendur i þeirri
verzlun. Um 1700 er borgin orðin
mikil innflutningsborg á kaffi og
tóbaki. Árið 1784 var höfnin i
Brimum opnuð öllum þjóðum.
Um sama leyti hófu Brimarar
verzlun við Bandariki Norður
Ameriku, og varð það brátt til
mikillar eflingar fyrir borgina.
Einnig hófu þeir verzlun við
Suður Ameriku og Austur-Asiu og
fleiri fjarlæg lönd. Þessi viðskipti
urðu undirstaða að nýjum þætti i
sögu borgarinnar, sem betur
verður lýst siðar.
Þegar ný öld hófst stóðu
Brimarar vel að vigi, sökum
kunnáttu sinnar i skipasmiðum.
Þeir urðu brátt meðal stærstu
skipaframleiðenda. Þeir gerðu
hvorutveggja að selja skipavið úr
landi og byggja skip, þó hið
siðarnefnda yrði til meiri arðs. A
siðustu öld keypti Brimarborg
landið þar sem Brimarhaven er
nú. Létu þeir þar gera mikla höfn
og mikil mannvirki til upp- og út-
skipunar. Þetta varð Brimum til
mikils gagns, og sýnir vel fram-
sýni og hagkvæmni i stjórn
borgarinnar.
Með frjálsri verzlun seinni hel-
ming 18. aldar hófst nýtt timabil i
sögu Brima. Þá varð borgin á
nýjan leik heimsverzlunarborg,
eins og hún var seinasta hluta
miðalda. Þetta timabil i sögu
borgarinnar, er happadrjúgt og
hin öra þróun i uppbyggingu at-
vinnuvega af fornum grunni,
hefur gert borgina að mikilli við-
skiptamiðstöð, jafnt með sigl-
ingum um heimshöfin og innan-
lands i Þýzkalandi eftir ám og
skipaskurðum. 1 Þýzkalandi er
langtum ódýrara að flytja vörur á
skipum en á landi. Mun það i
sumum tilfellum muna allt að
60%. Þessi geysilegi munur á
flutningskostnaði hefur stórlega
aukið atvinnu i norðursjávar-
borgunum við flutninga og
ýmisskonar samgöngumál. Við-
brögð borgarstjórna borganna
hafa lika alltaf verið mótuð af
framsýni og reynt að taka á móti
vandamálum af einurð og festu.
Þetta hefur orðið skýrt i sögu
Brima, og mun það verða betur
ljóst af máli minu siðar.
fluglýsingasímar
Tímans eru
Vil kaupa jörð
á Suðvesturlandi eða Norðurlandi helzt í skiptum fyrir 3
herbergja ibúð á Akranesi. Svör sendist blaðinu fyrir
mánaðamót merkt: JÖRÐ 1346
Frá Samvinnuskólanum
Bifröst
Ráöskona eða matsveinn svo og nokkrar
starfsstúlkur óskast að Samvinnuskólan-
um Bifröst næsta vetur.
Upplýsingar i sima 18696 i dag og næstu
daga.
Samvinnuskólinn Bifröst.
íbúðarbraggi
i góðu standi til sölu og niðurrifs við mjög
vægu verði.
Upplýsingar i sima 66337.
Skrif stof ustú Ika
óskast til starfa sem fyrst við bókhalds-
vélar og fleiri störf.
Verzlunarskóla-, Kvennaskóla-, Sam-
vinnuskóla- eða hliðstæð menntun áskilin.
Upplýsingar veitir starfsmannadeild.
Rafmagnsveitur rikisins,
Laugavegi 116, Reykjavik.
Bílakaup
Tilboð óskast i Opel Record, árgerð 1966,
eins og hann litur út eftir veltu. Billinn er
til sýnis á Réttingaverkstæði Kaupfélags
Arnesinga, Selfossi.
Tilboð merkt Bilakaup sendist i pósthólf
10, Selfossi.
Skrif stof ustú Ika
óskast
Framkvæmdastofnun rikisins, Hagrann-
sóknadeild óskar eftir að ráða skrifstofu-
stúlku. Verzlunarskóla- eða Samvinnu-
skólapróf æskilegt. Eiginhandarumsókn,
sendist Framkvæmdastofnun rikisins,
Rauðarárstig 31. Laun skv. reglugerð um
störf og launakjör bankastarfsmanna.
Frá L.. .A.B.
Eigendaskipti eru fyrirhuguð á fjögurra
herbergja ibúð i 5. byggingaflokki
félagsins.
Félagsmenn sem neyta vilja forkaups-
réttar snúi sér til skrifstofunnar Siðu-
múla 34, fyrir 5. september n.k. Simar
33509 og 33699.
Bsf. atvinnubifreiðastjóra.
LAUS
kennarastaða
Kennara vantar að Barnaskólanum
Hrafnagili, Eyjafirði
Nánari upplýsingar gefur Sigurður Helga-
son, Menntamálaráðuneytinu.
Skólanefnd.
Exem-sjúklingar
Soriasis-sj ú kl i ngar
Stofnfundur um samtök exem-sjúklinga
verður haldinn á mánudaginn kemur, 28.
ágúst kl. 20,30 að Hótel Esju, fyrstu hæð.
Allir exem-sjúklingar og velunnarar
þeirra eru hvattir til að mæta.
Hörður Ásgeirsson,
Kleppsvegi 28, Reykjavik, simi 35001
Samgönguráðuneytið
Laus staða
Staða bókara hjá flugmáiastjórn er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt hinu almenna launa-
kerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, sendist sam-
gönguráðuneytinu fyrir 1. september
1972.
Laus staða
Staða aðalbókara hjá Skrifstofu rann-
sóknastofnana atvinnuveganna er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi
opinberra starfsmanna. Æskilegt er að
umsækjendur hafi samvinnu- eða verzlun-
arskóla menntun.
Umsóknir um starfið sendist til Skrifstofu
rannsóknastofnana atvinnuveganna,
Hátúni 4A, fyrir 15. september n.k.
SMIÐUR
ÓSKAST
Laghentan mann vantar nú
þegar til innivinnu.
Hringið í síma 32850
eftir kl. 7 á kvöldin.