Tíminn - 29.08.1972, Síða 1
r
v
IGNIS
FRYSTfKISTUR
RAFIÐJAN SÍMI: 19294
194. tölublað —Þriðjudagur 29. ágúst —56. árgangur.
Kæil-
skápar
Xifun AÍ1
RAFTÆKJADEILD
Hafnarstræti 23
Simar 18395 & 86500
Loks skilaboð frá Bretum og Þ jóðverj u m
Sjónvarpið
utan garna
- ætlar að sýna myndir
frá Olympíuleikunum,
þegar fólkið í
útvegsbæjunum er
enn í vinnu
Sumir fréttaritarar Timans
I útvegsbæjum hringdu til
Timans i gær, til þess aö bera
sig upp undánþví, aö sjdnvarp-
iö ætlar aö sýna myndir frá
Óiympiuleikjum klukkan sex,
þegar mjög margir eru enn i
vinnu f frystihúsum og
vinnslustöövum, jafnvel þorri
fólks i sumum byggöarlögum.
— Þaö er almenn óánægja
meö þetta, sagði til dæmis
Guömundur Sveinsson, frétta-
ritari Timans á Isafirði, og
þykir sýna, hve forráðamenn
sjónvarpsins vita litið um lif
og hætti fólks úti á landi. Þessi
timi er sýnilega eingöngu mið-
aður viö starfstima skrifstofu-
fólks. Okkur finnst það undar-
legt aö láta ýmislegt, sem
harla litil eftirsjá væri að og
fáir kæra sig um, sitja fyrir
kvöldtimunum, en flytja
myndir frá Ólympiuleikjun-
um, sem mjög margir myndu
hafa ánægju af, fyrir kvöld-
mat. Ég vil eindregið fara
þess á leit, aö þessu verði
breytt. Fólk vill fá þessar
myndir á kvöldin, þegar það
er komiö heim, sagði Guð-
mundur að lokum.
Einar Ágústsson utanrikisráðherra tekur viö orösendingu rikis stjórnar Bretlands úr hendi brezka
sendiherrans John Mckenzie. Sendiherrann afhenti orösendinguna I skrifstofu utanrikisráöherra f
stjórnarráöshúsinu. (Timamynd: Gunnar)
Varnargarðarnir austan Skeiðarár:
GRJÓTIÐ SÓTT
í HAFRAFELL,
sem var umlukt jökli fyrir 30 árum
Skipsbrotsmennirnir á Fjólu viö komuna til Reykjavfkur I gærkvöldi.
Þeir vildu ekkert segja viö fréttamenn blaöanna og Ijósmyndararnir
áttu i vandræöum meö aö ná mynd af þeim. Tlmamynd Kóbert.
Fram á fimmta tug þessarar
aldar reis Hafrafell I öræfum úr
jökli, þvl aö skriðjökultungur
Skaftafellsjökuls og Svinafells-
jökuls luktu þaö örmum aö fram-
an. Þau armlög röknuöu sumarið
1944, og nú á aö sækja i þetta fjall
grjót I varnargaröa, sem geröir
veröa austan Skeiöarár og eiga aö
halda óhemjunni i skefjum á þann
veginn.
— Hafrafell er úr basalti, sagði
Hálfdán Björnsson á Kviskerjum,
er fréttamaöur talaði viö hann I
gær, allvel gróiö, en sumsstaðar
háir hamrar, talsvert lagskiptir.
Það mun vera talið betra aö
sprengja grjótiö þar heldur en
gengur og gerist.
Sjö til átta km.
varnargarðar að austan
— Það veröa þrjátiu þúsund
teningsmetrar af grjóti, sem við
sækjum i Hafrafell, sagði Helgi
Hallgrimsson, verkfræðingur hjá
Vegagerö rikisins. Or þvi veröur
gerður varnargaröur frá Skafta-
fellsbrekkum niöur aö fyrir-
huguðu brúarstæði á Skeiöará .
Þessi garöur á að vera hálfur
fimmti metri á hæö, þar sem
hann verður hæstur, og út frá
honum verða svo stuttir þver-
garöar. Alls veröa varnargaröar-
nir þarna austan ár á milli sjö og
átta kilómetrar aö lengd.
Vinnuvegur
yfir jökulurðirnar.
Nú þegar er byrjað að gera
vinnuveg um jökuluröir þær, sem
mynduðust, framan viö Hafrafell
á meðan jöklar skriðu þar fram.
Það er talsvert verk, þvi að
jökullinn hefur verið mikilvirkur,
er hann ók á undan sér grjóti á
meðan var og hét. En aö þvi búnu
verður farið að brytja hamrana i
Hafrafelli á þann veg, sem henta
þykir I varnargarðana, og aka þvi
fram á sandinn. -SB-JH.
Vilja fylgja
úrskurði alþjóða-
dómstólsins -
segjast reiðubún-
ir til viðræðna
KJ-Reykjavík.
Á rikisstjórnarfundi,
sem haldinn verður fyrir
hádegið i dag, verður
tekin ákvörðun um svar
við orðsendingu þeirri,
sem brezki sendiherr-
ann hér á landi, afhenti
Einari Ágústssyni utan-
rikisráðherra um miðj-
an dag i gær.
Sendiherrann, John McKenzie,
gekk á fund Einars Agústssonar
utanrikisráðherra um miðjan dag
i gær, og afhenti honum orðsend-
ingu stjórnar sinnar. Ráðherrann
og sendiherrann ræddust siöan
viö stutta stund.
Hér á eftir fer fréttatilkynning
utanrikisráöuneytisins um orð-
sendinguna:
„Brezki sendiherrann hefur I
dag afhent utanrikisráðherra
orðsendingu þess efnis, aö brezka
rikisstjórnin hafi athugaö
ákvöröun alþjóðadómsins varð-
andi bráðabirgöaráðstafanir
vegna máls þess, sem nú sé fyrir
dómstólnum og að hún munii-
reiðubúin til að fara eftir henni.
Jafnframt er þvi lýst yfir, að
brezka rikisstjórnin sé reiöubúin
til að hafa viðræður við rikis-
stjórn tslands um viðhorfin svo
fljótt sem báöum aðilum hentar.
Sams konar skilaboö hafa bor-
izt frá rikisstjórn Sambandslýð-
veldisins Þýzkalands.”
Enn engir
ómerkingar
KJ-Reykjavik.
— Við höfum ekki orðiö varir
við neina ómerkta brezka togara
við tslandsstrendur ennþá, sagði
Pétur Sigurðsson, forstjóri Land-
helgisgæzlunnar, i viðtali við
Timann i gær.
Leiðinda veður hefur verið viöa
á miðunum umhverfis landiö, svo
eftirlit úr lofti hefur ekki veriö
framkvæmanlegt.
„En við munum verða varir við
þá þegar þeir koma,” sagði Pétur
Sigurðsson ennfremur.
STRAND Á AAEÐALLANDSFJÖRU — AAANNBJÖRG
Þó-Rcykjavík
Vélbáturinn Fjóla BA 150
strandaöi um kl. hálf tvö I fyrri
hótt á Meöallandssandi. Tveir
menn voru á bátnum og var þeim
bjargaö um borð i varöskipið Óö-
inn kl. 6 i fyrramorgun. Þar sem
Fjóla strandaði er sandbotn og
veröur reynt aö ná skipinu út.
Ekki er vitaö um orsök strands-
ins, en Fjóla, sem er 28 tonna eik-
arbátur, er aðeins árs gömul,
smiöuð á Fáskrúösfiröi áriö 1971.
Hannes Hafsein fulltrúi hjá
Slysavarnarfélagi tslands, sagði
blaðinu, að um kl. 1.20 i fyrrinótt
hefði Slysavarnarfélaginu borizt
tilkynning um að Fjóla væri
strönduð á Kálfafellsmelúm á
milli Nýjaóss og Bergvantsóss.
Varöskipið Óðinn var skammt frá
strandstað og hélt það þegar á
staöinn. Einnig var björgunar-
sveit Slysavarnarfélagsins á
Farmhald á 2. siðu.