Tíminn - 29.08.1972, Qupperneq 5

Tíminn - 29.08.1972, Qupperneq 5
Þriftjudagur 29. ágúst 1972 TÍMINN Rok og rigning á Suðurlandi. Sumar og sól á Norðurlandi ÞÓ-Reykjavfk. Þótt að Reykvikingar verði að hima i roki og rigningu dag eftir dag, er ekki hægt að segja það sama um Norðlendinga og Aust- firðinga. í gær var t.d. 18 stiga hiti og sól á Akureyri, en þó að hitinn væri mikill þar, þá komst hann hærra á öðrum staö á Norðurlandi þ.e. Máná á Tjör- nesi. Þar var heitast 25 stig um nónbilið i gær. — Austfirðingar fóru ekki var- hluta af sólinni. Hitinn komst t.d. i 19 stig i Neskaupstað eftir há- degið i gær, og um kvöldmatar- leytið var þar 13 stiga hiti. Þessi mynd er tckin nýlega við Siglufjarðarveg ytri, réít hjá Hraunum. Apparatið sem þarna sést, er grjótkvörn vegagerðarinnar, og er hún aö mala ofaniburð i veginn. Þó að vegurinn sé ágætur, hefur ekki verið boriö ofan i hann, siðan Strákagöngin komu til sögunnar, og þótti þaö timabært nú.djósm. A.B.) ÞÓ-Reykjavik. i siðustu viku seldu 26 islenzk sildveiöiskip afla sinn i Dan- mörku og Þýzkalandi, alls 1.632 lestir. Þessi sildarafli seldist fyrir 20 m. 971 þús., meðalverðið i vik- unni var kr. 12.85. Þó svo aö með- alverðið hafi ekki verið hátt i þessari viku, þá varö það miklu jafnara en oftast áður. Lægsta meðalverðið að þessu sinni var kr. 10.95. Færeyingar vísa öllum ómerktum togurum frá KJ-Reykjavik. — Allir hafnarstjórnar og 'hafnarvcröir i Færeyjum, hafa fcngið ströng fyrirmæli um að banna ómerktum brezkum togur- um aö koma til færeyskra hafna, sagði Páll Kjær hafnarvörður i Trangisvogi i Færeyjum i viðtali við Timann i gær. — 1 gær kom hingað litill, brezkur togari, sagði Páll, Ross Tern GY-700, og hann var með nafn og númer eins og venjulega. Við höfum ákveðið að hleypa eng- um brezkum togurum inn i höfn- ina hér, nema þeir séu með nafn og númer bæði á skipinu sjálfu og eins og björgunarbátum og björgunarhringum. Klindu nafninu á Ólafur Guðmundsson i Þórs- höfn i Færeyjum sagði i viðtali við Timann i gær, að hafnar- vörðurinn i Miðvogi hefði sagt sér, að hringt hefði verið i hann frá Grimsby-togaranum Everton aðfaranótt sunnudagsins, og hefði skipstjórinn spurt sig, hvort Tveir teknir í landhelgi Annar reyndi að flýja með því að höggva á vírana ÞÓ-Reykjavík. Varðskip tóku tvo báta að ólög- legum veiöum I fyrrinótt. Fyrst tók varðskip Freystein NK-16 við togveiðar innan fiskveiðitak- markanna út af Loðmundarfirði. 1 fyrstu reyndi skipstjórinn á Freysteini að komast undan með þvi aö höggva á virana og siglá á haf út, en skipstjórinn varð fljót- lega að gefast upp. Farið var með Freystein til Seyðisf jarðar og ját- aði skipstjórinn brot sitt þar. Freysteinn er frekar litill bát- ur, 28 tonn. Annað varpskip. Óðinn tók sið- an vélbátinn Þorra ÞH 10 við ólöglegar togveiöar aðeins 0,8 sjómilur frá landi við Ingólfshöfða. Báturinn er nú kominn "til Reykjavikur og verð- ur mál skipstjórans tekið fyrir i dag. — Þegar óðinn tók Þorra að ólöglegum veiðum,var hann á leið til að bjarga skipverjunum á Fjólu BA 150, en Fjóla var þá strönduð á Meðallandssandi. hann mætti koma inn og taka 15 lestir af vatni, þvi hann þyrfti að vera vel birgur, áður en hann héldi á tslandsmið. ,,Ég spurði skipstjórann, hvort nafn og númer væri á togaranum, og sagði skipstjórinn, að svo væri”, sagði hafnarvörðurinn. ,,Þá var allt i lagi að hleypa hon- um inn, en um morguninn, þegar ég fór að gá að honum, sá ég, að skipsmenn voru að klina nafni og númeri á annan skipsbóginn, og þegar togarinn kom hingað inn á höfnina i Miðvogi, var málningin enn blaut, og höfðu málningar- taumar runnið niður skipshliðina. Þeir fengu vatnið, sem beðið var um,og i samtali leyndu skips- menn þvi ekki, hvert ferðinni væri heitið”. Margir vildu kyrrsetja Ólafur Guðmundsson i Þórs- höfn sagði Timanum i gær, aö margir hefðu viljað kyrrsetja togarann, sem kom til Þórshafn- ar á laugardaginn, en það skip var nafnlaust og númerslaust. A meðan á viðræöum skipstjórnar- manna, umboðsmanns brezkra togaraeigenda og fulltrúa danska sjóhersins stóð, um borð i togaranum i Þórshöfn á laugar- daginn, fékk skipið vatn, og fór siðan strax út. Færeyska stjórnin kom saman strax siðdegis á laugardaginn og ræddi togarakomur til Þórshafn- ar. Að fundi sinum loknum gaf hún út ströng fyrirmæli til allra hafnarstjóra og hafnarvaröa i öll- um höfnum i Færeyjum um aö brezkum togurum, sem málað höfðu yfir nafn og númer, væri al- gjörlega óheimilt að koma til fær- eyskra hafna. Af viðtölum við aðila i Færeyj- um i dag, virðast Færeyingar staðráönir i að framfylgja þess- um reglum, enda kveða alþjóða- reglur svo á, að nafn skips og skrásetningarnúmer skuli vera greinilega máluð á öll skip. Hins vegar viröist sem brezkir togaramenn fái að koma til hafn- ar i Færeyjum, enda þótt nafn og númer skipsins sé málað á aðeins einn stað á skipinu. Miranda á miðin Brezka eftirlitsskipið Miranda lagði af stað frá Hull á laugardag- inn, og er það þrem mánuðum fyrr en venjulega. ,,Við búumst ekki við neinum árekstrum við islenzku varðskip- in,” sagöi skipstjórinn á Miranda, Charles Adams, áöur en hann lagði út höfn. „Við þekkjum is- lenzku varðskipsmennina, og höf- um haft vinsamleg viðskipti við þá á undanförnum árum,” sagði Adams ennfremur. Brezka stjórnin hefur ekki gefið skipstjórnarmönnum á Miranda nein sérstök fyrirmæli varðandi Islandssiglinguna að þessu sinni, en brezkir togarar munu fá sömu aðstoð og áður frá skipinu. Aðstoð skipsins felst aðallega i að gefa ráð um meðferð á slösuðum mönnum, gera við radartæki og fiskileitartæki togaranna og að- stoða þá á annan hátt eftir þvi, sem tilefni gefst. „Þetta er meira i likingu við vegaþjónustu en verkstæði” sagöi Adams skipstjóri i viðtali á föstu- daginn. Skipað að má. út nöfn og númer Brezka togaraeigendasam- bandið hefur gefið öllum félögum sinum fyrirmæli um að má út nöfn og númer brezku togaranna, þegar þeir eru i námunda við Is- land. Þegar þeir eru ekki við Is- land, hafa skipstjórar togaranna fengiö fyrirmæli um að láta nöfn og númer vera á togurunum, ann- að sé ólöglegt. Togaramenn segjast gefa þess- 57 íbúðir í fyrsta áfanga hjónagarða KJ-Reykjavik. t gær hófust framkvæmdir við fyrsta áfanga hjónagarðs á Grimsstaöaholti, sem Félags- málastofnun stúdenta reisir þar. i þessum fyrsta áfanga veröa 57 ibúöir, cn alls er ráögert að reisa þrjú sams konar hús á Grims- staöaholti. Þorvarður örnólfsson, fram- kvæmdastjóri Félagsmálastofn- unar stúdenta, sagði Timanum i gær, að stefnt væri aö þvi að ljúka við botnplötu þessa fyrstahúss fyr- ’ir áramót, og mun Guðbjörn Guðmundsson byggingameistari annast framkvæmdir. Smiði sjálfs hússins verður siðan boðin út. Dalamaður gaf eina milljón Framkvæmdaféð, sem nú er til umráöa er gjafafé,en alls hefur andviröi 18 ibúöa verið gefið. 26 SKIP SELDU FYRIR 20 MILUÓNIR Hæsta meðalverð vikunnar fékk Hrafn Sveinbjarnarson GK, kr. 23.92, en Hrafn seldi 44.2 lestir 21. þ.m fyrir röska milljón. Hæstu heildarsöluna i vikunni fékk Gisli ArniRE 1.694 m. kr. Þetta er önn- ur vikan i röð, sem Gisli Arni er með hæstu heildarsöluna. Sjö bátar seldu fyrir meira en 1 milljón kr. i vikunni og eru þeir þessir: Jón Kjartansson SU 74.8 lestir fyrir 1.194, Hrafn Svein- bjarnarson GK 44.2 lestir fyrir 1.057, Gisii Arni RE 87.9 lestir fyr- ir 1.694, Börkur NK 72.5 lestir fyr- ir 1.049, Heiga Guðmundsdóttir BA 80.1 lest fyrir 1.113, Magnús NK 86.4 lestir fyrir 1.025 og As- berg RE 80.5 lestir fyrir 1.084. Bartels jarð- settur á morgun Martin Bartels, bankafull- trúi i Kaupmannahöfn verður jarðsetturá morgun, miðviku- dag. Bartels var Islendingum vel kunnugur, enda var hann formaður tslendingafélagsins i Kaupmannahöfn um árabil. Bartels verður nánar minnst i Islendingaþáttum Timans. Nei á förum KJ-Reykjavik. Sovézki skákmaöurinn Nei, sem vcriö hefur einn af aöstoöar- ínönnum Spasskis hér á landi, fcr áleiðis lil Tallin I dag, en þar stjórnar Nei skákskóla. Aðalhlutverk Neis hér á landi mun hafa verið að aðstoða Spasski við likamsrækt,en það er mikilvægt.aðskákmenn séu vel á sig komnir likamlega, þegar þeir verða að sitja i fimm tima sam- fleytt yfir skákborðinu — þótt set- ið sé i góðum stólum. Þegar viðraði mátti sjá þá Spasski og Nei leika tennis á iþróttasvæðinu við Melaskólann, en undanfarið hefur ekki viðrað beint vel til tennisiðkana Fuglalífi hrakar við Mývatn ÞÓ-Rcykjavik. Mývatn er meðal annars frægt fyrir sitt mikla fuglalif yfir sum- artimann, en fuglalifið hefur, fram til þessa, verið þar meö þvi allra mesta á einum stað á tslandi. Nú viröist breyting vera að komast á þetta og hefur fugla- lifið minnkað mjög við Mývatn hin siöari ár. Pétur Jónsson, bóndi i Reyni- hlið sagði blaðamanni Timans fyrir skömmu, að nú nokkur sið- ustu ár hafi fuglalifið minnkað mjög og að auki hefur fuglateg- undunum fækkað, sem verpa við Mývatn. Ástæðan fyrir þessari fækkun, er sú sagði Pétur, að hettumáfur- inn er seztur hér að i miklum fjölda og hann rekur allan annan fugl frá sér, einnig er minnkurinn mikil plága. Pétur sagði, að það yrði að reyna einhver ráð til að koma i veg fyrir offjölgun hettu- máfs við Mývatn og einnig yrði að fækka villiminnknum þar. ar skipanir, til að villa um fyrir landhelgisgæzlunni, og koma i veg fyrir, að brezku togararnir þekkist á myndum sem gæzlan mun e.t.v. taka af þeim fyrir inn- an 50 milurnar. Brezka togarasambandið hefur sjálft sagt, að það sé ólöglegt að hafa ekki nöfn og númer á skipun- um, en samt gefur það fyrirmæli um að má hvorttveggja af, séu skipin i nálægð við Island. Klippið sundur togvirana Reyndir islenzkir togaramenn hafa bent á, að næstum eina vopn lslendinga gegn brezkum togur- um, sem séu að veiðum innan fimmtiu milnanna, sé að höggva vörpurnar aftan úr þeim. Segja togaramennirnir, að þetta sé hægt með þvi, að varðskipin dragi dreka á eftir sér, og sigli fyrir aft- an togarana á togi. Með drekan- um nái þeir togvirunum um borð i varðskipin, þar sem þeir verði höggnir i sundur, og siðan sett bauja i vörpuna svo hún finnist og hægt sé að ná henni úr sjónum. Togaramenn segja, að þegar nokkrar vörpur hafi þannig veriö höggnar aftan úr veiöiþjófunum, muni þeir hugsa sig um tvisvar áður en þeir kasta þeim innan við 50 milurnar. Fyrir nokkru gaf „gamall Dalamaður” Félagsstofnun stúdenta eina milljón króna, og skal upphæðinni varið til bygg- ingar hjónagarðs. Það fylgdi með þessari einu milljón, að Dala- maður skyldi hafa forgangsrétt að einni ibúð i hjónagörðunum. Þorvarður sagðist vonast til, að fleiri aðilar fylgdu fordæmi „Dalamannsins”, en gefandinn vildi ekki láta nafns sins getið. Hann er nú fluttur úr Dölum og býr hér syðra. Dr. Ragnar Ingimarsson er for- maður bygginganefndar garö- anna, en formaður stjórnar Félagsstofnunarinnar er Björn Bjarnason lögfræðingur. Hjónagarðarnir verða byggðir eftir teikningu Hrafnkels Thorlaciusar arkitekts, en hann bar sigur úr býtum i samkeppni, sem efnt var til um gerð þessara fyrstu hjónagarða hérlendis.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.