Tíminn - 29.08.1972, Side 11
Þriöjudagur 29. ágúst 1972
TÍMINN
11
ó aðeins
órfeng-
dum
Varmár, er hann er ekki búinn að
byggja á, og heilt hverfi niðri i
elzta hl. bæjarins norðvestan við
aðalgötuna, þar sem hann hefur
keypt hvert húsið af öðru við göt-
urnar F’rumskóga og Bláskóga til
starfsemi sinnar i þágu aldraðs
fólks. Stefna Gisla er sú, að þarna
geti fók dvalizt i litlum ibúðum út
af fyrir sig, þegar starfsævi lýk-
ur, hvort heldur það er fyrir ald-
urs sakir eða vanheilsu af ein-
hverju tagi, unnið að verkefnum
við sitt hæfi, ef þrek þess leyfir,
og séð að nokkru leyti um sig
sjálft, en notiö læknishjálpar og
aðhlynningar eftir þörfum og
fengið mat að mestu leyti i sér-
stökum matsölum. Jafnframt er
svo þarna nokkuð af fólki, sem
ekki getur lengur gegnt neinu
starfi og þarf meiri umsjár, en er
þó við svo viðhlitandi heilsu, að
það hefur langt til fótavist.Loks
er létt á sjúkrahúsum með þvi að
taka þangaö fólk, sem ekki þarf
endilega að dveljast innan
sjúkrahúsveggja, en getur þó
ekki séð sér farborða á almenn-
um vinnumarkaði, og þá starf-
semi vill hann auka og taka aust-
ur fólk i afturbata, er ekki þarf
nauðsynlega að hafast lengur við
i yfirfullum sjúkrahúsum, þar
sem daggjöld eru eðlilega afarhá,
en þarfnast þó umönnunar, að-
hlynningar og hvildar um skeið.
Við þvi er hann ekki vanbúinn,
þvi að hann hefur nýl. reist sjö
þriggja herbergja ibúðir, ákaf-
lega vandaðar og vel úr garði
gerðar og búnar öllu, sem hafa
þarf, nema til er ætlazt, að þeir,
sem þar dveljast, fái mat fram-
reiddan i aðalmatsal skammt frá.
Þetta eru einnig kjörnar vistar-
verur handa efirlaunamönnum,
sem dregið hafa sig i hlé, en eru
þó við dágóða ehilsu, enda hefur
nokkuð af slikum mönnum fengið
inni i sams konar húsum.
ALLT KENNT VIÐ ÁS
Stofnanir Gisla Sigurbjörnsson-
ar i Hveragerði eru allar kenndar
við Ás, æskuheimili séra Sigur-
bjarnar Astvalds Gislasonar, föð-
ur han^, og hús þeirra feðga i
RVK, er einnig bar þetta nafn.
Alls eru hjá honum á annað
hundrað vistmenn þarna eystra,
en um fimmtiu manns eru i vinnu
hjá honum að staðaldri. Þetta
fólk gegnir margvislegum störf-
um, þvi að auk alls annars er á
vegum Gisla trésmiðaverkstæði,
gróðurhús, rannsóknar- og til-
raunastofa, þar sem árum saman
voru gerðar allar rannsóknir i
þágu garðyrkjunnar á Suður-
landi, saumastofu, þvottahús og
meira að segja sláturgerð. Iðu-
lega eru á hans vegum útlendir og
innlendir visindamenn við rann-
sóknir á margvislegum fyrirbær-
um. Til dæmis má minna á, að
hann hefur staðið fyrir kalrann-
sóknum og kostað tilraunir þær,
sem gerðar hafa verið með Ey-
vind i Hveragerði — það er að
segja heyþurrkunarútbúnað
Benedikts frá Hofteigi.
ÞAR SEM SNYRTI-
MENNSKAN VÍSAR
TIL VEGAR
Enginn, sem i Hveragerði kem-
ur, þarf að spyrja þess, hvar Gisli
Sigurbjörnsson á húsum og lend-
um að ráða. Það segir sig sjálft.
Allar hans lóðir eru fagurlega frá
gengnar með rennisléttum gras-
flötum, limgerðum og hellustig-
um, snyrtar og hirtar eins og bezt
getur orðið, og svipað er að segja
um hús hans að utan og innan.
Meðfram öllum götum, sem
Texti: Jón Helgason Myndir: ísak
Hverfið upp frá kirkjunni. Hér sjást glöggt, girðingar, limgerðin og gangstéttarnar, sem eru meöfram öllum lóðum, bæði I Efra-Asi og Neðra-Ási.
liggja að lóðum hans, eru gang-
stéttar, sem hann hefur sjálfur
látið gera, og það eru einu gang-
stéttirnar i Hveragerði við götur,
sem ekki hafa verið malbikaðar
eða steyptar. Svo frábær er öll
umhirða, að forráðamenn stofn-
ana og sveitarfélaga gætu gert
sér gagnsama ferð i Hveragerði
þeirra erinda einna að sjá, hvilikt
snyrtimenni Gisli er.
1 gróðurh. sinum hefur Gisli
tekið upp þá nýjung að dýpka
götur milli gróðurbeða frá þvi,
sem tiðkaðist annars staðar, svo
að garðyrkjumenn hans og að-
stoðarfólk i gróðurhúsunum þarf
ekki að beygja sig við vinnu sina,
heldur getur sinnt henni upprétt.
En það er skiljanlega bakraun hin
mesta að bogra sifellt við vipnu i
lágum beðum, og bilun i baki
raunar atvinnusjúkdómur meðal
garðyrkjumanna, sem við þess
háttar skilyrði vinna.
AÐEINS BROT AF STÓR-
FENGLEGUM DRAUMI
Það, sem Gisli Sigurbjörnsson
hefur gert i Hveragerði, er þrek-
virki. En það er aðeins brot af
draumum hans um framtið þessa
staðar, rétt aðeins likt og reykur-
inn af réttunum. Það Hveragerði,
sem hann gengur með i höfði sér,
er fegursta byggðarlag á landi
hér, miðlandi heilbrigði, fémun-
um og góðum orðstir, sem æ lifir,
þótt deyi fé og frændur. Trúlega
er ekki ofsagt, að hann muni ekki
unna sér hvildar, unz þetta
Hveragerði huga hans er risið al-
skapað, svo fremi sem honum
endist aldur til þess.
Að sjálfsögðu eiga margir sér
drauma. En draumar sumra
manna eru skýjaborgir og geta
ekki annað orðið. Þeim, sem i
öndverðu kann að hafa virzt
sem draumar Gisla Sigrubjörns
sonar væru af þvi tagi, verða að
láta af þeirri skoðun, er þeir hafa
svipast um i hverfunum hans i
Hveragerði. Þetta hafa þá að
minnsta kosti verið skýjaborgir,
sem þegar eru komnar niður á
jörðina að merkilega miklu leyti,
þótt ennþá fleira sé hitt, sem ekki
hefur enn komizt til skila á þann
hátt, sem hann vill og ætlar sér.
Og það, sem merkilegast er um
slikan stórhugmyndasmið: Út-
reikningar hans standast, án þess
að nokkurs staðar sé slegið af ýtr-
ustu kröfum um vandvirkni, ná
kvæmni og umgengnisprýði:
Hugmyndir hans hafa staðizt eld-
raun reynslunnar, og þegar gegnt
miklu og merkilegu hlutverki;og i
krafti stofnana sinna hefur hann
haft bolmagn til þess að ráðast i
fleira og meira en flestir aðrir
einstaklingar i þjóðfélaginu. Þess
vegna skulum við lika vona, að sú
stund renni, áður en Gisla Sigur-
björnssyn þrýtur, að Hveragerði
verði hinn viðfrægi heilsulindar-
bær, þangað sem fólk kemur af
öllum landshornum og af öðrum
þjóðlöndum til þess að gera kaup,
sem best verða gerð: Að kaupa
sér heilsubót og láta staðnum og
öllu , sem honum er tengt, i té
ævilangt þakklæti i ofanálag á
annað endurgjald.
Tveir að tafli: Níels Hallgrimsson frá Grimsstööum, sem lengst alira hefur veriö í Asi i Hverageröi,
og Gestur Jónsson.
Sýnishorn þess, hvernig umgengnin er, þar sem Gisli Sigurbjörnsson ræður iöndum.