Tíminn - 29.08.1972, Síða 14
Mestu Olympíuleikar allra tíma
settir við hátíðlega athöfn
Áhorfendur fögnuðu
þátttakendum innilega,
þegar þeir gengu inn
á Olympíuleikvanginn.
A-Þjóðverjum fagnað
sérstaklega.
NTB-Miinchen
Opnun 20. Ólympiu-
leikanna i Miinchen á
laugardaginn, var stór-
l'englegt, litskrúðugt
sjónarspil, bæði þátttak-
endunum.og þeim, sem
sátu á áhorfendapöilun-
um svo og þeim milljón-
um, sem fylgdust með i
s.jónarpi um allan ehim.
Gustav Heinemann, forseti V-
Þýzkalands opnaði leikana form-
lega, en á undan og eftir varð fólk
vitni aö glæsilegri athöfn, sem vel
sæmir ..mestu og beztu”
ólympiuleikjunum, en það eiga
þessir leikar að verða, að sögn
þeirra, er að þeim standa.
Athöfnin hófst með þvi, að átta
menn klæddir þjóðbúningum
Bæjaraiands blésu i sex metra
langa alpalúðra. Þá komu Grikk-
ir — samkvæmt hefð — fyrstir
þjóðanna inn á leikvanginn.
Hverju landi var heilsað með sér-
stöku lagi, sem þótt hæfa þvi sér-
staklega. Hljómsveitarstjórinn
var Kurt Edelhagen.
Ahorfendur stilltu sig alveg um
aö láta i ljósi pólitiska andúð eða
samúð og var öllum vel fagnað
einnig A-Þýzkalandi. Þegar allir
voru komnir á sinn stað, lýsti
Heinemann forseti leikana setta,
áður en olympiufáninn með
hringunum fimm, var dreginn að
húni.
Hin 22 ára gamla frjáls-
iþróttakona, Heidi Schiller sór
ólympiueiðmn og er það i fyrsta
sinn sem kona veröur þess heið-
urs aðnjótandi.
Eftir að 5000 hvitum dúfum
hafði veriö sleppt, en þaö er tákn
þess, að leikarnir séu hafnir, kom
hinn 18 ára gamli hlaupari Gtint-
her Zahn inn á leikvanginn meö
ólympiueldinn, sem vartendraður
á Olympiufj.28, júli. 5976 hlaupar-
ÆFINGA-
SKÓR
Stærðir 3-5
Verð kr. 615,-
Stærðir 6-11
Verð kr. 780,-
PÓSTSENDUM
llinn 18ára gamli GUnter Zahn frá Vestur-Þýzkalandi, lyftir Olympiukyndlinum eftir að hafa tendrað
Olympiucldinn á leikvanginum í Munchen.
ar hlupu með eldinn þá 5538 km.,
sem eru til MUnchen, á 29 dögum.
Zahn hljóp siðan með kyndilinn
upp 104 tröppur og bar hann að
stóra kyndlinum, þar sem hann
mun loga þar til leikunum lýkur.
Venja er að hleypa af 21 fall-
byssuskoti, þegar eldurinn kemur
en i þetta sinn hleyptu 60 menn i
gömlum einkennisbúning-
um af 60 skipsfallbyssum.
Eftir að ólympiueiðurinn hafði
verið svarinn, gengu lið landanna
aftur út af leikvanginum og hafði
öll athöfnin tekið hátt á fjórðu
klukkustund. Veður var gott, sól-
skin og 20 stiga hiti.
Undirbúningur þessara
Ólympiuleika hefur tekið fjögur
ár og kostnaðurinn nemur alls um
50 milljörðum isl. króna. Þjóð-
verjar vonast til að þessir
Ólympiuleikar breiði yfir minn-
inguna um fyrri ólympiuleikana,
sem haldnir voru i landinu 1936,
þar sem Hitler og nazistarnir
stjórnuðu hátiðahöldunum.
Danir
komu
mest á
óvart
Knattspyrnukeppni
Olympiuleikanna hófst á
sunnudaginn og var fram
haldið i gær, mánudag. Tæp-
lega er hægt að segja, aö úrslit
i fyrstu leikjum hafi komiö'á
óvart, ef undanskilinn er leik-
ur Dana og Brasiliumanna i 1.
riðli, en Danir unnu þann leik
með eins marks mun, 3 : 2,
eftir að hafa . náð tveggja
marka forskoti um tima.
Brasiliumönnum tókst að
jafna, 2 : 2, á stuttum tima, en
Alan Simonsen, sem islenzkir
knattspyrnuunnendur muna
vel eftir siðan hann lék með
danska landsliðinu hér i sum-
ar, skoraði sigurmark Dana
nokkrum minútum fyrir leiks-
lok. Simonsen er ekki hár i
loftinu, rúmlega 1,50 metrar á
hæð.
Úrslit i einstökum leikjum
hafa orðið þessi:
Kiðill 1
Danmörk — Brasilia 3 : 2
Ungverjal. —tran 3:0
Riðill 2
Bandarikin — Marokkó 0 : 0
V-Þýzkal. — Malasia 3 = 0
Riðill 3
Burma—Sovét 0:1
Sudan — Mexikó 0 : 1
Riðill 4
Columbia — Pólland 1:5
Gahna — A-Þýzkal. 0 : 4
Isaksson — keppir hann ekki í Miinchen?
KEPPNI, AN
BEZTU STANGAR-
STÖKKVARANNA?
Alþjóða frjálsíþróttasambandið bannar notkun
nýjustu gerðar glerfíberstangar.
Svo getur farið, að frægustu stangarstökkvarar heims,veröi ekki á
meðal keppenda i stangarstökki á Olympiuleikunum. Astæðan er sú, að
Alþjóða frjálsiþróttasambandið hefur itrekað fyrri afstöðu sina aö
banna notkun nýjustu geröar glerfiberstangar, sem m.a. Bob Seagren,
bandariski heimsmethafinn, notar. Sömuleiðis notar fyrrverandi
heimsmethafi, Isaksson frá Sviþjóð, þessa gerð stangar, og hefur hann
lýst þvi yfir, að hann muni ekki taka þátt I leikunum i Munchen, nema
hann fái að nota þessa gerð.
Erfitt er að spá um framvindu málsins, en svo virðist sem Alþjóða
frjálsiþróttasambandið ætli að halda fast við ákvöröun sina. Og vissu -
lega yrðu það mikil vonbrigði fyrir Svia, ef þeirra eina von i frjáls-
iþróttakeppninni yrði ekki með.
Seinustu fréttir:
i gærkvöldi bárust þær fréttir frá Miinchen, aö líklega yrði leyft að
nota hina nýju glerfiber-stöng, þar sem bann á siðustu stundu kæmi
mjög ilia við ýmsa, sem notuðu þessa gerð stanga. Hins vegar er ljóst,
að strax eftir leikana i Miinchen verður sett ný reglugerð um þetta efni.
K0NGAF0LKID STREYMIR TIL MÚNCHEN
Margt af tignarfólki Evrópu verður meðal áhorfenda á Olym-
piuleikunum i Milnchen. Tilkynnt hefur verið um komu Elisa-
betarEnglandsdrottningar og dóttur hennar, önnu prinsessu, til
Milnchen á miðvikudaginn. Filip, hertogi af Edinborg, eigin-
maöur drottningarinnar, kom til Míinchen s.l. laugardag. Karl
Gústav, Sviaprins, er kominn til Miinchen og nefna mætti fleira
kóngafólk, sem komið er til Olympiuborgarinnar.