Tíminn - 29.08.1972, Side 20

Tíminn - 29.08.1972, Side 20
HORNAFJARÐARMÁNINN HAFINN TIL VEGS C Þriðjudagur 29. ágúst 1972 ] Hornafjarðarmáninn er i þann veginn að fá uppreisn æru eftir þann lifsciga álitshnekki, sem hann beið endur fyrir löngu. Allir þekkja þá sögu: Hornfirðingar komu á Djúpavog i kaupstaöar- ferð og þótti margt mikilfenglegt, er fyrir augun bar. Meðal annars sáu þeir fullt tungt, sem skein á heiðum himni. þá sagði einn þcirra þaö, sem ekki hefur glcymzt fram á þennan dag: „Þarna er almcnnilegt tungl — það cr munur eða helvlzkur Hornafjarðarmáninn." Við lifum á tækniöld, þegar margt er gerlegt, og nú hefur Hornaf jaröarmáninn verið höndlaöur. Hann verður þegar á þessu hausti hafinn á stall vestan viö gistihúsið I Höfn, og lokið viö' að gera undirstöður þær, sem hann á að hvila á. Þaö er ungur Hornfirðingur, frábærlega listhagur, Ragnar Imsland, sem búið hefur til sér- kennilegt viravirki, er á aö tákna Hornafjaröarmánann, og gefiö gistihúsinu það. Út úr þessu vira- virki Ragnars má margt lesa, en stærsti flötur þess ber hálfmána- lögun, og er einmitt Hornafjarðarmáninn þar kom- inn. Þetta verk mun hafa átt langan meðgöngutima i höfði Ragnars, en þaö varö til aö mestu leyti i fyrravetur. Gera Hornfirðingar. sér heldur betur vonir um, að dæmið snúist viö, þegar það er komið á sinn stað, og hér eftir muni Djúpavogsbúar öfunda þá stórum af Hornafjarðarmánan- um. Gamanlaust sagt á þessi járn- skúlptúr Ragnars Imslands vafa- Gistihúsið á Höfn I Hornafiröi Chichester er látinn NTB-Plymouth Sir Francis Chichester, sigl- ingakappinn frægi, lézt á laugar- daginn, 71 árs að aldri. Hann varð fyrst frægur sem flugmaður, en heimsfrægð öðlaðist hann er hann sigldi umhverfis hnöttinn einn á báti, fyrir sex árum. Fyrr i ár lagði hann af stað i siglinga- keppni yfir Atlanzhafið, en varð að hætta keppni vegna veikinda sinna. laust eftir að auka hróður Hafnar i Hornafiröi og gera mörgum staðinn minnisstæðari en áður. —JH. Morð er framið 30. hverja mínútu í GEIR VILHJALMSSON FYRSTI ÍSLENZKI UMSÆKJANDINN UM plAnetuvegabréf NTB-Washington Glæpur var framinn að meðaltali 29. hvcrja sekúndu I Bandarikjunum árið 1971. Þetta kemur fram i skýrslu, sem dómsmáiaráðherrann Kich, Kleindicnst lagði fram I gær. Morð cr framið á háif- tima frcsti og nauðgun 13. hverja minútu. Miili rána liðu aðeins 82 sekúndur. Tala alvarlegra afbrota jók- st um 7% I fyrra, en samt er þetta minnsta aukningin á sex árum. i 54 af stærstu borgum landsins fer alvarlegum af- brotum fækkandi. Lögreglan hefur ráðiö fram úr 84% morðmála, 55% nauðg- ana, 66% árása og 27% af rán- um. I skýrslunni, sem unnin er af FBI segir ennfremur, að 126 lögreglumenn hafi látið lifið við störf i fyrra, en voru 100 árið 1970. KÍNVERSKUR TUNDUR- DUFLASLÆÐARI KOM- INN TIL HAIPHONG ÞM-Reykjavik Nú getur hver sem þaö viil orö- iö plánetuborgari. t stjórnarráð- inu liggur umsóknarlisti um vegabréf, sem sýni aö viðkom- andi sé plánetuborgari. Ekkert gjald þarf að greiða við skrán- ingu, en ef viökomandi óskar get- ur hann fengið skráningu sina staðfesta á sérstöku skrásetning- arskirteini, scm kostar tvo dali. Handhafar þess fá þá sent frétta- bréf um plánetuborgara, og vega- bréfið sjálft. Þegar menn skrá sig sem plá- netuborgara, gangast þeir meðal annars við eftirfarandi: Ég geri mér grein fyrir aöild minni i mannlegu samfélagi. Ég geri mér grein fyrir skyldum minum við mannkyniö.'Um leið og ég itreka skyldur minar við eigin fjölskyldu, itreka ég einnig skyldur minar við samfélagið, rikiö og þjóöina. Sem meölimur i fjölskyldu mannanna á þessari plánetu, er velferð mannkynsins mesta áhugamál mitt. Ég mun berjast gegn deilum og striði. Ég mun styrkja starf Sameinuðu þjóðanna. Margir þekktir menn hafa gerzt plánetuborgarar, þar á meðal eru U Thant, Thor Heyerdal og Dalai Lama, og hafa þeir allir vegabréf sem plánetuborgarar. Hinn fyrsti, sem sótti um þessi borgarréttindi á Islandi, var Geir Vilhjálmsson sálfræöingur. BREZKUR PRINS LÉZT í FLUGSLYSI NTB-Washington Úr bandariskum flugvélum hcfur sézt til kinversks tundur- duflaslæðara I höfninni i Haip- hong. Slæöarinn kom þangað fyr- ir viku, en hefur ekki enn gert neinar tilraunir tii að fjarlægja tundurduflagirðingar Banda- rikjamanna I hafnarmynninu. Slæöari þessi er litill og er talið, að hann hafi komizt inn i höfnina eftirskurðum norðan frá. Banda- risk herskip á Tonkin-flóa og i Kinahafi hafa hindrað allar skipaferðir til N-Vietnam siöan 8. mai, er tundurduflin voru lögð. 26 kaupskip eru innilokuð i höfninni 1 Haiphong. Bandariskir talsmenn vildu i gær ekkert segja um, hvort ráðist yrði á slæðarann úr flugvélum, ef hann gerði tilraunir til að fjar- lægja duflin. NTB-Volverhampton William prins af Gloucester, þritugur frændi Elisabetar Breta- drottningar, fórst i flugslysi I gær skammt frá Volverhampton. Flugvélin var tveggja sæta og prinsinn var við stýriö, en með honum ónafngreindur aðstoöar- flugmaður, sem einnig fórst. Sjónarvottar segja, aö flugvélin hafi sprungið i sama mund og hún snerti flugbrautina i lendingu. William prins var niundi i röðinni að brezku krúnunni. Fyrir næst- um nákvæmlega 30 árum fórst frændi hans, hertoginn af Kent i flugslysi, er hann var á leiö i her- þjónustu á Islandi. Mús hljóp undir pils konunnar og barnið sem hún ól er með stóran blett ó lærinu Fyrir fáum dögum birtum við söguna um fæðingarblett- inn, tólffótunginn, á cnni Vil- borgar Jónsdóttur, húsfrcyju i Auðsholtii Biskupstungum, og sögðum tildrögin eins og Guð- mundur Björnsson landlæknir hafði rakið þau. Þvilikt er að sjálfsögðu ekki algengt. en þó munu finnast fleiri dæmi svip- uð. Frá einu sliku segjum við hér. 1 Arnessýslu fór þorri karl- manna i ver upp úr miðjum .vetri langt fram á þessa öld. Konur og unglingar önnuðust gegningar heima. Veturinn 1896 var vanfær kona á bæ austan fjalls, kom- langt á leið, að taka til hey i garði og láta i laupa eða meisa. Var kominn allmikill skúti og var reist við hann skjól, sem kallað var, svo að heyið fyki ekki i meðförunum, þótt vindur væri. Skjólið var svo lágt, að hún varð að krjúpa viö vinnu sina. Allt i einu skýzt mús, að henní finnst, upp undir pils hennar, og stekkur upp annaö læriö. Gripur hún þar til i ofsa- hræðslu, er henni finnst músin staðnæmast efst á vinstra læri innan fótar. Þegar hún elur barn sitt, er á þvi stór, mó brúnn, loöinn blettur á þessum stað. Konan eignaði það þessu atviki i heygarðinum. Þessi kona var náskyld Vilborgu i Auðsholti. Blettberinn vill ekki láta nafns sins getið i blöðum, en leyfði myndatöku, ef visinda- menn kynnu siðar vilja rann- saka fyrirbæri að þessu tagi. Séu nú uppi lifeðlisfræðingar eða mannfræðingar, er vilja meira um þetta vita, er Timanum heimilt að skýra þeim frá nafni og heimilis- fangi. —JH. .Músin" á lærinu eins og hún litur nú út.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.