Tíminn - 07.09.1972, Page 10
10
TÍMINN
Fimmtudagur 7. september 1972
HEILSUGÆZLA
Slökkviliö og sjúkrabifreiðar
fyrir Reykjavik og Kópavog.
Simi 11100.
Sjúkrabifreið i Hafnarfirði.
Simi 51336.
Slysavarðstofan i Borgar-
spitalanum er opin allan
sólarhringinn. Simi 81212.
Tannlæknavakt er i Heilsu-
verndarstöðinni, þar sem
Slysavarðstofan var, og er op-
in laugardag og sunnudag kl.
5-6 e.h. Simi 22411.
Lækningastofur eru lokaðar á
laugardögum, nema stofur á
Klapparstig 27 frá kl. 9-11 f.h.
Simi 11360 og 11680. — Um
vitjanabeiðni visast til helgi-
dagavaktar. Simi 21230.
Kvöld/ nætur ög hclgarvakt:
Mánudaga- fimmtudaga kl.
17.00-08.00. Frá kl. 17,00 föstu-
daga til kl. 08.00 mánudaga.
Simi 21230.
Apótck llafnarfjarðar er opið
alla virka daga frá kl. 9-7, á
laugardögum kl. 9-2 og á
sunnudögum og öðrum helgi-
dögum er opið frá kl. 2-4.
Hrcytingar á afgreiðslutima
lyfjabúða i Reykjavik. A
laugardögum verða tvær
lyf jabúðir opnar frá kl. 9 til 23,
og auk þess verður Árbæjar-
apótek og Lyf jabúð Breiðholts
opin frá kl. 9 til 12. Aörar
lyfjabúðir eru lokaðar á
laugardögum. A sunnudögum
(helgidögum) og almennum
fridögum er aðeins ein lyfja-
búð opin frá kl. 10 til 23. Á
virkum dögum frá mánudegi
til föstudags eru lyfjabúðir
opnar frá kl. 9 til kl. 18. Auk
þess tvær frá kl. 18 til 23.
Kvöld og næturvörzlu apótcka
i Rcykjavik, vikuna 2.sept. til
8.sept. annast, Holts Apótek
og Laugavegs Apótek, sú
lyfjabúð sem fyrr er nefnd,
annast ein vörzluna á sunnu-
dögum (helgidögum) og alm.
fridögum. Næturvarzla i Stór-
holti 1 helzt óbreytt, eða frá
kl. 23 til kl. 9 (til kl. 10 á helgi-
dögum)
ORÐSENDINGi
A.A. samtökin. Viðtalstimi
alla virka daga kl. 18.00 til
19.00 i sima 16373.
Styrktarfélag lamaðra og fatl-
aðra, kvennadeild. Föndur-
fundur verður áð Háaleitis-
braut 13 i kvöld, fimmtudags-
kvöld kl. 20,30. Fjölmennið.
BÍLASKOÐUN
Aðalskoðun bifreiða i lög-
sagnarumdæmi Iteykjavikur.
1 dag R-18601 til R-18800.
ÝMISLEGT
Listasafn Kinar Jónssonar, er
opið sunnudaga og miðviku-
daga kl. 13,30 til 16,00.
Skipadeild. SÍS. Arnarfell er i
Svenborg, fer þaðan til
Rotterdam og Hull. Jökulfell
er i Ventspils, fer þaðan til
Holmsund, Helgafell losar á
Norðurlandshöfnum, fer
þaðan til Vestfjarða og Faxa-
flóa. Mælifell átti að fara i gær
frá La Goulette til Sfax.
Skaftafell lestar á Norður-
landshöfnum, fer þaðan til
Vestfjarða og Faxaflóa.
Hvassafell er i Vestmanna-
eyjum, fer þaðan til Reykja-
vikur. Stapafell losar á
Norðurlandshöfnum. Litlafell
er i Reykjavik.
M/S ESJA
Fer vestur um land i hring
ferö mánudaginn 11 septem
ber.
Vörumóttaka i dag og
á morgun
M/S BALDUR
fer til Snæfellsnes og Breiða-
fjarðarhafna þriðjudaginn 12.
september. Vörumóttaka i
dag, á morgun og á mánudag.
Skipaútgerð rikisins. Esja fer
frá Reykjavik n.k. mánudag
vestur um land i hringferð.
Hekla er á Austurlands-
höfnum á norðurleið.
Herjólfur fer frá Reykjavik kl.
20.00 i kvöld til Vestmanna-
eyja.
FLUGÁÆTLANIR
Flugfélag Islands
MILLILANDAFLUG
Sólfaxi fer til Lundúna kl.
08.30, vélin er væntanleg aftur
kl. 14.50. Gullfaxi fer frá
Kaupmannahöfn kl. 09.40 til
Osló, Keflavikur Osló og
væntanleg aftur til Kaup-
mannahafnar kl. 20.35 um
kvöldið.
INNANLANDSFLUG
Aætlað er flug til Akureyrar
(3 ferðir) Vestmannaeyja (2
ferðir), Hornafjarðar, Isa-
fjarðar, Þórshafnar, Raufar-
hafnar og Egilsstaða.
Flugáætlun Loftleiða.
Eirikur rauði kemur frá
New York kl. 05.00. Fer til
Luxemborgar kl. 05.45. Er
væntanlegur til baka frá
Luxemborg kl. 14.30. Fer til
New York kl. 15.15.
Snorri Þorfinnsson kemur
frá New York kl. 07.00. Fer til
Luxemborgar kl. 07.45. Er
væntanlegur til baka frá
Luxemborg kl. 16.30. Fer til
New York kl. 17.15.
Þorfinnur karlsefni kemur
frá New York kl. 08.00. Fer til
Luxemborgar kl. 08.45. Er
væntanlegur til baka frá
Luxemborg kl. 17.30. Fer til
New York kl. 18.15.
Leifur Eiriksson kemur frá
New York kl. 07.00. Fer til
Kaupmannahafnar kl. 08.00.
Er væntanlegur til baka frá
Kaupmannahöfn kl. 16.30. Fer
til New York kl. 17.30.
öllum þeim, sem á ýmsan hátt sýndu mér
vinsemd og hlýju á 85 ára afmæli minu 31.
ágúst s.l. sendi ég minar beztu kveðjur og
hjartans þakklæti. Guð blessi ykkur öll.
Guðriður Auðunsdóttir,
Teygingalæk, V-Skaftafellssýslu.
Kamel-laxveiði-
keppninni lokið
Tveir 25 punda
síðustu vikuna
Siðastliðin laugardag lauk
tiundu og siðustu viku CAMEL-
LAXVEIÐIKEPPNINNAR með
þvi að Stefán Guðjónsson,
Flókagötu 3, Reykjavik, dró rúm-
lega 25 punda hæng úr Laxá i
Dölum.
Stefán veiddi laxinn á
fUigu, Blue Charm no. 1, i
Króknum. Ekki gekk það átaka-
laust, þvi Stefán sem var með
81/2 feta flugustöng, þurfti að
vaða ána i mitti og fylgja laxinum
niður fyrir flúðir og fossa En að
lokum gafst laxinn upp og var
landað eftir mikla viðureign, sem
stóð i eina klukkustund og
tuttugu minútur.
Vikuna áður hafði einnig veiðzt
yfir 25 punda lax.og voru þetta þvi
tveir stærstu kamellaxar sum-
arsins.sem veiddust tvær siðustu
vikur keppninnar.
Sigurður
Kristjánsson
sýnir að
Týsgötu 3
Sigurður Kristjánsson list-
málari sýnir fjölda verka að
Tysgötu 3, 1-I5.september. Verð
á myndunum er afar mismunandi
frá nokkrum þúsund kr. upp i
hundrað og fimmtiu þúsund kr.,
svo aö flestum ætti að vera fært
að létta svo um munar á pyngj-
unni sér og sinum til augnayndis.
Sveit Karls
Jörundssonar
sigraði í 9.
sjóstangaveiðimótinu
á Akureyri
Akureyrarmót i sjóstangaveiði,
hið 9. i röðinni, var haldið s.l.
laugardag. Þátttakendur voru 49,
viðsvegar að af landinu, og róið
var á 10 bátum. Aflahæsta sveitin
var sveit Karls Jörundssonar frá
Akureyri, og veiddi hún 463.8 kg.
Auk hans eru i sveitinni Jónas
Jóhannsson, Konráð Arnason og
Matthias Einarsson. önnur varð
sveit Andra P. Sveinssonar og
þriðja sveit Jóhanns Kristinsson-
ar, báðar frá Akureyri. Aflahæsti
maður mótsins varð Jónas
Jóhannsson, Akureyri, veidd 163
kg, hann veiddi einnig flesta
fiska, 198 stk. talsins. Annar varð
Andri P. Sveinsson og þriðji
Stefán Bjarnason, báðir frá
Akureyri. Aflahæsta konan varð
Fanney Jónsdóttir, Akureyri, hún
veiddi 105.4 kg.
Aflahæsti báturinn var
Haraldur frá Dalvik, skipstjóri
Anton Gunnlaugsson, og veiddi
hann 557.2 kg, annar varð Haförn
frá Hrisey, skipstjóri Björn
Björnsson. með 447.1 kg, og þriðji
Niels Jónsson frá Hauganesi með
350.7 kg.
Þyngstan þorsk veiddi
Jóhann G. Jóhannss. Ak. 8.4 kg
Þyngsta ýsu veiddi
Jóhann Kristinss. Ak. 3.0 kg
Þyngstan steinbita veiddu
Margrét Helgadóttir Keflav. og
Matthias Einarss. Ak. 6.1 kg
sem er Evrópumet.
Þyngstan Ufsa veiddi
Freysteinn Bjarnas. Ak. 1.0 kg
Þyngstan karfa veiddi
Matthias Einarsson Ak. 1.3 kg
Þyngsta lúðu veiddi
Sigurður Ringsteð Ak. 2.6 kg
Þyngstan kola veiddi
Bogi Sigurðss. Vestm.eyj 0.7 kg
Þyngsta keilu veiddi
Ari Fríðfinnss. Ak. 4.8 kg
Veður var hið bezta. og skemmtu
keppendur sér vel.
(IROGSKAflTGRIPIR
kcrneUus
JONSSON
SKÓlAVÚROUSilGB
BANKASTRÆ116
^»18588-18600
r
miiiliii
WL'L
Kjördæmissamband Framsóknarmanna i
Norðurlandskjördæmi vestra auglýsir:
Almennir stjórnmálafundir verða haldnir fimmtudaginn 7.
september kl. 21 á eftirtöldum stöðum.
1 Alþýðuhúsinu á Siglufirði
frummælandi: Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra
I Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki
frummælendur: Björn Pálsson, alþingismaður
Stefán Guðmundsson, varaalþingismaöur
1 félagsheimilinu á Hvammstanga
frummælendur: Björn Fr. Björnsson, alþingismaður
Ólafur R. Grimsson, lektor
Á Hótel Blönduósi
frummælendur: Ásgeir Bjarnason, alþingismaður
Magnús H. Gislason, varaalþingismaður
Allir velkomnir
Kjördæmissamband Framsóknarmanna i Noröurlandskjör-
dæmi vestra.
Kjördæmissamband Framsóknarmanna i
Norðurlandskjördæmi eystra auglýsir:
Almennir stjórnmálafundir verða haldnir fimmtudaginn 7.
september kl. 21 á eftirtöldum stöðum
1 félagsheimilinu á Þórshöfn
frummælendur: Gisli Guðmundsson, alþingismaður
Steingrimur Hermannsson, alþingismaður
t Lundi Axarfiröi
frummælendur: Páll Þorsteinsson, alþingismaður
Tómas Arnason, framkvæmdastjóri
1 félagsheimilinu Húsavik
frummælandi: Einar Agústsson, utanrikisráðherra
1 félagsheimilinu Vikurröst Daivik
frummælendur: Eysteinn Jónsson, alþingismaður.
Heimir Hannesson, varaalþingismaður
t félagsheimilinu ólafsfirði
frummælendur: Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra
Jónas Jónsson, varaalþingismaöur.
t félagsheimilinu Raufarhöfn
frummælendur: Stefán Valgeirsson, alþingismaður
Vilhjálmur Hjálmarsson, alþingismaður
I Skjólbrekku„ Mývatnssveit
frummælendur: Ágúst Þorvaldsson, alþingismaður
Helgi Bergs, bankastjóri
t samkomuhúsinu Grenivlk
frummælendur: Bjarni Guðbjörnsson, alþingismaður
Friðgeir Björnsson, lögfræðingur
t Freyvangi, Eyjafiröi
frummælendur: Ingi Tryggvason, varaalþingismaður
Jóhannes Eliasson, bankastjóri
Föstudaginn 8. september kl. 21
Á Hótel KEA, Akureyri
frummælendur: ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra
Ingvar Gislason, alþingismaður
Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður
Allir velkomnir
Kjördæmissamband Framsóknarmanna I Norðurlandskjör-
dæmi eystra.
—
Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi
Guðni Erlendsson
Hringbraut 128, Keflavik
veröur jarösunginn frá Keflavikurkirkju, laugardaginn 9.
september kl. 4.
Anna Kristjánsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Maöurinn minn og faðir okkar
Jóhannes Bjarnason
Skipholti 48
lézt á Landakotsspitala 1. september.
Jarðsett veröur frá Háteigskirkju föstudaginn 8. septem-
ber kl. 1,30.
Margrét Kristjánsdóttir og dætur.
Útför systur minnar
Kristrúnar Jónsdóttur
Borðeyri
verður gerö frá Prestbakkakirkju laugardaginn 9. þ.m. kl.
14,00.