Tíminn - 09.09.1972, Side 13

Tíminn - 09.09.1972, Side 13
Laugardagur !). september 1972 TÍMINN 13 BRANN í gær var lögreglunni á Akur- eyri tilkynnt. að jeppabifreið stæði i ljósum logum á vegamót- unum á Moldhaugnahálsi. i ljós kom. að þetta var Landrover- jeppi með tl númeri og að sögn lögreglunnar er hann talinn gjör- ónýtur. Kngin slys munu hafa orðið á mönnum við þetta. Það er einna helzt fuglinn fljúg- andi, sem sér það, sem ber fyrir augu á þessari mynd. Til þessara mannvirkja var stofnað á ein- kennilegri hátt en annarra mann- virkja i landinu, þau voru reist á stað, þar sem forspá mikil hefði þótt, að hús yrðu reist, og þar á ofan mun aldrci hafa verið i jafn- mikinn kostnaö lagt, er eins greinilega var á glæinn kastað. Þetta eru sem sé leifar herstöðv- anna á Straumnesfjalli. Burðarsúlur, bitar og veggir allra þessara húsa voru steyptir úti i Hollandi, og með þvi að Hol- land er ekki auðugt að steypuefni, var það sótt til Þýzkalands. Siðan voru húshlutarnir fluttir sjóleiðis til Aðalvikur. Forlátavegur var gerðurfrá Látrum upp á Straum- nesfjall þar sem húsin voru reist á bjargbrún, um fjögur hundruð metra yíir sjávarflöt, og komið uppmiklum og margbreytilegum tæknibúnaði, er heyra til i radar- stöð. Siðan liðu fá misseri. Þá rýmdu Bandarikjamenn stöðina, þar eð hún mun ekki hafa verið talin gegna neinu hlutverki. Tóku þeir margt brott með sér, er auðvelt var aö fjarlægja, en létu sölu- nefnd setuliðseigna annað eftir. Þegar hún hafði látið greipar sópa, voru húsin seld Þórði Júliussyni frá Fljótavik, er reif úr þeim einangrun og annað, sem hann gat náð án óhæfilegs til- kostnaðar. Eftir stendur nú nak- inn steinninn, sem lengi mun bjóða vindi og veðrum byrginn, þótt svalan blási oft þarna uppi. Niðri á Látrum, þar sem Bandarikjamenn höfðu lika að- setur, eru svo aðrar menjar þessa ævintýris: Feikn af drasli, og skarni, sem var skiliö eftir á sandinum, og hvorki Bandarikja- menn né sölunefndin hafa hirt um að fjarlægja eða grafa. Q5£P r Island - Japan í kvöld á OL ÍSLENZKA ÓL-Iiðið i hand- knattleik leikur i kvöld gegn Japan, og sker leikurinn úr um, hvaða lið lendir i 11-12. sæti i handknattleikskeppn- inni á ólympiuleikunum. Island hefur áður leikið landsleik við Japan og tapað. Einnig tapaði islenzka liðið fyrir þvi japanska i æfingaleik i Ólympiuþorpinu i Mílnchen. Ef allt verður með felldu i kvöld. ættu islenzku piltarnir að sigra, og hljóta þar með 11. sætið i keppninni, eða sama sætið og i heimsmeistara- keppninni i Frakklandi 1970. JEPPINN Kústir radarstöðvarinnar frammi á bjargbrún. Timamynd: Gunnar. Draugastöðin á Straumnesfjalli tilgangslausasta furðumannvirkið llflFMHj l!Í ISI lii" rfrfrr Heilsuverndarstöðin, sein fær það hlutverk að hýsa peninga. (Timamynd: Gunnar) Blaðburðarfólk óskast við eftirtaldar götur: Keynimelur, Vesturgata, Skólavörðustigur, Hjarðarhagi, Tómasarhagi, Laufásvegur, Suöurgata, Grimsstaðarholt, Tjarnargata, Bólstaðahlið, Langholtsvegur, Vogar, Laugavegur, Nökkvavogur og Gnoöavogur. Kinnig vantar sendla hálfan eða allan daginn, og einn sendil á vélhjóli. Upplýsingar á afgreiðslu blaðsins, Bankastræti 7, simi 12323. Myndavélalinsur tapast Tapast hcfur brúnleitur myndavélakassi mcö tveimur PIUNZ LINSUM 28 og 145 mm, við Mývatn um 10. ágúst. Finnandi vinsamlegast hringið i 96-18682. — Fundarlaun. Heilsuverndarstöð bankahús Fyrir allmörgum árum var hafizthanda um byggingu heilsu- verndarstöðvar i Kópavogi, og var henni valinn staður skammt frá mótum Hafnarfjarðarvegar og Digranesvegar. Þegar búið var að steypa tvær hæðir hinnar fyrirhuguðu heilsuverndar- stöðvar, kom það babb i bátinn, NTB—Austin, Texas. Franski jarðfræðingurinn Micliel Siffre kom nýlega upp á yfirborð jarðar, eftir að hafa veriðsex mánuði 40,5 m niðri i jörðinni. Það fyrsta sem hann sagöi, er hann kom upp, var: Ég vil hitta konu mina og i ööru lagi ætla ég i bað. Þessi 33 ára vfsindamaður sagði, að tilraunirnar hefðu að nýttskipulag kollvarpaði fyrri hugmyndum manna um kaup staðinn. Samkvæmt þessu nýja skipul var Hafnarfjarðarvegur sprengdur gegnum hálsinn, og stóð þá heilsuverndarstöðin hálf- körruð eða varla það á kletta- brún, réttvið brúna yfir gjána, er Hafnarfjarðarvegurinn liggur nú eftir. Þannig hefur byggingin staðið undanfarin ár, og neðri hæðin verið notuð sem áhai geymsla þvi að ekki þótti a heppnazt vel, enda þótt liann liefði ekki getaö sannað full- komlega, að menn, sem lifa i einangrun kjósi heldur „48 tima sólarhringa” heldur en þá vanalegu. Siffre, sem telur, að lengri sólarhringar virki ekki eins þreytandi og þeir venjulegu, sagði, að hanii heföi i 4 vikur hegðað sér eins og sólarhring- urinn stæði i 48 tima. verður að fullgera þarna heilsuverndar- stöð úr þvi sem komið var. Forráðamenn Kópavogskaup- staðar hafa hins vegar verið að leita fyrir sér um sölu á bygging- unni, og kom þá helzt til greina einhver viðskiptastofnun. Nú mun þetta hafa tekizt, og er það útibú Útvegsbankans i Kópavogi, sem kaupir húsið. 1 stað þess að þarna verði vakaö yfir heilsufari Kópvæginga, mun þaðan streyma ,,afl þeirra hluta sem gera skal” m i jörð niðri Franska varnarmáladeildin og hellarannsóknafélag fjár- mögnuðu tilraunina, sem kostaði um tiu milljónir. Siffrc skrifaöi itarlega dag- bók, meðan á dvölinni stóð, og las margar bækur. Það vekur enga furðu, aö meöal þeirra var ein, sem fjallaði um það, hvernig hægt væri að stytta sér stundir. 6 mánuði í einangrun 40 Hjúkrunarkonu vantar aö heilsuhæli N.L.F.í. Upplýsingar á skrifstofu hælisins simi 4201, Hveragerði. Ritari Ritara vantar til afleysinga við Kleppsspitalann i3 mánuði, frá 1. október að telja. Laun samkvæmt launakerfi rikisins. Umsóknum er greini aldur, menntun og fyrri störf, sé skil- að til skrifstofunnar, Eiriksgötu 5, fyrir 22. september n.k. Umsóknareyðublöð á skrifstofu rikisspitalanna. Reykjavik, 8. september 1972 Skrifstofa rikisspitalanna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.