Fréttablaðið - 17.03.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
ÁRANGUR Í FERÐAÞJÓNUSTU
Málstofa um árangur í ferðaþjónustu
verður haldin í Odda í Háskóla Íslands
klukkan 12.15. Vilhjálmur Bjarnason,
aðjúnkt í viðskipta- og hagfræðideild,
mun meðal annars fjalla um þá þversögn
sem kemur fram í mikilli fjölgun ferða-
manna og lélegri afkomu í greinum
ferðaþjónustu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÁFRAM BJART OG FLOTT í höfuð-
borginni og víða sunnantil. Skúrir eða
slydduél á Norðurlandi. Sólin er farin að ná
að verma svolítið yfir hádaginn og gæti
hitinn sunnan til víða náð 6-8 stigum.
Helgin verður svöl. Sjá síðu 6.
17. mars 2004 – 76. tölublað – 4. árgangur
● ætlar að rekja garnirnar úr dömunum
Pétur Jóhann:
▲
SÍÐA 16
Hittir
Sugababes
● senda FIDE kaldar kveðjur
Kasparov og Karpov:
▲
SÍÐA 30
Hressir á
Íslandi
● 50 ára í dag
Ísólfur Gylfi Pálmason:
▲
SÍÐA 16
Frelsi til að
fíflast
● íslenskan er málið ● á réttri hillu
Guðni Kolbeinsson:
▲
SÍÐUR 18-19
Sleppir ástarhjali og
fer beint í bardagann
LÉLEG VEIÐI Nú stefnir í að um 200
þúsund tonna loðnukvóti veiðist ekki á ver-
tíðinni. Þjóðarbúið verður af háum upp-
hæðum og verksmiðjur víða um land fá lít-
ið sem ekkert hráefni til vinnslu. Sjá síðu 4
RÉÐST Á SAMBÝLISKONUR Héraðs-
dómur Reykjavíkur dæmdi karlmann í sex
mánaða fangelsi fyrir ítrekaðar og tilefnislaus-
ar árásir á sambýliskonur sínar. Sjá síðu 2
LÆKKA SKATTA Danska ríkisstjórnin
hefur ákveðið að lækka skattaprósentuna
um tæp tvö prósent. Markmiðið með lækk-
un skattanna er að koma hreyfingu á efna-
hagslífið. Sjá síðu 2
MIKIL AUKNING Ríflega 7.000 tonn af
fersku grænmeti voru flutt hingað til lands í
fyrra, sem var rúmlega 13% aukning frá ár-
inu áður. Tekjur ríkissjóðs af innflutningnum
námu ríflega milljarði króna. Sjá síðu 6
MADRÍD, AP Spænska lögreglan telur
sig hafa borið kennsl á fimm
Marokkómenn sem eru grunaðir um
að hafa komið sprengjunum fyrir
sem kostuðu 201 mann lífið í tilræð-
inu í Madríd. Þá hefur maður af
alsírskum uppruna verið tekinn til
yfirheyrslu vegna gruns um að
hann hafi vitað af tilræðunum.
Franskur rannsóknarlögreglu-
maður kveðst hafa fundið bein
tengsl á milli Jamal Zougam, eins
þeirra sem voru handteknir á laug-
ardag, og trúarleiðtoga marokk-
óskrar öfgahreyfingar sem var
dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir þátt
sinn í mannskæðum árásum í Casa-
blanca í Marokkó á síðasta ári.
Danir kölluðu í gær eftir auknu
samstarfi leyniþjónusta ríkja Evr-
ópusambandsins. „Atburðirnir í
Madríd sýna fram á mikilvægi þess
að styrkja samvinnu við það að
vinna bug á hryðjuverkastarfsemi,“
sagði Anders Fogh Rasmussen for-
sætisráðherra.
Goh Kun, starfandi forseti Suð-
ur-Kóreu, fyrirskipaði í gær aukinn
varnarviðbúnað og vísaði til ótta við
árásir í kjölfar árásanna í Madríd.
Franska lögreglan hóf í gær
rannsókn á hótunum sem bárust frá
íslömskum hóp sem nefnir sig
„Þjónar Allah hins almáttuga og
vísa“ en ekki var gefið út hverju
hefði verið hótað. ■
nám o.fl.
SORG Á SELFOSSI Ungur drengur lést eftir að hafa orðið fyrir voðaskoti á Selfossi á mánudaginn. Mikil sorg ríkir í bænum vegna
atburðarins og lögðu börn rósir á bekk þar sem drengurinn fannst látinn. Sjá nánar bls. 10
Lögreglan telur sig komna á spor tilræðismanna í Madríd:
Leitað að fimm Marokkómönnum
Snýr sökinni upp á Sharon:
Qureia til í
viðræður
RAMALLAH, AP Ahmed Qureia, forsæt-
isráðherra Palestínu, segist reiðu-
búinn að hefja friðarviðræður við
Ísraela. Með þessu svarar hann
yfirlýsingu Ariels Sharon, forsætis-
ráðherra Ísraels, sem sagði í fyrra-
dag að ekki væri að finna einn ein-
asta palestínskan ráðamann til að
ræða við um frið þar sem Palestínu-
menn hefðu ekki staðið sig í að
koma í veg fyrir árásir á Ísraela.
„Ef Ísraelar halda áfram að segja
að það sé enginn Palestínumaður
reiðubúinn til viðræðna hljótum við
að segja að það sé enginn Ísraeli
reiðubúinn til viðræðna,“ sagði
palestínski forsætisráðherrann á
ráðstefnu um efnahagsmál sem
haldin var í Ramallah. Qureia sagði
Palestínumenn staðráðna í að leita
leiða við að koma á friði en að Ísra-
elar hlypust undan ábyrgð sinni. ■
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 23
Sjónvarp 28
ÁRÁSUNUM MÓTMÆLT
Fjöldi fólks kom saman í Alcala de Henares fyrir utan Madríd í gær og lýsti andstöðu sinni
við árásirnar á fimmtudag.
ARIEL SHARON
Ísraelskir og palestínskir ráðamenn saka
hvorir aðra um að hlaupast undan ábyrgð.
TETRA Einn lánardrottna Tetra Ís-
lands hefur, samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins, ekki tekið til-
boði um niðurfellingu hluta
krafna á hendur félaginu. Frestur
til þess rennur út á hádegi í dag.
Taki ekki allir kröfuhafar tilboð-
inu verður að freista þess að
semja á nýjan leik, leita gjald-
þrots eða leita eftir auknu hlutafé.
Sá sem hefur ekki tekið tilboðinu
vill fá tryggingu fyrir áframhald-
andi viðskiptum fallist hann á niður-
fellingu. Núgildandi samningur er
þannig að Tetra vill fá hann lag-
færðan, til lækkunar. Samkvæmt
tilboði Tetra fengi viðkomandi
greiddar tæpar 3,4 milljónir króna
af tæplega sjö milljóna kröfu.
Samkvæmt tilboði sem sent
var öllum kröfuhöfum í vikubyrj-
un mun Tetra greiða að fullu allar
kröfur undir einni milljón króna
að nafnvirði. Kröfur yfir einni
milljón verða greiddar með einni
milljón króna og að auki 40% af
eftirstöðvum.
Samtals eru fjórtan kröfur
hærri en ein milljón króna á hend-
ur Tetra frá þrettán lánardrottn-
um. Heildarupphæð þessara
stærstu krafna er rúmar 740
milljónir króna. Tetra hefur óskað
eftir því við tvo stærstu lánar-
drottnana, Lýsingu og Landsbank-
ann, að tæplega 322 milljónum af
566 milljóna heildarskuld við
lánastofnanirnar verði skuld-
breytt en afgangurinn, rúmar 240
milljónir, verði felldur niður.
Aðrir kröfuhafar sem eiga
milljón króna kröfu eða hærri á
hendur Tetra þurfa samkvæmt
samningnum að fella niður rúm-
lega 100 milljónir af kröfum sín-
um. Sparisjóður vélstjóra þyrfti
að fella niður rúmar 34 milljónir
af 57 milljóna kröfu og Landssím-
inn tæpar 38 milljónir af 65 millj-
óna króna kröfu.
the@frettabladid.is
Framtíð Tetra
gæti ráðist í dag
Frestur lánardrottna til að taka afstöðu til eftirgjafar hluta krafna sinna á
hendur Tetra Íslandi rennur út í dag. Að minnsta kosti einn kröfuhafa er
andvígur eftirgjöf þar sem Tetra vill segja upp þjónustusamningi við hann.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Kárahnjúkar:
Vinna
bönnuð
KÁRAHNJÚKAR Vinnueftirlitið hefur
bannað vinnu á þeim stað í Hafra-
hvammsgljúfri við Jökulsá á Dal
við Kárahnjúka þar sem banaslys
varð aðfaranótt mánudags vegna
grjóthruns.
Bannið kemur í kjölfar ákvörð-
unar Impregilo um að stöðva þegar
alla vinnu á svæðinu og gildir bann-
ið þar til tillögum öryggisnefndar
Impregilo um aukið öryggi hefur
verið hrint í framkvæmd. Öryggis-
nefndin skilaði tillögum sínum í
gær. Nefndin leggur til að reistir
verði tveggja til þriggja metra háir
veggir meðfram vinnusvæði, þar
sem menn vinna við bergið. ■