Fréttablaðið - 17.03.2004, Síða 2
2 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
„Já, ég er farinn að undirbúa söfnun.
Það hafa sjálfboðaliðar víðs vegar að
af landinu haft samband við mig og
boðist til að safna fyrir mig og ég hef
þegið það með þökkum.“
Snorri Ásmundsson tilkynnti fyrir ári að hann ætl-
aði að bjóða sig fram til forseta. Forsetaframbjóð-
endur þurfa að skila inn lista með 1.500 með-
mælum og mega þeir byrja að safna þeim þrem-
ur mánuðum fyrir kosningar.
Spurningdagsins
Snorri, ertu farinn að undirbúa söfn-
un meðmæla?
■ Írak
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær 35 ára karl-
mann í sex mánaða fangelsi fyrir
þrjár líkamsárásir á tvær fyrr-
verandi sambýliskonur sínar.
Dómnum þótti rétt að skilorðs-
binda fjóra mánuði af refsingunni
vegna dráttar á rannsókn málsins.
Fyrstu árásina sem maðurinn
var sakfelldur fyrir framdi hann á
heimili sambýliskonu sinnar í
mars árið 2001. Hann sló konuna
með krepptum hnefa margsinnis í
höfuð, bringu, bak, læri og hand-
leggi með þeim afleiðingum að
konan hlaut heilahristing og
marðist á brjóstkassa, mjöðmum
og handleggjum. Að lokinni
árásinni læsti ofbeldismaðurinn
sambýliskonuna inni í herbergi
lengi dags. Konan bar fyrir dómi
að ofbeldismaðurinn hefði ítrekað
hótað sér lífláti. Þá hefði hann í að
minnsta kosti eitt skipti reynt að
kæfa sig með kodda og brenna
með sígarettu. Ofbeldismaðurinn
hafi enn fremur sagst ætla að
eyða lífi sínu í að eyðileggja líf
konunnar og jafnframt hótað því
að sprengja hús foreldra hennar
og drepa móður hennar. Ákærði
kvaðst hafa verið í neyslu kókaíns
og áfengis meðan sambúðin við
konuna varði en neitaði ákæru-
atriðunum.
Síðari sambýliskona ofbeldis-
mannsins varð að minnsta kosti
tvisvar fyrir tilefnislausum lík-
amsárásum af hans hálfu. Hin
fyrri varð við Vífilsstaðavatn.
Ofbeldismaðurinn hrinti konunni
í jörðina, sparkaði í hana liggj-
andi og sló hana síðan ítrekað
inni í bíl með krepptum hnefa í
vinstri handlegg og öxl. Um það
bil viku eftir Vífilsstaðaárásina
réðst ofbeldismaðurinn aftur á
konuna, en þá á heimili hennar.
Hann reif í hár hennar og skellti
í gólfið, kýldi hana margoft og
sparkaði í hana liggjandi. Konan
dró líkt og fyrri sambýliskonan
að kæra ofbeldið og bar að of-
beldismaðurinn hafi sagst mundu
drepa hana eða láta drepa þá
manneskju sem kæmi honum í
fangelsi. Ákærði neitaði einnig
sök gagnvart síðari sambýliskon-
unni.
Rannsókn málsins dróst mjög
á langinn. Fyrri konan lagði fram
kæru 29. ágúst 2001 en var ekki
yfirheyrð hjá lögreglu fyrr en 19.
júlí 2002 eða tæpu ári síðar.
Ákærði var fyrst kallaður til yf-
irheyrslu í desember 2002 og
ákæra gefin út á hendur honum
17. júlí 2003.
Síðari sambýliskonan lagði
fram kæru 6. desember 2002.
Hún var yfirheyrð sama dag og
svo aftur 22. júlí 2003. Ákæra
vegna þeirra brota var gefin út
9. október 2003.
Í dómsorði Héraðsdóms
Reykjavíkur segir: „Þegar litið
er til framangreinds dráttar á
rannsókn málanna hjá lögreglu,
sem ekki hefur verið skýrður
nema að litlu leyti, þykir rétt að
fresta fullnustu fjögurra mán-
aða af refsivistinni, skilorðs-
bundið í þrjú ár.“
Ofbeldismaðurinn þarf því að
sitja í fangelsi í tvo mánuði og
greiða annarri konunni 200.000
krónur í miskabætur.
the@frettabladid.is
DANMÖRK Danska ríkisstjórnin hef-
ur ákveðið að lækka skattaprósent-
una um tæp tvö prósent. Markmiðið
með lækkun skattanna er að koma
hreyfingu á efnahagslífið. „Við nýt-
um okkur að efnahagslífið er sterkt,
sem gefur okkur svigrúm,“ segir at-
vinnumálaráðherrann Claus Hjort
Fredriksen. Hann segir þetta útspil
sýna að ríkisstjórnin taki af alvöru á
atvinnuleysi í landinu. Áætlað er að
lækkanirnar skapi störf fyrir tólf
þúsund manns á þessu ári. Atvinnu-
málaráðherran segir að með öðrum
ráðstöfunum sé reiknað með að 22
þúsund færri muni ganga atvinnu-
lausir í lok ársins en í upphafi þess.
Fram til þessa hefur ríkisstjórn
Anders Fogh Rasmussen haldið því
fram að efnahagslífið myndi taka
við sér af sjálfu sér. Skattalækkunin
ber með sér að stjórninni hefur þótt
hægt ganga að koma hjólum efna-
hagslífsins af stað.
Skattabreytingarnar munu þýða
að venjuleg launamannafjölskylda
mun hafa 840 dönskum krónum
meira á milli handanna á mánuði,
sem svarar til tæplega tíu þúsund
íslenskra króna. ■
Maður á sextugsaldri
dæmdur:
Áreitti ungar
stúlkur
DÓMSMÁL Maður á sextugsaldri
var í gær dæmdur fyrir kyn-
ferðislega áreitni gagnvart
þremur stúlkum á aldrinum
fjórtán til sextán ára.
Maðurinn var mjög drukkinn
þegar hann áreitti stúlkurnar á
veitingastað í austurbæ Reykja-
víkur. Hann strauk læri á einni
þeirra, þuklaði brjóst annarrar
og kleip í brjóst þeirrar þriðju.
Maðurinn neitaði sök, en fram-
burður stúlknanna og vitna þótti
trúverðugur.
Í dómi Héraðsdóms Reykja-
víkur segir að maðurinn hafi
sært blygðunarkennd stúlkn-
anna. Vegna ungs aldurs þeirra
hafi háttsemi hans verið til þess
fallin að hafa dýpri áhrif á þær
en ef um fullorðna einstaklinga
hefði verið að ræða.
Maðurinn var dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi. ■
Banaslysið við
Kárahnjúka:
Nafn manns-
ins sem lést
SLYSFARIR Maðurinn sem lést í
vinnuslysi við
Kárahnjúka að-
faranótt mánu-
dags hét Árni
Þór Bjarnason.
Árni Þór, sem
var frá bænum
Litla Sandfelli í
Skriðdal, var
fæddur 21. febr-
úar árið 1979.
Hann lætur eftir
sig unnustu, for-
eldra og systkini. Árni Þór var
starfsmaður Arnarfells við Kára-
hnjúkavirkjun. ■
FLÓÐSINS BEÐIÐ
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja, sagðist í gærkvöld hæfilega bjart-
sýnn á árangur björgunaraðgerða í Meðal-
landsfjöru.
Björgun Baldvins Þor-
steinssonar:
Önnur
tilraun gerð
í nótt
STRAND „Við reiknum með að reyna í
nótt. Það er háflóð rétt fyrir klukk-
an þrjú, þá reynum við,“ sagði Þor-
steinn Már Baldvinsson, forstjóri
Samherja, í Meðallandsfjöru í gær-
kvöld.
Um kvöldmatarleytið í gær var
búið að ganga frá tengingu aðal-
dráttartaugarinnar úr norska drátt-
arbátnum í stefni Baldvins Þor-
steinssonar EA og allur undirbún-
ingur gekk samkvæmt áætlun.
Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF,
var notuð við að koma tengingu á
milli skipanna og biðu menn flóðs-
ins þegar blaðið fór í prentun. Áður
en dráttur hæfist átti að reyna að
snúa skipinu með því að festa vír í
skutinn úr landi og snúa skipinu
með jarðýtum.
Þá stóð til að dæla loðnu og sjó úr
skipinu áður en dráttur hæfist. ■
LANDVARNIR Ef hryðjuverk yrði
framið á Íslandi myndi sérstök við-
búnaðaráætlun Almannavarna fara
í gang, að sögn Hafþórs Jónssonar,
deildarstjóra almannavarnadeildar
Ríkislögreglustjóra.
„Við erum með okkar almennu
áætlanir sem taka meðal annars á
viðbúnaði vegna hópslysa. Síðan fer
það eftir eðli atburðarins hvað þarf
að gera,“ segir Hafþór. „Við erum til
dæmis með áætlun vegna hugsan-
legs flugslyss á Keflavíkurflugvelli
sem gæti haft í för með sér svipað-
ar afleiðingar og sprengingarnar í
Madrid. Ef það yrði atburður sem
myndi leiða til þess að fjöldi manna
myndi slasast þá myndum við keyra
sama viðbúnaðarkerfi. Það sam-
anstendur af samhæfðri áætlun
allra þeirra sem koma að hópslys-
um – lögreglunnar, slökkviliðsins,
björgunarsveita, Rauða krossins og
heilbrigðisþjónustunnar.“
Varnir gegn hryðjuverkum eru í
höndum löggæsluyfirvalda. Frétta-
blaðið fór þess á leit við ríkislög-
reglustjóra að hann svaraði almenn-
um spurningum um það í hverju
þessar varnir væru helst fólgnar og
hvort til stæði að efla þær eftir
hryðjuverkin í Madrid. Haraldur
Johannessen ríkislögreglustjóri
sagðist í samtali við Fréttablaðið
ekki vilja tjá sig um málið og vísaði
á Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra. Þegar Fréttablaðið hafði
samband við dómsmálaráðuneytið
fengust þau svör að ráðherra vildi
ekki heldur tjá sig um málið. ■
Fékk afslátt vegna
dráttar á rannsókn
Héraðsdómur dæmdi karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir ítrekaðar og til-
efnislausar árásir á sambýliskonur sínar. Dómurinn skilorðsbatt tvo þriðju
hluta refsingarinnar vegna dráttar sem varð á rannsókn hjá lögreglu.
SAKFELLDUR FYRIR ÞRJÁR LÍKAMSÁRÁSIR Á FYRRUM SAMBÝLISKONUR
Árásir mannsins á tvær fyrrum sambýliskonur voru endurteknar og tilefnislausar. Hann spark-
aði í konurnar liggjandi og lét hnefahögg ítrekað dynja á þeim. (SVIÐSETT MYND)
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
ÁRNI ÞÓR
BJARNASON
Löggæsluyfirvöld neita að tjá sig um varnir gegn hryðjuverkum:
Almannavarnir með áætlun
TRÚBOÐAR MYRTIR Fjórir banda-
rískir trúboðar létu lífið þegar
óþekktir vígamenn hófu skothríð
á þá í Mosul í norðurhluta Íraks.
Þrír létust samstundis en einn á
sjúkrahúsi nokkrum klukku-
stundum síðar. Fimmti maðurinn
í hópnum lifði árásina af og er á
sjúkrahúsi.
ÞEGJA ÞUNNU HLJÓÐI
Hvorki Haraldur Johannessen né Björn
Bjarnason vilja tjá sig um varnir Íslands gegn
hryðjuverkum.
SKATTALÆKKANIR
Anders Fogh Rasmussen skoðaði stjórnar-
skrá Íslands með kollega sínum Davíð
Oddssyni. Davíð hefur lofað skattalækkun,
en Anders Fogh greip til hennar vegna at-
vinnuleysis og hægagangs í efnahagslífinu.
Danir bregðast við atvinnuleysi:
Skattalækkun sem vítamínsprauta
Maður á áttræðisaldri
sektaður:
Læknaði
án leyfis
DÓMSMÁL Fyrrum læknir á áttræðis-
aldri hefur verið dæmdur til að
greiða 100 þúsund króna sekt fyrir
brot á læknalögum.
Maðurinn var sviptur lækninga-
leyfi í nóvember árið 2002 en stund-
aði lækningar í hálft ár eftir það.
Landlæknir fór fram á það í apríl
2003 að starfsemi mannsins, sem
var með læknastofu í Reykjavík,
yrði stöðvuð. Maðurinn neitaði að
hafa stundað lækningar og sagðist
einungis hafa talað við vini og kunn-
ingja á stofu sinni. Dómurinn taldi
sekt hans hins vegar sannaða. ■