Fréttablaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 4
LOÐNUVERTÍÐ Mikil vonbrigði eru
með loðnuvertíðina. Enn eru
óveidd 211 þúsund tonn. Líkur á
að það sem eftir er veiðist fara
dagminnkandi. Vertíðin er ekki
svipur hjá sjón. Verst hafa Norð-
ur- og Norðausturland orðið úti
sakir veiðibanns í janúar og þess
að gangan virðist ekki ætla eins
vestarlega og oft áður. Við það
bætist svo bræla síðustu vikuna
sem bitnar hart
á uppsjávar-
vinnslu á Suður-
og Vesturlandi.
Hljóðið er dauft
í Siglfirðingum.
„Þetta eru um
5.200 tonn sem
eru komin í
verksmiðjuna á
þessari vertíð,“
segir Þórður Georg Andersen,
verksmiðjustjóri Fiskimjölsverk-
smiðju Síldarvinnslunnar á Siglu-
firði. Afkastageta verskmiðjunn-
ar er um 1.500 tonn á sólarhring.
Niðurstaðan er því tæplega fjög-
urra sólarhringa afköst verk-
smiðjuinnar. Þórður segir veiði-
bann í janúar hafa farið illa með
verksmiðjunna, auk þess sem
loðnan hafi ekki skilað sér nægj-
anlega vestarlega. „Það er ekki
mikil vertíðarstemning í bænum
þessa dagana,“ segir Þórður.
Hljóðið í mönnum sunnanlands er
ekki betra. Veður hefur hamlað
veiðum undanfarið og loðnan hef-
ur dreifst í brælunni. „Við erum
að reyna að eltast við þetta eins og
mögulegt er, en við ráðum ekki
við veðrið,“ segir Ægir Páll Frið-
bertsson í Vestmannaeyjum.
Brælan síðustu vikuna hefur sett
strik í reikninginn sunnanlands.
Eftir að brælunni lauk hefur
gengið illa að finna loðnuna. Nú
styttist í að hún hrygni og hver
dagur því dýrmætur. Uppsjávar-
fyrirtækin í Vestmannaeyjum og
á Vesturlandi byrjuðu seint. Útlit-
ið er því ekki gott hjá þessum fyr-
irtækjum.
Ef svo fer fram sem horfir
mun 240 þúsund tonna aukning
loðnukvótans ekki skila sér. Verð-
mæti þess sem eftir er upp úr sjó
er um 1,2 milljarðar. Verðmæta-
aukning við vinnslu er ríflega tvö-
falt hærri. Þjóðarbúið verður því
af um fjórum milljörðum ef ver-
tíðinni lýkur nú.
Atli Rafn Björnsson hjá Grein-
ingu Íslandsbanka segir stefna í
að loðnuvertíðin í ár verði afar
slök. Hærra hlutfall af heildinni
fór í frystingu, sem gefur hærra
verð. „Það er bót í máli að það
tókst að frysta töluvert á Rúss-
lands- og Japansmarkað.“ Hann
segir verð á mjöli og lýsi einnig
ágætt. „Það má segja að það sé
ljósið í myrkrinu.“
haflidi@frettabladid.is
4 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUR
Óttastu hryðjuverk á Íslandi?
Spurning dagsins í dag:
Telurðu að deila Ísraela og Palestínu-
manna muni leysast á næstu árum?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
64%
36%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
Á Norðurlöndunum eykst áfengisdrykkja mest á Íslandi:
Meðaldrykkjan 86 lítrar á mann
ÁFENGI Áfengisneysla á Íslandi
var 19,2 milljón lítrar á síðasta
ári og jókst hún um 3,2% miðað
við árið 2002 samkvæmt Hag-
stofu Íslands. Neyslan jafngildir
því að hver Íslendingur 15 ára og
eldri hafi drukkið rúmlega 86
lítra á síðasta ári.
Aukningin milli áranna 2002
og 2003 er minni en á milli ára
þar á undan. Talið í alkóhóllítrum
jókst neyslan um 0,9% milli ára,
sem þýðir að drukkið er meira af
léttum drykkjum. Árið áður en
bjórinn var lögleiddur skiptist
áfengisneyslan þannig að 77%
voru sterkir drykkir en 23% létt
vín. Nú hefur drykkjumynstrið
algjörlega snúist við og eru
sterkir drykkir komnir niður í
21%. Sterkir drykkir eru þeir
drykkir sem eru yfir 22% að
styrkleika.
Frá árinu 1995 hefur neysla
léttra vína eins og rauðvíns og
hvítvíns aukist mikið, en neysla
bjórs minna þó hún aukist
stöðugt milli ára. Samanborið við
hin Norðurlöndin hefur áfengis-
neysla aukist mest á Íslandi frá
1995. Hins vegar er neyslan
meiri á öllum hinna Norðurland-
anna nema Noregi, þar sem hún
er minnst. Grænlendingar
drekka mest en Danir fylgja
þeim fast á eftir. ■
Léleg loðnuvertíð í
banni og brælu
Norðan-, vestan- og sunnanlands er engin vertíðarstemning þessa dagana. Austfirðingar komast
þolanlega frá vertíðinni, sem stefnir í að verða ein sú lélegasta í langan tíma. Tap þjóðarbúsins
gæti numið fjórum milljörðum króna.
Forstjóri Og Vodafone:
Nýtti kaup-
rétt sinn
VIÐSKIPTI Óskar Magnússon, for-
stjóri Og Vodafone, keypti í gær
átta milljón hluti í fyrirtækinu.
Kaupin voru í samræmi við
kaupréttarsamning og á geng-
inu 2,1. Kaupverðið er því tæpar
17 milljónir króna. Verðmæti
þessa hlutar miðað við loka-
gengi gærdagsins er níu milljón
krónum hærra, 26 milljónir
króna. Venja er að kaupréttar-
samningar kveði á um eignar-
hald til lengri tíma, þannig að
mismunurinn er í skógi en ekki í
hendi. Óskar á ónýttan kauprétt
af átta milljón hlutum eftir við-
skiptin í gær. ■
RÚSTIR HÚSSINS
Sprengingin kvað við upp úr klukkan þrjú
að nóttu þegar flestir voru í fastasvefni.
Sprenging í fjölbýlishúsi:
Tugir létust
RÚSSLAND, AP Lögregla sakar tvo
heimilislausa menn um að hafa
valdið gassprengingu, sem kost-
aði á þriðja tug manna lífið. Menn-
irnir eru sakaðir um að hafa stolið
koparlokum af gasrörum til að
selja þær og er talið að gasleki
hafi leitt til sprengingarinnar.
Sprengingin kvað við um miðja
nótt í níu hæða fjölbýlishúsi í hafn-
arborginni Arkangelsk. Flestir
hinna um það bil 60 íbúa hússins
voru sofandi þegar sprengingin átti
sér stað. Tólf tímum eftir spreng-
inguna höfðu 26 lík fundist en þá
var tuttugu manns enn saknað.
Meðal þeirra látnu voru tvö börn. ■
ENDASLEPP VEIÐI
Nú stefnir í að um 200 þúsund tonna loðnukvóti veiðist ekki á vertíðinni. Þjóðarbúið verður af háum upphæðum og verksmiðjur víða
um land fá lítið sem ekkert hráefni til vinnslu.
„Það er ekki
mikil vertíðar-
stemning í
bænum
þessa dag-
ana.
SJÁVARÚTVEGUR Fiskaflinn í febrúar
var rúm 266 þúsund tonn og dróst
saman um 23 þúsund tonn miðað
við sama tíma í fyrra samkvæmt
upplýsingum frá Fiskistofu.
Samdrátturinn skýrist af
slakri loðnuveiði í ár en loðnuafl-
inn í nýliðnum febrúar var 29
þúsund tonnum minni en í febrú-
ar 2003. Loðnuaflinn í febrúar
var þannig aðeins 70 prósent af
meðalafla í febrúar síðustu 12 ár
og á því tímabili hefur febrúar-
aflinn aðeins einu sinni verið
minni, en það var 1998.
Heildaraflinn það sem af er
ári var í febrúarlok tæp 373 þús-
und tonn miðað við 545 þúsund
tonn á sama tíma í fyrra. Aflinn
hefur því dregist saman um 172
þúsund tonn milli ára. Loðnuafl-
inn dróst á þessum tíma saman
um 184 þúsund tonn.
Þorskaflinn í febrúar var tæp
21 þúsund tonn, sem er rúmlega
tvö þúsund tonnum meiri afli en í
febrúar í fyrra. Ýsuveiðin gekk
vel og nam aflinn um 8.500 tonn-
um, sem er rúmlega 64 prósenta
aukning milli ára. Afli annarra
botnfisktegunda var áþekkur og í
fyrra. Alls var botnfiskaflinn 45
þúsund tonn í febrúar, sem er
tæplega níu þúsund tonnum meiri
afli en í febrúar í fyrra.
Engin síldveiði var í febrúar
enda aflaheimildir veiðitímabils-
ins næstum uppurnar. ■
ÁGÆTUR ÞORSKAFLI
Þorskaflinn í febrúar var tæp 21 þúsund
tonn, sem er rúmlega tvö þúsund tonnum
meiri afli en í febrúar í fyrra.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VASamdráttur í veiðum á Íslandsmiðum:
Minnsta loðnuveiði í sex ár
EKKERT ENDURMAT
Dómari í máli Mijailo Mijailovic
hafnaði í gær beiðni verjenda
hans um að sálfræðimat hans
yrði endurskoðað. Sálfræðimatið
leiddi í ljós að Mijailovic væri
sakhæfur en það draga verjendur
hans í efa. Saksóknari fór fram á
lífstíðarfangelsi en refsing verð-
ur ákveðin 23. mars.
NÝR STJÓRNARFORMAÐUR
NORSK HYDRO
Jan Reinaas var kosinn nýr
stjórnarformaður Norsk Hydro á
aðalfundi félagsins í gær. Hann
tekur við af Egil Myklebost,
stjórnarformanni til þriggja ára
og forstjóra félagsins í níu ár þar
á undan.
HLEYPA LÍFI Í EFNAHAGINN
Danska ríkisstjórnin ætlar að
flýta skattalækkunum og draga
úr skyldubundnum lífeyrissparn-
aði í von um að hleypa nýju lífi í
efnahag landsins og skapa 22.500
ný störf næstu tvö árin. 200.000
Danir eru nú án atvinnu.
■ Norðurlönd
Barnaníðingur:
Vann með
lögreglunni
BRETLAND Sérfræðingur í barna-
klámi, sem hélt fyrirlestra fyrir
breska lögreglumenn um hvernig
ætti að vernda börn gegn kyn-
ferðislegri áreitni, hefur verið
dæmdur til sjö ára fangelsisvist-
ar fyrir kynferðislega misnotkun
á þremur stúlkum, að því er fram
kemur í breska blaðinu The
Independent.
Maðurinn, sem meðal annars
veitti ráð þegar refsingar barna-
níðinga voru ákveðnar, viður-
kenndi að hafa brotið gegn stúlk-
unum þremur, þar á meðal haft
mök við eina stúlkuna sem var
aðeins tíu ára. ■
ÁFENGISNEYSLA ÁRIN
1995 OG 2003
2003
1995 Létt vín 17%
Bjór 42%
Bjór 52%
Létt vín 27%
Sterk vín 41%
Sterk vín 21%