Fréttablaðið - 17.03.2004, Page 8
8 17. mars 2004 MIÐVIKUDAGUROrðrétt
NABLUS, AP Þó að Abdullah Quraan,
sem ísraelskir hermenn handtóku
við að flytja sprengju yfir landa-
mæri Vesturbakkans og Ísraels,
sé aðeins ellefu ára er ekki víst að
hann sé yngsti Palestínumaðurinn
sem vígamenn hafa tekið í sína
þjónustu.
Saga Abdullah er svipuð sögu
margra palestínskra barna. Börn-
in koma sér fyrir við landamæra-
stöðvar sem Ísrael-
ar hafa komið upp
og reyna að þéna
peninga með því að
bera eigur fólks
yfir landamærin.
Þannig sleppur
fólkið sem þarf að
koma hlutum yfir
landamærin við
langa bið og börnin
vinna sér inn peninga. Á góðum
degi geta þau unnið sér inn tutt-
ugu shekels, andvirði rúmra 300
króna.
En hlutirnir sem börnin bera
yfir eru margvíslegir. Í tilfelli
Abdullah var það sprengja og far-
sími sem mátti hringja í til að
sprengja hana. Hermenn veittu
því athygli að taska Abdullah var
þyngri en vænta mátti hjá svo
ungu barni og litu nánar í hana.
Þar fundu þeir sprengjuna og
segja að síminn hafi hringt. Það
segja þeir til marks um að víga-
mennirnir sem borguðu Abdullah
fyrir að fara yfir landamærin hafi
verið reiðubúnir að sprengja hann
í loft upp til að bana nokkrum her-
mönnum.
Sjálfur segist Abdullah ekkert
hafa gert af sér. „Þetta eru lygar-
ar,“ segir hann um hermennina.
„Ég trúi þeim ekki þegar þeir
segja að þetta hafi verið sprengja.
Þá hefðu þeir ekki sleppt mér
svona auðveldlega,“ sagði hann
daginn eftir að hann var handtek-
inn, þá kominn aftur í skólann.
Abdullah segir tvo menn hafa af-
hent sér pokann og borgað honum
tæpar 300 krónur fyrir að flytja
hann í gegnum varðstöðina.
Hinumegin hafi kona beðið eftir
að fá hann.
Þangað komst Abdullah aldrei
og var næstu klukkustundirnar í
haldi ísraelskra hermanna sem
spurðu hann spjörunum úr um
hverjir hefðu látið hann hafa pok-
ann og hverjum hann átti að af-
henda hann. Að því loknu var
Abdullah sleppt. Talsmaður hers-
ins segir algengt að börn séu
stöðvuð og upp komist að þau séu
að flytja vopn eða tæki fyrir víga-
menn. Þeim sé þó sleppt jafn
harðan þar sem þau séu of ung til
að gera sér grein fyrir alvöru
málsins. ■
Við hjá NTV leyfum okkur að fullyrða að þetta sé eina námskeiðið sem uppfylli
kröfur þeirra sem einhverja reynslu hafa í Photoshop. Kennt er á forritið með
með það í huga að það nýtist fólki í starfi. Námið hentar því þeim sem hafa
grunn en vilja fá dýpri þekkingu og skilning á nær óendanlegum möguleikum
þessa vinsæla verkfæris. Innifalið í náminu er alþjóðlegt próf sem gefur
gráðuna: - Adobe Certified Expert.
Inntökuskilyrði: Þeir sem hyggja á þetta nám þurfa að
hafa góða undirstöðuþekkingu á Windows umhverfinu
og reynslu af Photoshop eða að hafa lokið grunnnámi
í Photoshop. Mikið af námsgögnum eru á ensku.
Tími: Kennt er þriðjudags- og fimmtudagsmorgna frá
kl. 8:30-12:30. Námskeiðið hefst 30. mars og lýkur 28. maí.
UPPLÝSINGAR OG SKRÁNING Í SÍMA 544 4500 OG Á NTV.IS
Hlíðasmára 9 - Kópavogi
Mér finnst frábært hve mikil
áhersla var lögð á verklagið
og nauðsyn þess að þekkja
og skilja heildarmyndina.
Ég hafði talsverða reynslu en
komst fljótt að því hvað
þekking mín var takmörkuð.
Model IS 43 - 3 sæta sófi og tveir stólar
Verð áður kr. 239.000 stgr.
Verð nú aðeins kr. 159.000 stgr.
Einnig fáanlegt: 3ja sæta, 2ja sæta og stóll
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-17, sunnudaga 13-17
gæða húsgögn
Bæjarhrauni 12, Hf., sími 565-1234
Ekta ítölsk leðursófasett á ótrúlegu verði
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri 80.000 kr. afsl.
PALESTÍNSK BÖRN
Palestínskir vígamenn nota æ yngri börn til að flytja vopn fyrir sig,
að sögn ísraelskra yfirvalda.
■
Talsmaður hers-
ins segir
algengt að
börn séu stöðv-
uð og upp kom-
ist að þau séu
að flytja vopn
eða tæki fyrir
vígamenn.
Frekar slæmt
„Eins og staðan er í dag er þetta
eins og kona sem kemur til lækn-
is og kvartar undan verk í öxl en
læknirinn dregur úr henni tenn-
urnar.“
Ingi Bæringsson áfengisráðgjafi
gagnrýnir meðferðarúrræði. DV 16. mars.
Bannað að naga
„Á tíu fingur set ég french-línuna
þar sem c-kúrvan verður að vera
sú sama og hæðarpunkturinn sá
sami.“
Rósa Björk Hauksdóttir, nagla- og
förðunarmeistari. Fréttablaðið 16. mars.
Láttu ekki svona...
„Ég er kominn á þann aldur að ég
þarf að fá hvíld.“
Rúnar Kristinsson knattspyrnumaður hættir með
landsliðinu í bili. DV 16. mars.
Strákur tekinn
með sprengju
Ellefu ára strákur var handtekinn við að smygla
sprengju inn í Ísrael. Handtakan hefur vakið at-
hygli á því hversu ung börn vígamenn fá til starfa.
WASHINGTON, AP George
W. Bush Bandaríkja-
forseti hefur talsvert
forskot á John Kerry,
forsetaframbjóðanda
demókrata, samkvæmt
nýrri skoðanakönnun,
hann nýtur stuðnings
46% kjósenda, Kerry
38% en Ralph Nader
sjö prósenta. Ef aðeins
er spurt um Bush og
Kerry er munurinn
öllu minni, 46% gegn 43%.
Könnunin leiddi í ljós
að nær helmingur kjós-
enda hafði ekki myndað
sér skoðun á Kerry en inn-
an við fimmtungur átti
eftir að gera upp hug sinn
gagnvart Bush. Kosninga-
barátta beggja beinist nú
að því að skapa Kerry
ímynd, góða eða slæma
eftir því hvor kosn-
ingamaskínan á í hlut. ■
Forsetakosningar:
Bush með forskot
AFTUR Í HVÍTA HÚSIÐ
Bush snýr hér aftur úr
ferðalagi til Pennsylvaníu.
Ný könnun sýnir að hann
snýr aftur eftir kosningar.
LÝÐRÆÐI Ástþór Magnússon for-
setaframbjóðandi skrifaði í gær
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, bréf þar sem
Ástþór lýsir áhyggjum vegna
lýðræðishalla í umfjöllun fjöl-
miðla um forsetaframbjóðendur
á Íslandi. Ástþór vísar til um-
mæla Powells þess efnis að allir
frambjóðendur í forsetakosn-
ingunum í Rússlandi verði að
hafa jafnan aðgang að fjölmiðl-
um. Ástþór vekur athygli
Powells á því sem hann kallar
mismunun tiltekinna íslenskra
fjölmiðla í umfjöllun um for-
setaframbjóðendur og segir lýð-
ræðinu ógnað vegna misnotkun-
ar Sjálfstæðisflokksins á Morg-
unblaðinu og Ríkisútvarpinu.
Ástþór biður Powell að láta sig
fjölmiðlaumhverfi á Íslandi
varða og jafnframt vekur hann
athygli Powells á hugmyndum
um lagasetningu um eignarhald
á íslenskum fjölmiðlum. ■
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi:
Leitar til Powells
vegna lýðræðishalla