Fréttablaðið - 17.03.2004, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2004
Þetta er fyrst og fremst hugsaðsem upplýsingar um jeppa fyr-
ir konur,“ segir Ásgeir Þorsteins-
son, bifvélavirkjameistari og um-
sjónarmaður námskeiðs fyrir
konur um akstur jeppa á hálend-
inu. „Við förum í tæknileg atriði
varðandi jeppana og aksturseigin-
leikana. Þetta er mest í fyrir-
lestraformi og svo erum við með
jeppa á staðnum sem konurnar
hafa tækifæri til að skoða.“
Þetta er í þriðja skipti sem
svona námskeið er haldið. Ásgeir
segir að sumar kvennanna séu
með jeppa sjálfar og í jeppaferð-
um, en svo komi líka konur sem
eiga eiginmenn eða kærasta með
jeppadellu. „Þær vilja þá gjarn-
an kynnast þessum hlutum. Það
er mikið af peningum sem fer
í breytingar á jeppum og kon-
ur vilja auðvitað vita hvað er
að gerast. Það er eitt af því
sem farið er í, hverju er verið að
breyta, hvaða þýðingu það hefur
og hvað öll þessi orð og hugtök
þýða.“
Karlmönnum býðst ekki að
taka þátt í þessum námskeiðum
og það er viljandi gert.
„Konurnar eru öruggari þegar
engir karlar eru og þurfa ekki að
vera smeykar við að spyrja og
fræðast,“ segir Ásgeir og telur að-
spurður að hann hafi meira vit á
jeppum en konum. „Það gætu þó
verið einhver áhöld um það,“ seg-
ir hann hlæjandi.
Námskeiðið er haldið 29. og 31.
mars í Fræðslumiðstöð bílgreina í
Gylfaflöt 19. Það er Mímir Sí-
menntun sem stendur að nám-
skeiðinu. ■
Almenn inntökuskilyrði - Það sama gildir um allar námsbrautir við LBH að
umsækjandi þarf að hafa lokið stúdentsprófi eða öðru, sem háskólaráð telur
jafngilt. Námið tekur að lágmarki þrjú ár til B.S. prófs (90 einingar). Síðan er
hægt að bæta við sig 30 eininga sérnámi og rannsóknaþjálfun og brautskrást
með kandidatsgráðu (120 einingar).
Á Hvanneyri er þægileg nánd milli nemenda og starfsfólks og góð aðstaða
fyrir nemendur og fjölskyldur þeirra í starfi og leik. Þar eru nemendagarðar
fyrir fjölskyldur jafnt sem einstaklinga, grunnskóli og leikskóli. Útivistar- og af-
þreyingarmöguleikar eru fjölbreyttir og stutt í alla þjónustu. Hvanneyri er í um
klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík.
Háskólanám á Hvanneyri
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2004
Fjórar námsbrautir til BS prófs
Búvísindi
Fjölbreytt nám, með áherslu á búfjárrækt, jarðrækt og bú-
tækni auk margra valgreina. Undirstaða fyrir framhaldsnám í
búvísindum, ráðgjafastörf, kennslu og rannsóknir auk bú-
rekstrar.
Landnýting (landgræðsla)
Skipulag, nýting og umhirða lands með áherslu á land-
græðslu og náttúruvernd við íslenskar aðstæður. Hentar vel
til starfa við landgræðslu, náttúruvernd,kortagerð og hvers
kyns umhverfismál.
Skógrækt
Námsbrautin er ný á Hvanneyri og með tilkomu hennar er nú
fyrst hægt að nema þessi fræði á háskólastigi á Íslandi. Fjall-
að er m.a. um umhirðu og ræktun skóga, búskaparskógrækt,
ferskvatnsnýtingu, náttúruvernd og auðlindahagfræði.
Umhverfisskipulag (Landslagsarkítektúr)
Námið er fyrri hluti náms í landslagsarkítektúr og öðrum
skipulagsfræðum. Meðal áfanga er nýting og mótun lands,
hönnun útivistarsvæða, tölvustudd hönnun og vistfræði, mat
á umhverfisáhrifum, jarðvegsfræði og fríhendisteikning.
Framhaldsnám að loknu BS prófi
Kandidatsnám
Boðið er upp á eins árs viðbótarnám og rannsóknaþjálfun til
kandidatsprófs í búvísindum og landnýtingu. Námið hentar
þeim einkar vel sem ætla að verða leiðbeinendur í landbún-
aði t.d hjá: búnaðarsamböndum, landgræðslu og
skógrækt. Inntökuskilyrði er BS-próf frá LBH eða sambæri-
legt BS- nám frá öðrum háskólum.
Meistaranám (MS)
Meistaranám til 60 eininga í búvísindum. MS námið veitir
möguleika á sérhæfingu á sviði búfjárræktar, jarðræktar og
bútækni.
Meistaranám til 60 eininga í landnýtingu. MS námið veitir
möguleika á sérhæfingu á sviði landgræðslu, umhverfis-
stjórnunar, jarðræktar og bútækni.
MS-námið er skipulagt sem einstaklingsbundinn námsferill
með sveigjanlegri námsframvindu. Inntökuskilyrði er BS-
gráða í búvísindum, landnýtingu, líffræði, landafræði eða
annað sambærilegt BS-nám.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri - www.hvanneyri.is
HEILBRIGÐIS- OG
TRYGGINGAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
FSKS
Félag sérfræðinga
í klínisri sálfræði
Fræðsluerindi á vegum
Félags sérfræðinga í klínískri sálfræði
Haldið í Námunni, húsnæði Endurmenntunar Háskóla Íslands,
Dunhaga 7. Átta fyrirlestrar á fimmtudagskvöldum í mars 2004,
kl. 20:15-22:00
Opnir fyrirlestrar allir velkomnir
Fimmtudagur 18.3.
Hvað er hugræn atferlismeðferð?
Hugræn atferlis-meðferð við þunglyndi.
Auður R. Gunnarsdóttir, klínískur sálfræðingur
Þunglyndi og misnotkun áfengis.
Ása Guðmundsdóttir, klínískur sálfræðingur
Fundarstjóri: Oddi Erlingsson
Dagskráin er haldin með stuðningi
heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins
og verkefni Landlæknisembættisins,
Þjóð gegn þunglyndi.
Aðgangseyrir kr. 500,-
Þunglyndi
Sálfræðilegt sjónarhorn
ÁSGEIR ÞORSTEINSSON
Fræðir konur um allt sem viðkemur tækni-
legum atriðum jeppabifreiða.
Mímir símenntun:
Konur fræðast um jeppa
Safnafræði verður kenndvið Háskóla Íslands fráog með næsta ári, sem
30 eininga aukagrein til
BA-prófs. Að sögn Guðnýj-
ar Gerðar Gunnarsdóttur
borgarminjavarðar hefur
inngangur að safnafræði ver-
ið kenndur undanfarin ár og
mælst vel fyrir. En hvað
er safnafræði?
„Safnafræði er
fræðigrein sem
tengist starfsemi
safna. Hún fjallar
um söfn af ýmsum
toga og er þannig í
eðli sínu þverfag-
leg. Í safnafræði er fjall-
aðu um varðveislu,
söfnun og skráningu
muna og miðlun arf-
leifðar út á við, sýning-
ar og fræðslustarf,“
segir Guðný Gerður,
sem setið hefur í undir-
búningsnefnd fyrir
s a f n a f r æ ð i .
Námsbrautin
er samstarfs-
verkefni fé-
lagsvísinda-
deildar og
heimspeki-
deildar og
k ú r s a r
greinarinn-
ar úr báð-
um deild-
um.
Að sögn
Guðnýjar Gerðar hefur söfnum
hér á landi fjölgað og starfsemi
þeirra orðið umfangsmeiri.
„Safnafræðinni er meðal annars
ætlað að skjóta fræðilegri rótum
undir safnastarfið en enn fremur
að efla grunnhlutverk þeirra,
sem er að safna, varðveita og
sýna.“
Námið verður hagnýtt að
hluta og segir Guðný verið að
koma til móts við nemendur í
heimspeki- og félagsvísindadeild
með því að bjóða þeim upp á hag-
nýtt nám. „Nemendur vinna hag-
nýt verkefni, það má líta á þetta
að hluta til sem starfstengt
nám.“
Guðný Gerður segir safna-
fræði hafa vaxið fiskur um
hrygg erlendis og ekki sé ástæða
til að ætla annað en hún falli vel
í kramið hér. ■
Safnafræði kennd í Háskóla Íslands:
Þverfaglegt nám og hagnýtt
GUÐNÝ GERÐUR
GUNNARSDÓTTIR
Starfsemi safna verð-
ur æ umfangsmeiri.