Fréttablaðið - 17.03.2004, Qupperneq 25
KÖRFUBOLTI Keflvíkingar og Grind-
víkingar tryggðu sér sæti í undan-
úrslitum Intersport-deildarinnar í
körfubolt í gærkvöldi. Keflvíkingar
unnu Tindastól 98-96 en Grindvík-
ingar unnu KR-inga 89-84.
Keflvíkingar náðu þrisvar for-
ystunni gegn Tindastóli, 11-10 um
miðjan fyrsta leikhluta, 91-89 þegar
um tvær mínútur voru eftir og 98-
96 með síðustu körfu leiksins. Stól-
arnir skoruðu fyrstu átta stig leiks-
ins og leiddu 33-20 eftir fyrsta leik-
hluta, 54-44 í leikhléi og 72-65 eftir
þriðja leikhlutann. Clifton Cook fór
mikinn í liði Stólanna og skoraði 38
stig, David Sanders 24 og Svavar
Birgisson þrettán.
Derrick Allen skoraði 38 stig
fyrir Keflvíkinga og hélt þeim inni í
leiknum. Hann skoraði til að mynda
átján af 24 stigum liðsins í öðrum
leikhluta. Í fjórða leikhluta tóku
Nick Bradford og Arnar Freyr
Jónsson af skarið og skoruðu sam-
tals 28 af 33 stigum liðsins. Brad-
ford skoraði alls 24 stig í leiknum og
Arnar sextán.
Leikur Grindvíkinga og KR-inga
var ekki síður spennandi. Grindvík-
ingar höfðu frumkvæðið allan tím-
ann en KR-ingar áttu góðan leik í
þriðja leikhluta og náðu að jafna í
65-65. Í fjórða leikhluta náðu Grind-
víkingar tólf stiga forskoti en KR-
ingar voru nálægt því að vinna
muninn upp og jafna en þriggja
stiga skot þeirra geigaði. Grindvík-
ingar brunuðu upp og skoruðu síð-
ustu tvö stigin.
Darrel Lewis skoraði 28 stig fyr-
ir Grindavík, Jackie Rogers 24 og
Páll Axel Vilbergsson tólf en Anth-
ony Jones skoraði ellefu stig, tók
tólf fráköst og átti tíu stoðsending-
ar. Joshua Murray skoraði 29 stig
fyrir KR, Elvin Mims 23 en Skarp-
héðinn Ingason skoraði ellefu stig,
náði sex fráköstum og átti fimm
stoðsendingar. ■
25MIÐVIKUDAGUR 17. mars 2004
Akureyri, Gamli Lundur:
Miðvikudaginn 17. mars kl. 18:00.
Reykjavík, Suðurlandsbraut 12:
Fimmtudaginn 18. mars kl. 20:00.
Reykjavík, Suðurlandsbraut 12:
Þriðjudaginn 23. mars kl. 20:00.
AKUREYRI:
Miðvikudag - 24. mars.
REYKJAVÍK:
Þriðjudagskvöld - 30. mars
KYNNINGARFUNDUR: NÆSTA NÁMSKEIÐ HEFST:
Akurey
ri
Reykja
vík
Intersport-deildin í körfubolta:
Suðurnesjaliðin í undanúrslit
DERRICK ALLEN
Skoraði 38 stig fyrir Keflvíkinga.
Enska bikarkeppnin:
Millwall
áfram
FÓTBOLTI Millwall sigraði Tran-
mere 2-1 í ensku bikarkeppninni í
gær. Tim Cahill og Neil Harris
skoruðu mörk Millwall en Gary
Jones mark Tranmere. Millwall
leikur við Sunderland á Old Traf-
ford í undanúrslitum.
Heiðar Helguson skoraði fyrra
mark Watford sem vann Derby
County 2-1 á heimavelli. Gavin
Mahon skoraði seinna mark
Watford en Paul Peschisolido
skoraði mark Derby. Watford er í
sextánda sæti deildarinnar eftir
sigurinn. ■
RE/MAX-deildin:
Óvænt á
Nesinu
HANDBOLTI Valsmenn burstuðu
Stjörnuna 37-20 að Hlíðarenda.
Heimamenn höfðu mikla yfir-
burði þó þeir léku án Bjarka Sig-
urðssonar og Markúsar Mána
Maute.
Baldvin Þorsteinsson skoraði
tólf mörk fyrir Val, sex þeirra úr
víti, Kristján Karlsson skoraði
fimm, Hjalti Pálmason fjögur og
Hjalti Gylfason þrjú. Örvar Rud-
olfsson og Pálmar Pétursson
vörðu ellefu skot hvor en Örvar
varði ellefu af sextán skotum sem
hann þurfti að fást við, þar af tvö
víti. Vilhjálmur Hjálmarsson
skoraði níu mörk fyrir Stjörnuna,
fjögur þeirra úr vítum, og Björn
Friðriksson fimm.
Fram sigraði HK 30-24 í Digra-
nesi. Framarar náðu fljótlega
góðri forystu og náði HK aldrei að
ógna þeim þrátt fyrir mjög góða
markvörslu Björgvins Páls Gúst-
avssonar en hann varði 27 skot í
leiknum, þar af eitt vítakast.
Andrius Rackauskas skoraði
sex mörk fyrir HK, Alexander
Arnarson fjögur og Atli Þór Sam-
úelsson og Davíð Höskuldsson
þrjú hvor. Valdimar Fannar Þórs-
son skoraði níu mörk fyrir Fram,
Héðinn Gilsson sex og Stefán
Baldvin Stefánsson fjögur. Egidi-
jus Petkevicius varði 20 skot.
Grótta/KR vann Hauka 25-24 á
Seltjarnarnesi. Jafnræði var með
liðunum fram í seinni hálfleikinn
þegar Haukarnir náðu tveggja
marka forystu. Þeir leiddu fram í
lokin, 24-22, en þá tók Konráð
Olavsson af skarið og skoraði
tvisvar og fiskaði víti sem gaf sig-
urmarkið. Kristinn Björgúlfsson
skoraði átta mörk fyrir Gróttu/KR
og Konráð Olavsson sjö en Gísli
Guðmundsson varði 21 skot. Ás-
geir Örn Hallgrímsson skoraði
sex af mörkum Hauka, Vignir
Svavarsson fimm og Þorkell
Magnússon fjögur. Besti maður
leiksins var Birkir Ívar Guð-
mundsson en hann varði 27 skot í
marki Hauka.
KA sigraði ÍR 37-32 á Akur-
eyri. KA hafði yfirhöndina nánast
allan leikinn og leiddi 19-14 í leik-
hléi. ÍR-ingar náðu að minnka
muninn í tvö mörk en KA tók af
skarið og sigraði með fimm
marka mun. Andreus Stelmokas
skoraði 14 mörk, tvö úr vítum,
Einar Logi Friðjónsson og Arnór
Atlason skoruðu sjö hvor. Hans
Hreinsson varði ellefu skot og
Stefán Guðnason fimm. Sturla Ás-
geirsson skoraði níu mörk fyrir
ÍR, fimm þeirra úr vítum, Einar
Hólmgeirsson skoraði níu og
Hannes Jón Jónsson sjö. Ólafur
Gíslason varði fjórtán skot. ■
BALDVIN MARKHÆSTUR
Baldvin Þorsteinsson skoraði 12 mörk fyrir
Valsmenn í sigri á Stjörnunni.