Fréttablaðið - 06.07.2004, Side 1
● bestu tónleikar íslandssögunnar
Metallica:
▲
Massíf
stemning
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
STÓRLEIKUR Í KVÖLD FH-ingar
taka á móti Íslandsmeisturum KR í kvöld
í stórleik 9. umferðar Landsbankadeildar
karla. Leikurinn fer fram í Kaplakrika og
hefst klukkan 20.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA BJARTVIÐRI Þykknar heldur
upp vestan til síðdegis með dálítilli súld.
Hiti 10–20 stig hlýjast til landsins
norðaustan til. Sjá síðu 6.
6. júlí 2004 – 182. tölublað – 4. árgangur
DÓMSTÓLAR EKKI Á TÁNUM Jón
Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður
segir dómstóla ekki vera á tánum gagnvart
meinsærisbrotum. Sjá síðu 2
DEILUR UM HRINGBRAUT Óskað
hefur verið skýringa á fullyrðingum átaks-
hóps um að ágreiningur og pólitískir hags-
munir standi í vegi fyrir skipulagsvinnu í
borginni. Sjá síðu 4
KÖNNUN Í UNDIRBÚNINGI Félag
heyrnarlausra átti fund með ráðherrum
félags- og heilbrigðismála í mars þar sem
hugsanlegt var að heyrnarlausir hefðu mátt
þola kynferðislega misnotkun í ríkari mæli
en aðrir einstaklingar. Sjá síðu 4
ÁGREININGUR INNAN R-LISTANS
Vinstri grænir eru andvígir niðurrifi Austur-
bæjarbíós, segir borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks. Borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans segir
enga opinbera ákvörðun liggja fyrir. Sjá
síðu 6
36%50%
Kvikmyndir 18
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Íþróttir 14
Sjónvarp 20
Þorkell Máni Pétursson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Þjálfar
taplaust lið
● heilsa
Ásdís Halla Bragadóttir:
▲
SÍÐA 12
Klukkulaust
frelsi er best
● 36 ára í dag
Landsbankadeild kvenna:
▲
SÍÐA 23
Valsstúlkur komnar
með yfirburðastöðu
● lögðu íbv, 3-1, á Hlíðarenda
ÍRAK, AP Í það minnsta tíu manns
létu lífið þegar bandarískar her-
þotur vörpuðu sprengjum á íbúð-
arhús í írösku borginni Falluja í
gær.
Bandaríska herstjórnin sagði að
íslamskir hryðjuverkamenn hefðu
hafist við í húsinu og því hefði ver-
ið ákveðið að ráðast á það. Undan-
farið hafa Bandaríkjamenn í aukn-
um mæli gert loftárásir á hús þar
sem þeir telja hryðjuverkamenn í
hreyfingu Abu Musab al-Zarqawi
hafast við. Al-Zarqawi segja þeir
lykilmann í starfsemi al-Kaída í
Írak. Í það minnsta fjórar loftárás-
ir á hús vígamanna hafa verið
gerðar síðasta hálfa mánuðinn og
hafa tugir látist.
Sjúkrabílar þustu að húsinu í
austurhluta borgarinnar eftir loft-
árás Bandaríkjahers í gær. Þegar
þangað var komið blöstu lík þeirra
sem voru í húsinu og voru flest lík-
anna illa farin. Diaa Jumaili, lækn-
ir á sjúkrahúsinu í Falluja, sagði að
lík tíu manna hefðu verið flutt á
sjúkrahúsið. ■
ALÞINGI Hart var deilt á ríkis-
stjórnina á Alþingi í gær þegar
þing kom saman til sumarfund-
ar eftir rúmlega mánaðarhlé. Á
fundinum var nýtt frumvarp
ríkisstjórnarinnar um eignar-
hald á fjölmiðlum lagt fram en
snarpar umræður urðu um störf
þingsins. Halldór Blöndal, for-
seti þingsins, sleit þingfundi um
hálfri klukkustund eftir að hann
hófst þrátt fyrir að fjölmargir
þingmenn hefðu beðið um orðið
og biðu eftir að komast að.
„Ég hafði fullgilt tilefni til að
kveða mér hljóðs. Ég hafði lagt
fram spurningu í umræðunum
um störf þingsins þar sem ég
spurði hvort stjórnarfrumvarp-
ið væri þinglegt, hvort ekki
fælist í því augljós ásetningur
eða fyrirætlan að fara á svig við
stjórnarskrána og hafa af mönn-
um þjóðaratkvæðagreiðslu með
brellum,“ segir Steingrímur J.
Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, um uppþotið sem varð í
alþingishúsinu að loknum þing-
fundi í gær. Áður höfðu Davíð
Oddsson forsætisráðerra og
formenn stjórnarandstöðuflokk-
anna tekið máls.
Lagt hafði verið fram breytt
frumvarp ríkisstjórnarinnar um
eignarhald á fjölmiðlum og voru
þingmenn að ræða um störf
þingsins. Samkvæmt þing-
sköpum þarf að dreifa frum-
varpi á Alþingi tveimur sólar-
hringum áður en umræða um
það hefst og því mun umræða
um nýtt fjölmiðlafrumvarp ekki
hefjast fyrr en á morgun.
„Samkvæmt þingsköpum
hafa fundarmenn þennan rétt og
veit ég engin fordæmi þess að
þingmönnum hafi verið neitað
um hann. Þetta eru einfaldlega
mistök í þingsköpum og hlýtur
forseti þingsins að átta sig á
þeim og sjá eftir þeim,“ segir
Steingrímur.
Í samtali við Fréttablaðið
sagðist Halldór Blöndal, forseti
Alþingis, hafa slitið fundi þar
sem hann hefði talið málið út-
rætt. Að loknum þingfundi átti
forseti Alþingis síðan fund með
formönnum þingflokka stjórn-
arandstöðunnar og sagði
Halldór þann funda hafa verið
afar gagnlegan. „Að loknum
þeim fundi ákvað ég að verða
við beiðni um að láta kanna
hvort frumvarp ríkisstjórnar-
innar væri þinglegt,“ sagði
Halldór
Stjórnarandstaðan lýsti ein-
dreginni andstöðu við frum-
varpið á Alþingi í gær og jafn-
framt þá fyrirætlan ríkisstjórn-
arinnar að ræða ekki lög um
þjóðaratkvæðagreiðslu á sum-
arþingi eins og boðað hefði
verið. Frumvarp formanna
stjórnarandstöðuflokkanna um
þjóðaratkvæðagreiðslu var sent
fjölmiðlum í gær.
Sjá nánar á síðu 2 og 8.
sda@frettabladid.is
Lætur kanna hvort nýtt
frumvarp sé þinglegt
Fyrsta fundi sumarþings lauk með háreysti í þingsölum í gær. Stjórnarandstaðan deildi hart á
ríkisstjórnina. Forseti Alþingis lætur kanna hvort nýtt fjölmiðlafrumvarp sé þinglegt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Bandaríkjaher réðist á meint athvarf
hryðjuverkamanna:
Tíu féllu í loftárás
VOPNAHLÉ GILDIR ÁFRAM
Talsmaður herskáa shíta-klerksins Muqtada
al-Sadr segir vopahlé standa en baráttunni
ljúki ekki fyrr en Bandaríkjamenn fari.
Leiðtogafundur Íslands
og Bandaríkjanna:
Til fundar
við Bush
UTANRÍKISMÁL Davíð Oddsson for-
sætisráðherra hittir í dag George
W. Bush, forseta Bandaríkjanna, á
skrifstofu Bush í Hvíta húsinu í
Washington í Bandaríkjunum. Rætt
verður um alþjóðamál og samskipti
landanna en ekki fengust í gær
nánari upplýsingar um efni
fundarins.
Í fylgdarliði Davíðs eru þeir
Ólafur Davíðsson, ráðuneytis-
stjóri forsætisráðuneytisins,
Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður
ráðherra, og Albert Jónsson skrif-
stofustjóri. Föruneytið flaug utan
síðdegis í gær.
Illugi Gunnarsson staðfesti í
samtali við Fréttablaðið að ekki
væru aðrar viðræður á
dagskránni en forsetans og for-
sætisráðherrans. Davíð er
væntanlegur heim aftur á
fimmtudag. ■
FARINN Á FUND BUSH
Davíð Oddsson forsætisráðherra var glaðbeittur þegar hann veifaði ljósmyndara Fréttablaðsins fyrir utan alþingishúsið í gær
áður en hann hélt í flug til Washington til fundar við George W. Bush, forseta Bandaríkjanna.
Heimsins lengsta tónverk:
Stendur yfir
í 639 ár
BERLÍN, AP Tvær nótur bættust við
heimsins lengsta tónverk í mann-
lausri kirkju í Þýskalandi í gær.
Flutningur hófst fyrir þremur árum
en hann mun í heild taka 639 ár.
Tónverkið er leikið á orgel og
hófst með þögn í september 2001.
Þrjár nótur bættust við í febrúar á
síðasta ári og mynda hljóm með hin-
um tveimur sem bættust við í gær.
Lóð eru notuð til þess að halda
hljómnum lifandi árum saman.
Hljómurinn mun óma þar til í
mars 2006 þegar tvær nótur verða
fjarlægðar úr honum. ■
SÍÐA 18-19