Tíminn - 22.09.1972, Side 19
Föstudagur 22. september 19V2.
TÍMINN
19
Grein Inga F~Ӓal8d
Undir lok greinar sinnar vekur
ritstjórinn máls á þvi, að i rit-
deilum kunni aukaatriði að
skyggja um of á aðalatriði. Þess
vegna hyggst hann nú snúa sér að
kjarna málsins, sem sé þeim, að
samkvæmt tölum opinberra aðila
séu vinnuaflsafköst i landbúnaði
um það bil helmingur af vinnu-
aflsafköstum i sjávarútvegi, og
þessi niðurstaða hafi verið notuð
til að benda á ,,ófremdarástandið
i málefnum landbúnaðarins”.
Og enn segir ritstjórinn: ,,Næst,
þegar þeir (þ.e.a.s. Ingi Tryggva-
son og aðrir málssvarar landbún-
aðarstefnunnar) skrifa um þetta
mál. ættu þeir að koma beint að
efninu. Þeir segja. að opinberar
tölur um afköst vinnuafls og fjár-
magns i landbúnaði séu gróflega
rangar. Gott og vel. Hver er þá
hin rétta niðurstaða?” Og siðan
með stóru letri: ..Hver eru vinnu-
aflsafköstin i landbúnaði, sam-
kvæmt þeirra áliti? Hver er
framleiðni atvinnugreinarinnar
önnur en sú, sem opinberar
skýrslur herma? ”
Þessar ályktanir i lok greinar rit
stjórans eru „næsta furðulegar”,
svo að notuð séu orð hans sjálfs.
Umræður þær, sem hann sjálfur
hefur tekið þátt i ásamt okkur
Birni Matthiassyni hafa fyrst og
fremst snúizt um það, hvort fjöldi
tryggingarskyldra vinnuvikna sé
réttur mælikvarði á „vinnuaflsaf-
köst” i landbúnaði eða ekki.
Sjálfur hefur ritstjórinn i ööru
orðinu viðurkennt, að svo muni
ekki vera, en samt getur hann
ekki stillt sig um að festast aftur i
sama farinu — hefur litið skilið og
ekkert lært. En hann heimtar
skýr svör. Ég er ekki hagfræð-
ingur og ræð ekki yfir þvi verk-
færi, sem til þess þarf að meta til
sanns framleiðni i einni atvinnu-
grein eða annarri. Ég hef fært að
þvi rök,að fjöldi tryggðra vinnu-
vikna sé ekki hæfur mælikvarði i
einni ákveðinni atvinnugrein, og
þessum rökum hefur hvergi verið
mótmælt með gagnrökum. Ég hef
bent á einfalda aðferð til að auka
„framleiðni” landbúnaðarins,
þ.e. að hækka búvöruverð til
bænda. Framleiðni annarra at-
vinnugreina er aukin með slikum
aðferðum. En þótt ég treysti mér
ekki til að nefna ákveðnar tölur
um „framleiðni” i landbúnaði er
ég þess fullviss, að engum sjáandi
manni dylst, að bændur liggja
ekki á liði sinu, ljúka ekki siður
sinu dagsverki en aðrar stéttir
þjóðfélagsins. Ef „vinnuaflsaf-
köst” bændastéttarinnar eru
lægri en einhverra tiltekinna
stétta annarra, er það ekki af-
kastaleysi bændanna um að
kenna, heldur ytri aðstæðum, svo
sem mati þjóðfélagsins á verð-
mæti vinnuafls þeirra.
Ritstjóri Alþýðublaðsins talar
um „ó'fremdarástand” i málefn-
um landbúnaðarins. Hann gerir
þó enga tilraun til að finna þeim
orðum stað. t hverju er þetta
„ófremdarástand” fólgið og er
slikt ástand hvergi að finna nema
i landbúnaði, að dómi Alþýöu-
blaðsritstjórans? Það er bæði
auðvelt og ábyrgðarlaust að veit-
ast að ákveðinni starfsstétt með
heimatilbúnum rakalausum full-
yrðingum um afkastaleysi og
ódugnað. Auðvitað á land-
búnaðurinn hér eins og alls staðar
i heiminum við ýmis erfið vanda-
mál að etja. t vimu þeirrar öru
iðnbyltingar, sem við stöndum nú
mitt i, hefur vissum þjóðfélags-
hópum gleymzt, að landbúnað-
urinn er grundvallarundirstaða
atvinnu og menningarlifs hverrar
þjóðar. Augu ýmissa þjóða hafa
nú þegar opnazt fyrir þessari
staöreynd. Þurfum við að brjóta
landbúnaö okkar i rúst til þess að
okkur skiljist þetta lika? Er
okkur ekki bæði þjóðfélagsleg og
efnahagsleg nauðsyn að viðhalda
i aðalatriðum byggð landsins og
vera tilbúnir. er aðstæður kalla,
að nýta land okkar til stórauk-
innar matvælaframleiðslu fyrir
sveltandi heim? Mér þætti verð-
ugra verkefni fyrir ritstjóra
Alþýðublaðsins, að hann reyndi
að kynna sér og skilja islenzkan
landbúnað og hlutverk hans i nú-
tið og framtið fremur en að ergja
sjálfan sig og aðra með grunn-
færnislegum blekkingaskrifum
um málefni landbúnaðarins.
17/9 1972
Ingi Tryggvason.
Lokað vegna jarðarfarar
herra Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi
forseta íslands, i dag föstudaginn 22. sept.
1972, kl. 13 - 15.30.
Alþýðubankinn h.f.
Iðnaðarbanki íslands h.f.
Samvinnubanki íslands h.f.
Verzlunarbanki íslands h.f.
í
)oenad hetr
SKIPAUTGCRÐ RIKISINS
M/S HEKLA fer frá
Reykjavik 27. september
austur um land i hringferð-
Vörumóttaka i dag, á mánu-
dag og þriðjudag til Aust-
fjarðarhafna, Þórshafnar,
Raufarhafnar, Húsavikur og
Akureyrar.
’Vcuvctej?
Þéttir gamla og nýja
steinsteypu.
SIGMA H/F
Bolholti 4,
simar 38718—86411
naglann
hofuðið
Næst þegar þú
kaupir verkfæri,
vertu viss um
að það sé
STANLEY
Menntamálaráðuneytið
gengst fyrir
námskeiði
i Gagnfræðaskóla Austurbæjar fyr-
ir væntanlega iðnaðarmenn, sem ekki
hafa lokið miðskólaprófi og eru orðnir 18
ára.
Innritun á námskeiðið fer fram i skól-
anum föstudaginn22. sept. kl. 17-18. Mikil-
vægt er, að allir sem óska að sækja nám-
skeiðið, mæti til innritunar, eða staðfesti
fyrri umsókn með simskeyti.
Menntamálaráðuneytið,
Iðnnemar
Nokkrir iðnnemar verða innritaðir næstu
daga. Óskað er eftir að þeir mæti sjálfir til
innritunar.
= HÉÐINN =
Simi 24260
Tilboð óskast
Bedford sendiferðabifreið, árgerð 1971,
skemmda af eldi.
Bifrciðin vcrður til sýnis i dag og á morgun i kjallara Nýju
Sendibilastöðvarinnar, Skeifunni 8, Iieykjavik.
Tilboð sendist til Sam vinnutrygginga, Tjónadeild, Armúla
3, fyrir hádegi á mánudag 25. september 1972.
Lokað
Vegna útfarar herra Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, fyrrverandi forseta íslands, verða
skrifstofur tollstjóraembættisins lokaðar
frá kl. 12 föstudaginn 22. september.
Tollstjórinn I Reykjavik.
Tilboð óskast
i nokkrar fólksbifreiðar og jeppabifreið,
er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðju-
daginn 26. september kl. 12- 3.
Tilboðin verða opnuð i skrifstofu vorri kl
5.
Sölunefnd varnarliðseigna.
arphögglar heíífódur
Blandað hænsnakom
DANSKT ÚRVALSFÓDUR FRÁ FAF
<**•
■i