Tíminn - 08.11.1972, Síða 6

Tíminn - 08.11.1972, Síða 6
6 TÍMINN Miðvikudagur 8. nóvember 1972 ALÞINGI Umsjón: Elías Snæland Jónsson Heildarkostnaður við umbætur á frystihúsum um 3000 millj. - talið, að nýju skuttogararnir standi undir fjármagnskostnaði í sameinuðu þingi i gær svaraði Lúðvik Jósepsson sjávarút- vegsráðherra, fyrir- spurnum um afkomu skuttogara og afkomu hraðfrystihúsa. Kom fram i svörum ráðherr- ans, að kostnaður vegna endurbóta á frystihús- um gæti orðið tæplega þrjú þúsund milljónir króna. Kinnig kom fram, að miðað við áætlun um aflamagn, verðlag og mannafjölda á nýju togurunum, ættu bæði stærri og minni togar- arnir að geta staðið undir fjár- magnskostnaði. t fyrirspurn Lárusar Jónssonar (S) um afkomu togara var spurt, hvort gerðar hafi verið af hálfu opinberra aðila áætlanir um af- komu þeirra gerða af skuttogur- um, sem nú eru i smiðum fyrir ýmsa útgerðaraðila og siðan spurt um einstök atriði varðandi grundvöll slikra áætlana. Sjávarútvegsráðhérra benti i upphafi á, að skip þessi væru ekki keypt af rikinu, né myndi rikið reka þau. Þess vegna væri það fyrst og fremst kaupendanna að gera áætlanir um rekstur skip- anna. Samt sem áður hefðu verið gerðar áætlanir um rekstur tog- aranna, sem og annarra fiski- skipa og þær endurskoðaðar nokkrum sinnum. Aætlanir um tap eöa ágóða i rekstri skipanna færu aö miklu leyti eftir þvi, hvaða meginfor- sendur væru lagðar til grundvall- ar — en þar væru margir þættir breytilegir, svo sem tölur um aflamagn, mannafjölda á skipun- um og fiskverð. Væri hins vegar miðað við 4000 tonna afla fyrir stærri togarana og :I000 tonna afla hjá minni skip- unum, verðlagi eins og nú væri helzt gengið út frá, og áætlaðan l'jölda manna á skipunum, þá myndu bæði stærri og minni tog- ararnir standa undir eðlilegum fjármagnskostnaði. Áætlaður fjármagnskostnaður stóru logaranna væri 15 milljónir á I. ári, en 11.7 milljónir á 5. ári, en fyrir minni togarana 12.7 milljónirá 1. ári og 9.7 milljónir á 5. ári. Hæfileg upphæð árlegra af- skrifta þeirra væri hvað stóru togarana snertir talin 6—8.7 milljónir eftir verði skipanna, en fyrirminni skipin 5.1—6.1 milljón einnig eftir verði togaranna. Ráðherra sagði, að gert væri ráð fyrir að afla Fiskveiðisjóði lánsfjár i samræmi við skipa- kaupin frá ári til árs, en ekki með einni heildarlántöku. Ráðherra sagði, að við mat á afkomu skipanna, sem hann hefði miðað við, væru ekki óvarleg áætlun samkvæmt reynslunni af gömlu togurunum og öðrum islenzkum fiskiskipum. Fyrirspyrjandi taldi, að svörin væru heldur óákveðin, og bentu til, að litlar áætlanir hafi verið gerðar. Samt væri fullyrt að skip- in myndu standa undir f jár- magnskostnaði. 1 fyrirspurn Lárusar Jónssonar um afkomu hraðfrystihúsa var Ný reglugerð sett um rikisútvarpið Erfiður fjárhagur rikisútvarpsins Miðað við uúverandi tekju- grundvöll eru vissulega dökkar horfur i fjármálum rikisútvarpsins, — sagði Magnús Torfi ólafsson, inenntamálaráðherra, i um- ræðum i sameinuðu þingi i gær. Umræöurnar um fjármál ríkisútvarpsins spunnust af fyrirspurn frá Gylfa Þ. Gísla- syni (A) um það, hvers vegna hefði dregizt að setja reglu- gerð um framkvæmd útvarps- laganna frá 5. april 1971. 1 svari menntamálaráð- herra kom fram, að reglu- gerðin væri nú þegar undir- rituð. Það hefði hins vegar verið skoðun bæði forráða- manna útvarpsins og ráðu- neytisins, að ekki hefði verið rétt að hraða um of setningu reglugerðar, fyrr en nokkur reynsla væri fengin á ýmis at- riði hinna nýju útvarpslaga — og þótt reglugerð hefði nú verið sett, þá mætti gera ráð fyrir þvi, að á henni þurfi fyrr en varir að gera nokkrar breytingar — og jafnvel að endurskoða þurfi útvarpslögin sjálf fyrr en siðar. Jón A. Héð- insson (A) spurðist fyrir um afkomumöguleika útvarps og sjónvarps fyrir árið 1973 og vitnaði til upplýsinga útvarps- stjóra til fjárveitinganefndar um, að miðað við núverandi tekjustofna vantaði tugi milljóna til útvarpsreksturs- Menntamálaráðherra sagöi. að fjárhagsafkoman inyndi fara eftir þeim tekju- stofnum, sem endanlega yrðu ákveðnir, en miðað við núver- andi tekjugrundvöll væru horfurnar mjög dökkar. ltin nýja reglugerð skcrti enn tekjurnar, þar sem i lienni fælust ákvæði um vissar eftir- gjafir á afnotagjöldum, og yrði að taka tillit til þess þcgar tekjustofnarnir yrðu ákveðnir. Þorvaldur -G. Kristjánsson (S) sagði, að fjármál rikisút- varpsins væru mjög erfið, þar sem .ekki hefði fengizt sú hækkun afnotagjalda, sem út- varpið teldi nauðsynlega. Nefndi liann sem dæmi, að i áætlun rikisútvarpsins hefðu afnotagjöld hljóövarps þurft að vera 1700 krónur i stað 1300 og sjónvarps 4100 i stað 3100, á þessu ári til aö fulinægja þörfum útvarpsins. Einnig tóku til máls Bene- dikt Gröndal (A) og Gylfi Þ. Gislason (A). spurt, hvort gerðar hafi veriö áætlanir um fjárfestingarþörf hraðfyrstiiðnaðarins vegna endurnýjunar, stækkunar og auk- inna hreinlætiskrafna. Var þar bæði spurt um heildarupphæð, fjármagnsútvegun og um áætlaða rekstrarniöurstöðu hraöfrysti- húsanna næstu þrjú árin. Isvörum sjávarútvegsráðherra kom fram, að Framkvæmda- stofnun ríkisins vinnur nú að gerð áætlunar um þetta efni. Samkvæmt þeim upplýsingum, sein þegar lægju fyrir, væri talið, að framkvæmdir I frystihúsum á næstu árum vegna bættra hollustuhætta gætu numið 15—16 hundruö milljónum króna. Þá væri talið, að kostnaður vegna nýbygginga og stækkana við frystihúsin næmi 6—7 hundruð milljónum, og framkvæmdir sem fyrst og fremst yrðu kostaðar af sveitarfélögum næmu 500-750 milljónum, þannig að heildarupp- hæðin gæti orðið 2950 milljónir króna. Lán til þessara framkvæmda úr Fiskveiöisjóði næmu i ár rúmlega 300 milljónum og yrðu um 400 . milljónir á næsta ári. Væru þessi lán einkum til framkvæmda vegna aukinna hreinlætiskrafna. Ráðherra sagði, að engin áætl- un væri sér vitanlega til um rekstrarafkomu hraðfrystihús- anna þrjú ár fram i timann, og hefði slik áætlun aldrei verið gerð. Hins vegar myndi rikis- stjórnin að sjálfsögðu miða tillög- ur sinar i efnahagsmálum við það, að eðlilegur grundvöllur sé fyrir rekstur sjávarútvegsins á næsta ári. Einnig tók til máls Jón Arnason (S) og sagði, að áætlaðar tölur SH og frystihúsa á vegum SIS væru miklu hærri en þær tölur, sem ráöherra hefði lagt fram, og taldi hann þetta stærra mál en ráða mætti af svörum ráðherrans. Samgönguþáttur Norðurlandsáætlunar 1973: 50 milljónir til flug- og hafnamála Áætlunardeild Framkvæmdastofnunar rikisins vinnur nú að tillögugerð um framkvæmdir i flug- og hafnamálum sem hluta af samgönguþætti Norður- landsáætlunar. Endanleg ákvörðun hefur ekki verið tekin, en áætlað er i þessum tillögum, að leggja fram 25 milljónir króna til hvors þáttar fyrir sig. Þctta kom fram i svari Ólafs Jóhannessonar, forsætisráð- herra, við fyrirspurn Lárusar Jónssonar (S) i Sameinuðu þingi i gær. Kyrirspurnin var svohljóðandi: Kr áformaö, að flug- og hafnamál verði tekin inn i samgönguþátt Norðurlandsáætlunar á næsta ári, svo sem Fjórðungssamband Norðlendinga hefur lagt áherzlu á? i svari sinu sagði forsætisráð- lierra, að i þcim tillögum, sem framkvæmdastofnunin ynni nú að, væri m.a. gert ráð fyrir fram- kvæmdum við nýja flugvelli á Sauðárkróki og Biönduósi og flug- brautarljósum á Húsavik og viðar. Þá væri gert ráð fyrir hafnar- framkvæmdum á Skagaströnd, llofsósi, Siglufirði og Ólafsfirði. Hins vegar væri endanleg ákvörðun ekki tekin, og eins liefðu þessar tiliögur ekki enn verið ræddar við Fjórðungs- snmband Norðlendinga. i gær var fundur i sameinuðu þingi, og tóku fyrirspurnir mestan fundar- timann — en þeirra er nánar getið á öðrum stað. A þingfundinum var mælt fyrir tveimur tillögum til þingsályktunar. Lánsfé til hitaveitu- framkvæmda Jón A. Iléðinsson (A) mælti fyrir þingsályktunartillögu, sem hann flytur ásamt Stefáni Gunniaugssyni (A), um lánsfé til hitaveituframkvæmda. i tillögunni er skorað á rikis- stjórnina að gera ráðstafanir til að tryggja sveitarfélögun- um lánsfé til hitaveitufram- kvæmda. Fjárlagaáætlanir Þá mælti Magnús Jónsson (S) fyrir tiiiögu til þingsá- lyktunar um fjárlagaáætlanir, þar sem skorað er á rfkis- stjórnina að fela Fjárlaga- og hagsýslustofnuninni að gera fjögurra ára áætlun um þróun útgjalda og tekna rikissjóðs miðað við gildandi iagaskuld bindingar og tekjuheimildir og aukningu ólögbundinna út- gjaldaiiða með hliðsjón af fenginni reynslu. Verði að þvi stefnt að fjáriagaáætlanir þessar geti fylgt næsta fjár- lagafrumvarpi. t framsöguræðu sinni benti flutningsmaður á, aö sifeilt stærri hluti þjóðarframleiðsi- unnar, færi til opinberra þarfa, og væri þvi fyiista ástæða til að ihuga hvert stefndi i þeim efnum. Aætianagerð af þvi tagi, sem hér væri bent á, væri fram- kvæmd m.a. á Norðurlöndum. Deildarfundir í dag i dag eru fundir i báðum deildum. i efri deild er frumvarp um rikisborgararétt tii 1. umræðu. i neðri deild eru þrjú mál á dagskrá. Frum- varp um bann gegn veiðum með botnvörpu og flotvörpu, er til 1. umræðu, framhaidið er 1. umræðu um frumvarp um Fra m lciðsiuráð land- búnaðarins, og frumvarp um menntaskóla er til 1. umræðu. Mennfamálaráðherra um námslánin: Úthlutun haustlána getur hafízt nú þegar Úthlutun haustlána úr Lána- sjóði islenzkra námsmanna getur hafizt nú þegar, — sagði Magnús Torfi ólafsson. menntamálaráð- herra. i svari við fyrirspurn frá Gylfa Þ. Gislasyni (A) i samein- uðu þingi i gær. Fyrirspurn Gylfa var svohljóð- andi: ,,Hver er orsök þess, að enn hefur engin úthlutun haustlána úr Lánasjóði islenzkra námsmanna farið fram?” Er Gylfi mælti fyrir fyrirspurn sinni, rakti hann nokkuð sögu lánasjóðsmálanna frá þvi haust- lán voru tekin upp fyrir nokkrum árum, og sagði að siðustu tvö árin hafi haustlán numið 1/3 af heildarlánum til námsmanna. Nú væri hins vegar ekki farið að veita eitt einasta haustlán, vegna þess að sjóðurinn hefði ekki fé. t svari menntamálaráðherra kom fram, að mjög hefur verið rýmkað um það hvaða náms- menn geta fengið haustlán. Upp- haflega var einungis um náms- menn erlendis að ræða, en nú geta námsmenn hér innanlands einnig fengið haustlán, ef þeir geta sýnt fram á, að þeir hafi þörf á þvi. Hins vegar verður nú miðað við, að fjárhæð haustlána fari eftir raunverulegri fjárþörf lántaka i hverju tilfelli — en verði ekki sami ákveðni hluti námslánsins fyrir alla. Ráðherrann sagði, að fjárþörf sjóðsins vegna haustlána væri leyst með lánum frá bönkum og peningastofnunum. Hafi verið unnið að fjármagnsútvcgun að undanförnu, og væri henni ekki enn lokið, en hins vegar það langt á veg komin, að greiðsla haust- lána gæti hafizt nú þegar. Benti ráðherrann á, að ekki væri um óeðiilegan drátt að ræða, þar sem umsóknarfrestur um lánin hefði runnið út 1. nóvember s.l. Ellert B. Schram (S), spurði hvað liði endurskoðun laganna um námslán. Menntamálaráðherra sagði, að þeirri endurskoöun væri ekki lok- ið, en þriggja manna nefnd ynni að þeirri endurskoðun. 1 nefnd- inni eru Árni Gunnarsson frá menntamálaráðuneytinu, Gunn- ar Vagnsson formaður stjórnar lánasjóðsins, og Þorsteinn Vilhjálmsson, sem lengi hefur setið i stjórn sjóðsins sem fulltrúi námsmanna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.