Tíminn - 10.12.1972, Blaðsíða 20
20
TÍMINN
Sunnudagui' 111. desember III72
l.itil liknesk ja al' Jóhannesi guöspjallamanni var nýlega seld á uppboðii l.undúnui.i fyrir nálega niu
milljónir króna. I.ikneskju |>essa fann bóndi i SulTolk i maimánuði siðast liðnum. er hann var að lú i
garði síiium.
Steingrímur Sigurðsson:
ANDLEGUR HEIÐARLEIKI
Um hina nýju bók Péturs Eggerz sendiherra, Létta leiðin Ijúfa
Bókin nýja, LlTTTA LKIÐIN
LJÚKA el'tir Pétur Kggerz sendi-
hcrra, scm c • skral'að og skril'að
um i islenzkri óða önn þessa dag-
ana, meira en nokkra aðra bók á
markaðnum, er þrátt l'yrir allt
samkvæmishæf eins og diplómat,
sem kann silt l'ag, kurteis út i
lingurgóma, en miskunnarlaus
undir lúfmannlegu yl'irborði. llún
er eins og lyrri bók sendiherrans,
sem kom lyrir jólin i l'yrra, undir-
sögð, sem er óvenju lislrænn frá-
sagnarmáli, miðað við ril-
mennskuhátt islendinga. sem
lást við að setja saman bækur nú
á dögum. Gullpennarnir, sem
skráðu i'ornsögurnar, kunnu
þessa list út i hörgul.
újóðlræg persóna eins og ólaf'-
ur Thors heitinn stendur íjóslil'-
andi fyrir framan mann, þar sem
liann spreltur l'ram með sinni
kimni út úr einni blaðsiðu bókar
innar, þegar höi'undur lýsir við-
brögðum ráðherrans við ,,borð-
röðunarskránni", listanum, sem
er áætlaður til aðstoðar við að
skipa mönnum til sætis i veizlum
samkvæmt þeim veraldlegu
virðingarlitlum, sem þeir hafa
hlotið hjá þjóðfélaginu. I örtaum
linum tekst Pétri Eggerz að gera
þarna mannlýsingu, ekki nteð
lýsingarorðum, heldur með stuttu
samtali, tilsvörum, þar sem sál-
fræðin speglast milli linanna. Sá,
sem þetta skrifar, leyíir sér að
benda á þetta ntikilvæga atriði,
þegar meta skal bókina og vega,
hvort hún er skriíuð af kunnáttu
eða viðvaningshætti. Petta er
einnig gert i þvi augnamiði að
reyna að fyrirbyggja eða öllu
heldur benda á hugsanlegan mis-
skilning, þegar unt er að ræða rit-
höfund, i þessi tilviki Pétur Egg-
erz, sem skyndilega kemur fram
á sjónarsviðið með frásagnarbók
i ádeilustil um áberandi þætti i
samfélaginu. Þessi undirsagða
frásögn, sem einkennir bókina
viðast hvar, er ,,fint blæbrigðaat-
riði" i listinni að skrifa 'bdk-
menntir. og Pétur hlýtur að
hljóta hæstu einkunn í'yrir
frammistöðuna á ritvettvangi
sinum. A þennan hátt er bókin
viðast hvar lifandi persónur Qg at
vik birtast i myndum, ,,orðin
samhæfast athöfn" eins og
Shakespeare segir á einum stað i
llamlet, þegar talað er til leik-
enrianna.
Þetta er ekki ævisaga, heldur
skapandi þjóðfélagsádeiluverk,
öllu heldur analysa skilgreimng,
l'ærð i bókmenntabúning af
manni.sem hefur ekki gelið sig út
l'yrir að vera bókmenntamaður
eða rithöfundur, en sýnir sig
kunna betur til vigs i orðfæri og
lipurð með pennann en margir,
sem hljóta hálfkeypt eða djöl'la-
samningsbundið lol' klikugagn-
rýnenda, sem dæma oft fyrirfram
og að ókönnuðu máli. ljað er hart,
að ábyrgðarlausir neðanmáls-
menn skuli hal'a aðstöðu til að
rakka niður andlega heiðarleg
verk höl'unda, sem hal'a meiri
smekk og heimsmennsku til að
skril'a verðugar bækur en ýmis-
legt leiðinlegl kimnivana fólk,
scm kallar sig rithöfunda.
Þar er islenzk skekkja i hugsun
og athöfn, sem iiðst of mikið.
Margir koma við sögu i
þessari bók, og það gerist margt
og mikið, ineira en yfirborðið
sýnir, það er eins og i miklum rit-
verkum, að Ivkillinn að leyndar-
dómnum i manneðlinu. lvkillinn
að lausn gátunnar finnst á ótrú-
legustu stöðunum, þar sem sizt
skyldi, eins og til að mynda i
kaílanum ..Afbrýðisemi", þegar
Pétur segir l'rá mannlegum sam-
skiptum milli ylirboðara sins og
sin sjáll's. Hversu algengt er það
ekki, að afbrýðisemi, þessi sterka
tilfinning, sem á sér djúpar rætur
i tslendingum, komi fram al' litil-
fjörlegasta tileíni? Þegar slikt á
sér stað, eru smáatriði blásin
upp, - úlfaldi gerður úr mýflugu.
Viðar i bók Péturs er komið inn á
andleg óhreinindi i mannlegum
samskiptum og þvi gerð skil á
nettan hátt, eins og þegar klappað
er á koll. Svo að dæmi séu nel'nd:
Krásögn af heimkomu Péturs frá
Bonn, þegar hann er skikkaður i
prótokollmeistarastarf hjá utan
rikisþjónustunni, sem hann er svó
hreinskilinn að segja. að það sé
starf, ,,sem ég um árabil hafði
sagt ráðuneytinu, að eg kysi mér
sizt af öllu". Kannski mun marg-
ur, er les kaiiann um heimkom-
una tsem er ritaður með lát-
leysisblæ) verða gáttaður á þvi,
þegar Pétur segist haí'a íarið að
ráðum vinar sins.hins vitra þýzka
lögfræðings, sem sagði við hann
að skilnaði við brottförina frá
Bonn: „Heyrðu Pétur, þú hefur
starfað um 30 ára skeið i islenzku
utanrikisþjónustunni, og þar af 23
ár erlendis. Af þvi leiðir.að þegar
þú kemur til Reykjavikur, muntu
linna marga skjalapakka i
skjalasafni utanrikisráðuneytis-
ins, sem einungis fjalla um við-
skipti þin og þess. Lestu gaum-
gæfilega allt, sem þú finnur i
þessum skjalapökkum”. Og siðar
segir Pétur i lok kaflans: ,,Ég fór
að ráðum þýzka lögfræðingsins,
sem benti mér á að lesa starfs-
sögu mina i skjalasafni utanrikis-
ráðuneytisins. l>að var áhuga-
verður lestur".
Bókin er „inside story” —
saga á bak við sögu, sem gerist á
löngum diplómataferli Péturs
viða um heim i þjónustu islenzku
rikisstjórnarinnar og þjóðarinn-
ar. Þetta er saga, sem gagntekur
lesara sem skemmtilegur lestur,
og eins og hann sagði um skjölin
um sig, „áhugaverður lestur” —
auðsæilega rituð i þvi miði að
leggja sitt af mörkum til að skapa
timamót i andlegum heiðarleik i
islenzkri em bættismennsku,
skrifuð af samvizku og af' djörf-
ung, án gifuryrða, en oft ismeygi-
lega hæðnislega og elskulega
striðnislega, svo dæmi sé nefnt,
frásögn al' skipun nýs pólitisks
sendiherra i kaflanum ..Horft um
öxl og l'ram á við", þegar ráðu-
neytisstjórinn i utanrikisráðu-
neytinu útlistaði fyrir bókarhöf-
undi hvernig hann hefði tjáð von-
brigði sin við þáverandi utan-
rikisráðherra Emil Jónsson yfir
að hafa ekki verið með i ráðum i
sambandi við stöðuveitingu
pólitisks gæðings, ,.þ.e. með
franskri handahreyfingu". ,,Ég
gerði sko si svona". segir Agnar.
Þvi að hann var ekki viss um. að
ég þekkti frönsku handahreyfing-
una".
Bókin fjallar um innra eðli
diplómatastarfsins og veitir mik-
inn fróðleik um hætti starfsins og
skilyrði. sem utanrikisþjónustan
islenzka vinnur við erlendis og á
heimagrund. Dæmi: Húsakostur
Charge D'al'faries i rauða húsinu
við 1(1. götu i Washington D.C.,
sem var tæpast fólki bjóðandi —
verra en blokkibúð i ghettóum
Reykjavikúr. Þar skriðu
maurarnir ol'an ikókóbox ieldhús-
búrinu og mýsnar dönsuðu Gó-Gó
eða charleston i hot passion á
Snjór og meiri snjór
- síminn enn bilaður
BP-Kosshóli 7.512.
Ilér er allt á kafi i snjó, og
muna menn vart meiri á þessum
tima vetrar. Vegir eru allir ófærir
i grenndinni og þýðir ekkert að
moka að svo stöddu, þvi að alltaf
hætir á. iVIjólk hefur komizt til
Ilúsavikur með trukkum, en úr
Bárðardal hefur m jólkurbillinn
verið dreginn af jarðýtu. IVIenn
hafa þvi meira en nóg að gera við
að berjast við alla þá erfiðleika,
sem snjórinn veldur.
Eins og fram hefur komið hafa
orðið miklar skemmdir á raf-
magns- og simalinum og valdið
miklum truflunum. Rafmagnið
hefur farið tvisvar, og hafa þeir,
sem verst hafa orðið úti orðið að
sitja i allt að þrem sólarhringum
án þess. Það kemur sér einkum
illa fyrir þá, sem hafa stór kúabú,
en einnig er rafmagn notað viðast
við kyndingu húsa og rafmagns-
dælur sjá flestum fyrir vatni.
Simaskemmdir urðu verulegar,
og er ekki.enn séð íyrir endann á
þeim, þvi að nú rétt var að verða
sambandslaust austur yfir Fljóts-
heiði, og hefur vafalaust slitnað
eitthvað niður á þeirri l#ið. Ekki
þýðir að hugsa um viðgerð að svo
stöddu, þvi að i dag er hálfgerð
stórhrið.
Snjórinn virðist vera mestur
hér i Suður-Kinn og Bárðardal og
inn um Ljósavatnsskarð og
Fnjóskadal. Utar og austar frétt-
ist af minni snjó og eru vegir þar
færir stórum bilum og jeppum
a.m.k.
Það má kalla það lán i óláni, að
upp skuli vera kominn heima-
vistarskólinn á Stóru-Tjörnum,
en þar eru börn og unglingar úr
KinnogFnjóskadal, Hefði þurft að
aka þeim heiman og heim, eins og
áður var, væri fri þeirra úr skóla
nú orðið um þrjár vikur, þvi að
allan þann tima hefur verið ófært
á flestum leiðum.
X
Tíminn er
peníngar
j Auglýsicf
j iTimanum í
VELJUM ÍSLENZKT-
ÍSLENZKAN IÐNAÐ
gólfinu, ef komið var hljóðlega
inn i eldhúsið. Hins vegar er sagt
frá öllu á meinfyndinn hátt.
Annað dæmi, og i þetta skipti frá
heimavigstöðvunum i Reykjavik:
....ráðuneytisstjóri kom mér
fyrir i kamesi i húsi Garðars
Gislasonar við Hverfisgötu, á
næstu hæð fyrir ofan bifreiða-
varahlutasölu fyrirtækisins
(Athugasemd greinarhöf: Fram-
ar i bókinni er myndaopna með
texta ,,.... Þegar sendiherrar
þurftu að heimsækja mig þangað
gátu þeir dundað við að skoða,
hvað þetta þekkta heildsölufyrir-
tæki hafði á boðstólum, ef þá bar
of timanlega að dyrum minum”).
Og áfram heldur frásögnin:
„Gluggasýningar bifreiðaumboðs
Garðars Gislasonar blöstu við
sendiherrum, sem höfðu mælt sér
mót við mig i kamesi minu, á leið
þeirra inn i húsið, og þeir, sem
komu aðeins á undan tilsettum
tima, gátu stytt sér biðina úti, við
að skoða batteri, hjólbarða, bif-
reiðaþvottakústa, bilaspegla,
smuroliur, bilamottur, Austin-
auglýsingar og fleira, sem stillt
var út i glugga fyrirtækisins”. Og
svo bætir Pétur Eggerz við: ,,Mér
fannst þarna ekki gætt fyllsta
hlutleysis, þvi að til min komu
sendiherrár, sem höfðu meiri
áhuga á að auka sölu þýzkra,
sænskra, rússneskra, og banda-
riskra bifreiða en enskra”....
Svo segir höfundur i lokin:
,,...En ekki er þetta nú til annars
en að hlæja að — svona eftir á”.
Það-sem gerir bókina geðuga
eins og sagt er á „austfirzku”, er
notalegur blær hennar gegnum
hana alla á hverju sem dynur. Að
visu er teflt fram andstæðum,
heitu og köldu andrúmslofti á
vixl. Hlýjan, mannlegheitin skina
i gegn þrátt fyrir þetta rika and
lega frelsi höfundar og þörf á að
segja það, sem sannara reynist,
jafnvel þótt það geti verið dýrt
spaug. Þess vegna , vegna þess
siðastnefnda, eru þegar teknar að
spinnast sögusagnir um reiðiköst,
og sárindi kollega Péturs. A hinn
bóginn hefur vitnazt,að upprenn-
andi diplómatastéttin islenzka
hafi tekið bókinni vel og sýnt
henni velvild og aðdáun.
Enskt skáld segir, að það sé
ekki hægt að fangelsa eða hefta
mannssálina, enda þótt maðurinn
sé hnepptur i fangelsi.
Andi mannsins er alltaf frjáls,
eins og kemur fram hjá höfundi.
Sannleikurinn kemur ailtaf i ljós
— það er svo einkennilegt. Þannig
verða listin og bókmenntirnar til
af þörf á þvi að túlka og tjá hlut-
ina eins og þeim, sem skapar,
finnst þeir liti út, en ekki eins og
aðrir lita á þá á yfirborðinu.
Svo að fljótt sé farið yfir sögu
eru sterkir kaflar i bókinni, t.d. i
l.ondon, þar sem andrúmsloftið
rétt eftir striðið er á hverri siðu,
brezk þjóðareinkenni dregin
fram, Bretinn sálgreindur
meistaralega af innlifun og sam-
kennd. smbr. þegar höf. segir:
,.En sé það nokkuð, sem Bretinn
hatar, þá er það að blanda sér inn
i tilfinningar annarra. Hann vill
ekki vita, hvort öðrum liður vel
eöa illa, hvort aðrir hafi tiðan
hjartslátt eða botnlangasting.
I-Iann vill ekki ókunnuga inn á
rúmstokk hjá sér og hræðist of
náin kynni. Þegar Bretinn segir
,,How do you do”, ætlast hann til,
að svarið sé eins og spurningin
„How do you do”.
Húsvörðurinn — um Colonel
Wackett, húsvörðinn i islenzka
sendiráðsbústaðnum, er listaverk
i Somerset Maugham stil, minnir
á smásögu, sem gæti gerzt i
brezkri nýlendu. „Colonel Wack-
ett” er söguhetja i sérflokki,
episk manngerð, sem segir á ein-
um stað: „Þar fyrir utan fullvissa
ég yður, Mr. Eggerz, að það, sem
menn ekki læra i brezka hernum,
er ekki þess virði að vita það”.
Pétur Eggerz segist ekki minn-
ast, „ofurstans”, sem litils skrýt-
ins karls i city dress með harð-
kúluhatt, heldur sem sérstaks
persónuleika, sem gaf honum
aukna trú á lifið og sjálfan hann,
og opnaði augu hans fyrir þvi, hve
mikils virði vinátta er .
Hinir lægra settu hljóta náðar-
sess i kærleikshólfum höfundar
og vel sé þvi, svo sem eins og
sendiráðssjofförinn . negrinn
Jackson, kvennagullið, sem ekk-
ert hræddist nema „flugrottur”.
Amerikuárunum i Washington
D.C. er lýst sterkt, t.d. i kaflanum
islendingar i Washington, þegar
það fellur i hlut Péturs Eggerz að
sækja kófdrukkinn landa illa
haldinn eftir viðureign við
bandariska lagaverði á lögreglu-
stöðina i Hyatts ville kl. 4 að
morgni. Þar tekst Pétri að út-
skýra hrottaskap lögreglu i fáum
linum og finna sálfræðilegu
ástæðuna.
Þýzkalandsvistin er kapituli út
af fyrir sig og leynir hvað mest á
sér. Allt, sem þýzkt er, hlýtur
alltaf að vera seigt undir tönn
eins og seigt svinakjöt, þegar
skrifa á um slikt. Þetta tekst
Pétri. Hann opnar augu lesara,
svo að hann sér Þjóðverjana i
nýju og kannski i réttu ljósi.
það er auðfundið, að bókar-
höfundur hefur ekki litið á starf
sitt sem stáss eða vegtyllu eða
„stæljobb", heldur sem mannlegt
þjónustustarf i menningarlegum
tiigar.gi. Slikt viðhorf er litið
hornauga af yfirborðsmennum i
aðstöðu. Bók Péturs skapar höf-
undi hennar hins vegar vegtyllu
og virðingarsess i þjónustu frjáls
anda og sannleika i bókmenntum,
sem eiga eftir að vera skrifaðar á
íslandi og erlendis.
Það má kallast ganga krafta-
verki næst að hægt sé aðgeraatvik
og frásögn af alls konar mannlifi
að uppistöðu i bók, sem má hvort-
tveggja i senn lesa sér til
skemmtunar eins og sögu eftir
Agötu Christie og lesa sér til
ihugunar um kjarnann af þvLsem
raunverulega gerist i málefnum
íslands i hinum stóra heimi.
Roðgúl á Stokkseyri, 3. des. 11)72.