Tíminn - 29.12.1972, Page 5
Föstudagur 29. desember 1972
TtMlNN
5
E3
New HOU.AND
BINDIVÉLAR
Jóakim Arason, Múla, Gufudalssveit:
Finnum nýtt vegarstæði yfir
Kollafjarðarheiði til (safjarðar
Flugfreyjur
LOFTLEIÐIR H.F. ætla frá og með maímánuði 1973
að ráða allmargar nýjar flugfreyjur og flugþjóna
til starfa. í sambandi við væntanlegar umsóknir,
skal eftirfarandi tekið fram:
1. Umsækjendur séu — eða verði 20 ára fyrir 1. júli 1973
og ekki eldri en 26 ára. Þeir hafi góða almenna menntun,
gott vald á ensku og öðru erlendu tungumáli, helzt þýzku,
frönsku eða Norðurlandamáll.
2. Líkamsþyngd svari til hæðar.
3. Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöldnámskelð í
febrúar/marz n.k. (ca. 5 vikur) og ganga undir hæfnispróf
að því loknu.
4. Á umsóknaréyðublöðum sé þess greinilega getið, hvort
viðkomandi sæki um starfið til lengri eða skemmri tíma.
5. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
6. Umsóknir um endurráðningu flugfreyja, sem áður hafa
starfað hjá félaginu, skulu hafa borlzt starfsmannahaldi
fyrir 7. janúar n.k.
7. Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu félagsins, Vesturgötu 2
og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá umboðsmönnum úti um
land, og skulu hafa borizt starfsmannahaldi, Reykjavíkur-
flugvelli, fyrir 7. janúar n.k.
í:g er fæddur og uppalinn i
Gufudalssveit i Barðastranda-
svslu og dvaldi þar við bústörf
fram til ársins 1!I54. Þá fór cg eins
og æði niargir sveitamenn hingað
suður og stundaði almenn störf
hér. Fyrir þremur árum tók ég
mig upp og liélt lieim i fæðingar-
sveit mina og hóf þar búskap.
Litið fannst mér hafa breytzt i
Gufudalssveit á þessum rúmlega
15 árum, sem ég hafði verið á
braut, annað en það, að bæjum i
byggð i hreppnum hafði fækkað
um helming. Það voru 20 býli i
ábúð i Gufudalssveiþer ég fór, en
þau voru aðeins 10,þegar ég kom
aftur.
Gufudalssveit er þó góð til bú-
skapar.
Nú er spurningin sú, hvort þessi
þróun heldur áfram og fólki
heldur áfram að fækka á þessum
slóðum, eða hvort takast mun að
verjast þvi,að þessi ágæta sveit
fari öll i eyði.
Þá leitar sú spurning á, hverjar
séu helztu orsakirnar fyrir þvi.að
fólkið fer á braut. Og hvað það er,
sem breyta má i þessu efni á þann
veg, að menn vilji fremur reyna
að haldast þarna við en flosna
upp.
Þarna er sjálfsagt um marga
samverkandi þætti að ræða og
sumir eru hluti almennrar þjóð-
félagsþróunar, sem erfitt kann að
vera að breyta. En ég ætla að
ræða hér aðeins einn þátt i
þessari mynd, þátt, sem ég tel, að
ráði einna mestu um þróunina.og
fram f októbermánuð, þá getur
tekið fyrir allar samgöngur á ör-
láum dögum og getur verið nær
alveg lokað fram i mai, ef vetur
er snjóþungur. Nútimafólk unir
ekki lengur sliku samgöngu- og
og sambandsleysi og hlýtur að
hverfa frá þeim stöðum, sem
slika ókosti hafa,ef i boði er eitt-
hvað skárra annars staðar. Ungt
fólk, sem vill hafa eðlileg félags-
leg samskipti við sina jafnaldra
og eiga völ einhverra dægrastytt-
inga i fásinninu, sættir sig ekki
lengur við að geta ekki einu sinni
komizt á milli bæja innansveitar
á vetrum. Slikt samgönguleysi
kemur i veg fyrir, að það girnist
að hefja búskap við slikar að-
stæður.
Ég tel þvi einsýnt.að fólki muni
halda áfram að fækka i Gufu-
dalssveit og viðar, þar sem likt er
ástatt, nema það takizt að bæta
samgöngur á vetrum verulega
frá þvi, sem nú er.
En hvað er þá til ráða?
Nú hefur verið rætt um tvær
leiðir norður að tsafjarðardjúpi.
Annars vegar er það um Þorska-
fjarðarheiði, sem nú er farin. Hún
er há og löng og það mun reynast
erfitt að halda henni opinni á
vetrum, þótt vegur yrði þar veru-
lega bættur. Hinsvegar er nú rætt
um möguleika á að leggja nýja
leið vestur Gufudalssveit og yfir
Kollafjarðarheiði, sem er miklu
lægri en Þorskafjarðarheiði og
ekki snjóþung. Þetta er að visu
heldur lengri leið á leið til Djúps,
en miklu greiðfærari og margfalt
öruggari á vetrum. Þarna er nú
ruddur vegur, en aðeins sumar-
fær.
En tilefni þess að ég hripa
G/obusi
LAGMÚLI 5, SIMI 81555
Jóakim Arason
þann þáttinn, sem ég tel.að megi
breyta þannig að byggðaþróun á
þessu svæði gæti jafnvel snúizt
við á næstu árum.
Hér á ég við samgöngumálin.
Þau eru i hinum mesta ólestri á
þessu svæði.
Á haustin t.d. þegar kemur
Af öllum tegundum bindivéla, sem seljast i Bretlandi eru 40% af New
Holland gerö og hér er hlutfalliö mun hærra.
HVERS VEGNA?
Vegna þess að New Holland bindivélarnar eru hagkvæmar í veröi,
afkastamiklar og lögð er áherzla á góða þjónustu.
Við eigum væntanlegar nokkar bindivélar á gamla verðinu og viljum
benda bændum á að fyrirhuguð er allmikil hækkun á vélunum á næstunni
og er því mikill hagur að kaupa vél nú.
Hafið samband og kynnið yður okkar hagstæða verðog skilmála.
þessar linur er það, að ég teLað
ekki eigi að legga nýjan veg um
Kollafjarðarheiði i farvegi þessa
ruðnings, sem nú er, heldur fara
nýja leið yfir heiðina, sunnan við
svokölluð Borgarvötn milli
Fjarðarhornsdals og Húsadals.
Milli Dalbotnanna eru tæpir 6 km
og er sú leið þvi miklu styttri en
ruðningsleiðin, og að auki er mjög
snjólétt þarna á heiðinni milli
þessara dalbotna. Þess vegna
tel ég,að þeir forráðamenn, sem
vinna nú að bættum samgöngum
á Vestfjörðum, þurfi að athuga
þessa hugmynd rækilega, áður en
ákvörðun verður tekin um aðrar
leiðir. Eg er sannfærður um.að
vetrarfærð eftir þessari leið með
sæmilega uppbyggðum vegi yrði
svipuð og á Heydalsvegi i
Hnappadalssýslu. Ég er vel
kunnugur á þessum slóðum og hef
oft farið þarna um á vetrum og
þykist þvi geta talað um snjóalög
á þessum slóðum af nokkurri
reynslu.
Ef þessi leið yrði valin i stað
Þorskafjarðarheiðar, myndi
fjallvegur styttast um 20 km. Má
gera miklar vegabætur i byggð
fyrir það fjármagn, sem 20 km
fjallvegur kostar og gæti það
komið á móti þvi, að leiðin vestur
til Djúps lengist svolitið.
Hjúkrunarkonur
óskast
Hjúkrunarkonur vantar til starfa við
endurhæfingar- og bæklunarlækninga-
deild Landspitalans.
Allar upplýsingar veitir forstöðukonan á staðnum og i
sima 24160.
Reykjavik, 28. desember 1972
Skriístofa rikisspitalanna.
Hjúkrunarkonur
óskast
Hjúkrunarkonur vantar nú þegar til starfa
við handlækningadeild Landspitalans.
Allar nánari upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 24160,
og á staðnum.
Reykjavik, 28. desember 1972
Skrifstofa rikisspitalanna.