Tíminn - 04.01.1973, Síða 13
Fiinmtudagur 4. janúar
TÍMINN
13
ÍSAL flutti út 55 þúsund
tonn af áli á árinu
reykskilja Jóns Þórðarsonar sett upp í apríl
ÞÓ-Reykjavík
Islenzka álfélagið flutti út
55.370 tonn af áli á siðasta ári, og
er það mikil aukning frá árinu
1971. Alls framleiddi álverið i
Straumsvik 45.560 tonn af áli á
árinu, og magnið sem selt var
umfram framleidda magnið, var
af lager, sem ISAL átti frá árinu
áður, en það ár var félaginu mjög
óhagstætt vegna mikils framboðs
á heimsmarkaðnum.
Ragnar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Islenzka álfélags-
ins sagði, að tekizt hefðu að mestu
að selja upp állager félagsins og á
þessu ári, næstu 18 mánuðum
ÞÓ-Reykjavik.
Nýir kjarasamningar milli Is-
lenzka álfélagsins og hlutaðeig-
andi verkalýðsfélaga tókust að-
faranótt hins 31. desember. Þess-
ir nýju kjarasamningar gilda frá
1. janúar 1973 til 1. janúar 1974, en
i samningnum er gert ráð fyrir
þvi, að kaup hækkanir gildi frá 1.
desember 1972.
Vistmenn elli- og
hjúkrunarheim-
ilisins Grund
í lok þess árs, sem var að liða,
voru vistmenn á Grund og Minni-
Grund i Reykjavik, 368 alls — 276
konur og 92 karlar. Þangað höfðu
komið 82 konur og 33 karlar á
árinu, fjórtán konur og niu karlar
farið, en 57 konur og 24 karlar dá-
ið.
1 Asi og Ásbyrgi i Hveragerði
voru vistmenn 131 i árslok — 86
konur og 64 karlar. Þangað höfðu
komið 36 konur og 23 karlar á
árinu, 21 kona og átján karlar far-
iö og ein kona dáið.
Alls voru, á vegum þessara
vistheimila, 508 menn i ársbyrj-
un, en 518 i árslok.
mætti búast við að lagerinn seld-
ist alveg upp. Um áramótin átti
ISAL 2400 tonn á lager og Alu-
finance 13400 tonn, sem er um það
bil helmingi minna en i fyrra.
Ragnar sagði, er við ræddum
við hann i gær, að Jón Þórðarson,
verksmiðjustjóri á Reykjalandi
væri enn að vinna að reykskilju
fyrir álverið, og nú er verið að
smiða fyrsta tækið, sem sett
verður upp i álverinu. Hefur
þessu fyrsta tæki seinkað dálitið,
vegna þess að mjög langur af-
greiðslufrestur er á drifbúnaði,
sem notaður verður við reykskilj-
una, en hann er pantaður frá
Samið var um 8.62% almenna
kauphækkun, en innifalin i kaup-
hækkun þessari er 6% hækkun sú,
sem samkvæmt almennum
kjarasamningum verkalýðs-
félaganna á að koma til fram-
kvæmda 1. marz næstkomandi
Veigamestu atriði hins nýja
samnings eru þessi: Samið var
um nýtt launaflokkakerfi, sem
byggist á röðun i stað starfsmats
áður. Samkvæmt hinu nýja
launaflokkakerfi eru launaflokk-
ar nú niu i stað fjórtán áður. Af
þessum breytingum leiða nokkr-
ar tilfærslur einstakra starfs-
manna og leiðréttinga, þar sem
þeirra þótti þörf.
Kjarasamningi ISAL og hlutað-
eigandi verkalýðsfélaga var sagt
upp af hálfu verkalýðsfélaganna
með þriggja mánaða fyrirvara og
rann hann út 1. desember siðast-
liðinn.
Þessi nýi kjarasamningur tek-
ur til Verkamannafélagsins Hlif-
ar, Verkakvennafélagsins Fram-
tiðarinnar, Félags bifvélavirkja,
Félags blikksmiða, Félags járn-
iðnaðarmanna, Rafiðnaðarsam-
bands Islands, Félags islenzkra
rafvirkja og Sveinafélags út-
varpsvirkja, Verzlunarmanna-
félags Hafnarfjarðar, Félags
byggingariðnaðarmanna i
Hafnarfirði og Félags mat-
reiðslumanna.
Noregi. En gert er ráð fyrir að
reykskiljan verði komin upp i
marz-april, en þá verða gerðar
tilraunir með skiljuna. Ef vel tek-
st til, þá verða settar upp reyk-
skiljur sem þessi á álverið, en
hvenær það verður er ekki ákveð-
ið. Kostar nokkrar milljónir
króna að koma skiljunum upp.
1 lok ársins störfuðu 544 fast-
ráðnir starfsmenn hjá tslenzka
álfélaginu, og hafa aldrei verið
fleiri.
Söluhorfur á árinu taldi Ragnar
nokkuð góðar, að visu er gert ráð
fyrir þvi, að nú um áramótin auk-
izt birgðir eitthvað. Verðlag á
heimsmarkaðnum er enn ekki
gott og hefur verðið ekki hækkað
þó að framboð og eftirspurn hald-
ist nú nokkurn vegin i hendur.
Aðalmarkaðir ISAL eru i Bret-
landi, Þýzkalandi, Sviss og á
ítaliu. Annars seldi álfélagið 8500
tonn til Kina og Tyrklands á þessu
ári og eru það ný markaðslönd.
JÓN LOFTSSONHF
Hringbraut121»?y 10 6ÓO
SÞÓNAPI.ÖTUH 8-25 mm I
Pl.ASTH. SPÓNAPLÖTUH|
12—1!» in in
IIARDPLAST
IIORPLÖTl'K 9-26 mm
IIAMPPI.ÖTl H 9-20 mm
HIKKI-GARO.N 16-25 mm I
BEYKI-G.ABON 16-22 mml
KKOSSVTDUH:
Hirki 3-6 mm
Reyki 3-6 inm
Fura t-12 mm
IIAKDTEX meft rakaheldu I
limi 1/8” 1x9'
H AKDVIDlTt:
Eik, japönsk. amerisk,
áströlsk.
H e y k i, júgóslavneskt.
danskt.
Teak
Afroinosia
Mahogny
Iroko
Palisandor
Oregon Pine
Kainin
Gullálmur
Abakki
Am. Ilnota
Hirki I 1/2-3"
VVenge
SPÖNN:
Eik - Teak - Oregon
Pine - Fura - Gullálmur
Almur - Abakki - Beyki
Askur - Koto - Am.Hnota
Afromosia - Mahogny
Palisander - Wenge.
F YRIKLIGG J ANDI OG
VÆ.NTANLEGT
Nýjar hirgftir teknar heim
\ ikulega.
VEKZLID ÞAR SEM CR-
VALID ER MEST OG
KJÖRIN BEZT.
Orkustofnun
óskar að ráða til sin skrifstofustúlku.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir 15. janúar merktar: OS 1375.
Orkustofnun
óskar að ráða til sin karl eða konu til
starfa á rannsóknarstofu.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir 15. janúar merktar: OS 1374.
8,62% kauphækkun í Straumsvík
Foreldrafræðsla
Heilsuverndarstöð Reykjavikur gengst fyrir fræðslunámskeiðum
fyrir verðandi foreldra nú i vetur.
Á hverju námskeiði verða 6 fræðslufundir og verða þeir á
miðvikudagskvöldum. Námskeiðinu fylgja einnig slökunar-
æfingar fyrir konurnar, i 3 skipti alls.
Næsta námskeið byrjar miðvikudaginn 10. janúar.
Mæðradeild stöðvarinnar veitir nánari upplýsingar og sér um
innritun alla virka daga kl. 16—17, nema laugardaga, i sima 22406.
Námskeið þessi eru ókeypis og ætluð Reykyikingum og ibúum
Seltjarnarness.
g m
IT
S HLILSUVERNDARSTÖD REYKJAVlKUR
Skipstjóri
óskar eftir bát. Er vanur loðnu- og
netaveiðum. Hef áhöfn. Upplýsingar i
sima 52602.
Laus staða einkaritara
Við tollstjóraembættið i Reykjavik er laus
staða einkaritara.
Góð vélritunarkunnátta áskilin.
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og starfsferil sendist skrifstofu tollstjóra,
Tollhúsinu, Tryggvagötu 19, fyrir 13. janú-
ar 1973.
Tollstjórinn i Reykjavik, 3. jan. 1973.
Plötusmiðir - rafsuðumenn -
trésmiðir
Óskum að ráða nú þegar nokkra menn i
plötusmiði, rafsuðu og trésmiði til vinnu
úti á landi. Ófaglærðir menn koma til
greina.séu þeir mikið vanir. Húsnæði i
boði fyrir litlar fjölskyldur og einhleyp-
inga.
Þeir, sem hafa áhuga á þessu, leggi tilboð
inn á afgreiðslu blaðsins.er greini fyrri
störf, aldur og sima eða heimilisfang
merkt: Vinna 1373.
Tæknistörf
Hafnarfjarðarbær óskar að ráða:
I. Verkfræðinga og / eða tæknifræðinga
til hönnunar gatna og lagna, og umsjónar
með slikum verkum.
Starfsreynsla á þvi sviði æskileg.
II. Tækniteiknara til starfa á skrifstofu
bæjarverkfræðings.
Nánari upplýsingar gefur bæjarverkfræð-
ingur.
Umsóknum, stiluðum til bæjarráðs
Hafnarfjarðar, skal skila eigi siðar en 23.
janúar nk.
Bæjarvcrkfræftinf'ur.
Innritun í Námsflokka Reykjavfkur
Fer fram i Laugalækjarskóla dagana 4. og 5. janúar kl. 5-9
siödegis.
Nýjar kennslugreinar:
Kennsla i notkun reiknistokks, lestrarkennsla fyrir fólk
með lesgalla, leikhúskynning, myndlistarkynning.
Kennsla til gagnfræðaprófs (isl.,enska, danska, reikning-
ur).
Kennsla til miðskólaprófs þ.e. 3. bekkjar (isl„ enska,
danska, reikningur).
Að öðru leyti kennsla i sömu greinum og fyrr:
fslenzka 1. og 2. fl. og isl. fyrir útlendinga. Reikningur 1.
og 2. fl. og mengi. Danska 1., 2. og 3. flokkur. Enska l-6.fl.
Þýzka 1-5. fl. Franska 1-3. fl. Italska 1. og 2. fl. Spænska 1-
4. fl. Rússneska. Jarðfræði. Nútimasaga. Fundarsköp og
ræöumennska. Verzlunarenska. Bókfærsla. Vélritun.
Föndur. Smelti. Kjólasaumur. Barnafatasaumur. Snið-
teikning (teiknað, sniðið og saumaö eftir sniðunum).
Nýir byrjendaflokkar i dönsku, ensku, þýzku og spænsku.
Innritun i Breiðholtsskóla fer fram mánudaginn 8. jan. kl.
8-9.30 ogi Arbæjarskóla þriðjudag 9. jan. ki. 8-9.30. A þess-
um tveimur stöðum verður kennd enska 1.-3. fl. og barna-
fatasaumur.
Skólastjóri.