Tíminn - 26.01.1973, Síða 5
Föstudagur 26. janúar 1973
TÍMINN
5
Kirkjubæjargígur
nýju húsin vestan viö Kirkjubæ-
ina, sem nú eru rúst ein.
Lögreglan smalaði öllu fólki af
þessu svæöi, og var engum leyft
að fara austar en að Hlaðbæ eftir
klukkan fjögur f gær. Þá sást,
hvar reykstróka lagði upp af
sparkvelli, sem erá auða svæðinu
nokkru sunnan við Vilpuna svo-
kölluðu. Lögregluþjónarnir, sem
þarna voru á verði, voru viö öllu
búnir, með sérstaka uppþota-
hjálma, talstöðvar um hálsinn og
reykgrimur spenntar yfir um sig.
Bein lina i kjarnorku-
byrgið-
1 gær var komið á beinni linu úr
skrifstofu Páls Zóphóniassonar,
bæjartæknifræðings i
Vestmannaeyjum, i stjórnstöð
almannavarna i Reykjavik, sem
er kölluð manna á meðal kjarn-
orkubyrgið. Þótti það öruggara,
þvi oft á tiöum er mjög erfitt að
ná sambandi milli Vestmanna-
eyja og Reykjavikur.
Stöðugt er fylgzt með hraun-
rennslinu, og fer Lóðsinn út öðru
hverju og mælir dýpiö, en hraun-
brúnin er mæld með ratsjá. Þá
gerði varðskip nákvæmar
mælingar á hraunbrúninni i gær,
og er hraunið nú komið fjögur til
fimm hundruð metra út frá landi
nyrzt, og hefur stefnt i áttina á
Bjarnarey, en ekki á Yztaklett, og
er þvi innsiglingin ekki i hættu.
Sjórinn brýtur af hrauninu, og til
dæmis hafði i fyrrinótt brotnað af
hrauninu austur af Helgafelli.
Á leið til meginlandsins
Eftir hádegi i gær fór að bera
meira á búslóðaflutningum en
áður frá Eyjum. Tiu bátar að
minnsta kosti munu hafa farið frá
Eyjum i gær, hlaðnir búslóð.
Undir kvöldið lágu Kristbjörg,
Halkion, Bergur og Gunnar
Jónasson, svo nokkrir bátar séu
nefndir, við bryggju og hömuðust
skipverjar við að hlaða búslóð á
bátana. Þeir vildu greinilega
komast á braut með allt lauslegt,
sem hægt var að taka með sér.
Það var algeng sjón að sjá hlið
við hlið á vörubilspalli isskáp,
frystikistu, þvottavél, eldavél,
uppþvottavél og sjónvarps- og út-
varpstæki, og einn mundi lika
eftir að taka peningaskápinn með
sér. Einnig hafa allar vörubirgðir
fyrirtækis eins og Hagkaup verið
fluttar burt.
Óbilandi kjarkur.
Nefndin, sem fjalla á um efna-
hagsvandamál Vestmanna-
eyinga, vegna tilkomu gossins,
kom til Eyja i gær. Formaður
nefndarinnar , Tómas Arnason,
sagði i stuttu viðtali við Timann,
að á fundi nefndarinnar með
bæjarstjórn hefði komið fram
mikill og óbilandi kjarkur Eyja-
manna, og höfuðáherzlu heföu
þeir lagt á,að reynt væri að
stunda loðnuveiðar þaðan nú og ef
til vill reynt við fiskverkun.
Reynt að gera við
varnargarð.
Seint i gærkvöldi komu til Eyja
menn frá Vegagerð rikisins með
tæki, og mun ætlunin hafa verið
að freista þess að ýta upp varnar-
garði, svo að hrauniö rynni siður
inn i austurbæinn. Voru i hópnum
bæði verkfræðingar og vanir ýtu-
stjórar, og var búizt við, að þeir
tækju til starfa i nótt eða með
morgninum.
Vöru-
móttaka
Vegna takmarkaðra geymslu-
möguieika og truflana á
skipaferðum eru vörusendend-
ur beðnir að hafa samband
við vöruafgreiðslu Rlkisskips
áður en þeir senda vörur
þangað.
^ ____^ ^ „
SKIPAUTC.€RB RIKISINS
Nokkrir bátar með loðnu
- önnur ganga á Vopnafjarðargrunni
Þó — Reykjavik.
Nokkrir bátar fengu loðnu um
30 milur austsuðaustur af Hval-
bak i fyrrinótt, og fóru þeir með
aflann til lands i gær. Ekki var
veiöin yfirleitt mikil hjá bátun-
um, en vitað er að Guðmundur
Forsetinn
Framhald
af bls. 20.
Forsetinn fór strax austur að
hinum ömurlegu rústum Kirkju-
bæjar, þar sem hraunið hefur
oltiö aö hluta yfir húsin og lagt
saman veggi og gólf. Þetta
gerðist i nótt, þegar breytingar
urðu á gosinu.
A tveggja tima fresti allan
sólarhringinn fer hafnarbáturinn
Lóðsinn út og siglir i kringum
gosstöðvarnar á Heimaey.
Fréttamaður Timans átti þess
kost i gærmorgun að fara út með
Lóðsinum og virða fyrir sér gosið
frá sjó.
Þegar siglt er á milli Yztakletts
og hraunsins, sem oltið hefur i sjó
fram, má heyra miklar drunur úr
gosinu, sem bergmála með ógur-
legum krafti i Heimakletti, Yzta-
kletti og Miðkletti. Það rýkur
mjög mikið úr sjónum þarna út
frá hrauninu og gufumekkina
leggur á stundum inn i höfnina,
sérstaklega þó, þegar aðfall er.
Vélstjórinn á Lóðsinum sagði
fréttamanni, að hann ætti i erfið-
leikum með að kæla vélarnar
nægilega niöur, þvi kælivatnið,
sem báturinn dælir inn á sig úr
sjónum, er allt að því 40 gráðu
heitt, og er þvi ekki að furða, þótt
að upp af þvi stigi miklir
mekkir.
Frá sjónum að sjá munar ekki
miklu, að nýja eldfjallið austast á
Heimaey. sé orðið jafnhátt hinu
sex búsund ára gamla eldfjalli,
Helgafelli sem trónað hefur yfir
byggðinni i Vestmannaeyjum, frá
þvi að byggð hófst þar,
Ekki voru sjáanlegar alvar-
legar breytingar á hraunstreym-
inu,og ógnar hraunið ekki innsigl-
ingunni ennþá.
Stöðugt er unnið að þvi, að
skipa út frystum fiskafurðum,og
bjuggust þeir fulltrúar sölumið-
stöðvarinnar, sem hér eru, viði að
starfinu lyki i gær. Þá kom Ira-
foss hingað i gærmorgun,og var
unnið i allan gærdag, við að skipa
út saltfiski, rúmlega tvö hundruð
tonnum. Er þetta þurrverkaður
fiskur, sem á að fara til Brasiliu,
og er áætlað útflutningsverðmæti
aðeins þessa farms um 35
miiljónir króna.
Þá kom Heklan hingað aftur,
skömmu fyrir hádegi I gær, og
biðu bifreiöaeigendur á hafnar-
bakkanum meö troöfulla bila
sina eftir þvi að koma bilunum
um borð I Heklu. Nú fer að
grynnka mjög á bilum, eftir að
Hekla og Herjólfur hafa tekið
sinn hvorn farminn.
RE fékk. 240 tonn, Súlan EA 80
tonn og Magnús NK 60 tonn, en aö
minnsta kosti sjö skip önnur
munu hafa fengið einhvern afla.
Jakob Jakobsson, fiskifræðing-
ur sagði i gærkvöldi, þegar við
ræddum við hann, að loðnan aust-
ur af Hvalbak hefði verið mjög
dreifð sem fyrr en i ljósaskiptun
um i gærmorgun þéttist loðnan á
smásvæði rétt fyrir birtinguna i
gærmorgun. — Þetta er svona allt
i áttina, sagði Jakob.
— Við á Árna vorum úti af
Digranesi i gær, sagði Jakob, og
höfum við lóðað á göngu númer
tvö i dag. Við höfum fundiö lóðn-
ingar á talsverðu svæði og loðna
þessi gengur á miklu breiðara
svæði, en fyrri gangan. Þetta er
mjög falleg loðna og lóöningarnar
eru mjög góöar.
Sagði Jakob, áð 70—90 milur
væru á milli gangnanna, og þessi
ganga ætti þvi að vera komin i
veiðanlegt ástand 10—14 dögum á
eftir þeirri göngu, sem nú er viö
Hvalbak. 1 gærkvöldi var þessi
ganga komin suðaustur af
Digranesgrunninu, eða ikantinn i
Vopnafjarðargrunninu.
Orðsending til
Vestmannaeyinga
frá Hjálparsjóði æskufólks
Markmið sjóðsins er að styrkja
bágstödd börn og ungmenni,og
hefur stjórn sjóðsins ákveöið að
verja nú þegar hálfri milljón
króna til aö styrkja æskufólk úr
Vestmannaeyjum eftir þvi sem
umsóknir berast, en þær sendist
til Magnúsar Sigurðssonar,
Hofteig 38, sem veitir vitneskju
um úthlutunarreglur sjóösins.
Stiórn
Hjálparsjóðs æskufólks.
Magnús Sigurösson.
Þakkargerð
og fyrirbænir
í kirkjum
Biskup Islands, Sigurbjörn
Einarsson, hefur sent öllum
prestum beiðni þess efnis, að
Vestmannaeyja verði minnzt af
predikunarstóli i kirkjum lands-
ins á sunnudaginn kemur. Biður
hann prestana að flytja þakkar-
gerð fyrir mannbjörg, ásamt
fyrirbænum.
\
Þetta er mynstrið
frábæru
torfæruhjólbörðum
fyrir Dodge Weapon bifreiðar
á hinum
Stærð 900—16/10 á gamla góða verðinu kr. 7430,00
SHODB BÚDIN
AUÐBREKKU 44 -46, KÓPAVOGI — SlMI 4260.6
(dður Hjólbarðaverkstaeði
Garðahrepps
Sunnan við lækinn, gcngt
benzinstöð BP)
GARÐAHREPPI SlMI 50606
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H.F.
Aðalfundur
Borgfirðingafélagsins i Reykjavik verður
miðvikudaginn 31. janúar i Tjarnarbúð
uppi, kl. 8.30.
Stjórnin.
Til sölu í Þorlákshöfn
einbýlishús, 7 herbergja, 150ferm. bilskúr, nýlegt vandað
hús.
HÚSAVAL, Skólavörðustig 12
simar 24647 og 25550
Þorsteinn Júlíusson hrl.
Helgi Ólafsson sölustjóri, heimas. 21155.
SÓlaöír HJÓLBARÐAR
til sölu d mjög hagstæðu
verði. Full dbyrgð tekin á
sólningunni. Sendum um
allt land gegn póstkröfu.
Hjólbarðaviðgerðir
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til 22
nema sunnudaga.
Armúla 7 — Reykiavik — Sími 30501