Tíminn - 26.01.1973, Page 16
16
TÍMINN
Föstudagur 26. janúar 1973
Urosjón Alfreð Þorsteinsson;
Hér á myndinni sjást Tottenham-leikmennirnir Martin Chivers <Eng-
iand) og Mike England, fyrirliöi Wales, f fyrri leik þjóöanna á Ninian
Park.
Wales var nær
búið að vinna
sinn fyrsta
leik á Wembley
- Toshack skoraði fyrsta mark leiksins, en Hunter
jafnaði fyrir England þegar 4 mín. voru til leikhlés
Walesbúar voru ekki
langt frá þvi að sigra
Englendinga i fyrsta
skipti i landsleik í knatt-
spyrnu á Wembley,
þegar þjóðirnar léku þar
á miðvikudagskvöldið.
Leikurinn var siðari
leikur þjóðanna i undan-
keppni heimsmeistara-
keppninnar,og lauk hon-
um með jafntefli 1:1.
Fyrri leikurinn, sem var
leikinn á Ninian Park i
Wales (heimavöllur
Cardiff City), lauk með
sigri Englands 1:0,
markið skoraði Colin
Bell.
Wales náði forustu á miðviku-
dagskvöldið, þegar John Toshack
(Liverpool) sendi knöttinn fram
hjá Ray Clemence markveröi
Englands, en þessir leikmenn eru
félagar i Liverpool og fékk
Clemence smjörþefinn, hvernig
er aö leika á móti hinum hávaxna
og marksækna Toshack, sem
skoraði eftir aðeins 24 min.
Wales-leikmennirnir fögnuðu
innilega og Dave Bowen, fram-
kvæmdastjóri Wales, brosti sinu
bliðasta.
Allt leit út fyrir,að Wales héldi
forustunni út fyrri hálfleikinn, en
Adam var ekki lengi i Paradis,
þegar 4 min. voru til leikhlés,
sendi Norman Hunter (Leeds)
knöttinn i netið hjá Wales.
Með þessu jafntefli er England
búið að taka góða forustu i 5-riðl-
inum i Evrópu i undankeppni
heimsmeistarakeppninnar, stað-
an er nú þessi i riðlinum:
England 2 1 1 0 2:1 3
Wales 2 0 1 1 1:2 1
Pólland 0 0 0 0 0:0 0
A miðvikudaginn náði Wales i
annað skipti i sögunni stigi i
landsleik gegn Englandi, i leik
sem háður hefur verið á
Wembley, þess má að lokum
geta, að fyrirliði enska liðsins,
Bobby Moore lék sinn 99. lands-
leik.
UNITED KOMIÐ AF
BOTNINUM I 1. DEILD
- liðið gerði jafntefli gegn Everton á Old Trafford
Tommy Docherty, framkvæmda-
stjóri Manchester United, er ekki
brosmikill þessa dagana.
Manchester United viröist ekk-
ert vera aö drifa sig upp úr þeim
öldudal, sem liöiö er I. United lék
gegn Everton á Olt Trafford á
miðvikudagskvöldiö — leiknum
lauk með jafntefli 0:0, þar með
var United komiö af botninum i 1.
deild, aö minnsta kosti i bili.
Staðan er nú þessi á botninum i
1. deild:
Leicester
Stoke
Birmingh.
W.B.A.
Man.Utd.
C. Palace
27 6 9 12 31:40 21
26 6 8 12 38:40 20
26 5 9 12 31:43 19
25 6 7 12 24:35 19
27 5 9 13 25:43 19
25 5 8 12 25:33 18
Haukar skoruðu aðeins
þrjú mörk í síðari hálf-
leik gegn Valsmönnum
- léku „tréhestahandknattleik” og fundu sjaldan leiðina að marki Valsliðsins,
sem þurfti nær ekkert að
Haukar, sem fyrir
nokkrum árum var I
fremstu röð handknatt-
ieiksliða okkar, er nú
orðið svo lélegt, að
hvaða 1. deildarlið sem
er á að geta unnið það
létt. Lið sem skorar að-
eins þrjú mörk i siðari
hálfleik á ekkert erindi
til að leika i 1. deild.
Leikur Vals og Hauka á
miðvikudagskvöldið var
ekki til að hrópa húrra
fyrir — varnarleikur
Vals á köflum var eini
ljósi punkturinn i leikn-
um. En þess má geta, að
það þarf nær ekkert að
taka á, þegar er leikið
gegn eins miklu ,,tré-
hestaliði” og Haukaliðið
er í dag.
Valsliðið tók strax forustu i
leiknum, þegar fimm minútur
voru liðnar var staðan orðin 4:0.
Þá var Ólafur Jónsson, hinn lif-
legi sóknarleikmaður Vals,tekinn
úr umferð af Sturlu Haraldssyni,
sem var látinn elta Ólaf. Olafur
ka á.Haukar dæmdir til að
Olafsson skoraði fyrsta mark
Hauka úr vitakasti á 6. min. og
hann skoraði annað markið á 10.
min. Þegar staðan var 6:2, voru
þeir Ólafur Ólafsson og Þórður
Sigurðsson teknir út af. Þegar
þeir komu aftur inná eftir sex
min. hvild, var staðan orðin 10:2.
Atta marka forusta Vals hélzt út
fyrrihálfleikinn,sem endaði 16:8.
Þess má geta, að Valsmenn mis-
notuðu aðeins tvö markskot i fyrri
hálfleik, sem er nokkuð gott.
Siðari hálfleikur liðanna er sá
allra lélegasti, sem hefur sézt til
1. deildarliða i ár, þegar hann var
hálfnaður, var staðan 18:9, eða
aðeins þrjú mörk skoruð. Fyrir
Val skoruðu Bergur Guðnason úr
vitakasti og Stefán Gunnarsson
úr hraðupphlaupi. Það var ekki
fyrr en á 13. min. siðari hálfleiks,
að Guðmundur Haraldsson skor-
aði fyrir Hauka úr hraðupp-
hlaupi. Það var ekki fyrr en á 13.
min. siðari hálfleiks, að Guð-
mundur Haraldsson skoraði fyrir
Hauka úr hraðupphlaupi. Næstu
fjögur mörk skora Valsmenn. —
Haukar svöruðu ekki fyrir sig,
fyrr en á 27. min. Þá skoraði Gisli
Blöndal úr vitakasti og Guð-
mundur skoraði siðasta mark
leiksins fyrir Hauka á 30. min.
Leiknum lauk með yfirburðasigri
Vals 23:11.
Gunnsteinn Skúlason og Ólafur
Jónsson áttu beztan leik Vals-
manna, en annars voru leikmenn
liðsins frekar jafnir. Varnar-
falla,með svona áframhaldi
leikur liðsins var góður á köflum,
leikmenn léku nokkuð fast, og
fengu þeir Gunnsteinn, Ólafur
Jónsson og Stefán Gunnarsson
að kæla sig i 2 min. Það vakti
nokkra athygli i leiknum, hvað
Gisli Blöndal er orðinn þungur, þá
er hann og stundum eigingjarn
með knöttinn.
Ólafur ólafsson ber höfuð og
herðar yfir Haukaliðið, hann er
eini leikmaður liðsins, sem er
ógnandi — enda eini leikmaður-
inn i liðinu, sem þarf að hafa auga
með. Hinir leikmennirnir eru eins
og miðlungs 2. deildarleikmenn,
enda eiga þeir greinilega eftir að
læra mikið i iþróttinni. Ólafur
skoraði fimm mörk i leiknum,og
hann átti þrjár linusendingar,
sem gáfu mörk. Ef engar
breytingar verða á Haukaliðinu,
er það dæmt til að falla annað
árið i röð.
Eftirtaldir leikmenn skoruðu
mörk liðanna i leiknum:
VALUR: Ólafur Jónsson 4,
Gunnsteinn Skúlason 4, Agúst
ögmundsson 4, Jón Karlsson 3,
Gisli Blöndal 3 (1 viti), Bergur
Guðnason 3 (2 viti) og Stefán
Gunnarsson tvö.
HAUKAR: Ólafur Ólafsson 5 (2
viti), Guðmundur Haraldsson 4,
Þórður Sigurðsson og Svavar
Geirsson eitt hvort.
Leikinn dæmdu þeir Björn
Kristjánsson og Hannes Þ.
Sigurðsson og sluppu þeir ágæt-
lega frá honum. — SOS.
Ljósmyndarar dagblað-
anna fara í verkfall?
Alf—Reykjavik,
— Ljósmyndarar dag-
blaðanna eru mjög
óánægðir þessa dagana
vegna ákvörðunar
sumra handknattleiks-
dómara að banna þeim
að taka myndir með
„flassi” i Laugardals-
höllinni. Hafa ljós-
myndararnir haft á orði,
aðþeir fari i „verkfall”,
ef þessu banni verður
ekki aflétt, þ.e„ að þeir
neiti að taka ljósmyndir
i Laugardalshöll, nema
þeir fái að taka myndir,
hvort sem er með
„flassi” eða ekki.
Talið er, að ástæöan fyrir
ákvöröun handknattleiksdómar-
anna sésú, að ileik KR og Fram á
dögunum gerðist það á siðustu
sekúndum leiksins, að leikmanni
KR, sem stóð á linunni, tókst ekki
að gripa knöttinn, og þar með
rann út i sandinn tækifæri KR--
inga til að hljóta sigur i leiknum. 1
sjónvarpsfréttum frá þessum leik
var látið að þvi liggja, að ástæðan
fyrir þvi, að KR-ingurinn greip
ekki knöttinn hafi verið sú, að
hann hafi truflazt af ljósblossa frá
myndavél ljósmyndara.
Ekki eru menn á eitt sáttir með
þessa útskýringu, en nokkrir
handknattleiksdómarar eru
þeirrar skoðunar, að þessi
skýring sé rétt, þess vegna beri
að banna myndatökur i Laugar-
dalshöllinni sé notað „flass”.
Aftur á móti hafa aðrir
dómamarar dregið þessa
skýringu mjög i efa og telja
ástæðulaust að banna mynda-
tökur, enda hafi þær tiðkazt i
áratugi, bæði i Hálogalands-
salnum og Laugardalshöllinni, án
þess, að kvartað væri.
Eins og fyrr segir, eru ljós-
myndarar dagblaðanna ekki
hrifnir af ákvörðun dómaranna,
sem vilja setja hömlur á starf
þeirra. Hafa þeir bent á, að það sé
i meira lagi vafasamt, að fáeinir
dómarar geti tekið sér slikt vald
meðan aðrir telji ekkert athuga-
vert við myndatökur með
„flassi”. Telja þeir, að stjórn
dómarafélagsins eða almennur
fundur dómara verði að móta
stefnu i máli eins og þessu, en
ekki fáeinir dómarar. Hafa þeir
haft á orði, eins og fyrr segir, að
fara i verkfall, ef þessu banni
verður ekki aflétt.
LUtli
*****:
Einar Hjartarson, einn þeirra handknattleiksdómara, sem telja,
að ljósmyndarar hafi truflandi áhrif á leikmenn.