Tíminn - 26.01.1973, Page 19
Föstudagur 26. janúar 1973
TÍMINN
19
Aldrei langað FJabTshí
hrædd á leiðinni. En það voru
margar hendur til hjálpar, og
mikið ósköp var fólkinu vel
hjálpað — þessu, sem ekki gat
bjargað sér sjálft. —
— Ertu ekki eftir þig eftir
ferðalagið?
— Ekki mjög, en ég er nú samt
heldur lasnari en ég var. Þetta
var lika svo mikið áfall, eins og
þú getur imyndað þér.
— Fylgistu með fréttum frá
Eyjum?
— Já, já, ég hlusta mikið á út-
varpiðog horfi á sjónvarp. Þess á
milli er ég að hekla, mér finnst
alltaf betra að hafa eitthvað milli
handanna.
Gamla konan sýnir mér heklaðan
dúk, sem hún hefur verið að vinna
að,og sést ekki á honum, að henni
sé mikið farið að förlast.
— Ég er nú komin hingað til
Reykjavikur, þótt ég hafi aldrei
ætlað mér það, og maður verður
að taka þvi. Ég býst svo við, að ég
fari á Vifilsstaði, segir gamla
konan að lokum, og rósemin
bregzt henni ekki, þrátt fyrir allt,
sem yfir hana hefur dunið undan-
farna daga. JGK.
Víetnam
Framhald
af bls. 20.
væntanlega Vietnamráðstefnu. I
Peking telja menn þó, að Kin-
verjar muni taka þátt i slikri ráð-
stefnu. Fulltrúinn visaði aðeins til
opinberrar yfirlýsingar kin-
verska utanrikisráðuneytisins
fyrr i vikunni.þar sem vopnahlés-
samningunum var fagnað. Kin-
verjar hafa áður neitað að taka
þátt i ráðstefnu um Vietnam.
Ahrifamaður frá Noröurviet-
nam lét i gær i Peking i ljósi
vantrú á þvi, að Bandarikjamenn
héldu loforð sitt um að kalla heim
heri sina frá Suðurvietnam. Hann
benti á,að Bandarikjamenn hefðu
ekki skrifað undir Genfarsamn-
inginn 1954 og komið i veg fyrir.að
hann tæki gildi. — Bandarikja-
menn verða nú að viðurkenna, að
i Suðurvietnam eru tvær rikis-
stjórnir, tvenn stjórnkerfi, tveir
herir og þrir aðalstjórnmála-
flokkar, sagði þessi Norðurviet-
nammaður.
Nguyen Duy Trinh kominn
til Parisar.
Utanrikisráðherra Norðurviet-
nam.Nguyen Duy Trinh, kom til
Parisar á fimmtudag til að undir-
rita vopnahléssamninginn á
laugardag. Hann lét þar svo um
mælt, að landar hans myndu
standa viö sinn hluta samning-
anna. William Rogers utanrikis-
ráðherra Bandarikjanna er vænt-
anlegur til höfuðborgar Frakk-
lands á föstudag til að undirrita
samningana fyrir hönd Banda-
rikjastjórnar.
Mörg hundruð Vietnamar fögn-
uðu Trinh við komuna til Le
Bourgetflugvallar. Þeir sungu og
veifuðu þjóðfána sinum, þegar
hann ók til aðalstöðvar sendi-
nefndar Norðurvietnama i Paris.
Um 50.000 Norður- og Suðurviet-
namar búa i Frakklandi.
Jón Grétar Sigurðsson |
héraðsdómslögmaður
Skóla vörðustlg 12
Sími 18783
Sölusýning á kerrum
til sölu og sýnis i Skeifunni 8 (neðri hæð).
Fólksbílakerrur 3 gerðir
Jeppakerrur 2 gerðir
Dodge Weapon-kerrur 3 gerðir
Hestaflutningakerrur 1 gerð
Tank-kerrur 1 gerð
Norskar, danskar, enskar og ameriskar
gerðir.
Gísli Jónsson & Co. hf.
Simi 11740
Vélaborg
Skeifan 8 — Simi 86680
Auðbrekka 55
BRIMBERG HF., heildverzlun er flutt að
AUÐBREKKUR 55, Kópavogi. Simar
43622—42700.
Fyrirliggjandi:
Tréskrúfur, koparskrúfur, krómaðar
koparskúfur.
Stálskrúfur — Franskar skrúfur — Borða-
bolta —
Maskínuskrúfur.
Brimberg hf., heildverzlun.
x
VEITINGAHÚSIÐ
Lækfarteig 2
Hljómsveit
Guðmundar Sigurðssonar
Gosar — og
Tríó 72
Opið tii kl. 1
Gullsmiðurinn
Framhald
af bls. 9.
I hagnaðarskyni fyrir fyrirtæki
þeirra Rundells og Bridge, var
Storr neyddur til að gerast yfir-
maður starfsliðsins, sem siðan
var þjálfað I að ná nákvæmlega
handbragði hans, þvi að
pantanirnar streymdu inn og
þeim urðu fjármálamennirnir að
anna.
Rundell var lýst sem hörðum,
fráhrindandi og kauðalegum af
einum samtfðarmanna sinna.
Hann var einnig tortrygginn og
smámunasamur fram i fingur-
góma Illkvittni og aðrar illar
hvatir bjuggu svo margar með
honum, að þær komu fram i
hverri hans hreyfingu og andlits-
drætti.
Aftur á móti er Bridge sagður
hafa verið hæglátur,en þó skjótur
til. ,,Bak hans var einstaklega
sveigjanlegt, og enginn i allri
London gat bugtað sig og beygt
dýpra né oftar en hann”. Hann
var samningamaður fyrir-
tækisins og lykillinn að rekstri
þess.
Rundell dó milljónamæringur
og Bridge kunni þá að haga
málunum sér til hagræðis. Storr,
sem átti stóra fjölskyldu, gerðist
þá meðeigandi i fyrirtækinu, en
hann lenti á hausinn með þvi 1820.
Burtséð frá persónulegum
tengslum og fátækt virðist Storr
nú hafa langað til að hverfa frá
fjöldaframleiðslu til sérsmiði og
fins handiðnaðar.
Þá fór hann i félag með Joe
Mortimer, en þeir fóru fljótt á
hausinn, eða þvi sem næst, þar eð
Mortimer lá með of stóran lager.
Fyrirtækið var þó reist við, en
Storr átti i erfiðleikum með að
vinna með Mortimer.og árið 1839,
þegar hann var 68 ára að aldri, dró
hann sig i hlé. Hann lézt árið 1844
og lét lítið eftir sig, en mun hafa
verið búinn að gera hagstæðar
ráðstafanir fyrir fjölskyldu sina
áður en hann skildi við. Vinnu-
borð hans, verkfæri og teikningar
voru varðveitt, þar til i seinni
heimsstyrjöldinni, að þau urðu
eyðileggingunni að bráð.
Orðstir hans hefur verið á lofti
haldið, hæst i bók eftir N.M.
Pencer: „Paul Storr, siðasti gull-
smiðurinn”. Verðið á munum
hans hefur risið upp úr öllu valdi,
að hluta til vegna fjársterkra
ameriskra kaupenda, og einnig
vegna þess persónuleika,sem þeir
hafa til að bera. Nafnið Storr eitt
saman getur að sögn listmuna-
kaupmanna tvöfaldað verð
hlutarins. —Erl.
Víðivangur
Framhald
af bls. 3.
leika sjálfra sín. Ég hins
vegar — sagði Kristján, vona
aö hægt verði aö hagnýta
verksmiðjurnar i Eyjum. Af-
kastageta þeirra er 1.800 tonn
á sólarhring, og i raun þarf
ekki marga karlmenn til þess
að halda þeim gangandi”
TK
Leiðrétting
I frétt I blaðinu i gær, þar sem
sagt var frá þvi er varðskipiðTýr
skar á annan togvir togarans
Ross Altair, stóð, að togarinn
hefði verið á leið til Bretlands, en
átti að vera til Vestmannaeyja.
11—
liíím
yii
.
Fulltrúaráðsfundur
að Hótel Esju
mánudagskvöldið 29. janúar
Fulitrúaráðsfundur Framsóknarféiaganna I Reykjavik
verður haldinn að Hótel Esju næsta mánudagskvöid og hefst
kl. 20.30. Allir fulltrúar og varafulltrúar Framsóknarfélag-
anna i Reykjavik velkomnir.
Nánar auglýst siðar.
Stjórnin.
Þorrablót
Framsóknarfélögin I Kópavogi halda sitt árlega Þorrablót,
laugardaginn 3. febr. Nánar auglýst sfðar. Uppl. I sima 12504.
Skemmtinefndin.
Siglufjörður
Fundur verður I fulltrúaráði Framsóknarfélaganna á
Siglufiröi aö Aðalgötu 14,kl. 17.00 laugardaginn 27. janúar.
Rangæingar
Framsóknarfélag Kangæinga efnir til fjögurra kvölda
spilakeppni i félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli, sunnudags-
kvöldin 28. janúar, 18. febrúar, 4. marz og 18. marz n.k.
Keppnin hefst klukkan 21.00 öll kvöldin. Góð heildarverð-
laun og verðlaun fyrir hvert kvöld.
Stjórnin
íbúð
Landspitalinn óskar eftir að taka á leigu
ibúð 2ja til 4ra herbergja, helzt i nágrenni
spitalans.
Tilboðum, er greini frá staðsetningu,
stærð og leiguskilmálum, óskast skilað á
Skrifstofu rikisspitalanna, Eiriksgötu 3
sem fyrst.
Reykjavik, 25. janúar 1973.
Skrifstofa rikisspitalanna
Tilkynning til
Vestmannaeyinga
Sjúkrasamlag- og Tryggingaumboð Vest-
mannaeyja opnar skrifstofu i Hafnar-
búðum i Reykjavik föstudaginn 26. þ.m.,
en almenn útborgun bótagreiðslna hefst
mánudaginn 29. janúar.
Sjúkrasamlag Vestmannaeyja.
CUMMIVINNUSTOFAN
SKIPHOLTI 35, SÍMI 31055, REYKJAVÍK.