Tíminn - 26.01.1973, Blaðsíða 20
Föstudagur 26. janúar 1973
J
Auglýsingasímar
Tímans eru
1-95-23 & 18-300
GOÐI
fyrir góöan mut
$ KJÖTIDNADABSTÖD SAMBAHDSIHS
Tíminn er 40 síður
alla laugardaga og
sunnudaga.—
Áskriftarsíminn er
1-23-23
„ALDREI HEFUR MIG TIL
REYKJAVÍKUR LANGAÐ"
— sagði konan, sem flutt var úr Eyjum á 94. afmælis-
daginn sinn og hafði ekki fyrr á
ævinni í höfuðborgina komið
Hiö gamla spakmæli, a0
„enginn ræOur sinum næturstaö,
máttu Vestmannaeyingar sann-
reyna átakanlega aöfaranótt
þriöjudagsins. Og þaö er ekki
óliklegt, aö Jenný Guömunds-
dóttir, gömul kona í Eyjum, hafi
hugsaö sem svo, þegar hún var
vakin upp og beöin aö tygja sig tii
feröar. Hún var flutt tii Reykja-
víkur eins og aörir og haföi þá
aidrei um sina löngu ævi stigiö
þar niöur fæti.
En svo hittist á, að þessi
skelfingarnótt var aðfaranótt 94.
afmælisdagsins hennar. Hún
hefur vist ekki um ævina fengiö
verri afmælisgjöf.
— Mig hefur aldrei langað til
Reykjavikur, sagði hún, þegar
blaðamaöur ræddi við hana i gær,
þar sem hún býr hjá sonarsyni
sinum i Karfavogi 27. En svona
fór það. Og flest kemur fyrir.
— Hefurðu búið I Eyjum alla
þlna ævi?
— Nei, ekki er það nú. Eg er
fædd á Bakka i Austur-Landeyj-
um og var orðin fullorðin, þegar
ég fluttist til Vestmannaeyja, ég
var vist tuttugu og fimm ára þá.
— En þú ert fyrir löngu oröin
rótgróinn Vestmannaeyingur. —
— Já, mikil ósköp, mér hefur
alltaf liöið vel þar. Þar var gott að
eiga heima. Eyjarnar fóru alltaf
vel með fólkið sitt.
— Varstu húsmóöir I Vest-
mannaeyjum?
— Já, maðurinn minn var Jón
Guömundsson, hann stundaði
sjóinn og haföi ofurlitla útgerð.
Hann er nú dáinn fyrir mörgum
árum. Hann var ekki nema 47
ára, þegar hann féll frá. Við
bjuggum fyrst á Garðsstöðum,
siðan bjuggum við á hálfu Breið-
holtinu og þaðan fluttumst viö i
Mosfellið. Þar var dálitiö gras-
býli, og viö höfðum þar tvær kýr.
Ég bjó þar svo fyrst eftir aö hann
dójen fór svo til sonarsonar mins,
en siðustu árin hef ég verið I
sjúkrahúsinu i Eyjum.
— Þú hefur ekki mikið veriö á
ferðalögum um ævina?
— Nei, og mig langaði ekki til
þess. Viö vorum alltaf heimakær,
hjónin. Það var lika svo einstak-
lega fallegt á Mosfelli, það
stendur alveg upp undir Felli, og
það var sérstaklega kvöldfagurt
þar, þegar sólin var að.koma fyrir
Eiðiö.
Jú, ég kom i land fyrst eftir aö
ég fluttist i Eyjar. Ég var svolitið
i kaupavinnu þar fyrst I stað. En
heldurðu, aö það hafi ekki verið
nóg að gera i Vestmannaeyjum,
þegar þurrkur var og búið að
breiöa fiskinn,og allt var hvitt yfir
að lita af fiski? Það var aflasælt i
Vestmannaeyjum. Við höfðum
lika skepnurnarog ræktuðum kál.
Okkur langaði aldrei burt, en
undum okkur vel i Eyjum. Skelfi-
legt áfall er þetta nú fyrir allt
landið, aö þetta skyldi koma
fyrir.
— Þú hefur vaknað upp við
tiðindin um nóttina?
— Já, já, viö vorum vakin og
okkur sagt, að það væri kominn
upp eldur og við þyrftum að vera
ferðbúin eftir stutta stund.
Heldurðu, að það hafi verið
geðslegt? Mér hefur alltaf veriö
illa við flug, en ég var ekkert
Framhald á bls. 19
Víetnam:
Gæzlusveitirnar eiga
erfitt starf fyrir höndum
NTB—Washington, Phnom Penh,
Kambódiu.
Friðargæzlusveit skipuð 1160
mönnum veröur komin til
Vietnam 48 timum eftir að vopna-
hléssamningar Bandarikja-
manna og Suðurvietnama annars
vegar og Noröurvietnama hins
vegar hafa veriö undirritaöir i
Paris á morgun. Kanada,
Indónesia, Ungverjaland og
Pólland senda 290 menn hvert, en
allar þessar liðssveitir fá það
verkefni aö gæta þess,að ákvæði
vopnahléssamninganna séu hald-
in. Þær eiga að ljósta upp til-
raunum til aðflutnings á mönnum
og hergögnum og koma i veg fyrir
hernaöarátök milli styrjaldar-
aöila. Friðargæzlusveitin á að
hafa stjórn á nær 1,5 milljón
vopnaðra manna á svæði.sem er
heldur stærra en Noregur.
Þaö viröist nær vonlaust, að
þessar fámennu liössveitir geti
framkvæmt þetta verkefni, sem
þær eiga fyrir höndum, i landi þar
sem hundruð þúsundum skæru-
iiða og vopnuðum fastaherjum
hefur tekizt að leynast og jafnvel
koma upp herbúðum i frumskóg-
um og fjalllendi án þess aö finn-
ast.
Kanadamenn hafa tekið það
fram, að þeir skuldbindi sig
einungis til að sinna friöargæzl-
unni 160 daga. Þvinæst muni þeir
skoða hug sinn á ný.
Ekki auöveldar það gæzustarfið,
að samkvæmt vopnahlés-
samningunum eiga skýrslur
stjórnar friöargæzlusveitarinnar
að vera samhljóöa, jafnvel þótt
fulltrúar hvers einstaks lands i
friðargæzlusveitinni geti bent á
mismunandi atriði, sem þeir telja
brot á samningunum.
Hörö átök í Kambódíu.
Lon Nol forseti herforingja-
stjórnarinnar I Kambódiu hefur
harmaö, að vopnahléssamning-
arnir skyldu ekki einnig ná til
Kambódiu.og látið i ljósi vonir unv
að friður kæmist einnig á þar.
Hann virðist þó ekki i nánd, þvi
liðsveitirN stjórnarinnar og
kambódiskra kommúnista eiga
nú i höröum átökum, og Norður-
vletnamar virðast ekki hafa i
hyggju aö veröa við megin
kröfum kambodisku stjórnarinn-
ar. Talsmaður stjórnarinnar
sagði i gær, að hún áskildi sér rétt
til að leita til Bandarikjanna um
hernaðaraöstoð samkvæmt fyrri
áætlunum,svo aö efla mætti varn-
ir landsins. Hann sagði einnig.að
ætlunin væri að biðja um aðstoð
frá Bandarikjunum i formi flug-
afla, ef Norðurvietnamar drægju
ekki úr árásum sinum.
Víetnamráöstefna í Vín.
Alþjóöaráðstefna um Vietnam
verður væntanlega haldin i Vin i
Austurrlki, samkvæmt
upplýsingum frá Aöalstöövum
Sameinuöu þjóðanna I New York.
Auk styrjaldaraðiia i Vietnam-
deilunni eiga Kinverjar, Sovét-
menn, Frakkar og Bretar að taka
þátt I ráðstefnunni, ennfremur
löndin fjögur, sem taka að sér hið
alþjóðlega friðargæzlustarf I
Vietnam eftir að vopnahléð er
komið á. Aöalritari SÞ, Kúrt
Waldhein^ mun einnig eiga aðild
að umræðunum.
Fulltrúi kinversku stjórnarinn-
ar sagði I Peking I gær, aö Kin-
verjar heföu ekkert að segja unv
Framhald á bls. 19
Jenný Guðmundsdóttir
Timamynd GE
F0RSETI ISLANDS
MEÐAL GESTA í EYJUM
KJ—Vestmannaeyjum.
í fyrrinótt breytti vindáttin sér
nokkuö hér I Vestmannaeyjum,
og um klukkustundar skeið varð
vindurinn austanstæöari og lagði
Forsetinn I Vestmannaeyjum I gær.
Timamynd; Kári.
þá mikinn gosmökk, með til-
heyrandi öskufalli, yfir bæinn.
Var sama hvar farið var um
bæinn i gærmorgun, alls staðar
hafði askan dreifzt yfir og var
öskulagiö misjafnlega þykkt eftir
hvar verið var i bænum. I sumum
húsum buldi öskuregnið á rúðum
og þakjárni, svo þar var mörgum
erfitt um svefn i þessu steypi-
regni, en eftir þessa klukkutima
hrinu breyttist vindurinn aftur,
og i gærmorgun kom sólin upp
öllum i Vestmannaeyjum til
mikillar ánægju, og létti það skap
manna nokkuö.
Gosið lagðist niöur að nokkru
leyti um nokkurn tima i fyrrinótt,
en sótti svo aftur I sig veðrið, en
var þó meö minna móti um há-
degisbilið I gær. Glampandi sól
var þá I Vestmannaeyjum og
stirndi á jökla og fjallatoppa i
landi, og glampaði á Eyjafjalla-
jökul, Heklu og Tindfjöll.
Um hádegisbilið I gær kom
nefnd sú, sem skipuö hefur veriö
til að fjalla um efnahagsmái
Vestmannaeyja, til Eyja. Kom
hún undir forystu Tómasar Arna-
sonar. Gengu nefndarmenn um
staðinn og áttu siðan viöræður við
bæjarstjórn Vestmannaeyja.
Þá kom einnig um hádegisbilið
Kristján Eldjárn, forseti Islands,
til Eyja með vél flugmála-
stjórnar. 1 för með forsetanum
voru Agnar Koefed Hansen flug-
málastjóri og forstjórar beggja
stóru flugfélaganna, þeir Orn
Johnson og Alfreð Eliasson, og
fannst mönnum það timanna
tákn. Framhald á 5. siðu.