Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.02.1973, Blaðsíða 1
WOTEL WTIMIfí] VEITINGABÚÐ ,/Hótel Loftleiðir" er nýjung i hótel- rekstri hérlendis, sem hefur náð skjót- um vinsældum. Góðar veitingar, lipur þjónusta, lágt verð —ogopið fyrirallar aldir! BÝÐUR NOKKUR BETUR! V________________________________J Hraunbrúnin aðeins 400 m frá syðri hafnargarðinum Iskyggilegar horfur í Eyjum Færeyskt eðallyndi: FÁIR AÐ TÖLU - MIKLIR AÐ RAUSN SJ—Reykjavik. — Ég vil ekkert segja frá sjálfum mér um framlög héðan frá Færeyjum vegna Vestmannaeyjagossins, þar sem um gjafir er að ræða og ekki viðeigandi fyrir mig að fjölyrða um þær, sagði Atli Dam, lögmaður Færeyja, i simtali við Timann i gær. Hann gat þess þó utan dag- skrár, að landar sinir fyndu til rikrar samúðar meö Vest- mannaeyingum. Færeyingar teldu sig náskylda þvi fólki, sem nú hefði ýmist misst heimili sin og jafnvel allar eignir eða orðiö að hrekjast frá þeim. Margir Færeyingar hefðu dvalizt lengur eða skemur I Vestmannaeyjum, og náttúruhamfarirnar þar og af- leiðingar þeirra hefðu komið meira við þá en hliðstæðar fréttir annars staðar úr heiminum geröu að jafnaði. Almennur áhugi væri á þvi I landinu að hjálpa Islendingum eftir beztu getu, og teldu Færeyingar ekki óeölilegt að þeir legðu hlutfallslega meira aö mörkum vegna nálægðar og skyldleika, en aðrar fjar- lægri þjóðir. Landsþingið i Færeyjum hefur tilkynnt að það muni gefa um 10 milljónir islenzkra króna vegna gossins, og vill Timinn geta þess, svo að mönnum veröi ijóst, hvflik stórgjöf þetta er, að fjárlög Færeyja fyrir yfirstandandi ár nema 140 milljónum færeyskra króna eða rúmum 1.900 milljónum Islenzkum. Þá hefur Þórshafnarbær gefið eina milljón fsl. kr. 100 kr. á hvern ibúa. Fjárhagsáætlun Þórshafnar 1973 nemur 22 milljónum færeyskra króna eða um 315 milljónum islenzkum og Ibúar bæjarins eru um 10,000. Fisksölusam- band Færeyja gefur einnig eina milljón isl. kr. Þá er landssöfnun hafin i Færeyjum. Framkvæmd hennar annast 25 landssamtök og félög, sem eru sérstaklega tengd Islandi. Þegar hafa safnazt a.m.k. 3 milljónir Islenzkra króna I Þórshöfn einni, og búizt er viö að allt aö 8-10 milljónir safnist á öllum Færeyjum. Færeyingar eru um 39.000 talsins. Samkvæmt ofanrituðu má gera ráð fyrir, að þessi smæsta frændþjóö okkar veiti okkur a.m.k. 20 milljónir Islenzkra króna, fjárhags- styrk vegna eldgossins I Eyj- um. Það samsvarar meira en 500 íslenzkum krónum á hvert mannsbarn i Færeyjum. Nýr Vestmannaeyjaprestur FAÐIRINN VÍGÐI, BRÆÐUR OG AAÁG- AR VÍGSLUVOTTAR Karl Sigurbjörnsson var vigöur til Vestmannaeyja i dóm- kirkjunni s.l. sunnudag. t Vest- mannaeyjaprestakalli þjóna tveir prestar. Annar þeirra, Jóhann Hiiðar, hlaut nýverið kosningu i Nesprestakalli i Reykjavik, en séra Þorsteinn Lúter Jónsson þjónar enn I Vestmannaeyja- prestakalii. Enginn sótti um em- bætti séra Jóhanns er það losnaði, en safnaöarstjórn fór fram á það viö Karl, að hann tæki aö sér em- bættið er hann iyki guðfræöiprófi. Séra Karl er þriðji sonur Sigur- björns Einarssonar biskups, sem hlýtur prestvigslu. Var það óvenjulegt við þessa prestvigslu, hve mörg skyldmenni og tengda- menn voru viðriðnir athöfnina. Faðir Karls, herra Sigurbjörn, vigöi hann. Tveir bræður hans, séra Einar, sem er við fram- haldsnám i Lundi, og séra Arni Bergur.settur prestur i ólafsvík, voru vigsluvottar. Það voru einnig tveir mágar Karls, þeir séra Bernarður Guðmundsson æskulýðsfulltrúi, sem er kvæntur systur hans, og séra Guöjón Guð- jónsson, prestur I Stóra-Núps- prestakalli, en séra Karl er kvæntur systur hans. Vigslu lýsti sóknarprestur Vestmannaeyinga, sem fyrir var, séra Þorsteinn Lúter Jóns^ son, en prófastur i Kjalarnes- prófastsdæmi, séra Garöar Þor- steinsson, þjónaði fyrir altari. Þá má enn geta þess, að bróðir séra Karls, Þorkell Sigurbjörns- son tónskáld, samdi sérstakt verk, sem flutt var i fyrsta sinn við vigsluna I dómkirkjunni. KJ, Þó—Reykjavik. t gær tók hrauniö úr Kirkjufelli aö renna iskyggilega mikið i átt- ina að hafnarmynninu I Vest- mannaeyjum, og var hraunjaðar- inn I aðeins 400 metra fjarlægð frá vitanum á syöri hafnargarðinum þegar það stöðvaöist i gærkvöldi. Um klukkan sex á sunnudags- morguninn tók hraunið að renna i sjó fram skammt frá þar sem Kirkjubæirnir voru áður en þeir fóru á kaf undir hraun og ösku. Breiddi hraunið úr sér til norðurs, og mun skriðið hafa verið mest um miðjan dag á sunnudag. A sunnudagskvöldiö jókst rennsli nokkuð aftur og lengdist hrauntotan þá 160 metra til NV, eða i áttina að innsiglingunni. Upp úr hádeginu i gær hófst svo hraunrennslið á ný, en stöövaöist aftur um klukkan sex. Mældist hraunjaðarinn þá 400 metra frá syðri hafnargarðsvit- anum og 610 metra frá Yztakletti. Undir yfirborði sjávar er svo flái frá hrauninu og i áttina að inn- siglingunni. Er þar bæði um aö ræða molnað hraun, sem brimið hefur brotið úr hraunkantinum, og svo einnig gosefni,sem borizt hafa úr gignum og setzt á hafs- botninn. Ekkert mun hafa grynnkað á hinni venjulegu sigl- ingaleiö meöfram Yztakletti, en bæði vatnsleiðslan og rafmagns- leiðslan eru liklega huldar gos- efnum og hraunsalla, sem brotn- að hefur úr hraunjaðrinum. Björgunarstarfi lokið i bili Nú er lokið svo til allri björgun- arstarfsemi i Eyjum, og öll bú- slóö, sem tekin hefur verið úr húsum er nú lögð á stað eöa komin til Reykjavikur. — Það er ekki þar með sagt að öll búslóð hafi verið tekin úr húsum Vest- mannaeyinga, þvi sumir hafa alls ekki viljað láta hrófla við húsmunum sinum. Til' dæmis stendur stórum stöfum á útidyra- hurö húss eins við Höfðaveg, en það er vestarlega i bænum: „Hér má ekkert hreyfa.” Þetta bendir til þess, að a.m.k. sumir hverjir vilji alls ekki yfirgefa Eyjarnar. Björgunarliðar luku að mestu við að hreinsa af húsþökum á sunnudaginn — en þvi miður, byrjaði vikurregn i Eyjum i gær, og þvi má búast við að moka verði af húsþökum næstu daga. 1300 farþegar i 13 ferðum Varöskipin hafa mjög komið viö sögu i björgunarstarfinu i Eyjum, og hafa sum þeirra verið i sifelldum feröum milli lands og Eyja. Blaðamaður Timans var farþegi með Ægi frá Vestmannaeyjum til Þorláks- hafnar I fyrrakvöld. Þar fékk hann upplýst, að þetta væri 13. ferð Ægis á þessari leið, og væri skipið alls búið aö flytja um 1300 farþega fram og til baka. önnur varöskip, aöallega óðinn og Þór, hafa einnig fariö margar ferðir, þannig að ætla má, að varðskipin hafi eigi flutt færri en 2200 farþega milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Gullfoss, sem haföur var til taks við Vestmannaeyjar alla siöustu viku, ef svo skyldi fara, að menn þyrftu að yfirgefa Eyjarn- ar, fór frá Eyjum á sunnudags- nóttina og með honum um 300 þreyttir björgunarliðar, sem höfðu veriö I Eyjum frá þvi um miðja siöustu viku. Þá fóru um 100 björgunarliöar með Ægi i fyrrakvöld. Þegar þessir hópar voru farnir frá Vestmannaeyjum, var talið, að ekki væru nema um 200 manns i bænum, en á sunnu- daginn fóru einnig mjög margir til lands með flugvélum. Vikurregn i gær Um hádegisbilið i gær, snérist vindáttin i Eyjum til suð-austurs, og um klukkan 13.30 byrjaði aska aö falla yfir bæinn, mest þó aust- anvert i bænum. Jón Eiriksson, jaröfræðingur, Framhald á bls. 19 Séra Karl Sigurbjörnsson vigður prestur i Vestmannaeyjum. Tveir bræður hans og tveir mágar voru vigsluvottar, en faðir hans Sigurbjörn Einarsson biskup vigði, —TImamynd:GE.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.