Tíminn - 06.02.1973, Page 3

Tíminn - 06.02.1973, Page 3
Þriðjudagur 6. febrúar 1973. TÍMINN 3 Mikið áunnizt Sömu meöferð fær ný fræðslulöggjöf sem einnig er i deiglunni. Stefnt er aö þvf að tryggja i reynd jafnan rétt til fræðslu, ungra sem eldri, að aðlaga fræösluna samtlm- anum og skipuleggja upp- byggingu skólamannvirkja. Viihjáimur Hjálmarsson, alþingismaður á Brekku, skrifar grein i fyrsta tölublaö Austra, málgagn Fram- sóknarmanna i Austurlands- kjördæmi. i grein þessari gefur Vilhjálmur nokkurt yfir- lit um störf og stefnu stórnar- innar eftir eins og hálfs árs stjórnarferil. Hann minnir á aðgerðir þær, sem rikisstjórn- in gerði strax og hún kom til vaida I kjara- og trygginga- málum. Um aðrar aðgerðir rikisstjórna rinnar segir Vilhjálmur m.a.: Aðgerðir til efiingar at- vinnulífi eru snar þáttur stjórnarathafna á þessum misserum. Framkvæmda- stofnunin á að styðja sókn landsmanna á þessu sviöi. Mest hefur borið á endurnýjun fiski (togara)- flotans og upp- byggingu fiskiðjunnar. En margháttaðar aðrar fram- kvæmdir eru I gangi hjá hin- um ýmsu atvinnugreinum. Dæmigerð fyrir stefnubreyt- ingu i átt til byggðajafnvægis er dreifing nýju togaranna á tuttugu hafnir. Fuil atvinna fyrir alla er það markmiö, sem að er stefnt. Leitazt er við aö hraða félagslegum framkvæmdum. Framlög rikisins tii hafna, flugvalla og vega eru aukin mikið. Vegagerö á Skeiöarár- sandi er sérstaks eðlis, þvi hún opnar hringveg umhverfis landið. Bættar samgöngur auka jafnvægi I byggð landsins. Sama tilgangi þjónar þriggja ára áætlun unt iikning rafvæð- ingar islands og löggjöf frá siöasta þingi um jöfnun náms- kostnaöar. Áfram á sömu braut A sama hátt og hér er getið nokkurra þeirra atriöa i mótun félagshyggjustefn- unnar, sem nú þegar eru kontin á framkvæmdastig,skal drepiö á örfá verkefni til viö- bótar. Rikisstjórnin hefur hafizt handa um aukna landgræðslu, verndun gróðurs og umhverfis og um skipulegri nýtingu landgæða en nú á sér staö. i raforkumáium hefur rikis- stjórnin markað þriþætta stefnu: Næg orkuframleiösla fyrir tslendinga. Orkuveitu- svæðin tengd saman. Jöfnun raforkuvcrðs. Frumvarp að nýrri heil- brigðislöggjöf er I smlöum og stefnir að skipulegri uppbygg- ingu heilbrigöisþjónustunnar og aðstöðu tiiaöinna hana af höndum á svo fullnægjandi hátt sem auðiö veröur. Máliö hefur áður verið sýnt og kynnt landsmönnum sérstaklega. Stjórn Félags isl. iðnrekenda á 40 ára afmælinu. F.v. Pétur Pétursson, Björn Þorláksson, Haukur Eggertsson, Gunnar J. Friöriksson formaður, Daviö Sch. Thorsteinsson. Kristinn Guðjónsson og Björn Guðmundsson. Skattheimta rikisins og tekjustofnar sveitarfélaga er i skoðun hjá þar til kvöddum mönnum. Þörf úrbóta er brýn þvi kerfið er of flókið og tryggir þegnunum ekki rétt- læti svo viðunandi geti taiizt. Tekju- og verkefnaskipting rikis og sveitarféiaga er einnig til athugunar. Rekur þar m.a. á eftir breytt viðhorf i sveitarstjórnarmálum.” —TK Hérna eru sjö þeirra manna,sem heiðraðir voru I gær fyrir meira en 40 ára starf við islenzkan iðnað. Þeir eru f.v. Jón Oddsson I Héðni, Ólafur ögmundsson og Jakob Einarsson úr Viði, Sigurþór Þórðarson Blikksmiðju J.B. Péturssonar, Kjartan Jónsson,Sigurður Haraldsson og Jón Sigurðsson allir úr Héðni. (Tímamyndir Gunnar) Iðnrekendur heiðra trygga starfsmenn í tilefni af 40 ára afmæli félagsins í dag Gunnar J. Friðriksson afhendir fyrsta heiöursskjalið i gær, og viðtak- andinn er Andreas Bergmann i Vtlundi. KJ—Reykjavik. Félag islenzkra iðnrekenda er fjörutiu ára i dag, og i gær voru milli 40 og 50 starfsmenn ýmissa iðnfyrirtækja heiðraðir fyrir meira en 40 ára starf að islenzk- um iðnaði. Þá var Sveinn Valfells kjörin heiöursfélagi FII i dag. Gunnar J. Friðriksson for- maður félagsins afhenti heiðurs- skjölin, en viðstaddir voru m.a. Magnús Kjartansson iðnaðarráð- herra og stjórnarmenn Félags isl. iðnrekenda. í ræðu, sem formaðurinn hélt við þetta tækifæri, sagði hann m.a. „Allir munu vera á einu máli um það, að gifurlegar framfarir hafi orðið i iðnaði. Þær framfarir væru óhugsandi án stöðugs og góðs vinnuafls og er þvi full ástæða til að þakka þvi fólki, sem hefur gert þessar öru framfarir mögulegar”. „Einn mikilsverðasti þáttur i öllu atvinnulifi er fólkið. Það á jafnvel enn frekar við um iðnað en aðra framleiðslu, þar sem þar reynir, að jafnaði, meira á nákvæmni og vandvirkni, en við önnur framleiðslustörf. Það hafa verið gerðar meiri kröfur til þeirra sem i iðnaði vinna, vegna þess að iðnaðurinn er það ungur hér á landi, að það var ekki til nein hefð. Fólk varð þess vegna að tileinka sér gjörólik vinnu- brögð, frá þvi er áður hafði tiðkast með þjóðinni”. „Okkur þótti rétt að þakka öllum þeim, sem unnið hafa allt æfiskeið félagsins og lengur við að byggja upp iðnaðinn, sem nú er orðinn stærsta atvinnugrein þjóðarinnar.” Hér á eftir fara nöfn þeirra, sem heiðraðir voru i gær, og nöfn fyrirtækjanna> sem þeir vinna hjá i dag, en flestir hafa unnið hjá sama fyrirtækinu allan þennan tima. Óli M. ísaksson Heklu. Vinnufatagerð Island Anna Kristin Þorkelsdóttir, Kristin Kristjánsdóttir, Sig- tryggur Jónsson og Sigurður P. Gestsson. Trésmiðjan Viðir Einar Waage, Jakob Einars- son, Þorsteinn Þórðarson, Þórir Þorleifsson, Max Jeppesen Ólafur ögmundsson. Guðrún Sigurðardóttir, Faco. Ingibjörg Guðjónsdóttir, Svan. Þórdis Guðjónsdóttir og Kristin Jónsdóttir Sjóklæðagerðinni. Karl Einarsson, Hreini. Anna Sveinsdóttir, Viking. Sigurður Waage og Matthias Waage, Sanitas. Sigurþór Þórðarson Blikksmiðju J. B. Péturssonai; Jón Hjörtur Jónsson Rafha. Jóhann Kr. Þorsteinsson Hörpu. Þorsteinn Halldórsson Isaga. Jakobina Jóhannesdóttir, Egill Sigurðsson og Sigriður Jónsdóttir Alafossi. Steinunn Sigurðardóttir. Opal. Friðrik Danielsson, Hjalti Gunnarsson og Ingibjörg Jóns- dóttir Frigg. Sigurður Haralds- son, Kjartan Jónsson Sveinn Guð- mundsson Jón Oddsson og Jón Sigurðsson allir úr Héðni. Ólafur Hjartarson og Guðlaug Pétursdóttir frá Kaffibætisverk- smiöjunni O. Johnsen og Kaaber. Guðjón Guðjónsson, Jón Hafliöa- son og Andneas Bergmann frá Völundi. Asgeir Matthiasson Glófaxa. Jóhanna Hannesdóttir Alafossi. Ólafur Dagfinnsson Kassagerð Reykjavikur. Guðmundur Kr. Halldórsson, Jón Björnsson, Er- lendur Jóhannsson, Þórólfur Beck, Guðjón Ó. Guðmundsson og Gunnar Eliasson allir starfsmenn hjá Kristjáni Siggeirssyni h.f. Björn Bjarnason Iðju. Fjársöfnun skipulögð meðal V-lslendinga Forsætisráðherra hafa borizt margar hluttekningarkveðjur viða að úr heiminum, bæöi frá einstaklingum, féiögum og rikj- um vegna náttúruhamfaranna i Vestmannaeyjum, m.a. frá Þjóð- ræknisfélagi tslendinga i Vestur- heimi. Með bréfi dagsettu 31. janúar sendi Grettir Leo Jóhannsson, aðalræöismaður Islands i Winni- peg og féhiröir Þjóðræknisfélags- ins, forsætisráðherra hlut- tekningarkveðjur og ávisun að upphæð 2.640 dollara eða um 260.000 krónur frá Vestur- Islendingum. 1 bréfinu segir m.a.: „Fyrsta mál, sem tekið var fyr- ir á dagskrá 54. ársþings Þjóð- ræknisfélags Islendinga i Vestur heimi, voru frásagnir og um- ræður um eldgosið i Vestmanna- eyjum, og á hvern hátt við gætum veitt heimaþjóðinni hluttekningu i þeim gifurlega vanda, sem nú hefur að höndum borið. Var ákveðið að hefja fjársöfnun á meðal Vestur-íslendinga sem fyrst sem litilsháttar vott um samhryggð okkar, og meðfylgj- andi bankaávisun er fyrsta borg- un, sem við látum af hendi rakna: en við vonum, að þegar búið verð- ur að skipuleggja fjáröflun meðal Vestur-Islendinga yfirleitt muni stærri upphæð verða send siðar meir”. Með bréfinu fylgdi listi yfir 12 aðila, sem lagt höföu fram féð.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.