Tíminn - 06.02.1973, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 6. febrúar 1973.
Klæjar þig i nefið,
herra forseti?
Maðurinn, sem þið sjáið hér á
myndinni hangandi i mörgum
linum hefur með hendi mjög
sérstæða atvinnu. Hann er
ráðinn til þess að pússa nefið á
fjörum látnum forsetum
Bandarikjanna. Vinnustaður
hans er i 500 metra hæð yfir
jörðu i Rushmorefjöllum i Black
Hills i Suður Dakota i Banda-
rikjunum. Hann og starfs-
félagar hans tveir eiga tvisvar
sinnum á ári að athuga útlita
hinna geysistöru úthöggnu
andlita bandarikjaforsetanna
fjögurra — Abrahams Lincolns,
George Washingtons, Thomas
Jeffersons og Theodore Roose-
velts. Þremenningarnir eru
bundnir i mikil bönd, svoi þeir
hrapi ekki niður úr andlitunum,
og verkið er svo umfangsmikið,
að þeir hafa alls ekki tima til
þess að njóta útsýnisins sem er
hreint og beint stórkostlegt
þarna um slóðir. Það var
dansk-ameriski listamaðurinn
Gutzon Borglum, sem gerði
myndirnar af forsetinum.
Hann hóf verkið árið 1929, en
lauk þvi ekki, en hann lézt árið
1941. Þá var töluvert eftir til
þess að hægt væri að segja, að
höggmyndir þessar væru full-
gerðar, og lauk sonur Gutzon,
Lincoln verkinu. A myndinni er
verið að hreinsa nefnið á Abra-
ham Lincoln.
Jólag jafir handa 7
einkariturum.
John Kell Martin i Palm Beach
á Florida fór út að verzla með
öllum einkariturunum sinum, 7
að tölu. Þær máttu velja sér
jólagjafir hver fyrir sig að
upphæð 100 dollara, eða 10.000
isl. króna. Val þeirra var eins
margbreytilegt og þær voru
margar, og tók allt allt frá stutt-
buxum til siðkjóla og hvers
konar snyrtivarnings. 1 staðinn
gáfu þær honum tvær rúllu-
kragapeysur.
Fjölhæf stúlka
Það er sannarlega gott að vera
fjölhæfur, og þaö er ekki annað
hægt að segja, en hún Mabel
Hagelin sé það. Hún hefur bæði
sýnt, að hún er ágætis leikkona
og fyrirmyndar ljósmynda-
fyrirsæta. Þar að auki hefur hún
unnið i gestamóttöku á hóteli,
verið skiðakennari og leiðsögu-
maður ferðamanna. Henni
gengur ekki eins vel að hneppa
hnöppum, eins og allt hitt, sem
hún gerir af mikilli prýði, en
hver vill annars að hún hneppi
aðsér? Er ekki miklu skemmti-
legra að sjá hana svona frá-
hneppta?
—Gögnuöu gleraugun
þér eitthvað, eða ertu enn með
bletti fyrir augunum?
—Það reynast ágætlega. Nú sé ég
blettina miklu betur.
Henrik hafði fengið falskar
tennur og var ekki rétt ánægður
með þær. Hann fór til tannlæknis,
sem spurði hvort hann hefði tann
pinu á næturnar.
—Ég veit það eiginlega ekki,
svaraði Henrik, — þvi ég sef ekki i
sama herbergi og tennurnar.
DENNI
DÆMALAUSI
■V7
Ég sá þessa mynd, þegar ég var á
þinum aldri. — Var hún nokkuð
betri þá?