Tíminn - 06.02.1973, Síða 20
Þriftjudagur
6. fcbrúar 1973.
Auglýsingasímar
Tímans eru
1-95-23 & 18-300
Hlégarður
g <-Samkomusalir t
til leigu fyrir:
Arshátiöir, Þorrablót, fundi,
% ráðstefnur, afmæiis- og ferm-
ingarveizlur. Fjölbreyttar
^ veitingar, stjórir og litlir salir,
' stórt dansgólf. Uppl. og pantan-
hjá húsverði i sima 6-61-95.
©GQÐI
,L J fyrir tjóóan mai
$ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS
Umferðarljós komin á versta hornið
Um helgina voru tengd umferðarijós á einum mestu slysagatnamótum borgarinnar....Kringlu-
mýri/Háaleitisbraut. Þessi gatnamót hafa löngum vaidið ökumönnum og lögreglunni hinum
mestu vandræðum, enda hafa þarna orðið margir árekstrar og slys á undanförnum mánuðum.
Samkvæmt skýrslum lögreglunnar urðu á þessum gatnamótum 36 árekstrar á siöasta ári. Þar
fyrir utan urðu 2 árekstrar þar sem siys varð á farþegum og ökumönnum, og f einu tilfelli var
ekið á hjólreiöamann. Þá hafa oröiö margir árekstrar á þessum gatnamótum.þar sem lögreglan
hefur ekki veriö tilkvödd og sömuleiðis margir árekstrar f næsta nágrenni við þau.
—Timamynd Robert
VÍETNAM:
Heimför Bandaríkja-
manna dregst á langinn
NTB—Saigon, Parfs.
Fyrstu meðlimir alþjóðlegu
gæziusveitarinnar fóru frá Saigon
á mánudagsmorgun til að hefja
starf sitt á vigvöllunum. Þeir
flugu til Hue, Da Nang og Pleiku,
en ætlunin er að setja upp aðal-
stöðvar á sjö stöðum i landinu.
Þá fengu eftirlitsmennirnir það
verkefni að rannsaka tildrög
þess, að Norður-Vietnamar tóku
flotahöfn i nánd við hlutlausa
beltið milli Suður og Norður
Vietnam. Suður Vietnamar tóku
stöð þessa tyeim minútum áður
en vopnahlé gekk i gildi, en urðu
aö láta hana af hendi nokkrum
dögum siðar fyrir eldflaugahrið
og kúlnaregni andstæöinga. Her-
stjórn Suður Vietnam hefur
mótmælt þessu og kveöur 100
Suður Vietnama hafa falliö eða
særzt I þessari viðureign.
Leiötogar Norður Vietnam og
Þjóöfrelsishreyfingar S-Vietnam
hafa ákveðið að fresta heimsend-
ingu bandariskra striðsfanga.
Astæðan fyrir þvi er sú, að banda-
riskir embættismenn hafa ekki
enn viljað leggja fram nákvæma
áætlun um hvenær bandarlskir
hermenn veröa kallaöir heim frá
Vfetnam. Fregnir frá hinni sam-
eiginlegu nefnd styrjaldaraðil-
anna herma ennfremur, að Þjóö-
frelsishreyfingin hafi enn beöið
um timaáætlun i gær. En fulltrúi
Bandaríkjamanna, Gilbert Wood-
ward, hafi svaraö þvi einu, að
hann vissi aðeins þrð, aö 28. marz
yrðu allir bandarískir hermenn
farnir frá Vietnam.
Brian McCauley aðmiráll og 14
samstarfsmenn hans flugu til
Hanoi i gær til aö ræða með
hverjum hætti bandarisk
tundurdufl veröa fjarlægö úr ám,
höfnum og frá ströndum N-Viet-
nam.
Fulltrúar Saigon-stjórnar og
bráöabirgöabyltingarstjórnar S-
Vietnam héldu fund i Paris i gær
og ræddu stjórnmálalega framtlö
S-Vietnam. Báöir aðilar gáfu i
skyn, að senn hæfust i Saigon
umræöur um myndun þjóöarráös,
sem vinna skal að sáttum og
samvinnu. Þjóðarráðið á að
undirbúa og stjórna kosningu nýs
þings S-Vietnam.Það á einnig að
ákveða hvað gera skuli við póli-
tiska fa*|ga þá, sem Þjóðfrelsis-
hreyfingni og s-vietnömsk yfir-
völd haldaNenn. 1 ráðinu eiga að
vera 90 markns valdir af Saigon-
stjórn, ÞjóðWelsishreyfingu og
hlutlausum hópum I S-Vietnam.
Samkvæmt vopnahléssamningn-
um á ráðið að komast á laggirnar
90 dögum eftir vopnahlésdaginn.
„Eins og á síldarárunum”
segja Austfirðingar
- 11 þúsund lestir af loðnu bárust til Austfjarða í gær
ÞO—Reykjavik
Geysimikil loðnuveiöi var út af
Eystra-Horni i fyrrinótt. Um
hádegi I gær var vitað um 40
báta, sem fengið höfðu einhverja
veiði, samtals um ellefu þúsund
lestir. Eftir þeim upplýsingum,
sem við höfum fengið, hefur
aldrei fengizt jafn mikiö loðnu-
magn á einni nóttu.
Þessi gifurlega veiði hefur
oröiö til þess, að löndunarstöðvun
er nú á öllum höfnum austanlands
allt frá Hornafirði til Seyðis-
fjarðar, en i dag var þess að
vænta, að 3500 tonna þróarrými
losnaði á hinum ýmsu Aust-
fjarðarhöfnum. Að sjálfsögðu eru
Austfirðingar mjög ánægðir yfir
þvi mikla loönumagni, sem rú
berst á hafnirnar, og sumir
þeirra, sem við ræddum við i gær,
sögðu, að þetta væri að verða eins
og á sildarárunum. Menn væru
við vinnu, eins og þá, og nefnd
voru dæmi um, að menn hefðu
ekki hvilzt i tvo sólarhringa.
Hjálmar Vilhjálmsson, sem nú
er leiðangursstjóri á Arna Friö-
rikssynúsagði i samtali viö blaðið
i gær, að aðalveiöisvæöi bátanna
I fyrrinótt hefði veriö 23 sjómilur
suðaustur af Eystra-Horni og
loðnan hefði litið hreýft sig til
suðurs siðustu sólarhringana.
Hann sagði,að veiðin i fyrrakvöld
hefði ekki byrjað fyrr en eftir kl.
10, en fram til þess tima var
bræla á miðunum. Bátarnir
þurftu stundum ekki að kasta
nema einu sinni eða tvisvar
Framhald á bls. 19
ÖRVÆNTING
í BELFAST
NTB—Belfast-
Meiri sundrung, reiöi og
beizkja rikti i gær I Belfasthöfuö-
borg N-trlands. en nokkru sinni
áöur á nær fjögurra ára timabili
óeiröa i Ulster eftir geigvænlegar
blóösúthellingar um helgina.
Tiu óbreyttir borgarar féllu
fyrir byssukúlum brezkra her-
manna og hryöjuverkamanna.
Fimmtán manns hafa látiö lifiö á
fjórum dögum, og þar meö var
tala fallinna komin upp i 711 frá
þvi 1969.
Hinn opinberi hluti irska lýð-
veldishersins tilkynnti I gær, að
hann mundi styöja alla hópa, sem
ákveða aö reisa götuvirki og
giröa af kaþólsk hverfi til að
koma i veg fyrir hryöjuverk. t
maí I fyrra lýsti hinn opinberi
hluti Lýöveldishersins yfir
vopnahléi i bardaganum við lið —
sveitir Breta I landinu.
Málgögn mótmælenda ræddu I
gær, að ef til vill væri timi til
kominn, að herstjórn tæki völd I
N-lrlandi.
545 FRANSKIR
LÆKNAR JÁTA
FÓSTUREYÐINGAR
NTB—Parls-
Tvöhundruö franskir læknar
skýröu frá þvi I gær, aö þeir
ætluöu aö viöurkenna opinber-
lega, aö þeir heföu framkvæmt
fóstureyöingu eöa aöstoöaö viö
slika aögerö. Aöur höföu 345
starfsbræöur þeirra franskir gert
hliöstæöa játningu, en læknarnir
vilja, aö fóstureyöingar veröi lög-
legar I Frakklandi.
Yfirlýsing læknanna er liður i
áralangri baráttu fyrir afnám 52
ára gamalla laga, sem banna
bæöi fóstureyöingar og getnaöar-
varnir I Frakklandi.
Læknarnir 200 hafa rannsakað
vandamál i sambandi viö fóstur-
eyöingar. Skýringar þeirra á þvi
hversvegna þeir hafi framkvæmt
slikar aðgeröir verða birtar á
miðvikudag, og þá munu þeir
jafnframt hvetja yfirvöld til að
leyfa fóstureyöingar i vissum til-
fellum.
Fyrri hópurinn er kröfuharðari
— hann vill alveg frjálsar fóstur-
eyðingar og kynferðismála-
fræðslu fyrir allar konur, einnig
undir lögaldri. Þessir 345 læknar
uröu fyrstir mann I Frakklandi til
aö játa á sig óíöglegar fóstureyö-
ingar og þar meö lögbrot.
Framhald á bls. 19
v J Samband isl. samvinnufélaga 'j
IN N FLUTN1NGSDEILD
TÍGRIS
\Í»|lf
antfaiay.
straufría sængurfataefnið er nú fyrirliggjandi í mörg-
um mynztrum og litum.
Einnig í saumuðum settum. Kærkomin gjpf, hverj-
um sem hlýtur.
Sparið húsmóðurinni erfitt verk, sofið þægilega og
lífgið upp á litina í svefnherberginu.
Reynið Night and Day og sannfærizt.