Tíminn - 10.02.1973, Blaðsíða 7
Laugardagur 10. febrúar 1973
TÍMINN
7
Gagnfræðaskóli
Vestmannaeyja
tekinn til starfa
í Reykjavík
Nemendur úr Gagnfræöaskóla Vestmannaeyja fyrir utan Laugalækjar
skóla, þar sem þeir munu stunda nám, það sem eftir er vetrar.
Eyjólfur Pálsson, skólastjóri úr Eyjum, vinnur aö skipulagningu skólastarfsins i Reykjavik, ásamt
kennurunum Björgu Bjarnadóttur og Birgi Baldvinssyni. Timamyndir Róbcrt.
MEÐAL ÞEIRRA fjöl-
mörgu vandkvæöa, sem
steðja að vegna skyndilegs
brottflutnings Vestmanna-
eyinga, er að börn og ung-
lingar á skólaskyldualdri
eru rifin frá heimkynnum
sínum og skólum á miðjum
vetri, og eiga fyrirsjáan-
lega ekki afturkvæm á
þessum vetri. Er því ekki
um annað að ræða, en að
koma börnunum fyrir í öðr-
um skólum, þótt flestir eða
allir þeirra séu fullsetnir,
sem kunnugt er. Reynt hef-
ur verið að skipuleggja
áframhaldandi skólagöngu
Vestmannaeyjabarna eflir
föngum en skólamönnum
er mikill vandi á höndum,
því f jölsky Idurnar eru
dreifðar víða um landið og
fæstarþeirra vita hvarþær
verða búsettar næstu mán-
uði.
Langflestar Eyjafjölskyldur
eru i Reykjavik og þar er þörfin
fyrir viðbótarskólahúsnæði brýn-
ust.
Sá háttur hefur verið hafður á i
Reykjavik og annars staðar, að
börnum á barnaskólaaldri hefur
verið komið i þá skóla, sem næstir
eru þeim heimilum, sem þau búa
nú í, þar sem ekki er mögulegt,
til dæmis i Reykjavik, að láta ung
börn ferðast daglega um langan
veg til að sækja skóla. Eru þvi
börnin sett i bekkjardeildir með
jafnöldrum sinum, hvert i sinum
skóla. Sama er að segja um ung-
linga á gagnfræðastigi, nema i
Reykjav.. Þar er Gagnfræðaskóli
Vestmannaeyja áfram og hófst
kennsla i gær. Flestar bekkjar-
deildir hafa fengið inni Lauga-
lækjarskólanum, en einnig fer
kennsla fram i nokkrum bekkjum
i Laugarnesskóla og Langholts-
skóla.
Timinn haföi i gær tal af Eyjólfi
Pálssyni, skólastjóra Gagnfræða-
skóla Vestmannaeyja, er hann
var önnum kafinn við að skipu-
leggja kennsluna og koma skóla-
starfinu i eins eðlilegt horf, og
unnt er við slikar aðstæður, er
skapazt hafa. Sagði hann, aö af
260 nemendum skólans væru nú
175 skráð i Reykjavik. Aðrir
nemendur skólans, sem búsettir
eru utan Reykjavikur eru i gagn-
fræðaskólum þar sem þau búa,
nokkrir nemendur hafa sótt um
að komast að i héraðsskólum, og
enn er dálitill hópur, sem ekki
hefur gert vart við sig, og þvi ei
vitað hvar þeir nemendur eru nið-
ur komnir eða hvar þeir hyggjast
sækja skóla. Það er áberandi hve
nemendur eldri bekkjanna hafa
margir látið skrá sig, en af tveim
yngstu árgöngunum vantar enn
40 til 50%.
t Laugalækjarskóla hefur ann-
ar til fimmti bekkur fengið inni i
nýrri áfanga skólabyggingarinn-
ar, alls átta bekkjardeildir. í
Langholtsskólanum er sjöundi
bekkur barnaskólans i Vest-
mannaeyjum, en hann telst til
gagnfræðadeildar og i Laugar-
nesskóla er sjötti bekkur Gagn-
fræðaskóla Vestmannaeyja. í
hvorum siðarnefndu skólanna eru
þrjár bekkjardeildir Vestmanna-
eyinga.
Við Gagnfræðaskóla Vest-
mannaeyja starfa 12 fastráðnir
kennarar og átta stundakennar-
ar. Allir fastráðnu kennararnir
halda áfram kennslu við skólann
og þeir af stundakennurunum,
sem þörf er fyrir. Eyjólfur sagði
að höfuðáher2la verði lögð á að
halda áfram kennslu i bóklegum
greinum, en fella verði niður
kennsiu i matreiðslu, handavinnu
og sennilega i iþróttum og jafnvel
fleiri greinum. Skólastarfið hefst
kl. 1 eftir hádegi, og lýkur kl. 5 i
flestum deildum. En á laugardög-
um er fri i þeim skólum, sem
Eyjamenn hafa fengið inni i og
verður þá hægt að kenna fyrir
hádegi og verður húsnæði og tim-
inn nýttur eins og kostur er á.
— Ég held, að þegar á allt er
litið, hafi gengið vonum framar,
að koma skólastarfinu af stað aft-
ur, sagði Eyjólfur. Kennslan féll
niður i rúmlega tvær vikur, og
þótt hún hefjist i dag, er ýmislegt
sem á vantar, t.d. bækur og
fleira, sem nemendurnir hafa enn
ekki fengið i hendur.
Okkur er kunnugt um að fleiri
af nemendunum vilja koma hing-
að og halda áfram námi sinu, hjá
þeim kennurum sem þeir höfðu,
og með skólasystkinum sinum.
Þótt þeir séu setztir i aðra skóla
eru ávallt erfiðleikar þvi samfara
að skipta um skóla á miðjum
vetri. Yfirferð i námi og náms-
bækur eru nokkuð breytilegar eft-
ir skólum og getur tekið langan
tima fyrir nemendur að samlag-
ast námskerfinu i öðrum skólum.
Það má ekki skilja þetta svo að
aðrir gagnfræðaskólar séu á
neinn hátt verri en okkar skóli,
heldur aðeins að það er eðlilegra
fyrir unglingana að vera i sama
skólanum allt skólaárið.
Oskar Magnússon, skólastjóri
Laugarlækjarskóla, sagði að hús-
rými skólans væri sannarlega
fullnýtt. Hefði skólinn verið full-
setinn fyrir, en samt væri sjálf-
sagt að rýma fyrir Vestmannaey-
ingunum, eins og nokkur kost-
ur væri á, og væri hver smuga i
skólanum notuð. Rýmdar voru
átta stofur i öðrum áfanga
byggingarinnar kl. 1 og þeir
bekkir, sem þar voru að jafnaöi,
og ekki hafa lokið daglegri skóla-
göngu þá væru færðir i aðrar stof-
ur, sem losnuðu. Yrði af þessu að
visu nokkurt rask, en mikilvægt
þætti, að nemendur og kennarar
Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja
gætu haldið hópinn eins og kostur
er á og þvi hafi einnig verið
ákveðið að þeim bekkjum skól-
ans, sem ekki er nokkur leið að
koma fyrir i Laugalækjaskóla
væru i þeim skólum sem næstir
eru, þ.e. Langholtsskóla og
Laugarnesskóla.
í Laugalækjarskóla er fyrir 500
nemendur. Siðan bætast Vest-
mannaeyingarnir við og á kvöldin
eru þar til húsa Kvöldskólinn og
Námsflokkar Reykjavikur. Sagöi
skólastjórinn að nærri léti að milli
1600 og 1700 nytu kennslu i hús-
næði skólans núna.
— OÓ.
Fyrsta kennslustund 4. bekkjar A úr Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja I Laugalækjarskóla.