Tíminn - 10.02.1973, Blaðsíða 28

Tíminn - 10.02.1973, Blaðsíða 28
Auglýsingasímar Tímans eru 1-95-23 & 18-300 Hlégarður Samkomusalir til leigu fyrir: Arshátiðir, Þorrablót, fundi, ráðstefnur, afmæiis- og ferm- ingarveizlur. Fjölbreyttar veitingar, stjórir og litlir salir, stórt dansgólf. Uppl. og pantan- ir hjá hiisverði i sima 6-61-95. GOÐI fyrirgóöan mai $ KJÖTIDNADARSTÖD SAMBANDSINS VIÐ DREKKUM MEIRA OG MEIRA! Afengisneyzla á mann á siðasta ári var 2,81 litri. Þessi náungi hefur trúlega tekið út allan sinn „skammt” i einu... og liklega vel það. Klp-Reykjavik. tslendingar slógu öll sin fyrri drykkjumet á árinu 1972. Þetta kemur fram I skýrslu frá Afengisvarnaráði um áfengis- sölu og áfengisneyzlu á árinu 1971 og 1972. i þessari skýrslu er litið annað að finna en tölustafi, en úr þcim má þó lesa ýmsar stað- reyndir um þetta vandamál. A árinu 1972 eyddu íslendingar nær 410 milljónum króna meiru i kaup á áfengi en árið áður. En á siðasta ári var keypt áfengi fyrir samtals 1.493.857.666 kr. á móti 1.084.532.329 kr. Er söluaukningin 37,7%. Hækkunin varð mest i Reykjavik, liðlega 300 milijónir, næst kom Akureyri með 47 millj. siðan Isafjörður með 18 millj., Keflavik með 14 millj. og Seyðis- fjörður með 12 milljónir. Þar á eftir koma svo Vestmannaeyjar með 9 milljónir en Siglufjörður rekur lestina með um 5 milljón króna hækkun. 1 sambandi við þessar tölur ber þess að geta.að útsöluverð áfengis hækkaði all- mikið á siðasta ári. Ef könnuð er áfengisneysla á mannmiðað við 100% áfengi kem- ur i ljós, að neysluaukning á árinu 1972 frá árinu áður er 0,11 litrar á mann eða 4,1%. Aukningin hefur verið nokkuð stöðug undanfarin 8 ár. Að visu hefur verið minna drukkið á árunum 1968 og 1969, enda var fjárhagur landsmanna þá yfirleitt heldur bágborinn. En siðan hefur strikið legið heldur upp á við og nær það hæst á sið- Söltuð loðna er afbragðs fóður Er ekki rdð að kaupfélögin taki að sér loðnusöltun fyrir bænd- ur? Tómir dburðarpokar hentugir til þeirra nota Erl, Reykjavik. — Ja, nú þykir mcr fjöðrin vera orðin að slórum fugli, sagði Haukur Svein- björnsson á Snorrastöðum, er Timinn hringdi tii hans til að grennslast fyrir um nýjar aðferð- ir i loðnusöltun tii búfjárfóðurs, sem við höfðum heyrt, að hann væri upphafsmaður að. — Sann- leikurinn er sá, sagði Haukur, að ég tók þetta nú bara upp cftir ná- grönnum inínum, og auk þess hefur þetta áreiðanlega verið gert viðar um iand. Með þessari aðferð er fengið hlutverk handa plastáburðarpok- unum, sem allir flytja heim i hundraðatali á vorin, og sumir láta þvi miður hjá liða að ganga frá á sæmilegan hátt, en Haukur og þeir félagar hafa keypt loðnu á Akranesi og saltað hana sjálfir i pokana, þar sem þeir geta geymt hana alllengi, án þess að hún skemmist, og væri pokunum lok- að, svo að þeir yrðu loftþéttir, mætti vafalaust geyma hana til muna lengur. Fiskimjöl hefur löngum verið gefið islenzkum búpeningi, enda rikt af eggjahvituefnum og bæti- efnum. Það ætti hins vegar að vera óþarfi að kosta miklu til vinnslu hráefnisins i mjöl, ef unnt reyndist að koma á auðveldri leið til geymslu og hagnýtingar fyrir bændur. A sildarárunum gáfu margir saltsild, og þótti gott, en loðnusöltun hefur ekki verið til þessa framkvæmd af móttakend- um. Auk þess eru svo tunnurnar dýrar umbúðir, og þvi kjörið að spara stórarupphæðir með þvi að salta i poka, eins og áður er lýst. Framhald á 22. siðu. Bretar og Frakkar viðurkenna A-Þýzkal. NTB-Paris og A-Berlin Frakkar og Austur Þjóðverjar hafa ákveð- ið að taka upp stjórnmálasam- band. Löndin munu skiptast á ambassadorum, en ekki er vitað hvenær það kemur til fram- kvæmda. Fulltrúar iandanna tveggja hófu umræður i þessu skyni 17. janúar sl. Þá hafa Bretar og Austur Þjóð- verjar einnig orðið sammála um að taka upp stjórnmálasamband, samkvæmt fregnum frá austur- þýzku fréttastofunni ADN i gær. Skipzt verður á ambassadorum innan tiðar. Viðræður um gagn- kvæma stjórnmálalega viður- kenningu fóru fram i London eftir að utanrikisráðherrar landanna Sir Alec Douglas Home og Otto Winzer höfðu staðið i simaskeyta- sambandi. Austur-Þjóðverjar eru i stjórn- málasambandi við 71 land, þar af niu meðlimariki Nató. Búizt er við/að A-Þjóðverjar verði aðilar að Sameinuðu þjóðunum siðar á þessu ári. Bandarikjamenn hafa látið i ljós að þeir væru fúsir til að taka upp viðræður um stjórnmálalega viðurkenningu A-Þýzkalands, en bandarisk yfirvöld i V-Berlin upplýstu i gær, að ekkert hefði gerzt i málinu. Bandarikjamenn, Frakkar og Sovétmenn bera enn ábyrgð á öllu Þýzkalandi, sem sigurvegarar i siðari heimstyrjöldinni. Undirritun samnings rikjanna tveggja i Þýzkalandi fyrir jól var vottur um viðurkenningu A- Þýzkalands af hálfu vesturhluta landsins. A-Þjóðverjar hafa veriö éinangraðir og afskiptir siðan Al- þýðulýðveldið var stofnað fyrir 23 árum. Belgia var fyrsta aðildarland Nató, sem viðurkenndi A-Þýzka- land. Holland, Lúxemburg, Is- land, Danmörk, Noregur og Italia hafa einnig lýst þvi yfir, að þau muni skiptast á ambassadorum við A-Þýzkaland. asta ári, en þá náði áfengisneyzla á mann 2,81 lítra. Hér á eftir fer skrá yfir áfengis- neyzlu á mann miðað við 100% áfengi: Arið 1965 2,07 1 Arið 1966 2,32 1 Arið 1967 2,38 1 Arið 1968 2,11 1 Arið 1969 2,17 1 Arið 1970 2,50 1 Arið 1971 2,70 1 Arið 1972 2,81 1 I sambandi við þessar tölur er rétt að benda á, að þarna er að- eins átt við áfengi, semselt er á vegum Afengis- og tóbaks- verzlunar rikisins. En eins og ef- laust flestir vita berst ætið nokk- uð magn áfengis inn i landið með farmönnum, flugáhöfnum svo og farþegum. A móti kemur aftur sú staðreynd, að af þessum 2,81 litra, sem reiknað er að hver Is- lendingur hafi drukkið á siðasta ári hefur drjúgur skammtur farið i erlenda ferðamenn. Loftleiðir gáfu 250 þús. í Landhelgissjóð ENN eru að berast framlög i Landssöfn- un i Landhelgissjóð, og siðasta stóra framlagið var frá Loftleiðum h.f. Af- henti stjórn félagsins forsætisráðherra 250 þúsund i sjóðinn fyr- ir nokkru. Gyðingar í írak hverfa NTB, Tel Avfv. — Siðan i október I fyrra hafa 10 Gyðingar horfið I irak og ekkert tii þeirra spurzt. israeisk yfirvöld létu i gær i ijós ótta uin að mennirnir 10 væru látnir. Allir áttu þeir heima i Bagdad og stunduðu verzlun. Þeir hurfu án þess að koma nokkrum boðum til fjölskyldu og vina. Talsmaður israelskra yfirvalda sagði að eignir mannanna hefðu verið gerðar upptækar, sennilega samkvæmt skipun rikisstjórnar íraks. 1 útvarpssendingu fyrir nokkr- um vikum var upplýst að flestir Gyðingar i Irak væru farnir til ísrael, og allir yrðu það eftir stuttan tima. Annar talsmaður israelskra yfirvalda minnti á að 11 Gyðingar hefðu verið ákærðir fyrir njósnir og teknir af lifi i Irak 1969. — Við höfum áhyggjur af þvi hvað orðið hefur um mennina tiu, sagði hann. UPPREISN I URUGUAY NTB-Montevideo Rikisstjórn Uruguay baðst lausnar i gær, en talið er að það sé gert til að gefa forseta landsins Juan Maria Bordaberry frjálsar hendur við lausn vopnaðra átaka innan hers- ins. Leiðtogar landhers og flug- hershafa lýst þvi yfir,að þeir vilji koma forsetanum, hægrisinnan- um Juan Maria Bordaberry og rikisstjórn hans frá völdum, en sjóherinn styður enn forsetann. Sjóliðar með alvæpni héldu i gær úr hafnarhverfi borgarinnar inn i gamla borgarhlutann þar sem rikisstjórnarbyggingarnar eru. Liðsforingjar báðu óbreytta borgara að fara burt úr hverfinu og viðskiptalif stöðvaðist. Á sama tima tóku menn úr land- og flugher sex útvarps- stöðvar. Þrem var lokað, en hinar sendu út yfirlýsingu frá upp- reisnarmönnum, þar sem þess var krafizt að Antonio Francese léti af embætti varnarmálaráð- herra. Francese, 73 ára gamall fyrrverandi hershöfðingi var skipaður varnarmálaráðherra á miðvikudag. Stjórnarkreppan i Uruguay hófst á fimmtudag, er landher og flugher neituðu að viðurkenna út- nefningu Francese i embætti varnarmálaráðherra. Fulltrúar herjanna sögðu I hljóðvarps- og sjónvarpsviðtölum að þeir hlýddu ekki skipunum frá honum. Skömmu siðar lýsti Bordaberry forseti þvi yfir i útvarpsræðu að hann myndi hafa Francese áfram i embætti og hvatti hermenn og óbreytta borgara til að styðja sig, en aðeins flotinn hefur lýst þvi yf- ir að hann muni sýna forseta holl- ustu. Verkfall ídanska útvarpinu NTB, Kaupmannahöfn. — Um 800 starfsmenn við danska útvarpið iögðu I gær niður vinnu i mótmælaskyni vegna þess að 51 starfsféiaga þeirra hefur verið sagt upp. Verkfall þetta kom niður á öllum deiídum útvarpsins og rjúfa varð útsendingar bæði hljóðvarps og útvarps. Þeir, sem sagt var upp, voru ýmist lausráðnir eða ráðir til skamms tíma, m.a. fimm fyrrverandi trúnaðar- menn viðkomandi stéttar- félaga. Stjórn danska útvarpsins sagði starfsinönnum þessum upp i sparnaðarskyni. Samningafundur stjórnar- innar og fuiltrúa starfs- manna var haldið i gær.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.