Tíminn - 23.03.1973, Blaðsíða 2

Tíminn - 23.03.1973, Blaðsíða 2
2 Snjómunstur fyrir q 1000X20 1100X20 X f Seljum sólaða hjólbarða með ýmsum slitflatar munstrum ó fólksbíla jeppa oq vörubíla með djúpum slitmiklum munstrum Sími 30501 Varahlutir í gamla bíla Stýrisendar, benzindælur og sett i dælur, slitboltar og fóðringar, hjöruliðir, loftþurrk- ur, hraðamælisbarkar, pakkdósir, vatnslás- ar, höggdeyfar, felguboltar og rær, hurða- húnar og upphalarar. Gömul verð - takmarkaðar birgðir KJ , ÁRMÚLA 7 - SÍMI 84450 , Höfum á boöstólum mikiö úrval gardínustanga bæöi úr tré og járni. Einnig nýja gerð af viðarfylltum gardínubrautum. Kappar i ýmsum breiddum, spón- lagðir eða með plastáferð í flestum viðarlíkingum. Sendum gegn póstkröfu. Gardínubrautir h/f Brautarholti 18, s. 20745 TÍMINN Föstudagur 23. marz. 1973 Enn um himnafeðga og Landfari góöur! Mér var að berast Timinn frá 24. f.m. Þar er ,,Strákur” i dálk- um þinum. Ekki mun ég ræða það, sem er tilefni ritgerðar hans. Úr þvi að ávisanir eru hlutgengur gjaldeyrir og áfengissala er leyfð i landinu verður ekki við þvi gert, að áfengi sé borgað með þeim, enda erfitt að sjá, að þeim sé vandara um en peningunum. — Hitt likar mér vel, að til er fólk, sem er ömun að áfengiskaupum. Tilefni þess, að ég ónáða þig, er að Strákur setur það fram sem andstæður, að drekka áfengi, sem hann kallar ,,að fá sér ofurlitla hressingu og upplyftingu” og hins vegar ,,að setjast niður kveinandi og vorkennandi sjálfum sér”. Þetta er mælt af furðu litlum skilningi. Það er engin karl- mennska að neyta áfengis, enda miklu oftar gert af þvi, að karl- mennsku brestur. Og aldrei hef ég vitað mönnum gjarnara ,,að setjast niður kveinandi og vor- kennandi sjálfum sér”, en þegar þeir eru orðnir drukknir. Það er miklu nær þvi, að drykkjan sé andstaða karlmennskunnar en einkenni. Er það kannski karl- mennska, að þurfa að drekka i sig kjark? Eða er grobb og yfirlæti ölvaðra manna karlmennska? Ekki er kjökrið og vælið karl- mennska, en drukknum mönnum svo fleira er oft gjarnt að gráta það, sem þeir kalla ólán sitt, og mikla þá fyrir sér það, sem ódrukknum manni virðast smámunir einir. An þess að lasta Vestmanna- eyinga nokkuð, vil ég geta þess, að mér finnst vafasamt að kalla þá „dugmesta kjarna islenzku þjóðarinnar”. Sjálfsagt þola þeir fyllilega samanburð við hverja sem er, en þar fyrir er ekki vist, að þeir taki öllum öðrum fram. Tali Stráks um þá himnafeðga og gamla gráskegg á himnum, mun ég fáu svara. Mér hefur allt- af fundizt, að erfitt væri að gera grein fyrir þremur persónum guðdómsins, enda var það á sin- um tima ein erfiðasta skiinings- þraut lærðustu guðfræðinga, hvort sonurinn gæti verið jafn- gamall föðurnum. En þó ég leiði slikt hjá mér og viti að mikið brestur á, að ég skilji öll rök og lögmál tilverunnar, tel ég mig þó umkominn þess að segja Strák, að það þarf drjúgum vitrari mann en hann til að sjá fyrir hvað okkur er i raun og veru fyrir beztu. Svo mikið veit ég, að við höfum ekki bezt af takmarkalausu meðlæti og eftirlæti. Ef til vill hjálpar gos- ið i Eyjum einhverjum til skiln- ings á þýðingu verstöðvanna. Hafa ekki fyrrverandi ráðherrar veriðað segja, að þetta sem gerð- ist i Vestmannaeyjum snerti ekki almennt efnahagsástand i land- inu? Það þarf hyldjúpt skilnings- leysi á undirstöðu mannlifs i landinu til að láta sér slikt um munn fara. Kannski þarf eldgos til að kenna sumum leiðtogunum að meta framleiðslustöðvar og framleiðslustéttir landsins, ef það dugar þá til. En það skal ég segja Strák, að erindi manna i kirkju, er yfirleitt ekki það, að „hlusta á dauðan bókstaf”, þó að með hann kynni að vera farið, heldur að taka þátt i athöfn, sem kölluð er guðsþjón- usta, og meðal annars einkennist af góðum óskum. Haldi Strákur, að það skipti engu máli hvers við óskum, þá er það misskilningur, þvi að óskir okkar ráða miklu um framtiðina. Og ég held, að t.d. hrokagikkir, sem haldnir eru vindbelgingi, gætu haft gott af andlegu samneyti við hógværa menn og auðmjúka, sem bera virðingu fyrir lifinu og máttar- völdum þess, og mæta þvi með lotningu og tilbeiðslu. Og hvað sem kann að mega segja um is- lenzka kirkju og starfsmenn hennar nú, er þar þó um að ræða boðun þeirra eilifu sanninda, að það kæmi manninum ekki að neinu gagni, þó að hann eignaðist allan heiminn, ef hann biði tjón á sálu sinni. Og sá boðskapur á er- indi til okkar. Halldór Kristjánsson fsödjin | bekkir % til sölu. — Hagstætt verð. | Sendi i kröfu, ef óskaO er. I | Upplýsingar að öldugötu 33 | ^ simi 1-94-07. ^ Fyrirliggjandi og væntanlegt Nýjar birgðir teknar heim vikulega Sponaplötur 8-25 mm Plasthúöaöar spóna- plötur 12-19 mm Harðplast Hörplötur 9-26 mm Hampplötur 9-20 mm Birki-Gabon 16-25 mm Beyki-Gabonló 22 mm Krossviöur: Birki 3-6 mm, Beyki 3-6 mm, Fura 4-12 mm Harðtex með rakaheldu limi 1/8' '4x9' Harðviður: Eik (japönsk, amerísk, áströlsk), Beyki (júgóslavneskt, danskt), Teak, Afromosia, Iroko, /iAaghony, Palisander, Oregon Pine, Gullálmur, Ramin, Abakki, Amerísk hnota, Birki 1 og 1/2" til 3", Wenge Spönn: Eik, Teak, Pine, Oregon Pine, Fura, Gullálmur, Almur, Beyki, Abakki, Askur, Afromosia, Kofo, Amerísk hnota, Maghony, Palisander, Wenge Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt JÖN LDFTSSONHF. PÍPULAGNIR Stilli hitakerfi — l>agfæri gömul hita- kerfi Set upp hreinlætis- tæki — Hitaveitu- tengingar Skipti hita — Set á kerfið I)anfoss-ofn- ventha SÍMI 71388 BÍLSTJÓRARNIR AÐSTOÐA SíNDtBlL ASTÖÐIN HT EINGÖNGU GÓÐIR BÍLAR VIÐ SMÍDUM HRINGANA SIMI S491Q Fermingarveizlur 08-21.30. Tökum að okkur og útbúum alls kyns veizlumat, brauðtertur, smurt brauð Laugavegi 178 og margt fleira Sími 3-47-80 Enner tœkifœri... til að eignast hlut i banka Nu eru aðeins um 12 milljónir óseldar af hlutafjáraukningu Samvinnu- bankans úr 16 i 100 millj. kr. Ollum samvinnumönnum er boðið að eignast hlut Vilt þú vera með? $ SAMVINNUBANKINN

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.